Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Blaðsíða 12
12 föstudagur 2. október 2009 fréttir
Icesave vIð það að slIga ríkIsstjórnIna
Á næturfundi þingflokks VG aðfara-
nótt fimmtudags fékk Steingrím-
ur J. Sigfússon, formaður flokks-
ins, fullt og óskorað umboð til að
ljúka samningum við Hollendinga
og Breta um Icesave-fyrirvarana á
þeim forsendum sem nú liggja fyr-
ir. Jafnframt taldi Steingrímur sig
hafa fengið tryggingar fyrir því í
einkasamtölum við þingmenn og á
umræddum fundi þingflokksins að
málið nyti nægjanlegs stuðnings til
að afgreiða endanlega gerð málsins
á Alþingi.
Um fyrra atriðið reyndist full
samstaða eins og málinu er lýst
fyrir blaðamanni DV. Um trygg-
ingar Steingríms fyrir framgangi
málsins á Alþingi leikur meiri vafi.
Þingmennirnir Ögmundur Jón-
asson, Atli Gíslason og Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir áskilja sér rétt til
þess að skoða efnislega niðurstöðu
málsins þegar það kemur til þing-
legrar meðferðar. Ásmundur Ein-
ar Daðason og jafnvel Lilja Móses-
dóttir eru tvístígandi.
Við blasir að ofangreindir þing-
menn VG og jafnvel fleiri vilja ekki
samþykkja neitt óséð og án þess að
hafa skoðað efni samningsins þeg-
ar þar að kemur.
Af því leiðir rökrétt að tæplega
er unnt að tala um að Steingrímur J.
Sigfússon, formaður VG, hafi fengið
skilyrðislausan stuðning fyrir fram
við þá niðurstöðu sem hann ætlar
á næstu dögum að hlutast til um að
ná í samningum við Hollendinga
og Breta um breytingar á fyrirvör-
um vegna ríkisábyrgðar á Icesave.
Hótun um stjórnarslit
Í kjölfar flokksstjórnarfundar Sam-
fylkingarinnar um síðustu helgi
setti forysta flokksins með Jóhönnu
Sigurðardóttur í fararbroddi mik-
inn þrýsting á forystu VG um að
ljúka yrði Icesave-málinu enda
væru tafir á afgreiðslu þess einar og
sér farnar að valda þjóðinni vand-
ræðum og fjárhagslegum skaða.
Gerð var krafa um að ríkisstjórnin
talaði einum rómi en ekki marg-
radda. Óþolið var orðið slíkt að nú
var hótað stjórnarslitum ef ekki
tækist samstaða um að koma mál-
inu í gegnum þingið á atkvæðum
stjórnarflokkanna einna.
Undir þessum þrýstingi sagði
Ögmundur Jónasson af sér embætti
heilbrigðisráðherra á miðvikudag.
Engum blöðum er um það að fletta
að honum var stillt upp við vegg;
framkvæmdavaldið yrði að tala
einum rómi í málinu. Yfir vötnun-
um sveif hótun um að ríkisstjórnar-
samstarfinu yrði slitið fengi ríkis-
stjórnin ekki sínu framgengt.
Við þessi skilyrði kaus Ögmund-
ur að segja af sér ráðherraembætti
til þess að geta talað frítt um málið.
Þannig yrði hann ekki viðskila við
samvisku sína og sannfæringu, eins
og hann orðaði það sjálfur. Hann
tók tólin, sem ríkisstjórnin ætlaði
að nota til að farga sér, gekk út og
bjargaði ríkisstjórninni þar með,
eins og það er orðað í eyru blaða-
manns DV.
Stóð við kynjahlutföllin
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir er
fyrsti þingmaður VG í Suðvestur-
kjördæmi. Þar vann VG góðan sig-
ur í þingkosningunum í vor og þótti
hún eiga kall til að gerast eftirmað-
ur Ögmundar í heilbrigðisráðu-
neytinu. Hún afþakkaði með svip-
uðum rökum og Ögmundur. Hún
gæti auk þess ekki tekið afstöðu fyr-
ir fram til máls sem hefði ekki kom-
ið fyrir sjónir hennar.
Álfheiður Ingadóttir tók því sæti
Ögmundar í heilbrigðisráðuneyt-
inu. Þar með virðist Steingrímur
J. einnig hafa efnt fyrirheit um að
jafna hlut kynjanna af hálfu VG í rík-
isstjórninni. Reyndar hallaði ekki á
konur í minnihlutastjórn Jóhönnu
sem tók við völdum 1. febrúar síð-
astliðinn. Einungis tveir karlar sitja
nú í ríkisstjórninni fyrir VG, Stein-
grímur J. og Jón Bjarnason.
Þáttur Jóns Bjarnasonar
Athyglisverð er staða Jóns Bjarna-
sonar, sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra, í þessu sambandi.
Vafalaust hafa spor Ögmundar út
úr ríkisstjórninni og ástæður af-
sagnar hans togað einnig í fætur
Jóns þegar hótun um stjórnarslit
var fram komin. Jón er sem kunn-
ugt er harður andstæðingur að-
ildar að Evrópusambandinu og
mikill efasemdamaður um skuld-
bindingar Icesave-ríkisábyrgðar-
innar. Hann, eins og aðrir þing-
menn VG, greiddu fyrirvörum
Alþingis við ríkisábyrgðina atkvæði
sitt að lokum á sumarþinginu. At-
kvæðin 34 að baki meirihlutanum
skiluðu sér öll eftir mánaðalangar
deilur um málið.
Jón Bjarnason kaus aftur á móti
að segja fátt eftir afsögn Ögmund-
ar og tók samkvæmt heimildum
DV ekki til máls á næturfundi þing-
flokks VG aðfaranótt fimmtudags-
ins.
Á það er að líta að framganga
Jóns í ýmsum málum er varða
stefnumið ríkisstjórnarinnar í sjáv-
arútvegsmálum og opin andstaða
hans við aðild að ESB fer ákaflega
í taugarnar á forystu Samfylkingar-
innar. Svo rammt kvað að andstöð-
unni við Jón á flokksstjórnarfundi
Samfylkingarinnar um síðustu
helgi, að fram komu kröfur um að
honum yrði skipt út úr ríkisstjórn-
inni sem fyrst.
Víst er að uppstokkun á verk-
efnum ráðuneyta og fjölda þeirra,
meðal annars sameining verkefna
undir atvinnuvegaráðuneyti, mun
að líkindum kosta Jón ráðherra-
embætti þegar þar að kemur.
Jón gæti því um sinn hafa séð
sitt óvænna og talið heppilegast að
hlíta vilja Steingríms og láta undan
hótunum um stjórnarslit.
Andófið innan VG
Hótun um stjórnarslit lá í loftinu
þegar fyrir flokksstjórnarfund Sam-
fylkingarinnar og kom síðan vel
fram í ræðu Jóhönnu Sigurðardótt-
ur, formanns flokksins, á fundinum
síðastliðinn laugardag:
„Tefjist lyktir (Icesave) málsins
enn um sinn gæti sú töf orðið okk-
ur sem ríki og sem þjóð jafndýrt ef
ekki dýrara en sjálf Icesave-skuldin
vegna versnandi lánskjara og tafa á
endurreisn efnahags- og viðskipta-
lífs. Það er heldur ekkert launung-
armál að efnahagsáætlun okkar
með stuðningi Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins gæti verið í uppnámi. Eins
og á mörgum öðrum sviðum erum
við í mjög alvarlegri stöðu og get-
um ekki leyft okkur að láta eins og
til séu auðveldar lausnir.“
Ögmundur Jónasson hefur bók-
staflega hvatt til þess að slíta sam-
starfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inn. Lilja Mósesdóttir, Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir, Atli Gíslason
og Ásmundur Einar Daðason, og
hugsanlega fleiri þingmenn VG,
eru tvístígandi en þykir sem Evr-
ópusambandið, Hollendingar,
Bretar og jafnvel Norðurlöndin spili
samhæfðan leik með Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum gegn Íslendingum í
Icesave-málinu. Undir þetta kynd-
ir stjórnarandstaðan; Sjálfstæðis-
flokkurinn sem hafnaði algerlega
Icesave-samningi ríkisstjórnarinn-
ar en var fylgjandi fyrirvörunum og
Framsóknarflokkurinn sem alla tíð
hefur lagst gegn ríkisábyrgðinni á
Icesave með margvíslegum rökum.
Er klofningur yfirvofandi í VG?
Athyglisvert má telja hversu grunnt
virðist vera á því góða og stutt í
klofning innan Vinstrihreyfingar-
innar - græns framboðs. Þetta kom
vel fram þegar Samfylkingin setti
þrýsting á flokkinn í vikunni. Í raun
er sem hluti flokksins geti ekki með
nokkru móti fellt sig við veigamestu
mál ríkisstjórnarinnar, Icesave-
lausnina, hvað þá aðildarumsókn
að ESB. Hættan á klofningi virð-
ist vaxa í réttu hlutfalli við vaxandi
þrýsting um hollustu við stefnumið
ríkisstjórnarinnar um Icesave. Sama
gildir um ESB-aðildarumsóknina.
Þetta þarf ekki að koma á óvart.
Varla hefur gróið um heilt eftir að
forysta VG undir handleiðslu Stein-
gríms J. Sigfússonar féllst á að styðja
frumvarp um aðildarumsókn að
Evrópusambandinu. Svo mikil er
þessi andstaða að Samfylkingin hef-
ur á viðkvæmum Icesave-tímum
kosið að hörfa með ESB-málið inn
í skel sína í stað þess að verjast vax-
andi þjóðernishyggju og ESB-and-
stöðu meðal kjósenda með gagn-
sókn. Um þessar mundir virðist því
Samfylkingin lítið gefin fyrir að verja
sitt stærsta pólitíska stefnumál að
endurreisnarstarfinu frátöldu.
Guðbergur Egill Eyjólfsson,
flokksmaður VG í Norðausturkjör-
dæmi, ritaði formanni sínum bréf
þegar ljóst var að Steingrímur og
Framvinda Icesave-málsins er ríkis-
stjórninni þung í skauti. Svo mjög reynir
það á þolrif þingmanna VG að það stapp-
ar nærri klofningi í flokknum. Óþol þar á
bæ vegna aðildarumsóknarinnar að ESB
bætir ekki ástandið. Ögmundi Jónassyni
er nú lýst sem óskoruðum leiðtoga and-
stöðuhópsins innan VG sem er þess albú-
inn að fylgja sannfæringu sinni á þingi og
samþykkir engar breytingar á fyrirvörun-
um fyrir fram og án þess að hafa séð þær.
JóHAnn HAukSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Þór Saari „Menn eiga að geta
leyft sér að vera ósammála í svona
veigamiklum málum án þess að
ríkisstjórnin þurfi að hrökklast frá.“