Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Síða 48
48 föstudagur 2. október 2009 lífsstíll
fegurðarkóngurinn timber-
lake Árið 1991 vann Justin Timberlake
barnafegurðarsamkeppnina pre-teen Mr. Am-
erica. Ári síðar var fyrsta America’s Universal
Charm keppnin haldin, þar sem hann bar sig-
ur úr býtum en „keppt“ var í yndisþokka.
Snemma beygist krókurinn!
Hallærislegar þjóðsögur hafa gengið
manna á milli í margar aldir frá einni
kynslóð til þeirrar næstu. Misskiln-
ingurinn er oft margra alda gamall og
bara kjánalegur. Hér eru nokkrar „stað-
reyndir“ sem margar okkar hafa heyrt í
gegnum tíðina.
„Sápa er slæm fyrir húðina“
- Í gamla daga var oft notuð dýrafita og
olía í sápur. Nú til dags eru formúlurn-
ar mildari og innihalda oftast rakagef-
andi efni sem skilja húð þína ekki eftir
þurra. Hrein húð er betri en skítug húð.
„Rakstur eykur hárvöxt“
- Þú ert alltaf með jafnmörg hár, sama
hvort þú rakar þau eða ekki. Aftur á
móti geta hárin litið út fyrir að vera
grófari og þykkari eftir rakstur.
„Þú færð fallegri húð af mikilli vatns-
drykkju“
- Vatn er bráðnauðsynlegt fyrir kroppinn,
en of mikið af því þenur bara út á þér
magann og þú þarft á klóið oftar.
„Það er hægt að laga slitna enda“
- Eina leiðin til þess að losna við slitna
enda er að klippa þá og þú kemur bara
í veg fyrir þá með því að fara vel með
hárið á þér.
„Þurr húð skapar hrukkur“
- Ekki satt. Sólin skapar flestar hrukkur.
„Þú getur þvegið burtu bólur og útbrot“
- Of mikið skrúbb mun bara auka olíu-
myndum húðarinnar og ástandið
versnar.
„Sólin lagar bólur“
- Þó að sólin þurrki upp bólur tíma-
bundið hefur hún slæm áhrif á heil-
brigðar húðfrumur. Það getur svo vald-
ið útbrotum og verri bólum nokkrum
dögum eftir að þú sólar þig.
fegurðarmisskilningur
UMSJón: HelgA kriSTJÁnSdóTTir, helgak@birtingur.is
flatbotna-
bylgjan
ritstjórar áhrifamikilla tískutímarita
eru nú farnir að hallast að flatbotna
skóm. engan skal undra, því fyrir
nokkrum tískuvertíðum voru skórnir
orðnir svo háir að módelin duttu á
þeim á sýningarpöllunum í
tonnatali. Skór með smá upphækk-
un en án hæla koma sterkir inn á
næstu mánuðum.
lindsay „drekinn“
lindsay lohan var fyrir stuttu ráðin
sem listrænn stjórnandi tískuhússins
Ungaro, en einungis viku eftir að
fregnir þess efnis bárust hefur hún
sleppt mikilvægum fundi við „Wall
Street Journal“ og neitað að láta taka
myndir af sér á tískusýningu Ungaro.
kjaftasagan segir að fyrir seinna
atvikið hafi hún verið rekin. Yfirmenn
hennar voru að sögn viðbúnir
einhverjum dívustælum, en þarna
fór hún yfir strikið.
Tískusérfræðingur DV veltir fyrir sér mismunandi sýn karla og kvenna á tísku og
hvað sé fallegt.
hvað fíla
karlmenn?
líkleg í Vogue
glöggum tískuspekúlöntum finnst
líklegt að hæfileikaríka leikkonan úr
„The note Book“, rachel McAdams,
verði forsíðumódel janúarútgáfu
tískubiblíunnar Vogue. rachel sást
einmitt sitja við hlið ritstýrunnar
ferlegu, Önnu Wintour, á tískusýn-
ingu Alexanders Wang um daginn.
næsta mynd hennar, Sherlock
Holmes, kemur einmitt út í
desember á næsta ári.
Um daginn fór ég á gamanmynd-
ina „The Ugly Truth“, sem fjallar um
samskipti kynjanna á spaugilegan
hátt. Hversu stór gjá er á milli þess
sem karlmenn fíla og þess sem konur
vilja. Þar kemur meðal annars fram
að samkvæmt karlmanninum á kon-
an að vera mjög tvískipt hvað varð-
ar karakter og klæðaval. Fullkomna
konan er „barnaskólakennarinn
sem er óþekk í laumi“, það eru skila-
boðin. Ekki vera of auðveld en al-
ger kynbomba inn við beinið. Ekki
skemmir fyrir ef þú ert það fjölhæf að
geta klæðst stuttum kynþokkafullum
kjól sem sýnir brjóstaskoruna með-
an þú vaskar upp.
Nokkrum dögum eftir bíóferðin-
a fórum við kærastinn að hitta bestu
vinkonuna og eiginmann hennar.
Við besta höfum skapað okkur langa
hefð fyrir því að skoða tískublöðin
saman og í þetta skipti var mín kom-
in með þykkustu tískubiblíu sem ég
hef séð úr ferð sinni yfir hafið. Eft-
ir nokkra drykki fórum við stelp-
urnar að fletta biblíunni heilögu.
Merkilegt nokk fóru karlmennirnir
að forvitnast og skoðuðu með okk-
ur. Ekki þarf að taka fram að skoð-
anir kynjanna á því hvað er heitt
og hvað ekki voru ansi ólíkar. Út frá
þessu fannst mér áhugavert að pæla
í muninum á því hvað karlmenn fíla
versus það sem konur fíla, tískulega
séð. Ekki ætla ég mér að alhæfa neitt
hér, en hér eru nokkur dæmi um
muninn á karlmönnum og tískuséð-
um konum.
n Karlmenn fíla ekki rúllukragaboli.
Segir sig í raun sjálft, þeir fela „góss-
ið“.
n Engin kona lítur vel út með rauðan
varalit. Einungis trúðar bera þetta
trend vel.
n Það er ekki smart að vera í ósam-
stæðum nærfötum.
n Víð snið á bolum og toppum láta
okkur líta út fyrir að vera óléttar.
n Of mikill farði er algert „turn off“.
Konan á helst að líta út fyrir að vera
ómáluð. (Þótt það taki hana klukku-
tíma að feika það.)
n Karlmannsgallabuxna og -jakka
trend er ekki að gera sig fyrir hitt
kynið. Einu skiptin sem hann vill sjá
þig í fötum sem geta verið hans, er
daginn eftir, þegar þú nakin skellir
þér í skyrtuna hans.
n Bolir eða buxur með áletruninni
„Princess“ eða „hottie“ eru ekki að
gera sig. Þú ert annaðhvort 13 ára
dekurrófa eða 29 ára kona sem not-
ar of mikinn gloss og brúnkukrem
og langar að sýnast yngri en þú ert.
Við konurnar getum fílað töffara-
lega leðurjakka og mótorhjólastígvél
sem eru voðalega móðins akkúrat
núna. Jafnvel Alladín-buxnasnið og
bláa augnskugga. Það kveikir lítið í
karlpeningnum.
Fallegar dragtir og notaðir ömmu-
kjólar kveikja í okkur meðan þeir
vilja ekki sjá dragtir nema það glitti
í brjóstahöld eða sokkabönd. Það er
ekkert sexí við kjóla sem koma frá
sjötta áratugnum, því þeir minna þá
bara á ömmur þeirra.
Eitt er víst að konur og karlar
munu aldrei verða eins, en stað-
reyndin er jú sú að helstu tísku-
hönnuðir heimsins sem skapa nýj-
ustu trendin eru samkynhneigðir
karlar og þess vegna ekki endilega
dómbærastir á það hvað gerir kon-
ur „girnilegar“ í augum gagnkyn-
hneigðs karlpeningsins.
Helga Kristjánsdóttir
Hvað vilja þessir karlmenn?
„Fullkomna konan
er „barnaskólakennarinn sem
er óþekk í laumi“.“
Allt misskilningur
Það borgar sig
að fylgjast með
tískuráðum dV.
Smíðum allar gerðir
lykla , smíðum og
forritum bíllykla.
Verslun og verkstæði
Grensásvegi 16
Sími: 511 5858