Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Blaðsíða 6
Sandkorn
n Ögmundur Jónasson, fyrrver-
andi heilbrigðisráðherra, var
maður dagsins á miðvikudag
þegar hann sagði af sér ráð-
herradómi. Upphófst þá mikið
fjölmiðlafár og trúðu margir
því að rík-
isstjórn Jó-
hönnu Sig-
urðardóttur
væri feig.
Ráðherrann
bar fyrir sig
sem ástæðu
hið dulda
ofbeldi Jó-
hönnu sem krafist hafði ein-
hugar. Síðan lýsti hann fullum
stuðningi við stjórnina. Flestir
eru á því að hann hafi einfald-
lega ekki lagt í hinn blóðuga
niðurskurð sem fram undan
er þar sem hundruðum eða
jafnvel þúsundum af félögum
gamla formannsins í BSRB í
heilbrigðiskerfinu verður sagt
upp.
n Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður VG, má ágætlega una
við afsögn Ögmundar. Þar með
dregur úr stjórnarandstöðu
innan ríkisstjórnar. Og takist
Steingrími
sæmilega
upp með að
semja um
Icesave og
aðrar slig-
andi skuld-
ir ríkisins
getur hann
vænst þess
að verða endurkjörinn undir
merkjum hins sterka leiðtoga.
Það er þó öldungis víst að ára-
langri valdabaráttu turnanna
tveggja innan VG er síður en
svo lokið og Ögmundur bíður
færis að ná formannsstólnum.
n Bítlaekkjan Yoko Ono er
væntanleg til Íslands að kveikja
á friðarsúlunni á afmælis-
degi eiginmanns síns heitins.
Heimsóknum ekkjunnar fylgja
gjarnan hamfarir í stjórnmál-
um og
efnahags-
lífi eins
og vefritið
Pressan
rifjar upp.
Yoko Ono
kom fyrst
haust-
ið 2007.
Þá sprakk
borgarstjórnin í REI-málinu
og stjórnmálaástandið í land-
inu var á hvolfi lengi á eftir.
Ári seinna mætti ekkjan og
þá hrundi fjármálakerfið með
öllum bönkunum þremur sem
leiddi til falls ríkisstjórnarinn-
ar. Nú er Yoko enn á leið til
landsins og ríkisstjórnin ramb-
ar á brún hengiflugs.
6 föstudagur 2. október 2009 fréttir
Horfur eru á að Geysir Green Energy
komist að mestu í eigu ríkisins og líf-
eyrissjóða verði hugmyndir um eign-
arhald á HS Orku að veruleika. Sam-
kvæmt heimildum DV fengi Magma
Energy erlendan hluta GGE en inn-
lendi hlutinn, HS Orka og önnur
verðmæti félagsins, yrði í eigu lífeyr-
issjóða fyrst og fremst. Þessi lausn
yrði í samræmi við stefnu stjórnvalda
sem vilja að orkuvinnslan á Reykja-
nesi verði áfram í meirihlutaeign
landsmanna.
Nýir menn við stjórnvölinn
HS Orka er nú að 43 prósentum í eigu
kanadíska félagsins Magma Energy
en 57 prósent eru í eigu GGE. Starf-
semi kanadíska félagsins hér á landi
er í eigu Magma Energy Sweden
AB. Dótturfélagið sænska var stofn-
að fyrr á þessu ári og er stofnfé þess
1,8 milljónir íslenskra króna. Stjórn-
arformaður félagsins er Lyle Emer-
son Braaten, til heimilis í Vancouv-
er í Kanada. Tilgangur félagsins er
rannsóknir og þróun og nýting jarð-
varmavirkjana.
Yfirstjórn Geysis Green Energy er
að mestu í höndum Íslandsbanka og
Landsbankans. Fyrirtækið skuldar
Íslandsbanka vel á þriðja tug millj-
arða króna auk þess sem bankinn á
40 prósenta hlut í félaginu ásamt líf-
eyrissjóðum í krafti Glacier Renew-
able Energy Fund.
Landsbankinn fer með hluti eign-
arhaldsfélagsins Atorku, sem átti lið-
lega 40 prósenta hlut í GGE. Atorka er
í greiðslustöðvun um þessar mundir.
Nýverið var skipt um stjórn Geys-
is Green Energy. Eyjólfur Árni Rafns-
son, forstjóri Mannvits ehf., er nú
sem áður stjórnarformaður og full-
trúi þeirra eigenda sem enn eru ekki
í fangi ríkisbankanna. Tveir menn frá
Vestia, rekstrarfélagi Landsbankans,
tóku sæti í stjórn GGE nýverið, þeir
Steinþór Baldursson, forstjóri Vestia,
og Þórður Ólafur Þórðarson. Einar
Sigurðsson og Gunnar Engilbertsson
sitja þar fyrir hönd Íslandsbanka og
Glacier Renewable Energy Fund.
Tryggja innlent meirihlutavald
Þannig er ljóst að kröfuhafar, Ís-
landsbanki og Landsbanki, ráða
nú ferðinni í GGE. Íslandsbanki á
handveð í öllum eignum félagsins í
HS Orku en skuldir þess við bank-
ann eru vel á þriðja tug milljarða
króna eins og áður segir. Þannig er
ljóst að takist samningar við lífeyr-
issjóðina léttir það verulega undir
með fjármögnun Íslandsbanka.
Samkvæmt heimildum DV er
ekki ætlunin að strika út eign nú-
verandi hluthafa og reyna að draga
sem mest úr tjóni bankanna með
því að bjóða félagið til sölu. Þvert
á móti er rætt um að núverandi
hluthafar fái að halda eign sinni og
ítökum í félaginu að einhverju leyti.
Viðræðuhópi, sem settur hefur ver-
ið á fót, er ætlað að sjá svo um að
ríkið, stórir lífeyrissjóðir og Grinda-
víkurbær geti eignast hluti Atorku
og Glacier Fund í Geysi Green En-
ergy. Nokkrir viðmælendur DV
telja þó hreinlegast að fara sömu
leið og farin var hjá Árvakri hf, að
strika út allt hlutafé gömlu hluthaf-
anna og kröfuhafarnir, bankarnir,
seldu GGE.
Magma og GGE í eina sæng?
Með atbeina nýju stjórnarmann-
anna í GGE er ætlunin að koma mál-
inu svo fyrir að HS Orka verði í meiri-
hlutaeign Íslendinga. Slík niðurstaða
er stjórnvöldum þóknanleg, en þau
hafa lagst gegn því að HS Orka kom-
ist í meirihlutaeign erlendra fjár-
festa. Einkum hafa ráðherrar VG ver-
ið andsnúnir erlendu eignarhaldi á
orkuvinnslunni.
Ein ástæða þess að áhersla er lögð
á kaup lífeyrissjóðanna er sú að Ís-
landsbanki gæti innan tíðar kom-
ist í eigu erlendra kröfuhafa og þar
með næðu útlendingar tangarhaldi á
orkuvinnslunni á Reykjanesi í gegn-
um slíkt eignarhald.
Þá er einnig rætt um að lífeyris-
sjóðirnir og fleiri kaupi HS Orku af
GGE. Magma og GGE gætu þá gengið
í eina sæng og haldið erlendum verk-
efnum félagsins, svo sem í Þýskalandi
og Kína, innan sinna vébanda.
JóhaNN haukssoN
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Íslandsbanki gæti inn-
an tíðar komist í eigu
erlendra kröfuhafa
og þar með næðu út-
lendingar tangarhaldi
á orkuvinnslunni á
Reykjanesi í gegnum
slíkt eignarhald.
oddvitar ríkisstjórnarinnar Eftir er að sjá hvernig nýir stjórnarmenn ríkisbankanna í GGE framfylgja stefnu stjórnvalda um
meirihlutaeign landsmanna á orkufyrirtækjum.
Geysir Green á
valdi ríkisins
Fulltrúar tveggja ríkisbanka hafa tekið sæti fjögurra stjórnarmanna af fimm í Geysi
Green Energy. Vinnuhópur reynir að fá lífeyrissjóði og fleiri til að tryggja eignarhald
Íslendinga á meirihlutaeign GGE í HS Orku. Líklegt er að Magma Energy og GGE
sameinist takist samningar um meirihlutaeign íslenskra félaga á HS Orku.
arður af orkuvinnslu Stjórnvöldum er í mun að tryggja
að HS Orka verði í meirihlutaeign Íslendinga og ráða nú
ferðinni hjá GGE, meirihlutaeiganda orkufyrirtækisins.