Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Page 64

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Page 64
n „Ég hélt að ég ætti þetta félag fyr- ir, en áttaði mig á að svo var ekki. Ég kippti því strax til mín. Þetta er félag sem ég tel að sé verðmætt út af nafninu og ég vil ekki að neinn annar eignist það,“ segir Svava Jo- hansen, kaupmaður í Sautján, sem stofnaði nýlega félagið Sautján ehf. Svava á fyrir félagið NTC sem rekur fjölda tískuvöruverslana. Hún segist ekki búast við að mikil starfsemi verði í kringum Sautján ehf. á næstunni. „Kannski einhvern tíma seinna,“ segir hún og tekur fram að allar verslanir hennar og starf- semi verði áfram rekin undir nafni NTC, þeirra á meðal tvær nýj- ar verslanir sem verða opnaðar bráðlega í Smára- lind. Leikur við hvern sinn fingur og tær líka! Fréttaskot 512 70 70 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar. Ingimar Karl Helgason, fréttamaður Stöðvar 2, fékk að finna fyrir hrekkja- lómnum og Kastljósskempunni Helga Seljan, þegar hann þreytti frumraun sína í beinni útsendingu fyrir framan Stjórnarráðið á miðvikudag. Á meðan Ingimar Karl flutti áhorfendum fréttir af ríkisstjórnarfundi fékk Helgi Seljan útsendingarmenn Stöðvar 2 til að skipa Ingimari fyrir í framkomu hans á með- an á útsendingu stóð. Ingimar komst ekki að því fyrr en eftir útsendingu að Helgi stóð á bak við æði furðuleg fyrirmæli sem hann fékk í eyrað í útsendingunni. „Ég heyrði það bara eftir á. Ekki nema að því leyt- inu sem hann sagði mér sjálfur eftir á að það hefði verið þannig. Ég tók því bara vel hjá honum,“ segir Ingimar Karl. Helgi sagði Ingimari að sjúga upp í nef- ið og hreyfa sig svolítið því hann virkaði kaldur og stífur í útsendingunni. „Hreyfðu þig! Dálítið stífur! Kulda- legur! Sjúgðu upp í nefið!“ er meðal þess sem Ingimar segist hafa fengið að heyra. Hann segist ekki vita til þess að þeir sem séu að hefja feril sinn sem fréttamenn þurfi að sæta stríðni er þeir hefja störf. Það hafa væntanlega verið hæg heima- tökin hjá Helga að fá að gera létt grín í Ingimar því hann vann hjá Stöð 2 áður en hann hóf störf hjá Ríkissjónvarpinu. Svava Stofnar Sautján Helgi Seljan hrekkti Ingimar Karl í beinni útsendingu: „Kuldalegur! Sjúgðu upp í nefið!“ n Það vakti óskipta athygli gesta og gangandi við þingsetningarathöfn- ina á miðvikudaginn hve grannur og spengilegur Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn er orðinn. Í Séð og heyrt fyrr á árinu sagðist hann hafa misst rúm tuttugu kíló og hafa allavega tíu bæst við þau og lítur þessi vinalega lögga afskaplega vel út. Hann er hjá einkaþjálfara sem hann segir sjálfur vera eins og stífasta her- þjálfara en er afar ánægður með árangurinn. Ekki spillir fyrir að Geir Jón tekur sig nú enn betur út í lögreglu- búningnum enda dugir ekki að vera með kúlu í honum eins og hann segir grenniSt og grenniSt n Geir H. Haarde, fyrrverandi for- sætisráðherra, er óðum að kom- ast á flug eftir að hafa greinst með krabbamein í vélinda í byrjun árs. Geir hefur verið í strangri þjálfun hjá einkaþjálfurum í World Class í Laugum og mætir hann reglulega í líkamsræktina. Eftir erfiða æfingu á miðvikudagsmorgun með einka- þjálfara sínum fór Geir á teygju- svæðið í Laugum þar sem einka- þjálfarinn nuddaði tær ráðherrans fyrrver- andi, sem var löðr- andi sveittur. Vakti þetta töluverða at- hygli nærstaddra, þó flestum hafi ekki þótt það neitt tiltöku- mál að sjá gamla forsætis- ráðherr- ann í tásu- nuddi. geir í táSunuddi Hrekkjusvín helgi seljan sá sér leik á borði og stríddi ingimar karli helgasyni sem var varnarlaus í beinni útsendingu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.