Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Side 47

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Side 47
helgarblað 2. október 2009 föstudagur 47 Framhjáhald á internetinu er ein helsta sambands-ógn sem pör þurfa að tak-ast á við í dag. Þar sem stafræn tækni skipar sífellt stærri sess í sambandsslitum fólks þurf- um við að vera betur á varðbergi um hætturnar sem tækninni fylgja. Internetið er þrátt fyrir allt frekar nýtt fyrirbæri. Enn er ekki ljóst hvar mörkin liggja á netinu þegar fólk er í sambandi. Þótt það sé ekki fallegt að snuðra um mak- ann getur það í sumum tilvikum borgað sig að mati bandaríska kynlífs- og sambandaráðgjafans Ians Kerner. Tilfinningalegt framhjáhald Internetið, rétt eins og hótelherbergi og GSM-símar, auðveldar fólki mjög að halda framhjá, að mati Kern- ers. Hann segir að netnotkun leiði kannski ekki með beinum hætti til framhjáhalds en líkur á ákveðinni tegund framhjáhalds aukist með mikilli notkun á samskiptaforritum; tilfinningalegu framhjáhaldi. Slíkt trúnaðarbrot sé oft í formi daðurs við einhvern af hinu kyninu, þar sem til staðar séu öll einkenni kynferðislegs sambands. Öll nema kynlífið sjálft. Leynd, tilfinningaleg nánd og kynferðisleg spenna séu þrjú merki þess að um tilfinninga- legt framhjáhald sé að ræða. Kern- er er á því að ástarsambandi stafi í raun meiri ógn af slíku framhjáhaldi en stöku hliðarspors í formi skyndi- kynna. Veggir geta lekið Hann segir að í langvarandi ástar- sambandi sé afar mikilvægt sé að setja skýr mörk, sérstaklega gagnvart þeim sem gætu á einhvern hátt ógn- að sambandinu. Hann segir að það sé hins vegar ekki alltaf nóg að setja upp veggi. Veggir geti lekið. Helsta ógnin stafi ekki endilega af því að makinn freistist til að stunda kynlíf með við- komandi, heldur geti tilfinningalegt framhjáhald smátt og smátt grafið undan tilfinningum í garð makans. Traust og virðing En hvað áttu að gera þegar þú hef- ur á tilfinningunni að eitthvað slæmt sé í gangi? Áttu að snuðra? Kerner er á því að í sambandi, þar sem heit hafa verið bundin, eigi ekkert að fela. Allt eigi að vera upp á yfirborðinu. Vitaskuld eigi að virða friðhelgi einkalífsins en virð- ing byggist fyrst og fremst á trausti. „Konan mín veit til dæmis lykilorð- ið sem ég nota til að komast inn á nær öll póst- og samskiptaforrit á netinu. Notar hún það einhvern tímann? Ég leyfi mér að efast um það en henni er velkomið að renna í gegn um póstinn minn hvenær sem er. Um það snýst traust; hafa ekkert að fela og virða friðhelgi hvort annars. Annað getur ekki þrifist án hins,“ útskýrir Kerner. Á ég að kíkja? En hvað áttu að gera þegar þú veist ekki hvort þú getir treyst maka þínum? Þegar þú grunar hann um að eiga í óviðeigandi samskiptum við einhvern; að hann hafi eitt- hvað að fela? Kerner segir að áður en þú ákveðir að snuðra eigir þú að spyrja þig eftirtalinna spurn- inga: 1. Er maki þinn óeðlilega lengi á netinu í tölvunni eða símanum? Laumast hann á netið þegar þú sefur eða lokar tölvunni þegar þú gengur framhjá? 2. Reynir hann að fela SMS-send- ingar í símanum eða forðast hann að skilja við síður á borð við Face- book opnar þegar hann er ekki við tölvuna? 3. Heldur makinn sambandi við sína fyrrverandi, til dæmis á Face- book? Finnst þér það óþægilegt? 4. Finnst þér þú ekki fá að vita það sem þú villt vita um samband hans við fyrrverandi kærustur eða kær- asta? 5. Fer makinn í vörn og kallar þig vænisjúka/n þegar þú minnist á pukrið eða feluleikinn sem virðist vera í gangi? 6. Er maki þinn daðrari að eðlisfari og sýnir það þegar þið farið út að skemmta ykkur? 7. Hefur kynlíf ykkar tekið breyt- ingum undanfarið eða er nándin minni? 8. Gerir maki þinn lítið úr þér á al- mannafæri? Gagnrýnir hann þig eða segir brandara á þinn kostn- að? 9. Viðhefur maki þinn neikvæðar athugasemdir um samband ykkar í viðvist annarra? 10. Hefurðu það á tilfinningunni að eitthvað ami að? Svörin við þessum spurningum ættu að mati Kerners að gefa þér vísbendingu um það hvort þú eig- ir að snuðra eða laumast í pósthólf eða síma maka þíns. Sérstaklega ef þú hafir án árangurs reynt að ræða þessa hluti við makann. Vonandi komist þú ekki á snoðir um neitt misjafnt og geti þannig andað létt- ar, eða í það minnsta velt því bet- ur fyrir þér hvers vegna þú hafð- ir grunsemdir um að makinn hafi eitthvað óhreint í pokahorninu. Ef til vill getir þú nýtt það til að bæta sambandið ykkar. Gráu svæðin mörg Kerner segir þó að vitaskuld sé hugs- anlegt að þú finnir eitthvað sem angri þig, jafnvel þó makinn geri lítið úr því. Grá svæði tilfnningalegs framhjá- halds séu mörg. Rannsókn sem fram- kvæmd hafi verið árið 2008 hafi leitt í ljós að konur og karlar líta misjöfnum augum á tilfinningalegt framhjáhald. „Rannsóknin leiddi í ljós að karlmenn eru viðkvæmari en konur fyrir líkam- legu framhjáhaldi konunnar. Konur taka aftur á móti tilfinninga- eða and- legt framhjáhald manna sinna meira nærri sér,“ segir Kerner. Hann segir að rannsóknin sýni að svigrúm fyrir ósætti sé mikið. Menn líti ekki svo á daður við vin- konur jafngildi framhjáhaldi. Það þýði hins vegar ekki að málið sé útrætt. „Þó að þú lítir sjálfur svo á að samskipti þín við vininn muni ekki ganga lengra, er ekki víst að hann líti þannig á. Það getur skapað vandamál,“ segir Kerner. Niðurstaðan er skýr Kerner segir að enginn vilji í raun og veru snuðra um maka sinn. Auðvitað vilji heldur enginn láta njósna um sig. Hvorugt sé mjög uppörvandi. Besta lausnin sé auðvitað sú að par eigi óheft- ar umræður um hluti sem þessa. Það styrki sambandið. „Það að tala saman er frábært tækifæri til að setja skýr mörk og viðmið í samskiptum við aðra, bæði á net- inu og annars staðar. Finnið lausn sem þið getið bæði sætt ykkur við,“ segir Kerner. En hvað áttu að gera ef þú kemst að því að makinn er að daðra við vini af gagnstæðu kyni á netinu eða í símanum? Hvað ef þú færð sönnur fyrir tilfinningalegu framhjáhaldi? Kerner er ekki í vafa. „Það er erfitt að taka ákvörðun um að snuðra um makann, en það er betra að vita en vita ekki. Það borgar sig að kíkja. Vertu ánægð/ur með það,“ segir hann að lokum. birgir@dv.is Byggt á grein Ians Kerner, kynlífssér- fræðings, rithöfundar og sambands- ráðgjafa. Laumast maki þinn á netið þegar þú sefur eða lokar hann tölvunni þegar þú gengur framhjá? Gætir hann þess að láta símann aldrei frá sér og bregst hann illa við þegar þú spyrð hann um netsamskipti við gamla vini og elskhuga? Þetta eru allt vísbendingar um að makinn hafi óhreint mjöl í pokahorninu að mati met- söluhöfundarins og sambandsráðgjafans Ians Kerner. heldur maki þinn framhjá? „Reynir hann að fela SMS- sendingar í símanum eða forðast hann að skilja við síður á borð við Facebook opnar þegar hann er ekki við tölvuna?“ Er daður á netinu framhjáhald? Grá svæði tilfnningalegs framhjá- halds eru mörg. Karlar og konur hafa ólíkar skoðanir á daðri á netinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.