Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Qupperneq 28
28 föstudagur 2. október 2009 helgarblað n steingrímur J. sigfússon, fJármálaráðherra „Stendur einn í stafni með storminn í fangið. Enginn virðist leggja honum lið, hvorki innan flokks né utan.“ „Alltaf gaman að sjá þegar fólk vex með nýjum áskorun- um. Mikið var talað um að Stein- grímur J. væri bara kjaftagleiður kommi í stjórnarandstöðu, en hann hefur sýnt að hann er í dag eini stjórnmálamaðurinn sem er nálægt því að eiga skilið að vera kallaður landsfaðir.“ n ögmundur Jónasson, fyrrv. heil- brigðisráð- herra „Vanmetnasti ráð- herrann. Hann er alvöru. Afþakkaði ráðherralaun og er sam- kvæmur sjálfum sér. Sexí og dúllu- legur.“ „Stendur einhverja erfiðustu vakt Íslandssögunnar og gerir það af samviskusemi.“ n davíð odds- son, ritstJóri „Meirihluti þjóð- arinnar er búinn að afskrifa hann sem ritstjóra áður en hann hefur feng- ið tækifæri til að sanna sig.“ n sigmundur davíð gunn- laugsson, formaður framsóknar- flokks „Sennilega einn af gáf- uðustu stjórnmálamönnum sem við eigum en nýtur ekki sannmælis sem pólitíkus, þótt hann hafi gert það áður en hann bauð sig fram.“ n Þórdís elva Þorvalds- dóttir, leikkona, leikskáld og rithöfundur „Gaf út bók um kyn- ferðisofbeldi á Íslandi. Sann- arlega mikið þrekvirki sem hún hef- ur unnið og án efa ekki aðvelt að lesa um allan þennan hrylling og safna þessu saman.“ n katrín Júlíus- dóttir, iðnaðar- ráðherra „Fólki hættir til að vanmeta Katr- ínu og afskrifa sem ljósku, en hún er lík- lega sá íslenskur stjórnmálamað- ur sem er hvað best lagið að eiga við venjulegt fólk, alþýðleg og föl- skvalaus. Þess vegna fær hún alltaf glimmrandi kosningu.“ n helgi hJörvar, alÞingismaður „Mælskasti þingmaður landsins, en er haldið til hlés af eigin félög- um sem kunna ekki að meta skýra og víða sýn þessa blinda manns. En það er sitt hvað, blinda og skortur á sýn í stjórnmálum.“ n ásgerður Jóna flosadótt- ir, form. fJölskylduhJálpar íslands „Sér um Fjöl- skylduhjálp Ís- lands, magnað að Reykjavíkur- borg skuli rukka samtökin um húsaleigu.“ n sóley tómasdóttir, femínisti „Ferlega flottur pólitíkus sem hefur forgangsröðun á hreinu og er samkvæm sjálfri sér. Ræða hennar í HS Orku sýndi (svo ég vitni í e-n gamlan karl á Facebook) ótrúlega sam- hengishugsun og ræðusnilld. Þar sem hún tekur oft upp vandamál sem fólki finnst erfitt að viðurkenna að séu til staðar hefur hún fengið yfir sig hverja hatursgusuna á fætur annarri. Fólk mætti alveg reyna aðeins að hlusta á hana.“ n hanna birna kristJánsdótt- ir, borgar- stJóri „Hefur staðið sig vel sem borg- arstjóri á erfið- um tímum. Ef hún væri karl væri hún í dag bæði a) ástsælasti borgarstjóri sjálfstæðismanna fyrr og síðar, og b) formaður Sjálfstæðisflokksins. n bJörgólfur guðmunds- son, athafna- maður „Það var algert vanmat hjá ís- lensku þjóðinni að halda að þessi maður gæti ekki sett fleiri fyrirtæki á haus- inn, og það með enn stærri hvelli en áður. Draugadallur Hafskips sigl- ir ekki lengur undir fölsku flaggi - hauskúpan er komin á sinn stað.“ n bJörgólfur thor guðmundsson, athafnamaður „Það var algert vanmat hjá ís- lensku þjóðinni að halda að þessi maður væri ekki gjaldgengur í rúss- nesku mafíuna.“ n karl th. birgisson, ritstJóri „Einn allra besti penni og samfé- lagsrýnir lands- ins. Er sennilega of skemmtilegur til að vera tekinn nógu alvarlega.“ n sigurður kári kristJáns- son, aðstoðarmaður „Án efa einn duglegasti og heiðar- legasti stjórnmálamaðurinn sem hefur aldrei fengið að njóta sann- mælis og fengið yfir sig mikla gagn- rýni fyrir að vera einn fárra sem halda í prinsipin sín.“ n Þóra kristín ásgeirsdótt- ir, blaðamað- ur „Góður blaða- maður og formað- ur BÍ. Stóð sig vel á mbl.is og hafði ekkert til saka unnið þegar hún var rekin þaðan.“ n már guðmundsson, seðlabankastJóri „Stálheiðarlegur og vinnusamur maður, sem sleppti hægu sæti í Sviss til að hverfa heim til starfa fyrir sína þjóð.“ n páll skúlason, heimspekingur „Greindur maður, sem aldrei tranar sér fram, en allt of sjaldan er hlust- að á.“ n vilhJálmur egilsson, frkvstJ. samtaka atvinnu- lífsins „Veit hvað hann syngur - og er ekki með neitt rusl á bakinu.“ n Þorvaldur gylfason, hagfræðingur „Segir næstum alltaf réttu hlutina.“ n bergÞór pálsson, söngvari „Ekki vanmet- inn sem söngvari heldur siðameist- ari. Bækurnar hans um framkomu og siði eru yndislegar og ofsalega þörf lesn- ing. Hefur þessa eðlislægu jákvæðu og einlægu áru sem veldur því að þó að hann sé að finna að fram- komu fólks, þá móðgast enginn. Það hlusta allir þegar Bergþór tal- ar. Það sem hann segir er alltaf svo innihaldsríkt og sagt af svo mikilli kostgæfni, jákvæðni og virðingu fyr- ir viðmælandanum og viðfangsefni. Bergþór ætti að fá sérstakan þátt í einhverjum fjölmiðli þar sem hann hnykkir á helstu málum.“ n Jónína benediktsdóttir, íÞróttafræðingur „Það hefur sýnt sig og sannað æ ofan í æ að það sem þessi kona tekur sér fyrir hendur reynist vera það rétta. Hefur heldur betur fengið að heyra eitt og annað um sjálfa sig og geð- heilsu sína en hún stendur alltaf keik. Var löngu búin að benda okk- ur á óeðlileg krosstengsl og furðu- lega viðskiptahætti í samfélaginu en allir töldu hana klikk. Spurning hvort við sætum eins á bólakafi í súpunni ef við hefðum hlustað.“ n Jón gerald sullenberger, athafnamaður „Vanmetinn þeg- ar hann var að segja frá sukk- inu. Kannski var það hefndarhug- ur sem knúði þau Jónínu áfram en þau sögðu okkur frá öllu því sem í dag þykja sjokkerandi fréttir í við- skiptalífinu og allir láta kom sér á óvart.“ n dr. gunni, tónlistar- og fJölmiðlamaður „Skemmtilegur tón- listarmaður, hefur gefið út sannköll- uð meistaraverk. Veit ekki til þess að þau hafi verið á listum yfir bestu plötur landsins. Textarnir einstakir, fullir af sann- leika og húmor. Maður sem ætti að höfða til annarra en þeirra sem kjósa Vinstri græna.“ n kristín steinsdóttir, rithöfundur „Frábær rithöf- undur. Nafni hennar er ekki haldið mikið á lofti, því miður. Hefur ekki bara skrifað barnabækur. Á eigin vegum er bók sem kom út fyrir nokkrum árum, frábær.“ n erlingur gíslason, leikari „Besti leikari á Íslandi. Snillingur!“ n emilíana torrini, tónlistar- maður „Frábær tónlistar- maður sem rúllaði þýska listanum upp í sumar en virðist samt alltaf vera bara talinhálffurðuleg hér heima. Upphefðin kemur ekki einu sinni að utan í hennar tilfelli!“ n hermann guðmundsson, forstJóri „Hefur verið að vekja athygli á tækifærunum sem eru á Íslandi og hvernig þjóð- in ætti að toga sig upp úr kreppunni. Hefur fengið litla at- hygli þrátt fyrir það og kannski er það hans Akkilesarhæll að hann er forstjóri olíufyrirtækis.“ n Þorsteinn guðmunds- son, leikari „Stóð sig eins og hetja í kvik- myndinni Maður eins og ég og hefur átt góða spretti í gríninu en það er eins og þjóðin fatti hann ekki alveg.“ n arnÞrúður karlsdóttir, fJölmiðlakona „Rekur sjálfstæða útvarpsstöð án þess að teygja sig ofan í vasa skatt- borgara.“ Þau voru líka nefnd sem vanmetnustu íslendingarnir: n Þorgerður einarsdóttir, kynJafræðingur „Hefur einstakan hæfileika til að setja hlutina í samhengi og koma með ferska sýn á mál. Gagnrýnin hugsun er í hásæti hjá henni og hún er svo málefnaleg að það hálfa væri nóg. Mætti gjarnan heyrast meira í henni í samfélagslegri umræðu.“ n fólkið sem tók ekki Þátt „Þeir Íslendingar sem héldu sínu striki hvað sem á gekk. Það er sá fá- menni hópur fólks sem ekki tók þótt í djamminu meðan á því stóð og reif allar innréttingar út úr nýjum hús- um og barst á með dýrum jeppum. Íslendingar snobba alltof mikið fyr- ir peningum, áhrifum og völdum en gleyma mannkostum, aðhaldssemi, skynsemi og dyggðum prýtt fólk sem lifir sínu lífi í sátt og samlyndi við allt og alla.“ n hinn almenni borgari n amma og afi n íslenskir listamenn n fólk í umönnunarstörfum n guðmundur páll ólafs- son, náttúrufræðingur n fm belfast „Dásamleg hljómsveit sem blessun- arlega er að fikra sig upp athyglis- skala þjóðarinnar en hefði átt að gera það mun fyrr. Almennilegt stöff á ferðinni. Það góða er að góðir hlut- ir gerast hægt og því er von á að FM Belfast komi sterkar inn smátt og smátt.“ n hreinn hreinsson, vef- stJóri „Falinn sem vefstjóri hjá Reykja- víkurborg en er eigi að síður ein- hver skarpasti greinandi íslenskra þjóðmála. Mætti hafa sig meira í frammi.“ davíð oddsson, ritstJóri morgunblaðsins „Fyrir það sem hann segir, ekki fyrir verkin hans.“ „Stórlega ofmetinn. Heil þjóð hefur trúað því til margra ára að hann sé klárari en flestir. Það hefur síð- an komið í ljós að hann kann ekk- ert á efnahagsmál. Enn er hann þó í guðatölu hjá fjölda manna.“ „Ofmetnasti Íslendingur allra tíma, jafnt meðal fylgismanna og and- stæðinga. Arfleifð hans sem stjórn- málamanns og seðlabankastjóra er askan ein í dag og held ég að rit- stjóratíð hans á Mogganum verði tíðindaminni en ætla mætti af fá- rinu á dögunum. Það er eitthvað við yfirgangssegginn Davíð sem dregur fram meðvirknina í þjóðinni og ætti það að vera hluti af endurreisninni að senda allan heila söfnuðinn á Al Anon-fundi til að ná honum úr kerf- inu í eitt skipti fyrir öll.“ „Er einhver að lesa leiðarana hans í Morgunblaðinu? Snilld? Álíka góð- ur rithöfundur og Hitler var vatns- litamálari. Vandræðagangurinn í kjölfar þessarar ráðningar á Morg- unblaðinu á eftir að jarða blaðið endanlega.“ Jóhanna sigurðardóttir, forsætisráðherra „Ræður engan veginn við þetta mikla verkefni sem hún er að fást við.“ „Hefur valdið kjósendum sínum miklum vonbrigðum, hún er of- metnasti Íslendingurinn, ásamt nokkrum öðrum þingmönnum Samfylkingar sem kjósendur bundu miklar vonir við, eins og Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra.“ „Það sannast í henni að góðir liðs- menn eru ekki endilega góðir fyr- irliðar. Það gengur ekki að hafa mannafælu sem talar ekki ensku í þessu embætti á þessum tímum. Því miður. Næsti?“ bubbi morthens, tónlistar- maður „Stál og hnífur löngu horfið, gull og silfur tekið við.“ „Maður þarf að vera mamma hans til að þola sífellt nýja útgáfu af sama laginu, tileinkuðu vinsælasta málefninu hverju sinni.“ ofmetin ofmetin, umdeild og vanmetin Helgarblað DV leitaði til 15 fjölbreyttra, skarpra og ráðagóðra álitsgjafa í leitinni að van- metnustu og ofmetnustu Íslendingunum. Mjög margir komust á blað en engan skal undra að stjórnmálamenn séu ofarlega í huga flestra álitsgjafa og skipa þeir flest efstu sætin. Þeir sem lenda í báðum flokkum hljóta að teljast umdeildustu menn landsins. vanmetin
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.