Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Síða 2
Grétar Mar Jónsson, fyrrverandi alþingismaður, er
kominn á sjóinn á nýjan leik eftir að hafa stoppað í landi í eitt
kjörtímabil. Hann keypti 30 tonna bát og ætlar að róa út frá Suð-
urnesjum. Grétar treystir á frjálsar handfæraveiðar og grásleppu-
veiðar en gæti líka hugsað sér að skjóta hrefnur.
hitt málið
Þetta helst
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
Ofurlaun í innheimtu
Fyrrverandi
starfsmenn
gömlu
viðskipta-
bankanna
þriggja,
Landsbankans, Glitn-
is og Kaupþings, og
annarra fjármálafyr-
irtækja í landinu sem
fóru á hliðina um og
eftir efnahagshrunið
í haust, hafa staðið í
stappi við þrotabú þeirra síðustu mán-
uði út af vangoldnum, samningsbundnum launum. Í einhverjum
tilfellum hafa kröfurnar nú þegar verið samþykktar, meðal annars hjá
Straumi-Burðarási. Kröfur bankastarfsmanna byggjast á því að þeir
skrifuðu upp á starfssamninga við gömlu bankana sem féllu úr gildi
við bankahrunið í haust. Sumir þeirra hættu í bönkunum á meðan
aðrir færðu sig yfir í nýju bankana og starfa þar í dag.
bOrguðu
fyrir
pabba
Bræðurnir Karl og Steingrímur
Wernerssynir létu eignarhaldsfélag-
ið Milestone borga uppgjör upp á
8,5 milljónir króna vegna skattamála
föður þeirra, Werners Rasmussonar,
árið 2007. Karl og Steingrímur voru
eigendur Milestone. Greiðslan er til-
komin vegna sölu Werners á Ingólfs-
apóteki til Lyfja og heilsu árið 2007.
Lyf og heilsa var svo aftur í eigu
Milestone þar til í fyrra þegar eign-
arhaldsfélag í eigu þeirra bræðra keypti lyfjabúðirnar. Þetta kemur
fram í endurskoðendaskýrslu Ernst & Young sem unnin var að beiðni
umsjónarmanns með nauðasamningum Milestone, Jóhannesi Albert
Sævarssyni. Skýrslan var kynnt fyrir kröfuhöfum Milestone í byrjun
mánaðarins. Þeir höfnuðu nauðasamningum Milestone og verður bú
félagsins tekið til gjaldþrotaskipta.
í kjallaranum hjá systur
Sigmundur Ernir Rún-
arsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, er
með skráð lögheimili hjá
systur sinni á Akureyri,
samkvæmt þjóðskrá.
Sigmundur býr samt
sem áður ásamt eiginkonu sinni og
börnum í Hverafold í Grafarvogin-
um. Sigmundur bauð sig fram, eins
og frægt er orðið, í Norðausturkjör-
dæmi í síðustu alþingiskosningum
fyrir Samfylkinguna eftir að hafa
verið sagt upp störfum hjá Stöð 2.
Sigmundur segist í samtali við DV
vera kominn með sína eigin íbúð á
Akureyri. Sigmundur er fæddur á
Akureyri en hefur búið á höfuðborg-
arsvæðinu í fjölda ára vegna starfa
sinna í fjölmiðlum.
3
4 miðvikudagur 30. september 2009 fréttir
„Kjaftasögur“
um vændiskonu
í World Class
„Ég er satt best að segja hissa á
þeim að setja þetta svona fram
þar sem þeir hafa ekkert fyrir
sér í þessu,“ segir Björn Leifs-
son, betur þekktur sem Bjössi
í World Class. Eyjan.is fullyrti
í frétt sinni að nuddkona í lík-
amsræktarstöðinni hefði verið
rekin eftir að upp komst að hún
væri að selja blíðu sína. „Þessi
stúlka var rekin fyrir að mæta
seint og illa. Þetta eru bara
hreinar kjaftasögur,“ segir Björn
Rændi jóla-
skrauti
Í vikunni sem leið handtók lög-
reglan á Akranesi mann sem
var að láta greipar sópa í ólæstri
geymslu þar í bæ. Var hann í
óðaönn að bera muni, aðallega
jólaskraut, úr geymslunni þegar
til hans sást. Fram kemur í dag-
bók lögreglunnar að maðurinn
hafði unnið talsverðar skemmd-
ir á geymslunni, rifið niður ljós
og utanáliggjandi raflagnir. Í ljós
kom að sami maður hafði einnig
farið inn í bifreið sem stóð þarna
nærri, skemmt hana talsvert og
stolið úr henni öllu lauslegu.
Nýjar hraða-
myndavélar
1. október næstkomandi verða
tvær hraðamyndavélar á Hring-
vegi milli Hveragerðis og Selfoss
teknar í notkun. Jafnframt hef-
ur verið bætt við nýrri hraða-
myndavél í Hvalfjarðargöng-
um sem verður gangsett á sama
tíma. Um er að ræða stafræna
myndatöku þar sem upplýsingar
um hraðabrot eru sendar sam-
stundis til lögreglunnar. Ekki er
tekin mynd nema um brot sé að
ræða.
Ákærður fyrir
kynferðisbrot
Ríkissaksóknari hefur gefið út
ákæru á hendur starfsmanni
meðferðarheimilisins Árbótar
á Norðurlandi en hann hafði í
tvígang verið sakaður um kyn-
ferðisbrot gegn unglingsstúlkum
á heimilinu. Starfsmanninum
hefur verið sagt upp störfum til
frambúðar. Meðferðarheimil-
ið er einkarekið en með þjón-
ustusamning við Barnavernd-
arstofu. Fyrra málið kom upp
árið 2007 og var fellt niður þar
sem rannsóknin leiddi ekki til
ákæru. Seinna málið kom upp
fyrr á þessu ári og var rannsak-
að af lögreglunni á Akureyri. Af
því tilefni var fyrra málið tekið
upp aftur. Rannsókn lauk í vor
og voru bæði málin þá send til
ríkissaksóknara sem nú hefur
ákært manninn fyrir brotin.
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Með lögheiMili í
KjallaRa systuR siNNaR
Sigmundur Ernir Rúnarsson, þing-
maður Samfylkingarinnar, er með
skráð lögheimili hjá systur sinni á
Akureyri samkvæmt þjóðskrá. Sig-
mundur býr samt sem áður ásamt
eiginkonu sinni og börnum í Hver-
afold í Grafarvoginum. Sigmund-
ur bauð sig fram, eins og frægt er
orðið, í Norðausturkjördæmi í síð-
ustu alþingiskosningum fyrir Sam-
fylkinguna eftir að hafa verið sagt
upp störfum hjá Stöð 2. Sigmund-
ur segist í samtali við DV vera kom-
inn með sína eigin íbúð á Akureyri.
Sigmundur er fæddur á Akureyri en
hefur búið á höfuðborgarsvæðinu í
fjölda ára vegna starfa sinna í fjöl-
miðlum.
Í kjallaranum hjá systur sinni
„Í fyrsta lagi til að taka þátt í kosn-
ingunum og í annan stað hef ég
ákveðið að vera eins mikið á svæð-
inu og ég get og taka á mig þann
kostnað að reka tvö heimili. En það
er enginn fjárhagslegur ávinningur
af þessu,“ segir Sigmundur aðspurð-
ur af hverju hann færði lögheimili
sitt norður.
„Ég er með íbúð á Akureyri. Ég
held heimili bæði í Reykjavík og á
Akureyri,“ segir Sigmundur Ernir
í samtali við DV. Aðspurður hvort
ekki sé rétt að hann sé í augnablik-
inu skráður með lögheimili hjá syst-
ur sinni á Akureyri segir Sigmundur
að hann eigi eftir að flytja það. „Ég
bjó fyrst um sinn í kjallaranum hjá
henni,“ bætir hann við.
Falinn launakostnaður
Í annari grein reglna um þingfara-
kostnað um húsnæðis- og dval-
arkostnað segir að alþingismaður
fyrir kjördæmi utan Reykjavíkur-
kjördæma og Suðvesturkjördæm-
is fái mánaðarlega greiddar 90.700
krónur í húsnæðis- og dvalarkostn-
að. DV hefur áður fjallað um þessi
starfskjör þingmanna. „Fjárhæðin er
ætluð til að standa undir húsnæðis-
og dvalarkostnaði (gistingu, fæði) á
höfuðborgarsvæði eða í kjördæm-
inu ef þingmaður á heimili á höf-
uðborgarsvæði,“ segir í reglunum.
Þessi upphæð leggst ofan á mánað-
arlaun þingmanna sem eru 520 þús-
und krónur. Haldi þingmaður, sem á
aðalheimili utan höfuðborgarsvæð-
is, annað heimili í Reykjavík getur
hann óskað eftir að fá greitt álag, 40
prósent, á fjárhæðina 90.700 krónur.
Þetta þýðir að óski þingmaður eftir
því fær hann 126.980 krónur mán-
aðarlega ofan á 520.000 króna mán-
aðarlaunin sín.
Sparar fyrir Alþingi
Sigmundur kveðst ekki græða neitt
á þessu fyrirkomulagi sínu fjár-
hagslega. „Ef ég geri þetta ekki hef
ég heimild til að vera á hóteli á Ak-
ureyri og þá kemur þetta út á eitt.
Það er búið að afnema hitt ruglið
að þingmenn græði eitthvað á því
að hafa lögheimili annars staðar. Ég
er bara að fara eftir reglum Alþing-
is hvað húsnæðismál varðar. Ann-
aðhvort að fá 40 þúsund króna styrk
við að halda tvö heimili, eða fara á
hótel þar sem nóttin kostar tuttugu
þúsund krónur,“ segir Sigmund-
ur sem kveðst vera í það minnsta
sjö daga í mánuði á Akureyri. „Það
er einfaldlega ódýrara fyrir Alþingi
að ég sé með eigin íbúð á Akureyri.
Annars gæti ég bara verið á hóteli út
í hið óendanlega nánast,“ segir Sig-
mundur og bætir við: „Ef eitthvað er
þá er ég að spara fyrir Alþingi,“ segir
Sigmundur.
Styrkur frá Akureyri
Sigmundur segir aðspurður að hann
þiggi styrk frá Akureyrarbæ vegna
skólagöngu barna sinna í Reykja-
vík. Um er að ræða samkomulag
sem sveitarfélög hafa gert sín á milli
um að greiða námskostnað fyrir
börn sem eru í skóla utan lögheim-
ilissveitarfélags. „Ég fæ styrk. Mín
meginvinnuaðstaða er náttúrlega í
Reykjavík og Akureyrarbær borgar
fyrir tvö yngstu börnin mín leikskóla
og grunnskóla,“ segir Sigmundur.
Aðspurður hvort hann telji rétt að
hann fái styrk frá Akureyrarbæ fyrir
skólagöngu barna sinna í Reykjavík,
þegar fjölskyldan búi í raun þar, seg-
ir Sigmundur að hann geti vel flutt
lögheimili sitt suður aftur á morgun
ef því er að skipta og ítrekar: „Það
er enginn fjárhagslegur ávinningur
af þessu. Það er aðalatriðið í þessu
finnst mér. Akureyrarbær græð-
ir á því að ég borga mína skatta og
skyldur norður.“
SiguRðuR MikAEl jónSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
„Ef ég geri þetta ekki hef
ég heimild til að vera á
hóteli á Akureyri og þá
kemur þetta út á eitt“
Sigmundur og frú Þau eru nú bæði skráð til heimilis á heimili systur Sigmundar Ernis á Akureyri þrátt fyrir að vera bæði búsett í Grafarvogi.
lögheimili í kjallara
Sigmundur Ernir er með
skráð lögheimili hjá
systur sinni á Akureyri.
Helgi Felixson
Leyniupptökur af Jóni Ásgeiri
„Það verður allt í myndinni eins og til er
ætlast,“ segir Helgi Felixson kvikmynd-
argerðarmaður aðspurður hvort viðtal
við Jón Ásgeir Jóhannesson verði klippt
úr heimildarmynd hans Guð blessi Ís-
land. Helgi sagði Jón Ásgeir hafa krafist
þess að efni sem var tekið upp leyni-
lega fyrir myndina yrði fjarlægt. Þetta
kom fram í Ríkissjónvarpinu.
Helgi segir Jón Ásgeir ekki vera bú-
inn að hóta lögfræðingi í málið og við-
talið verði sýnt. „Það er ekkert við það
að athuga af minni hálfu. Ekki nema
menn séu hræddir við sannleikann,“
segir Helgi Felixson. Hann segir upp-
lýsingar, sem ekki hafa áður komið
fram um bankahrunið, verða birtar í
myndinni.
Í heimildarmyndinni verða einn-
ig viðtöl við Björgólf Thor Björgólfs-
son, Bjarna Ármannsson og Geir H.
Haarde. Helgi segir hluta myndarinn-
ar hafa verið tekinn upp leynilega fyrir
og eftir að viðtölin áttu sér stað. Helgi
gerði samninga við viðmælendur sína
um að þeir fengju að sjá hvernig við-
tölin væru matreidd í myndinni.
Helgi er Íslendingur búsettur í
Svíþjóð og talinn virtur kvikmynda-
gerðarmaður erlendis. Hann var fyrir
tilviljun staddur á Íslandi 6. október
þegar Geir H. Haarde hélt sína frægu
ræðu rétt fyrir setningu neyðarlag-
anna.
Helgi Felixson brást við ræðu
Geirs H. Haarde með því að taka upp
kvikmyndavélina og mynda það sem
fyrir augu bar og afraksturinn má sjá
í myndinni sem verður frumsýnd 6.
október næstkomandi á Íslandi og
verður í kjölfarið sýnd víða um heim.
birgir@dv.is
Sagður biðjast undan birtingu Jón Ásgeir
Jóhannesson er einn þeirra sem voru teknir
upp á laun við vinnslu myndarinnar.
2 föstudagur 2. október 2009 fréttir
2F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
NEITAÐI AÐ FAÐMA
BERLUSCONI
„GET EKKI
HÆTT AÐ
GRÁTA“
FRéTTIR
KOMpÁSMAÐUR
SAKAR BENNA
UM HÓTANIR
SYSTUR MIÐUR SíNYFIR
HNíFAÁRÁS í KEFLAvíK
FRéTTIR
NEYTENdUR
WERNERSSYNIR NOTUÐU MILESTONE:
BORGAÐI
SKATTANA
FYRIR
PABBA
8,5 MILLjÓNA KRÓNA „GjöF“ TIL FöÐUR
„EIGNIR FÆRÐAR UNdAN FéLAGINU“
EIGNIR FéLAGSINS ERU 5 MILLjARÐAR
EN SKULdIRNAR 80 MILLjARÐAR
dv.is
MIÐvIKUdAGUR OG FIMMTUdAGUR 30. SEPTEMBER –1. OKTÓBER 2009
dagBlaðið víSiR 133. TBl.
99. áRg. – vERð KR. 347
jÓN GNARR
ER HÆTTUR
dREKINN? „THE jOKE IS ON ME“
FÓLK
„EINHvER SÓLBRúNN
NÁUNGI. ALvEG RéTT,
BARACK OBAMA“
SpORT
SKRÁIR SIG HjÁ
SYSTUR SINNI
SIGMUNdUR BýR í GRAFARvOGI:
„éG BjÓ í KjALLARANUM HjÁ HENNI“
FRéTTIR
ERLENT
SKATT-
SvIKARAR
GRÆÐA ÁTÁ
OG FINGRI
GUNNAR
LEGGUR
TRöLLIÐ
„BEINAR HÓTANIR UM OFBELdI“
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
miðvikudagur og fimmtudagur 30. sept. - 1. okt. 2009
suðurland
Bitru
Barist við
m
yn
d
si
gt
ry
gg
ur
A
ri
jó
hA
nn
ss
o
n
kartöfluBændur
í þrengingum
mörg hundruð milljóna tjón vegna
næturfrosta í þykkvabæ
össur
loksins
vaknaður
á slóð
georgs
aldís Hafsteinsdóttir, bæj-
arstjóri í Hveragerði, berst
fyrir bæ án mengunar
guðni ágústsson fer yfir
stöðuna í landsmálunum
náttúru-
lækningafélagið
í Hveragerði
Jónas kristjánsson
verður gegnsærSUÐ
UR
LAN
D
1
5 þriðjudagur 29. september 2009 fréttir
HEIMTA OFURLAUNIN ÚR
ÞROTABÚUM BANKANNA
Fyrrverandi starfsmenn gömlu við-
skiptabankanna þriggja, Lands-
bankans, Glitnis og Kaupþings, og
annarra fjármálafyrirtækja í land-
inu sem fóru á hliðina um og eftir
efnahagshrunið í haust, hafa staðið
í stappi við þrotabú þeirra síðustu
mánuði út af vangoldnum, samn-
ingsbundnum launum sínum. Í ein-
hverjum tilfellum hafa kröfurnar nú
þegar verið samþykktar, meðal ann-
ars hjá Straumi-Burðarási
Kröfur bankastarfsmanna byggja
á því að þeir skrifuðu upp á starfs-
samninga við gömlu bankana sem
féllu úr gildi við bankahrunið í
haust. Sumir þeirra hættu í bönk-
unum á meðan aðrir færðu sig yfir í
nýju bankana og starfa þar í dag.
Heimta ofurlaun út
uppsagnarfrestinn
Bankamennirnir gera kröfu um að
fá greiddan uppsagnarfrest sinn
á þeim launum sem þeir voru á í
gömlu bönkunum. En eins og alþjóð
veit voru laun starfsmannanna í
gömlu bönkunum margfalt hærri en
í þeim nýju. Þeir sem færðu sig yfir í
nýju bankana og til annarra
fyrir- tækja
gera
kröfu um að fá mismuninn á þeim
launum sem þeir eru með í dag og
þeim launum sem þeir voru með
í sínu gamla starfi í þann tíma sem
uppsagnarfrestur þeirra varir.
Dæmi eru um að starfsmenn í
gömlu bönkunum hafi lækkað um
80 prósent eða meira í launum við
að fara úr gömlu bönkunum og í þá
nýju, til að mynda farið úr 5 millj-
ónum króna á mánuði og niður í
1 milljón. Starfsmaður sem til að
mynda var með sex mánaða upp-
sagnarfrest og var með fimm millj-
ónir í mánaðarlaun vill þannig fá
greiddan mismuninn á gömlu laun-
unum sínum og þeim launum sem
hann er á í dag í sex mánuði. Í slíku
tilfelli þarf þrotabú bankans að
greiða honum 24 milljónir króna. Ef
starfsmaður með sömu laun hefði
verið á eins og hálfs árs uppsagnar-
fresti hefði fjármálafyrirtækið þurft
að greiða honum 64 milljónir króna
út af uppsagnarfrestinum.
Sex mánaða uppsagnar-
frestir almennt séð
Sveinn Sveinsson hæstaréttarlög-
maður hefur lýst slíkum kröfum fyrir
um 100 bankastarfsmenn á síðustu
mánuðum en Samtök bankastarfs-
manna hafa vísað bankamönnum
sem vilja gera slíkar kröfur á Svein.
Hann segist aðspurður aðallega hafa
unnið fyrir fyrrverandi starfsmenn
Straums Burðaráss en einnig starfs-
menn Glitnis, Sparisjóðabankans
og eins fyrir Landsbankann. Sveinn
segir að kröfulýsingarfresturinn í
þrotabú smærri fjármálafyrirtækja
hafi verið skemmri en hjá stóru
bönkunum og því hafi hann aðal-
lega unnið fyrir starfsmenn þessara
smærri fyrirtækja enn
sem komið er.
Sveinn segir að
almennt séð hafi
bankamennirn-
ir verið með sex
mánaða uppsagn-
arfrest og því fá
þeir sex mánuði
greidda úr þrota-
búunum. Hann
segir hins vegar að
í sumum tilfellum
hafi banka-
starfs-
mennirnir verið með lengri upp-
sagnarfrest og geti því krafist þess af
þrotabúunum að fá greitt fyrir lengri
tíma. Stundum fara uppsagnarfrest-
ir þessara bankastarfsmanna upp í
eitt og hálft ár.
Reikna má með að flestar þessara
krafna bankamannanna verði sam-
þykktar þar sem bankastarfsmenn-
irnir hafa lögbundinn rétt á að gera
þær og slíkar launakröfur eru yfir-
leitt forgangskröfur í bú bankanna.
Sveinn segir að þó sé uppi ágrein-
ingur um það í einhverjum tilfellum
hvort líta beri á kröfurnar sem for-
gangskröfur.
Gera kröfu um bónusgreiðslur
og kaupréttarsamninga
Sveinn segir að annað sem hann
hafi sótt fyrir bankastarfsmennina
séu samningsbundnir bónusar sem
ekki voru árangurstengdir. Starfs-
menn fjármálafyrirtækja fengu
margir hverjir fasta bónusa ofan á
laun sín og fengu þeir bónusana
greidda óháð því hvernig þeir stóðu
sig í vinnunni eða hvernig staða
bankans var. Í einhverjum tilfellum
vilja bankastarfsmennirnir einnig fá
þessa bónusa greidda.
Einn af heimildarmönnum DV
innan úr bankakerfinu, sem ekki vill
láta nafns síns getið, segir að hátt-
settir starfsmenn í gömlu bönkun-
um lýsi öllum kröfum sínum í botn.
„Þeir lýsa meira að segja bónusum
og kaupréttarsamningum sem for-
gangskröfum,“ segir heimildarmað-
urinn en reikna má með að margir af
kúlulánþegum bankanna verði
meðal þeirra sem lýsi kröf-
um í þrotabú bankanna.
Kröfur starfs-
manna
Straums
flestar
samþykkt-
ar
Straumur hef-
ur verið þekkt
fyrir að borga góð laun. Félagið borg-
aði sem dæmi hæstu meðallaunin
árið 2006. Þá voru meðallaun hjá
fyrirtækinu 22,7 milljónir króna á ári
eða nærri tvær milljónir á mánuði.
Þau lækkuðu hins vegar í 12,5 millj-
ónir árið 2007. Því má reikna með
að kröfur fyrrverandi starfsmanna
Straums séu almennt séð afar háar,
en á heildina námu launakröfurnar
um 2,5 milljörðum króna.
Sveinn segir að búið sé að ganga
frá greiðslunum til starfsmanna
Straums. „Ég held að það sé búið
að greiða þetta. Ég er ekki að sækja
þetta lengur,“ segir Sveinn. Hann
segir að í tilfelli Straums hafi all-
ar launakröfurnar nema fimm sem
hann gerði fyrir fyrrverandi starfs-
menn bankans verið samþykktar.
Meðal þeirra krafna sem ekki voru
samþykktar var krafa Williams Fall,
fyrrverandi forstjóra Straums, upp á
630 milljónir króna en Fall var með
7,4 milljónir króna í laun á mán-
uði árið 2007 og voru mánaðarlaun
hans áætluð um 12,3 milljónir króna
á árinu 2009.
Ein af ástæðum þess að kröfu
Falls kann að hafa verið hafnað er sú
að í gjaldþrotalögum eru launa- og
bónuskröfur stjórnenda fyrirtækja,
meðal annars banka og annarra fjár-
málafyrirtækja, meðhöndlaðar sem
almennar kröfur en ekki forgangs-
kröfur, líkt og kröfur lægra settari
starfsmanna. Slitastjórnir bank-
anna geta því frekar hafnað kröfum
stjórnenda bankanna á forsendum
sem ekki eiga við um forgangskröfur
almennra starfsmanna.
Landsbankakröfur
rýra Icesave
Kristinn Bjarnason,
meðlimur í slitastjórn
gamla Landsbankans
sem tekur við kröfum
frá fyrrverandi starfs-
mönnum bankans, seg-
ir að einhverjar kröfur frá
fyrrverandi starfsmönn-
um bankans hafi
borist í
þrotabú bankans. Hann segir hins
vegar að kröfulýsingarfresturinn
renni ekki út fyrr en í lok októb-
er þannig að einhverjir starfsmenn
eiga örugglega eftir að lýsa einhverj-
um kröfum í búið. „Við eigum eftir
að sjá hvaða kröfur koma og hvaða
afstöðu við tökum til þeirra. Við
erum búnir að fá kröfur frá þeim sem
telja sig eiga einhverjar vangoldnar
launakröfur... Ef einhver hefur farið
að vinna annars staðar á lægri laun-
um er vel líklegt að hann geri kröfu
um mismuninn,“ segir Kristinn.
Kröfur fyrrverandi starfsmanna
gamla Landsbankans sem sam-
þykktar verða rýra það sem eft-
ir verður í þrotabúi bankans til að
greiða Icesave-skuldirnar til Breta
og Hollendinga og hærri upphæð
mun falla á íslenska þjóðarbúið fyr-
ir vikið.
Búið að afgreiða margar
kröfur hjá Kaupþingi
Búið er að afgreiða margar af þeim
kröfum sem fyrrverandi starfsmenn
Glitnis lýstu í þrotabú bankans, að
sögn Ólafs Garðarssonar, sem á
sæti í slitastjórn Kaupþings. Hann
segir að nokkrir tugir starfsmanna
Kaupþings hafi gert slíkar kröfur en
að hann hafi það ekki á hraðbergi
hverjir þetta eru né hversu háar fjár-
hæðir þrotabú Kaupþings hafi þurft
að greiða til starfsmannanna vegna
þess.
Ólafur segir að í flestum tilfellum
sé um að ræða launakröfur en eins
kröfur um bónusa. „Þetta eru aðal-
lega bara launin og bónusar... Við
flestar þessara krafna er einfalt að
InGI F. VILHjáLmSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Bankamenn krefjast ofurlauna Senn líður að því að kröfulýsingar-
frestinum í bú stóru viðskiptabankanna þriggja ljúki. Það skýrist ekki
fyrr en þá hversu háar kröfur starfsmenn og stjórnendur bankanna gera
í bú þeirra. Þá mun væntanlega einnig skýrast hvort æðstu stjórnendur
þeirra þrír, Sigurjón Árnason, Hreiðar Már Sigurðsson og Lárus Welding,
munu gera kröfur um vangoldin laun og bónusa.
fréttir 29. september 2009 þriðjudagur 5
Óttarr Möller
Óttarr Möller, fyrrverandi forstjóri
Eimskipafélagsins sem er rúm-
lega níræður að aldri, segir að 280
milljóna krafa sín í bú Straums-
Burðaráss hafi verið sett fram af
lögfræðingi sínum nú í sumar
fyrir mistök. „Þetta var bara mis-
skilningur. Það átti ekkert að gera
þessa kröfu. Lögfræðingurinn
minn gerði það hins vegar í góðri
trú,“ segir Óttarr, sem er alveg
hreint ótrúlega hress og spræk-
ur miðað við aldur, en krafan var
hluti af um 2,5 milljarða launa-
kröfum sem starfsmenn Straums
gerðu í búið í sumar. Óttarr hef-
ur hins vegar aldrei starfað hjá
Straumi.
Slitastjórn Straums hafnaði
kröfu Óttars, líkt og kröfu fyrrver-
andi forstjóra Straums, Williams
Fall, í ágúst síðastliðinn. Krafa
Óttars var sú næsthæsta á eftir
kröfu Falls, sem bað um 630 millj-
ónir króna.
Starfslokasamn-
ingur frá 1979
Krafa Óttars var sett fram út af
starfslokasamningi sem hann
gerði við Eimskipafélag Íslands
þegar hann lét af störfum sem for-
stjóri þess árið 1979. Óttarr, sem
fæddur er árið 1918, hafði þá ver-
ið forstjóri Eimskipafélagsins frá
1962.
Gaman er að geta þess að Ótt-
arr er aðeins fjórum árum yngri
en Eimskipafélagið sjálft en félag-
ið fagnaði 90 ára afmæli sínu árið
2004 og var Óttarr að sjálfsögðu í
veislunni, líkt og sést á myndinni
með fréttinni.
Í starfslokasamningnum var
meðal annars kveðið á um að Ótt-
arr myndi fá greidd laun frá Eim-
skipafélaginu út lífið auk þess sem
hann átti að njóta bílafríðinda og
að kostnaður hans við skrifstofu-
hald, símreikningar og annað slíkt
átti að vera greiddur af félaginu.
Ástæðan fyrir því að krafan
var gerð fyrir hans hönd á hend-
ur Straumi-Burðarási er sú að árið
2004 sameinaðist fjárfestingaarm-
ur Eimskipafélagsins, Burðarás,
fjárfestingasjóðnum Straumi. Úr
varð fjárfestingabankinn Straum-
ur-Burðarás sem Björgólfur Thor
Björgólfsson var stærsti hluthaf-
inn í. Skuldbindingar Eimskipa-
félagsins gagnvart Óttari færðust
svo yfir í hinn nýja sameinaða
fjárfestingabanka með Burðarási
og var staðið við þær eftir samein-
inguna.
Ekki er vitað á hvaða forsend-
um krafan var reiknuð út áður en
hún var gerð en ljóst er út frá því
hversu há hún er að Óttarr hlýtur
að hafa verið á sæmilegustu kjör-
um hjá Eimskipafélaginu.
Naut fríðindanna
þar til fyrir nokkru
Óttarr segir að nú sé búið að strika
kröfu hans út hjá slitastjórninni
og að hann vilji sem minnst af
málinu vita hér eftir. Hann seg-
ist hafa notið þeirra fríðinda sem
starfslokasamningurinn kvað á
um þar til fyrir nokkrum mánuð-
um. „Já, þetta var tekið af mér fyr-
ir nokkrum mánuðum. Þetta voru
bílafríðindi og skrifstofukostnað-
ur,“ segir Óttarr en einnig launa-
greiðslur, líkt og áður hefur kom-
ið fram.
Af sögunni af Óttari að dæma
sést að íslenska efnahagshrun-
ið dregur ýmislegt sérstakt og
kynlegt fram í dagsljósið, meðal
annars að fjárfestingabanki hafi
haldið áfram að standa við háar
skuldbindingar skipafélags gagn-
vart fyrrverandi forstjóra þess sem
kominn er á tíræðisaldur. Af orð-
um Óttars að dæma er krafan hins
vegar úr sögunni og hyggst hinn
aldni heiðursmaður ekki gera
neitt frekar í málinu og unir sáttur
við niðurstöðu slitastjórnarinnar,
enda var krafan byggð á misskiln-
ingi frá byrjun og kærði hann sig
aldrei um að sækja hana.
Níræður forstjóri
harmar kröfuna
„Já, þetta var tekið
af mér fyrir nokkrum
mánuðum. Þetta voru
bílafríðindi og skrif-
stofukostnaður.“
Áralöng fríðindi Óttarr naut fríðindanna þar til fyrir nokkrum mánuðum. Óttarr sést hér til hægri ásamt Indriða Pálssyni, fyrrverandi forstjóra
Skeljungs, á 90 ára afmæli Eimskipafélagsins árið 2004.
eiga en það sem einhver vafi leikur
á fer sína leið [innskot blaðamanns:
fyrir dómstóla],“ segir Ólafur en í
sumum tilfellum voru bankastarfs-
menn með samningsbundna bón-
usa sem þeir fengu greidda nokkrum
sinnum á ári líkt og áður segir. Ólaf-
ur segir að í slíkum tilfellum sé mjög
erfitt fyrir slitastjórnina að neita að
greiða bónusana.
Hann segir að vel kunni að vera
að einhverjir bíði með að lýsa kröfum
sínum þar til síðar. „Það getur vel ver-
ið að einhverjum finnist þetta ósann-
gjarnt en það er réttur hvers manns
að láta reyna á þetta,“ segir Ólafur en
hann segir að slitastjórnin hafni öll-
um þeim kröfum þar sem einhver
vafi leikur á um að menn eigi rétt á
því sem þeir krefjast. „Við erum bún-
ir að greiða langflestar óumþrættar
forgangskröfur en alls staðar þar sem
er einhver vafi á réttmæti krafnanna
höfnum við þeim,“ segir Ólafur.
Líkt og hjá Kaupþingi rennur
kröfulýsingarfresturinn hjá Glitni út
síðar en hjá Landsbankanum, eða
í lok nóvember. Ekki náðist í Einar
Gaut Steingrímsson hjá slitastjórn
Glitnis í gær.
Samningar gömlu
bankanna enn í gildi
Samningarnir sem bankastarfsmenn-
irnir gerðu við bankana á meðan
góðærið stóð sem hæst gilda því enn
og geta bankamennirnir enn fengið
greitt frá þrotabúunum samkvæmt
þeim að hluta til. Þessir samning-
ar bankastarfsmannanna hafa löng-
um þótt vera úr öllu samræmi við
kjör annars fólks í landinu. En meðal
þess sem var algengt hjá starfsmönn-
um bankanna voru launagreiðslur
upp á milljónir króna, fastar bónus-
greiðslur, kaupréttarsamningar, bíla-
styrkir, greiðsla trygginga og ákvæði
um að bankinn ætti að greiða fyrir
framhaldsnám starfsmannanna auk
þess sem starfsmennirnir ættu rétt á
hluta launa sinna á meðan þeir væru
í námi.
Samningarnir halda því að hluta
til á meðan á uppsagnarfrestinum
stendur. Forsendurnar sem samning-
arnir voru gerðir á skipta engu máli
í því samhengi og er íslenska efna-
hagshrunið ekki tekið með í reikn-
inginn þegar kröfur starfsmannanna
eru metnar. Afar líklegt er að í lang-
flestum tilfellum verði orðið við kröf-
um bankastarfsmannanna fyrrver-
andi um launa- og bónusgreiðslur
jafnvel þó að bankakerfið hafi hrun-
ið og aðstæðurnar í íslensku samfé-
lagi séu allt aðrar nú en þær voru fyr-
ir hrun.
„Það getur vel verið að
einhverjum finnist þetta
ósanngjarnt en það er
réttur hvers manns að
láta reyna á þetta.“
Kröfu Falls hafnað Slitastjórn Straums hafnaði nýlega kröfu Williams Fall upp á rúmlega 600 milljónir króna vegna vangoldinna launa og bónusa. Íslenskir banka-menn gera nú unnvörpum launa- og bónuskröfur upp á milljónir króna í hina föllnu banka.
„Það er nú lítið annað að gera. Mað-
ur verður eitthvað að vinna, þannig
að ég er að fara til sjós á nýjan leik,“
segir Grétar Mar Jónsson, sjómaður
og fyrrverandi alþingismaður, sem
festi nýverið kaup á 30 tonna báti
sem hann ætlar að róa á frá Suður-
nesjum.
Grétar Mar hætti á Alþingi eft-
ir kosningarnar í vor og fékk þriggja
mánaða biðlaun eftir að þing-
mennsku lauk. Hann hefur undan-
farið verið að líta í kringum sig og
ákveða hvað taki við nú þegar hann
er ekki háttvirtur þingmaður leng-
ur. Það lá beinast við að Grétar Mar
færi beint á sjóinn aftur, enda búinn
að vera skipstjóri í 29 ár og sjómað-
ur í 37 ár. „Það hefur verið lítið fram-
boð af störfum, þannig að ég keypti
þennan bát. Ef frjálsu handfæraveið-
arnar verða áfram mun ég stunda
þær og hugsanlega fara á grásleppu
ef það er í boði. Annars geri ég þetta
út á hvalaskoðun, sjóstangaveiði
fuglaskoðun eða Eldeyjarsiglingar,“
segir Grétar.
Báturinn var var áður notaður til
hrefnuveiða og segir Grétar að vel
geti verið að hann fái sér hrefnu-
byssu líka.
Þingmenn ónothæfir til sjós
„Ég byrjaði til sjós kornungur, 13 eða
14 ára. Ég var orðinn skipstjóri 22
ára og maður reynir að gera eitthvað
með þennan bát, hvort sem það er
tengt sjómennsku eða túrisma. Það
er reyndar fátt í boði þessa dagana
og engar veiðiheimildir á lausu,“ seg-
ir Grétar . Fyrir utan eitt kjörtímabil
á Alþingi hefur hann aðeins unn-
ið eitt starf í landi um ævina þegar
hann var forseti Farmanna- og fiski-
mannasambands Íslands í tvö ár.
Hvernig stenst þingmennsk-
an annars samanburðinn við sjó-
mannslífið? „Það má segja að fólkið
sem er á þingi væri ónothæft til sjós.
En flestir sjómenn væru nothæfir á
þingi, því hlutirnir ganga hægt fyrir
sig á öllum sviðum í þinginu. En öf-
ugt til sjós, þar ganga hlutirnir hratt
fyrir sig og menn tvínóna ekkert við
hlutina. Það eru engir menn í þjóðfé-
laginu sem bera raunverulega meiri
ábyrgð en skipstjórnarmenn, varð-
andi siglingar í vondum veðrum og
þurfa að standa sig og endurskoða
hlutina mörgum sinnum á dag. Á
fiskveiðum þurfa menn að taka ýms-
ar ákvarðanir hratt og vel. Þar þýðir
ekkert hálfkák þar sem mál eru sett
í nefndir og rædd fram og til baka,“
segir Grétar.
„Vinnubrögðin á Alþingi varð-
andi alla huti eru ægilega hægvirk,
þó menn séu fullir af eldmóði tekur
allt langan tíma, jafnvel þó tillögurn-
ar séu mjög góðar. Margir þingmenn
eru hræddir við að taka ákvarðanir
og bregðast skjótt við hlutunum.“
Kostar á við hálfan jeppa
Aðspurður hvort báturinn, sem ber
nafnið Njörður, hafi verið stór fjár-
festing svarar Grétar: „Báturinn
kostar svipað og hálfur jeppi, um
5 milljónir króna.“ Hann segir enn
óráðið hvort hann verði einn eða
fái fleiri með sér í áhöfn Njarðar.
„Ég veit ekki hvað við verðum marg-
ir eða hvaða verkefni við komumst
í. Það ætti auðvitað að innkalla all-
ar veiðiheimildir og búa til frjálst
markaðskerfi í kringum nýtinguna á
auðlindinni.“
Hann ítrekar að nýir menn eigi
að fá meiri tækifæri til þess að veiða
fiskinn í sjónum. „Ég er ein af hetj-
um hafsins og hermönnum þjóð-
arinnar og ætla að vera það áfram.
Ég er stoltur af mínum félögum sem
hafa verið til sjós í gegnum tíðina.
Það á að hleypa nýjum mönnum
inn í sjávarútveginn. Þeir eru hetj-
ur hafsins og hermenn þjóðarinnar
og eiga að fá meiri verkefni núna til
þess að bjarga þessu þjóðfélagi.“
BÚINN MEÐ BIÐLAUN
OG KEYPTI BÁT
„Það má segja að fólk-
ið sem er á þingi væri
ónothæft til sjós. En
flestir sjómenn væru
nothæfir á þingi.“
Grétar Mar Jónsson
Þingmaðurinn fyrrverandi
festi kaup á gömlum 30
tonna hrefnuveiðibáti sem
ber nafnið Njörður. Hann
getur vel hugsað sér að gera
út á siglingar fyrir ferðamenn,
enda engar aflaheimildir á
lausu. Mynd Karl Peterson
valGeir örn raGnarsson
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Fellur ekki verk úr hendi
Grétar Mar hefur migið í
saltan sjó síðan í æsku og
verður ekki í vandræðum um
borð í Nirði.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Laugavegi 178, 105 Rvk
sími 551-3366 www.misty.is
opið mán-fös 10-18, lau 10-14
Teg. 86200 - létt fylltur
og flottur BC skálum á kr.
3.950,- mjúkar buxur í stíl á
kr. 1.950,-
Teg. 81103 - létt fylltur í BC
skálum á kr. 3.950,- buxur í
stíl á kr. 1.950
Teg. 82115 - mjög flottur
í CDE skálum á kr. 3.950,-
buxur í stíl á kr. 1.950,-”
Teg. 86200
Teg. 86200
Teg. 86200