Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Page 23
Hver er maðurinn? „61 árs Reyk-
víkingur með rætur í Húnavatnssýslu,
Borgarfirði og víðar um lönd.“
Hver er fyrsta minning þín úr
æsku? „Í sandkassa við Skúlagötu.
Ég var þar undir handarjaðri og
öruggri bróðurhönd Jóns Torfa
bróður míns sem er árinu eldri.“
Hefurðu alltaf verið mikill prins-
ippmaður? „Já, ég hef reynt að
halda í ýmis grunngildi en tel mig þó
vera sveigjanlegan samningamann í
málum þar sem hnika þarf til.“
Hvernig var að verða ráðherra
eftir öll þessi ár í pólitík? „Mér
fannst það góð tilfinning og mér
fannst gott að finna fyrir þeim
samhug og þeirri velvild sem ég fann
fyrir nánast hvarvetna sem ég fór.“
Áttu ekki eftir að sjá eftir
ráðherrastólnum? „Jú, vissulega.“
Er líf eftir ráðherradóm? „Já,
það er hægt að vinna að málefnum
velferðarsamfélagsins víðar en á
ráðherrastóli.“
Er þetta ekki upphafið að
endalokum þínum í pólitík? „Það
er afskaplega fjarri því. Ég hef verið
rammpólitískur alla mína ævi, innan
og utan stjórnmálaflokka, á Alþingi
og utan þess, og verð væntanlega
svo lengi sem ég dreg andann vegna
þess að í mínum huga er pólitík fyrst
og fremst áhugi á umhverfinu sem
við búum í.“
Verður samband ykkar Stein-
gríms J. stirðara héðan af? „Það
vona ég að verði ekki. Ég vona og
trúi að okkar gömlu vináttubönd
haldi. Þetta er málefnalegur
ágreiningur, ekki persónulegur, og
auk þess er ég ekki að heyja hann við
Steingrím neitt sérstaklega.“
En verður Álfheiður Ingadóttir
þér ekki ævinlega þakklát fyrir
ráðherrastólinn? „Ég vona að skjól-
stæðingar heilbrigðisþjónustunnar
eigi eftir að verða henni þakklátir
fyrir að vinna vel að henni, sem ég
efast ekki um að hún muni gera.“
Finnst þér rétt aF Ögmundi Jónassyni að segJa aF sér ráðherradómi?
„Mér finnst þetta virkilega rétt hjá
honum.“
Guðrún ÓlafSdÓttIr
43 áRA SAgnfRæðinguR
„Já, ég er mjög ánægð með hann.
Hann er samkvæmur sinni samvisku.“
InGIbJörG bIrGISdÓttIr
62 áRA öRyRki
„Já. Og mér finnst þá rétt að fleiri
ráðherrar vinstri grænna segðu af sér.“
ÞÓrður EIríkSSon
69 áRA ellilÍfeyRiSÞegi
„Mér finnst það rétt hjá honum, já.“
HIlmar JakobSSon
69 áRA ellilÍfeyRiSÞegi
Dómstóll götunnar
öGmundur JÓnaSSon sagði af
sér sem heilbrigðisráðherra á
miðvikudaginn. Hann segir þetta ekki
upphafið að endalokum sínum í
pólitík. ögmundur gengst við því að
vera prinsippmaður en kveðst þó
sveigjanlegur í samningum.
Sér viSSulega eftir
ráðherraStólnum
„Mér finnst sjálfsagt hjá honum að gera
þetta. Menn eiga að fylgja sinni
sannfæringu.“
EyJÓlfur SIGurðSSon
48 áRA SMiðuR
maður Dagsins
Ögmundur og nýju stjórnmálin
Nýafstaðin Alþjóðleg kvikmynda-
hátíð, RIFF, er sú mest sótta hingað
til. Myndirnar voru frá öllum heims-
hornum, flestar góðar og sumar frá-
bærar. Úrvalið þessa viku var meira
en hinar 51 samanlagt. Nánast von-
laust var að komast á myndir á rétt-
um tíma, svo langar voru raðirnar.
Allt vekur þetta sömu spurn-
inguna: Hvaðan kemur allt þetta
fólk, og hvers vegna sést það ekki í
bíó utan kvikmyndahátíða? Því er
reyndar auðsvarað. Restina af ár-
inu er ekkert fyrir fólk yfir þrítugu
eða tvítugu (eða 15 ára, ef til vill)
að sjá. Langflestar myndir virðast
miðaðar á unglinga, oftar en ekki
hryllingsmyndir frá Hollywood. Hin
raunverulega spurning er því: Hvers
vegna er þetta svona? Er það ein-
faldlega vegna þess að fullorðið fólk
vill ekki fara í bíó?
Varla. Einhver vinsælasta mynd í
manna minnum hér er „Karlar sem
hata konur“, sænsk mynd sem kom
hingað seint og síðar meir og maður
var farinn að gefa upp alla von um
að kæmi hingað yfirhöfuð. Rétt eins
og kvikmyndahátíðin höfðar hún
til annars hóps en fer á amerískar
unglingamyndir og fær almennt lítið
fyrir sinn snúð. En hvers vegna hafa
kvikmyndahúsaeigendur svona lít-
inn áhuga á að sinna þessum stóra
og fjársterka hópi?
Hvað varð um öll bíóin?
Svarið við því er margþætt. Full-
orðið fólk hleypur ekki endilega til
um frumsýningarhelgi, heldur þarf
meiri tíma. Það er minna ginnkeypt
fyrir auglýsingum og vill heyra frá
vinum sínum að tiltekin mynd sé
góð áður en það heldur af stað. Því
tekur það oft lengri tíma að skila sér.
En það kemur á endanum, og þá í
hrönnum, eins og „Karlar sem hata
konur“ er skýrt dæmi um. Ungling-
unum er hins vegar auðveldara að
stjórna. Ein mynd er auglýst í öllum
miðlum, öll orka fer í frumsýningar-
helgina og síðan er komið að þeirri
næstu. Ef áhorfendur eru óánægðir
skiptir það ekki máli, þeir eru þegar
búnir að borga sig inn. Þetta er ekki
síst mikilvægt á internetöld, þar sem
orðrómur um myndir berst fljótt út.
Fyrir ekki langa löngu voru hér
fjöldamörg bíó í bænum: Tóna-
bíó, Stjörnubíó, Nýja bíó, Gamla
bíó, Kópavogsbíó, Hafnarfjarðarbíó
og Bíóborgin/Austurbæjarbíó, auk
Regnbogans og Háskólabíós. Í dag
eru þau tvö, Sambíóin og Sena, með
mismunandi útibú sem sýna öll
sömu myndir.
úrvalið minnkar
Sé flett í gömlum blöðum af handa-
hófi, segjum 1987, kemur í ljós að
þar eru einn tiltekinn dag sýndar 25
myndir. Í blaðinu í dag eru 19 mynd-
ir í sýningu, þar af tvær sem tengj-
ast kvikmyndahátíðum. Nú barma
kvikmyndahúsaeigendur sér líklega
og tala um hvað sé erfitt að halda
úti kvikmyndahúsum í litlu þjóðfé-
lagi. Eigi að síður hefur úrvalið hér
minnkað um rúmlega fimmtung á
rúmum 20 árum. Ég veit ekki bet-
ur en að landsmönnum hafi fjölgað
talsvert á sama tíma.
Hvers vegna virðist ekki vera
markaður fyrir meiri fjölbreytni í
bíóhúsunum? Svarið er að hann er
þarna, en hann er hunsaður. Árið
2002 tóku Sambíóin við rekstri Há-
skólabíós og hófu að sýna sömu
myndir þar og þeir gerðu annars
staðar. Afraksturinn lét ekki á sér
standa, aðsókn í bíóið minnkaði um
helming, frá um 280.000 gestum á
ári niður í 140.000. Bíóið hafði því
um lítið annað að velja en að færa
sig í arma Senu. Sena vildi hins veg-
ar ekki leigja allt húsið, og fékk það í
gegn að Stóra salnum, stærsta kvik-
myndasal þjóðarinnar, var lokað.
Hvers vegna enginn sér hag í því
að reka stærsta kvikmyndasal bíó-
þjóðarinnar Íslands er óskiljanlegt.
En það virðist vera sem kvikmynda-
húsaeigendum sé meira í mun að
sýna vondar bíómyndir heldur en
að græða peninga.
Hvers vegna er aldrei neitt í bíó?
mynDin
mótmælt við þingsetningu fjöldi fólks var mættur á Austurvöll þegar þing var sett á fimmtudag. lögregla kom upp borðum til að halda fólki fjarri. mynd HEIða HElGadÓttIr
kjallari
umræða 2. október 2009 FÖstudagur 23
Valur
GunnarSSon
rithöfundur skrifar
„Afraksturinn lét
ekki á sér standa,
aðsókn í bíóið minnk
aði um helming.“