Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Page 43

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Page 43
Sport 2. október 2009 föStudagur 43 Button getur klárað dæmið ChelSea hefur harma að hefna Liverpool heimsækir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Í fyrra varð Liverpool fyrsta liðið til þess að leggja Chelsea á Stamford Bridge í ríflega fjögur ár. Það var met sem hafði staðið í fjögur ár og tvo mánuði sem Liverpool eyðilagði fyrir Chelsea þegar liðin mættust síðast á Stamford Bridge á síðasta keppnistímabili. Ekkert lið hafði haft sigur af Chelsea á þeim tíma á „Brúnni“ eins og heimavöllur þess kallast. Það var Xabi Alonso sem skoraði eina markið, mark sem var ekki ólíkt þeim sem Frank Lampard, leikmaður Chelsea, skorar ósjaldan. Skot í varnarmann og í markið. Nú er Xabi Alonso horfinn á braut og Liverpool kemur sært inn í leikinn eftir tap í Flórens í meistaradeildinni, 2-0. Chelsea tapaði sínum fyrsta leik í deildinni um síðustu helgi gegn Wigan, 3-1, og missti markvörðinn, Petr Cech, af velli með rautt spjald. Hann verður því ekki með á sunnudaginn sem er heldur betur skarð fyrir skildi í svona stórleik. Benitez heimtar hámarksárangur úr leiknum en hann varð gjörsamlega æfur yfir leik sinna manna gegn Fiorentina í meistaradeildinni. „Ég hef aldrei séð hann svona pirraðan. Við vorum það samt allir. Við þurftum samt ekki að heyra þrumuræðu í hálfleik því við vissum allir að við spiluðum mjög illa og að við gætum miklu betur,“ segir Fabio Aurelio, leikmaður Liverpool. Liverpool getur með sigri jafnað Chelsea að stigum en strákarnir úr Bítlaborginni hafa nú þegar tapað tveimur leikjum á tímabilinu. Liverpool tapaði aftur á móti aðeins einum leik á öllu síðasta tímabili en þar urðu jafnteflin því að falli. Í leiknum á sunnudaginn mætast tveir afar heitir framherjar. Didier Drogba hjá Chelsea sem hefur skorað sex mörk á tímabilinu og Fernando Torres hjá Liverpool sem lyfti sér upp á topp markalistans með þrennu gegn Hull um síðustu helgi. Það er þó afar ólíklegt að þeir fari að raða inn mörkunum enda ekki mikið um þau þegar þessi lið mætast. Vonbrigði Ashley Cole fékk dauða- færi í leiknum sem Chelsea tapaði í fyrra og var svekktur í leikslok. Báðir farnir Þegar Liverpool vann Chelsea á síðasta tímabili skoraði Xabi Alonso. Honum var fagnað af Robbie Keane en báðir eru farnir frá liðinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.