Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Page 14
„Samningurinn um sölu á verksmiðj- unni til Heineken-bjórfyrirtækisins er endapunktur á ótrúlegu ævintýri, sem hófst með flutningi á gömlum tækjum frá gosdrykkjaverksmiðju Sanitas til Rússlands fyrir u.þ.b. ára- tug. Hann er líka persónulegur sig- ur fyrir Björgólf Guðmundsson, sem segja má að hafi horfið af vettvangi íslenzks viðskiptalífs með gjaldþroti Hafskips hf. á níunda áratugnum en hefur snúið til baka á síðustu árum af miklum þunga.“ Þetta segir höfundur Reykjaví- kubréfs Morgunblaðsins 2. febrú- ar 2002, þar sem greint er frá einum stærsta viðskiptasamningi Íslands- sögunnar fram til þess tíma. Hein- eken-bruggrisinn reiddi fram 400 milljónir bandaríska dollara til Björgólfsfegða og Magnússonar Þor- steinssonar fyrir Bravo International, fyrirtæki, sem áður hét Baltic Bott- ling Plant. Í kjölfarið lýstu þremenningarn- ir yfir áhuga á að kaupa Landsbank- ann, í bréfi til einkavæðingarnefndar sumarið 2002 og í árslok höfðu þeir keypt bankann með bjórgullinu frá Rússlandi. Þeir komu svo til Íslands og var fagnað sem þjóðhetjum: Þjóð- in stóð gapandi og dáðist að þessum nýríku mönnum sem keypt höfðu elsta og virtasta banka landsins. En að baki þessum viðskiptum með Bravo var ósögð saga, sem átti að fara leynt. DV gerði nákvæma grein fyrir Bravómálinu í blaðinu um síð- ustu helgi. Kjarni þeirrar sögu fjallaði um ásakanir Ingimars H. Ingimars- sonar, arkitekts og athafnamanns, á hendur þeim Björgólfi Guðmunds- syni, syni hans Björgólfi Thor og Magnúsi Þorsteinssyni. Ingimar hef- ur í áraraðir staðhæft fyrir daufum eyrum, að þeir feðgar hafi árið 1995 stolið gosdrykkjaverksmiðjunni Balt- ic Bottling Plant frá honum og félög- um hans í eignarhaldsfélaginu BGL með meintum fölsuðum skjölum. Samkvæmt yfirliti, sem DV hef- ur tekið saman hafa 11 dómar fall- ið Ingimar og félögum í vil, þar sem tveir meintir falsaðir hluthafasamn- ingar hafa verið dæmdir ógildir. Samningarnir kveða á um að Ingi- mar og Bernard afsali allri eign sinni í BBP, alls 65 prósent hlut, til Björg- ólfs Guðmundssonar. Þessi gjörn- ingur varð „opinber” á ólöglegum hluthafafundi 25. september 1995 að aðaleigendunum Ingimar og Bern- ard fjarstöddum. Rússinn fékk 10 prósent fyrir undirskrift sína Í frásögn DV um þetta mál kom jafn- framt fram, að Rússinn Gennadij Homsky, framkvæmdastjóri RMZ, sem var rússneskt ríkisfyrirtæki sem átti 25 prósent í BBP, hafi í umdeildu samningunum tveimur (við Björg- ólf Guðmundsson annars vegar og Hansa ehf. (í eigu Björgólfs) hins vegar) verið skráður fyrir 10 pró- sent hlut í BBP eftir að búið var að færa alla hluti Ingimars og Bernards (65 prósent) í hendur Björgólfi Guð- mundssyni. Að sögn Ingimara fékk Homsky þessi 10 prósent í sinn hlut sem „þóknun“ fyrir að andmæla ekki eig- endabreytingunni heldur þvert á móti að skrifa nafn sitt undir skjölin tvö fyrir hönd RMZ. Undirskrift hans var nauðsynleg til að láta svo líta út að allir aðrir hluthafar staðfestu að breyting á eignarhaldi hefði í raun átt sér stað. Ingimar og Bernard fréttu af hin- um örlagaríka gjörningi snemma í október 1995. Þá lá Ingimar á Land- spítalanum eftir skurðaðgerð og gat ekki beitt sér. Við fyrsta tækifæri pantaði Bernard Lardner sér flug- far til Pétursborgar til að kanna hvað væri eiginlega á seyði og hvort þessi ótrúlegu tíðindi stæðust. Hann hafði samband og vildi hitta Björgólf á skrifstofum BBP, en framkvæmda- stjórinn neitaði að hleypa honum inn í verksmiðjuna sem Bernard sjálfur hafði stofnað og borgað. Þá voru í húfi samningar BBP, sem Bern- ard hafði til dæmis náð á Bretlandi, meðal annars við hið kunna fyrirtæki Britvic, eitt stærsta gosdrykkjafyrir- tæki þar í landi. Því boðaði hann Björgólf Thor á fund sinn á Hotel Europe í Péturs- borg, að sögn Ingimars Ingimars- sonar. Á fundinum reyndi Björgólfur að láta Bernard halda, að hann væri fórnarlamb athafna Ingimars Ingi- marssonar. Ef hann vildi fá skýringu á afsali eignarhlutar síns í BBP skyldi hann tala við Ingimar. Af orðum Björgólfs Thors átti Bernard J. Lard- ner að draga þá ályktun, að íslensk- ur samstarfsmaður hans og meðeig- andi hefði svikið hann. Að þessum fundi loknum var niðurstaðan ótvírætt sú, að eft- ir Rússlandsár sín sem venjuleg- ir launamenn voru þremenning- arnir frá Íslandi búnir að „eignast“ gosdrykkjaverksmiðju sem einnig framleddi svokallaða „alcopops“ – drykki á borð við Breezer sem nutu töluverðra vinsælda. Næsta skref var að hefja bjórframleiðslu. En Íslendingarnir breytu þess- um áætlunum og hófu með BBP- verksmiðjuna í sínum höndum að leggja grunninn að því að þeir yrðu stórefnamenn. Eftir að hafa verið sviptir eignar- rétti sínum í BBP og og meint ólög- mæt eigendaskipti höfðu farið fram haustið 1995 ákváðu þeir félagar, Ingimar og Lardner, að Annar hluti fréttaskýringar Halldórs Halldórssonar um viðskipti Björg- ólfsfeðga og Ingimars Ingimarssonar um BBP-verksmiðjuna í Pétursborg á síðasta áratug sýnir enn frekar fram á þá hörku og óbilgirni sem einkenndi þau. Ingimar telur lögmann Björgólfs- feðga hafa hótað sér og að hlerunarbúnaði hafi verið komið fyrir í íbúð hans í London. Enn bætast við ný púsl inn sögu Björgólfs- feðga í Rússlandi sem hefur hingað til verið hjúpuð mikilli leynd og nánast þögguð niður hér á landi. 14 föstudagur 2. október 2009 fréttir HalldóR HalldóRsson blaðamaður skrifar halldorjr@centrum.is úttekt INGIMAR HÓTAÐ MEÐ GLÆPAÖFLUM Komu til Íslands og fengu banka Samson-hópurinn kom sigurreifur til Íslands frá Rússlandi sumarið 2002 og falaðist eftir Landsbankanum með peningunum sem þeir fengu fyrir að selja Bravo-bjórverksmiðjuna. Á þeim tíma vissu hins vegar fáir hvernig Björgólfsfeðgar höfðu eignast verksmiðjuna enda var sú frásögn og deilur þeirra við Ingimar Ingimars- son þögguð niður hér á landi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.