Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Qupperneq 16
16 föstudagur 2. október 2009 fréttir Pólitísk ákvörðun að selja samson bankann Steingrímur Ari Arason, fyrrverandi meðlimur í framkvæmdanefnd um einkavæðingu, segir í samtali við DV að hann muni eftir viðvörunum frá Ingimar Ingimarssyni til Fjármála- eftirlitsins sem getið hefur verið um í umfjöllunum Halldórs Halldórsson- ar um viðskipti Ingimars og Björgólfs- feðga í Rússlandi. Frásagnirnar eru enn eitt dæmið um hversu einkenni- legt það var að Fjármálaeftirlitið hafi skrifað upp á hæfi Björgólfsfeðga til að eiga Landsbankann árin 2002- 2003. „Mig rámar í að okkur hafi ver- ið sent afrit af bréfinu sem sent var til Fjármálaeftirlitsins. Ég man það að það voru auðvitað áhyggjur og sögusagnir á kreiki [innskot blaða- manns: um hæfi Samson-manna til að eiga banka]. Við afgreiddum það frá okkur, við getum sagt stjórnskipu- lega, á þeirri forsendu að það heyrði undir Fjármálaeftirlitið að meta hæfi þeirra. Þar eru mjög strangar reglur sem gilda um þá sem eiga ráðandi hlut í fjármálafyrirtækjum. Manni fannst að þetta væri eitthvað sem við þyrftum ekki að hafa neinar áhyggj- ur af og að aðrir aðilar myndu sjá um þetta og skoða hvað væri til í þess- um ásökunum,“ segir Steingrímur en Fjármálaeftirlitið skrifaði síðar upp á hæfi Samson-manna til að eiga Landsbankann. Steingrímur sagði sig úr einka- væðingarnefndinni með frægu bréfi til Davíðs Oddssonar forsætisráð- herra í september 2002 og sagðist aldrei hafa kynnst öðrum eins vinnu- brögðum og viðhöfð voru við einka- væðingu Landsbankans. Tveggja manna talið stendur eftir Hann segir að einnig hafi alltaf ver- ið sagt í einkavæðingarnefnd að hæfi meðlima Samsonar til að eiga Lands- bankann yrði einnig metið af breska fjármálaeftirlitinu. „Það sakaði ekki að menn vissu að í gegnum eignar- haldið á Heritable bank þyrfti breska fjármálaeftirlitið að samþykkja þá líka. Því í gegnum Landsbankann voru þeir líka að eignast ráðandi hlut í Heritable bank, sem var breskur banki. Í gegnum þetta var því verið að tryggja tvöfalt „control“, þannig að ef íslenska eftirlitið væri eitthvað vanmegnugt átti að vera tryggt að breska eftirlitið kláraði málið,“ segir Steingrímur og undirstrikar það sem hann hefur áður sagt að hann hafi ekki hætt í nefndinni vegna persóna þeirra Björgólfs- feðga og Magn- úsar Þorsteins- sonar. Aðspurður af hverju hann hafi þá hætt segir Steingrímur Ari. „Það sem skiptir máli um einkavæðingu Landsbankans, umfram það sem áður hefur verið sagt í fjölmiðlum, er tveggja manna tal. Auðvitað gerist heilmikið á milli funda og í tveggja manna tali. En ég hef tamið mér það að vitna ekki í tveggja manna tal op- inberlega,“ segir Steingrímur. „Auð- vitað verða þarna ákveðin þáttaskil sem menn hafa gert grein fyrir, þeg- ar tekin er ákvörðun um að ganga til viðræðna við þá umfram hina,“ seg- ir Steingrímur og fæst ekki til að út- skýra orð sín frekar. Líklega á hann þó við þá ákvörðun að hætta við að halda Landsbankanum í dreifðri eignaraðild margra lítilla hluthafa, líkt og alltaf hafði verið ætlunin, og selja frekar kjölfestuhlut í bankanum til eins stórs hluthafa. Pólitísk ákvörðun að selja Samson Það sem Steingrímur á við með þess- um orðum sínum kann því enn frek- ar að vera hægt að útskýra með því sem hann sagði í samtali við DV fyrr á árinu: Að gagnrýni hans á starf ein- kvæðingarnefndar hafi byggst á því að ákvörðunin um að ganga til við- ræðna við Samson hafi verið pólitísk og byggst á huglægu mati en ekki á faglegum forsendum. Hann segir að gagnrýni sín hafi byggst á því að smátt og smátt hafi allar reglur sem einkavæðingarnefnd átti að vinna eftir verið settar til hlið- ar við söluna á Landsbankanum. „Það má segja að það hafi verið pólitískt mat stjórnvalda að það að ná einkavæðingunni fram hratt réttlætti þá að- ferð að nánast handvelja kaupendurna. En það má heldur ekki gleyma því að tryggja átti sanngjarnt og eðlilegt verð fyrir hlut ríkisins í bankan- um og það var önnur af ástæðunum fyrir afsögn minni að með því að vera svona ákaft í að selja þessum aðilum var ríkið að veikja sína samningsstöðu. Þess vegna náði Samson þessum afslætti á hlut ríkis- ins í bankanum. Það hefði aldrei átt að gerast undir venjulegum kring- umstæðum,“ segir hann. „Faglegar vinnureglur voru því settar til hliðar við sölu Landsbankans,“ segir Stein- grímur Ari en orð hans í heild sinni má skilja sem svo að búið hafi verið að ákveða að selja Samson bankann áður en einkavæðingarferlið hófst sumarið 2002. Sá ekki það sama og Steingrímur Ari Skarphéðinn Berg Steinarsson, sem var annar af tveimur starfsmönnum einkavæðingarnefndar, segist ekki vita til hvers Steingrímur Ari var að vísa þegar hann fordæmdi vinnu- brögðin við einkavæðingu Lands- bankans. „Ég get vel trúað því að það sé mjög áhugavert að komast að því við hvað Steingrímur Ari átti en ég sá ekki það sem hann sá. Hann hlýt- ur þá að hafa séð eitthvað sem hann skuldar skýringar á. Ég veit ekki hvað það er,“ segir Skarphéðinn. Hér ber meðal annars að hafa í huga að Steingrímur var full- trúi fjármálaráðherra, Geirs H. Haarde, í framkvæmdanefnd um einkavæðingu á meðan Skarphéð- inn var einungis starfsmaður einka- væðingarnefndar. Því má fullyrða að Steingrímur átti í nánari samskiptum við stjórnmálamennina í ráðherra- nefnd um einkavæðingu, þau Geir, Davíð Oddsson, Halldór Ásgrímsson og Valgerði Sverrisdóttur. Hver ráð- herranna var svo með einn meðlim í framkvæmdanefndinni um einka- væðingu. Aðkoma Steingríms og Skarphéðins að einkavæðingu bank- anna var því ólík. Ráðherrarnir tóku ákvarðanirnar Skarphéðinn tekur hins vegar heils hugar undir þau orð Steingríms að ákvörðunin um að hætta við dreifða eignaraðild að bönkunum hafi ver- ið pólitísk. „Þegar það liggur fyrir að það gekk ekki að selja bankana á þennan þátt [innskot blaðamanns: með dreifðri eignaraðild] er það pól- itísk ákvörðun að breyta um þann kúrs. Sú ákvörðun er tekin af þeim ráðherrum sem í hlut eiga... Þetta voru þáttaskil, það er alveg rétt hjá Steingrími,“ segir Skarphéðinn. „Svo var það bara framkvæmdanefnd- arinnar um einkavæðingu að fram- fylgja þessari nýju stefnumörkun.“ Að hans mati voru það ráðherr- arnir sem tóku allar mikilvægustu ákvarðanirnar í einkavæðingunni. „Það voru ráðherrarnir sem tóku all- ar ákvarðanirnar,“ segir Skarphéðinn og má skilja hann sem svo að það hafi verið á pólitíska ábyrgð ráðherr- anna að breyta um stefnu í einka- væðingunni á þennan hátt. „Hvort sú ákvörðun var rétt eða ekki er ómögu- legt að segja.“ Betri eigendur mögulegir Að mati Skarphéðins hefði verið hægt að finna betri eigendur að bönkun- um, svona eftir á að hyggja. „Ég held að eftir á að hyggja megi alveg til sanns vegar færa að bankarnir hefðu getað fengið betri eigendur... En rétt- mæt yfirvöld komust hins vegar að þeirri niðurstöðu að kjölfestufjárfest- arnir að þessum bönkum væru í lagi,“ segir Skarphéðinn en það var ekki á verksviði einkavæðingarnefndar að meta hæfi þeirra Samson-manna heldur var það á könnu Fjármála- eftirlitsins og breska fjármálafyrir- tækisins HSBC. Báðir aðilar skrifuðu hins vegar upp á hæfi þeirra Björg- ólfsfeðga og Magnúsar til að eiga Landsbankann þó fullyrða megi að ekki hafi verið kafað mjög djúpt í for- tíð Björgólfs Guðmundssonar þegar skrifað var upp á hæfi hans til að eiga og reka banka. Steingrímur Ari Arason man eftir viðvörunum Ingimars Hauks til Fjármálaeftirlitsins og einkavæðingar- nefndar áður en Landsbankinn var seldur til Björgólfsfeðga. Það mikilvægasta við einkavæðingu Lands- bankans er tveggja manna tal. Skarphéðinn Berg Steinarsson segir ráðherrana hafa tekið ákvarðanirnar í einkavæðingu bankanna. IngI F. VIlHjálmSSon blaðamaður skrifar ingi@dv.is „Það sem skiptir máli um einkavæðingu Landsbankans, umfram það sem áður hefur verið sagt í fjölmiðlum, er tveggja manna tal.“ Pólitísk ákvörðun Tveir menn, Steingrímur Ari Arason og Skarphéðinn Berg Steinarsson, sem komu að sölu Landsbankans í gegnum einkavæðingarnefnd segja að sú pólitíska ákvörðun að selja kjölfestuhlut í Landsbankanum til Samsonar hafi verið pólitísk. Björgólfur Guðmundsson sést hér kynna Sigurjón Árnason til leiks sem nýjan bankastjóra Landsbankans árið 2003. Sigurjón átti síðar eftir að verða maðurinn á bak við Icesave-reikningana. mynd RóBeRT Kannast ekki við vinnubrögðin slælegu Skarphéðinn Berg Steinarsson, starfsmaður einkavæðingarnefndar, segist ekki kannast við vinnubrögðin slæmu við einkavæðingu Landsbankans sem Steingrímur Ari Arason hefur rætt um. Tveggja manna tal Steingrímur segir að það sem skipti máli varðandi einkavæðingu Landsbankans, sem ekki hefur komið fram í fjölmiðlum nú þegar, sé tveggja manna tal.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.