Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Side 22
Bláskrift Davíðs
Svarthöfði hefur ríka samúð með Davíð Oddssyni, ritstjóra Morgunblaðsins. Sá góði maður, sem tileinkaði sér lífs-
speki ömmu sinnar, má hvergi drepa
niður fæti án þess að allt ætli um koll
að keyra. Nú síðast hafa áskrifendur
Morgunblaðsins sagt blaðinu upp af
fádæma ósvífni. Ástæðan er sú ein
að hann fékk vinnu þar og ætlar að
fjalla af hlutleysi og heilindum um
þau asnaprik sem komu Íslandi á
hausinn. Auðvitað er Morgunblaðið
kjörið til þess að koma sannleikanum,
eins og Davíð þekkir hann, á framfæri.
Svarthöfði hefur ekki hugmynd um
það hvort 7.000 áskrifendur hafa sagt
upp Mogganum eða 3.000. Það breytir
ekki því að þetta eru kaldar kveðjur til
landsföðurins sem alla sína tíð hefur á
launum hjá ríkinu barist fyrir einstakl-
ingsframtakinu. Hann er ekkert minni
maður þótt hann hafi sjálfur enga
reynslu af starfi í einkageiranum. Ein-
hver þarf að hafa vit fyrir fjöldanum
og marka samfélaginu ramma laga og
siðferðis. Og Davíð veit manna best að
hans skoðanir eru þær einu réttu þótt
þær kunni að líta illa út í fyrstu.
Morgunblaðið stendur mörgum manninum hjarta nær. Það hefur komið út í rúm 90 ár og
verið aufúsugestur á ótal íslenskum
heimilum. Minningargreinarnar eru
óborganlegar rétt eins og krossgátan
á laugardögum. Það er ansi harkalegt
að hafna þessum öldungi við það eitt
að ritstjóri með rangar skoðanir hafi
vikið fyrir öðrum með réttar skoðanir.
Fjölmiðlar verða að stjórna skoðana-
myndun af fyrirhyggju svo heimskur
almúginn fari sér ekki að voða. Það
er skelfileg tilhugsun að þjóðin gangi
upplýst í Evrópusambandið. Þá er það
hræðilegt að þurfa að greiða skuldir
óreiðumanna á borð við sparifé Breta
og Hollendinga. Og auðvitað er engin
sanngirni í því að halda því á lofti hver
lét óreiðumennina hafa Landsbank-
ann sem þeir svo steyptu í glötun. Það
er líka fullkomið aukaatriði hver setti
Seðlabankann á hausinn með upp-
hæð sem nemur margföldu Icesave.
Það eina rétta nú þegar áskrif-endur Moggans hafa yfirgefið höfuðmiðil sannleikans er að setja lög í landinu. Mogginn
verður að fara á sama stall og Ríkisút-
varpið. Þjóðin verður að undirgang-
ast nefskatt til þess að halda bláskrift
Davíðs úti undir merkjum Morgun-
blaðsins.
Sandkorn
n Líf ríkisstjórnarinnar hangir
á því hálmstrái sem teng-
ir tvær stríðandi fylkingar í
vinstri grænum. Líkurnar á
því að dagar Jóhönnu Sigurð-
ardóttur
á stóli for-
sætisráð-
herra séu
brátt taldir
eru miklar.
Sjálfstæð-
ismenn
eru nú að
magna
sig upp í að taka að nýju við
stjórnartaumunum. Þó er á
einhverjum þeirra hik enda
búist við að allur almenn-
ingur bregðist ókvæða við
og byltingarástand myndist
að nýju í samfélaginu. Eina
von Bjarna Benediktssonar
formanns til að fá frið í ríkis-
stjórn er að fá vinstri græna
með sér. En þá yrði gamall
draumur náhirðar Sjálfstæð-
isflokksins að veruleika.
n Vandi vinstri grænna er sá að
klofningur er að taka á sig sífellt
skýrari mynd. Undirliggjandi
valdabarátta
hefur verið
um árabil
milli Stein-
gríms J. Sig-
fússonar og
Ögmundar
Jónassonar.
Þetta ástand
hefur tekið
á sig skýrari mynd og hrekst
Steingrímur undan Ögmundi
sem ræður stórum hluta þing-
flokksins. Það mun því verða
Ögmundur sem ræður lífi eða
dauða stjórnarinnar og jafn-
framt pólitískum dauðdaga
Steingríms J.
n Frá því var sagt í Morgunblað-
inu í vikunni að Iceland Express
hyggðist hefja áætlunarflug til
Bandaríkjanna. Athygli vekur
að Agnes Bragadóttir pistlahöf-
undur skrifar sig fyrir greininni.
Þessi sama frétt hefur verið sögð
um árabil af sama blaðamanni,
fyrst 19. október 2006. Þá hafa
aðrar fréttir af málum Pálma
Haraldssonar í Fons og jákvæð-
um rekstrarmálum hans átt
greiðan farveg í Mogganum sem
benda til sterkra tengsla.
n Heldur er að færast ró yfir
Morgunblaðið eftir fjöldaflótta
áskrifenda og bloggara frá blað-
inu og vefn-
um. Fram-
kvæmdir við
skrifstofur
ritstjóranna
tveggja í
því skyni að
loka þá af frá
almúgan-
um eru á
lokastigi. Þegar neyðin var stærst
vegna uppsagna áskrifenda
veittu menn því eftirtekt að gamli
ritstjórinn, Styrmir Gunnarsson,
birtist í öllu sínu veldi. Ekki er vit-
að hvað honum og arftakanum,
Davíð Oddssyni, fór í milli en
heimsóknin vakti mikla athygli
þar sem gamli ritstjórinn hélt sig
í fjarlægð á meðan Ólafur Steph-
ensen var og hét ritstjóri.
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: sverrir arngrímsson
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
elísabet austmann, elisabet@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Þetta var
auðvitað
lúxusstarf. Að
hugsa og svona.“
n Jón Gnarr um starf sitt hjá auglýsingastofunni
Ennemm en hann er hættur þar. – DV
„Hvernig útskýrir
maður fyrir
konunni sinni að
maður hafi týnt
nærbuxunum á
barnum?“
Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari sem
týndi lukkunærbuxunum sínum á bar í bænum.
Hann hafði þær meðferðis í poka eftir sýningu. –
Fréttablaðið
„Ég var í raun
nánast bara hjá
honum á
undirbúnings-
tímabilinu.“
Björgólfur Takefusa, leikmaður KR, um
þjálfunina sem hann hefur fengið hjá Pétri
Péturssyni, aðstoðarþjálfara KR og fyrrverandi
markamaskínu. – Fréttablaðið
„Það er best
þegar svitinn
drýpur af manni
alls staðar.“
Útvarpsmaðurinn Sigvaldi Kaldalóns um
líkamsræktina Cross Fit sem hann stundar nú af
kappi. – Vísir
Ögmundur og nýju stjórnmálin
Leiðari
Umburðarlyndi Jóhönnu Sigurð-ardóttur forsætisráðherra gagn-vart nýju verklagi í stjórnmálum virðist vera að minnka. Í stað þess
að halda áfram að leyfa þingmönnum að
viðra mismunandi skoðanir er hún farin að
svara ágreiningi með hótun um stjórnarslit,
ef marka má orð Ögmundar Jónassonar við
brotthvarf hans úr ríkisstjórninni.
Í búsáhaldabyltingunni var uppi hávær
krafa um breytt stjórnmál. Krafan var fyrst og
fremst um afnám hreinnar flokkapólitíkur,
þar sem þingmenn ganga í fullkomnum takti,
forritaðir með skoðunum sterks leiðtoga. Nú
virðist Jóhanna vera farin að fikra sig í áttina
að því að verða slíkur leiðtogi. Einræðistaktar
forsætisráðherra eru hættulegir, sem lýsir sér
best í því hvað þingræðislegt einræði flokka-
pólitíkurinnar hefur kostað okkur. Það voru
ekki gagnrýnir ráðherrar eða sundurlyndi
sem komu okkur í koll, heldur þvert á móti
sammála ráðherrar og þingmenn sem litu á
sig sem meðvirk tannhjól valdaflokka.
Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræð-
ingur lýsti því í samtali við Vísi.is að Ögmund-
ur hefði einkennilegan skilning á þingræðinu.
Hann segir að í þingræði séu það „tilteknir
flokkar sem semja um tiltekna stjórn og þeir
skuldbinda sig og alla sína flokksmenn til að
styðja stefnu stjórnarinnar“. Í hundrað daga
áætlun stjórnvalda er eitt ákvæðið „lokavinna
við samninga um erlendar kröfur – Icesave“.
Það verður þó varla séð að með þessu hafi
Ögmundur undirgengist að samþykkja hvaða
útgáfu sem er af Icesave-samningnum. Enda
segir í stjórnarskránni að þingmenn eigi að
vera bundnir eigin samvisku, þótt hefð sé fyr-
ir flokkspólitískri samvisku á Íslandi.
Samráðið og átökin um Icesave-málið í
sumar voru í takt við nýju stjórnmálin. Þar
reyndist aðkoma stjórnarandstöðuflokkanna
að samþykkt samninganna verða til gagns,
þótt málið hefði gengið hraðar fyrir sig án
umræðunnar. Slík stjórnmál ganga ekki upp
í skugga hótana. Umræðunni lýkur við úr-
slitakosti. Og ef þær kvaðir fylgja umræðunni
að stjórnarliðar eigi að vera sammála ríkis-
stjórninni er umræðan sýndarmennska.
Á næstunni verða teknar margar afdrifa-
ríkar ákvarðanir sem varða hagsmuni al-
mennings. Það er óskandi að gagnrýnin um-
ræða verði um málin í ríkisstjórninni og á
Alþingi. Við viljum varla að tveir flokksfor-
menn verði alvaldir um þessi mál, líkt og um
einkavæðingu bankanna og stuðning Íslands
við Íraksstríðið. Leið Ögmundar, sem felur
í sér opna gagnrýni og umburðarlyndi fyrir
átökum, hlýtur að teljast ríma við nýja tíma.
Jón trausti reynisson ritstJóri skrifar. Samráðið og átökin um Icesave-málið í sumar voru í takt við nýju stjórnmálin.
bókStafLega
Guð blessi Ísland
Ég lofa að reyna að komast hjá því
að skrifa um Ríkisbubbaútvarpið.
En ég kemst ekki hjá því að hugsa
um ræðu sem ég heyrði fyrir um
það bil einu ári. Þar fór á kostum
einn af velunnurum einkavæðing-
ar og einn af góðkunningjum íhalds
og helmingaskipta – Geir Haarde.
Náungi sem í dag hefur, sem bet-
ur fer, lagt skóna á hilluna. Nokkr-
um dögum eftir að Geir þessi sagði
þjóðinni að allt væri í lukkunn-
ar velstandi, nokkrum dögum eft-
ir að Dabbi litli bankamaur átti að
hafa reddað öllum peningamálum
þjóðarinnar þá blasti hrunið við. En
„hrun“ er þó varla rétta orðið. Rétt-
nefnið er „rán“ vegna þess að hér
var ekki um eiginlegt náttúrulögmál
að ræða, heldur mannanna verk.
Og þá erum við að tala um áralanga
óstjórn í peningamálum, eilífar til-
slakanir til handa þeim sem pen-
ingana höfðu, fjármagnsflutninga
úr ríkissjóði til afætna sem uppfylltu
skilyrði samfélags flokksgæðinga og
fleiri glæpsamleg athæfi sem blinda
auga ríkisvaldsins var jafnan beint
að. Geir mætti og grenjaði en þeir
hlógu á fjósbitanum í kór, púkarnir
sem komið höfðu peningum í skjól
á erlendri grund.
Ári eftir ránið upplifum við
sérkennilega tíma. Núna stökkva
þeir fram, forkólfar spillingarafl-
anna, og heimta að komast í ríkis-
stjórn. Þeir finna allar hugsanlega
átyllur og reyna með öllum ráðum
að kasta rýrð á það sem stjórnvöld
eru í dag að koma í verk. Núverandi
ríkisstjórn hefur úr nánast engu að
moða – þökk sé þeim sem hérna
stjórnuðu með kænsku helminga-
skipta. Hér var komið að rændu búi
og rústir einar stóðu eftir.
Þegar maður sem er sjálfum sér
samkvæmur, maður sem ekki sel-
ur sál sína fyrir ráðherrastól, segir
af sér og yfirgefur ríkisstjórnina til
þess að liðka fyrir framgangi mála,
er slíkt túlkað sem fall stjórnarinn-
ar. Menn gefa sér eitt og annað og
enn sem fyrr reyna þeir að skella
skuldinni á þá sem vilja bæta hér
ástandið. Þjóðarsálin er afhjúpuð
og innra eðlið fær að ljóma.
Lausnir okkar felast í því að
við sýnum okkar rétta andlit. Þeir
sem skemmdu og eyddu eiga að
skammast sín. Við hin eigum að
gleðjast yfir hverju því sem gert er
til að bæta líðan okkar. Að taka þátt í
boðuðu greiðsluverkfalli er eitt það
heimskulegasta sem við getum gert.
Það ástand sem núna er hér á landi
er ekki skapað af þeim sem núna
stjórna.
Nú er okkar auðmýkt sýnd,
nú eru horfur góðar,
nú er skelin skemmd og týnd,
nú skín í perlu þjóðar.
kristján hreinsson
skáld skrifar
„Núna stökkva
þeir fram, forkólfar
spillingaraflanna, og
heimta að komast í
ríkisstjórn.“
SkáLdið Skrifar
22 föstudagur 2. október 2009 umræða