Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2007, Side 163
verið flóknari en svo að skiptingin væri aðeins milli „karlkyns“ og
„kvenkyns“ og meira en líklegt er að rétt sé að líta á börn sem sérstakt
kyngervi. Trúlegt er að verkaskipting hafi ekki síður byggt á efnahag og
framleiðsluháttum en líffræði. Ekki má gleyma því að mannkynið hefur á
ýmsum tímum skipt verkum margvíslega og verkaskiptingin breytist oft.
Þess verða fræðimenn að minnast.
Kyngervi skiptir einnig miklu máli þegar kemur að þjóðfélagsstöðu
og tign. Af búnaði kumla má oft ráða auð en önnur kuml eru látlaus
og án íburðar. Margir fræðimenn hafa litið svo á að íslensk kuml séu
fátækleg og þjóðfélagið virðist lítið stéttskipt, ef eitthvað megi ráða af
haugfé og greftrunarsiðum. Ef þessar niðurstöður eru bornar saman við
rík mannlegar grafir sem fundist hafa annars staðar á Norðurlöndum,
þ.e. í Noregi og Danmörku, virðist þetta rétt. Þegar grafirnar eru hins
vegar skoðaðar án slíks samanburðar horfir málið öðruvísi við. Í mörgum
gröfum er ótrúlega mikið haugfé og vel má lýsa þeim sem rík mannlegum.
Þegar járn er torfengið er það merki um auð að jarða mann með sverði
en meðal þess sem fundist hefur í íslenskum kumlum eru 16 sverð.
Bátkuml hafa fundist á Íslandi þó að þau hafi að vísu ekki verið eins vel
búin og Ásubergshaugurinn. Sem stendur er vitað um fimm slík kuml og
er eitt þeirra líklega kvenkuml. Ætla má að þessi bátkuml séu til marks
um tignarstöðu í samfélaginu. Eitt þeirra, karlmannskuml frá Kaldárhöfða
í Grímsnesi, innihélt tvo spjótsodda, öxi, skjaldarbólu, 6 örvarodda, sverð,
2 hnífa, öngla, blýsökku og ýmislegt fleira. Þetta er ljóslega tiltölulega
ríkmannlegt kuml, samanborið við meirihluta íslenskra kumla. Annað
mikilvægt bátkuml er kvenkumlið frá Vatnsdal í Patreksfjarðarhreppi, þar
sem voru 14 met, einnig koparkinga og arm bönd tvö úr koparblöndu,
30 sörvistölur, bronsprjónn og fingur hringur úr silfri, þórshamar úr silfri,
tréprjónn, hnífur og keðja úr koparblöndu. Þó að bein nokkurra annarra
einstaklinga hafi verið lögð í þetta kuml, telur Þór Magnússon, sem
rannsakaði það, víst að þetta hafi verið konukuml og hinir einstaklingarnir
hafi verið lagðir þar í síðar.16 Þetta er greinilega eitt af þeim íslensku
kumlum þar sem hátt settur einstaklingur hefur hvílt.
Nýlega fundust nálægt Seyðisfirði mannabeinaleifar með gripum sem
gerðu það að verkum að ályktað var að þetta væri kona, þó að ekki hafi
verið varðveitt nóg af greinanlegum beinum til að hægt sé að segja til um
það. Gripirnir sem fundust voru strax settir í samband við konu, það voru
4 nælur, vandaðar að sjá, og meira en 400 glerperlur.17 Ekki verður úr
því skorið hvort þarna er karl eða kona en gripirnir benda til ríkidæmis.
Þannig er ljóst að grafir hátt setts fólks finnast á Íslandi og dæmin sem
162 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS