Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2007, Side 121
ýtarlega skrá að ræða, heldur er nokkrum gripum eða stöðum fengið
það hlutverk að gefa umræðunni líf. Hvað táknar þetta riss, pár eða krot,
hverjir ristu það og hvers vegna? Til að skilja slíkt er nauðsynlegt að skilja
þörf manneskjunnar á því að koma hugmyndum sínum í myndrænt form.
Því mun ég byrja á alkunnu fyrirbæri sem er veggjakrot nútímans, sem
ég trúi að stafi af svipuðum þörfum nú sem endranær, þó að inntakið sé
annað. Einnig er mikilvægt að skilja eðli stíltegunda eða stílhugmynda,
sem eru einskonar opinberar hugmyndir samfélagsins eða ráðandi afla
innan þess, um hvað sé réttur eða rangur stíll og hvar megi eða megi
ekki bera hann á torg. Hvernig breiðast slíkar stíltegundir út? Nokkrar
stíltegundir víkingaaldar, og stílar sem héldu velli fram á miðaldir, koma
við sögu í greininni, en aðrar eldri eða yngri stíltegundir verða að mestu
látnar liggja á milli hluta.
Í seinni hluta greinarinnar mun ég fjalla sérstaklega um íslenska gripi,
einkanlega kotrutöflur nokkrar, sem lítt eða ekki hefur verið fjallað um
áður. Verða einnig fleiri íslenskir gripir dregnir fram í dagsljósið til að
styðja þær vangaveltur sem koma fram hér á eftir.
Eftirleiðis mun ég nota heitið krot sem beina þýðingu á hugtakinu
„grafitti“. Hefur það verið notað í fornleifafræði sem: „...hversdagsleg
list alþýðumanna, myndir sem skapaðar hafa verið utan við viðteknar
hugmyndir manna um listina.“1
Krot hefur verið til á öllum tímum og hefur tekið ríkjandi myndefni
hverju sinni og aðlagað að sínum þörfum og á sinn hátt. Ekki er mikill
munur á tækni og handbragði þótt aldur sé mældur í þúsundum ára eða
öldum. Af þessum sökum væri rangt að tala um stíl og er heitið krot
sennilega betra. Ég mun þó stundum nota heitið almennur alþýðustíll sem
samheiti við krot.2
Oft koma fram í krotinu viðteknar skoðanir þess samtíma sem skóp
það, einnig fordómar hans og leyndir straumar. Þar má reyna að ráða í
ýmsar gátur mannlegs atferlis og hugsunar, en það hlýtur að vera eitt af
markmiðum fornleifafræðinnar. Eitt er öllum sameiginlegt og hefur alltaf
verið, hið mannlega eðli. Hvernig sú mannlega eigind birtist okkur er
annað mál og jafnvel líklegt að hún sé breytileg eftir því hver spyr og
hvenær.
Pár, riss og krot
Allir þekkja nútímakrot á veggjum opinberra bygginga og víða annars-
staðar. Mörgum er þetta krot til ama og þykir oft ósómi að. Má þar nefna
krot á náðhúsum út um allan heim sem veitir innsýn í hugarheim manna.
120 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS