Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Page 42
42 föstudagur 2. október 2009 sport Augu manna verða á Jenson Button þeg-ar ökuþórarnir í Formúlu 1 taka sviðið í Japan á sunnudaginn. Bretinn knái getur tryggt sér heimsmeistaratitilinn vinni hann sér inn fimm stigum meira en félagi hans hjá Brawn GP, Rubens Barrichello. Þá þarf hann ekki nema sex stig til þess að útiloka alla nema sig og Barrichello frá heimsmeistaratitl- inum haldi félagi hans í við hann stigalega séð. Þá getur nær ekkert komið í veg fyrir að Brawn GP verði heimsmeistari bílasmiða á sínu fyrsta ári í Formúlunni en það yrði enn ein rósin í hnappagat snillingsins Ross Brawn sem á sín- um tíma gerði Michael Schumacher að sjöföld- um heimsmeistara. Tíðindi vikunnar voru þó ráðning Spánverj- ans mislynda, Fernandos Alonso, til Ferrari en Kimi Raikkonen, sem hefur verið dapur á sinn mælikvarða í ár, yfirgefur því liðið. Líklegt þykir að hann haldi aftur til McLaren eftir tímabilið. Button tekur enga áhættu Jenson Button vann sex af fyrstu sjö mótum ársins og með því er hann að vinna heims- meistaratitilinn. Hann hefur rakað saman mjög fáum stigum síðan í júní en þar sem aðrir ökumenn hafa skipst á stigum þvers og kruss hefur hann haldið góðri forystu. Hann hefur verið mjög heppinn líka því þegar Seb- astian Vettel og Mark Webber á Red Bull fóru að draga á hann steig heimsmeistarinn sjálfur, Lewis Hamilton, upp og hefur farið á kostum í undanförnum keppnum. Button þarf ekki nema sex stig til að útiloka alla nema sig og Barrichello frá titlinum í síð- ustu tveimur keppnunum en ennfremur get- ur hann orðið heimsmeistari um helgina fái hann fimm stigum meira en Barrichello. „Ég átta mig á að þetta hefur ekki verið glæsilegt að undanförnu. Frábær byrjun mín á mótinu virðist alveg gleymd en staðan er einfaldlega þannig að ég er búinn að vinna flest mótin þrátt fyrir að þau hafi öll komið í byrjun. Nú ætla ég mér bara að landa þessu. Ég mun ekki taka neina óþarfa áhættu því nokkur stig til viðbótar ættu að duga mér til heimsmeistara- titils og hann ætla ég að vinna,“ segir Jenson Button. Skipti hjá Ferrari Þær fregnir sem komu hvað minnst á óvart í vikunni var ráðning Fernandos Alonso til Ferr- ari. Það hafði verið nær fullyrt af spænskum miðlum fyrir einu og hálfu ári að sú væri raun- in. Ástæðan var nýjasti styrktaraðili Ferrari, spænski bankinn Santander sem lagði mikla áherslu á að Spánverjinn Alonso myndi aka fyrir liðið, og fyrst Kimi Raikkonen hefur ekki staðið sig betur en raun ber vitni var honum kastað fyrir borð. Árangur Raikkonens í ár endurspeglar samt á vissan hátt aksturshæfileika hans. Ferrari var á handónýtum bíl eins og menn þar á bæ viður- kenndu fúslega í byrjun móts en síðan hann var tuskaður til hefur Raikkonen unnið sér inn flest stig allra í síðustu fimm mótum. Lewis Hamilt- on, sem átti við sömu bílavandræði að stríða í byrjun móts, er einnig að koma sterkur inn. Ár- angur Hamiltons hefur komið honum upp að hlið Raikkonens á tölfunni, að fimmta sætinu, og þá gæti hann einn síns liðs tryggt McLaren þriðja sætið í heimsmeistarakeppni bílasmiða fari Raikkonen ekki að passa sig. Allavega eru samherjar þeirra, Giancarlo Fisichella á Ferrari og Heikki Kovalainen á McLaren, ekki að gera nokkurn skapaðan hlut. tomas@dv.is Aðeins þrjú mót eru eftir á Formúlu-tímabilinu og fer hver að verða síðastur að skáka Jenson Button. Mik- ið þarf að gerast svo annar hvor ökumaður Brawn, Button eða Barrichello, verði ekki heimsmeistari en vinni Button sér inn sex stig í Japan um helgina verð- ur hann heimsmeistari í fyrsta skiptið. Hann hefur þó ekki unnið mót síðan í júní. Button getur klárað dæmið Fernando Alonso Keppir þriðju síðustu keppni sína með Renault. Hann heldur til Ferrari eftir tímabilið. Ferrari-ferlinum að ljúka Kimi Raikkonen gæti snúið aftur til McLaren fyrir næsta tímabil. myndir AFP Öll augu á Button Jenson Button getur upplifað drauminn um helgina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.