Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2009, Blaðsíða 38
Umsjón: Kjartan GUnnar Kjartansson, kgk@dv.is
þríburar 50 ára í dag
Dagný Sigurbjörg Sigurmundsdóttir
saumakona í Hveragerði
Dagný fæddist í Reykjavík en ólst upp
í húsinu Kirkjutúni í Laugardælum í
Flóa.
Hún var í Barnaskóla Selfoss og
Gagnfræðaskóla Selfoss og stundaði
síðan nám við öldungadeild MH og
nám í lyfjatækni.
Dagný hefur lengst af sinnt um-
önnunarstörfum, m.a. í tvö ár á Sól-
heimum í Grímsnesi. Þá var hún
ráðskona á Ásbyrgi í Ási í Hveragerði
tæp í fjögur ár. Hún hefur lengi stund-
að saumaskap í hjáverkum og starfar
nú alfarið við það fag.
Dagný hefur sinnt ýmsum félags-
og líknarmálum, starfaði t.d. í tíu ár í
Mæðrastyrksnefnd Kópavogs og sat í
stjórn Samfoks í nokkur ár. Þá sat hún
í stjórn Freyju, félags framsóknar-
kvenna í Kópavogi í tíu ár og var for-
maður foreldrafélagsins í leikskólan-
um í Efstahjalla.
Fjölskylda
Börn Dagnýjar eru Kristinn Már Jó-
hannesson, f. 24.9. 1979, blikksmiður
í námi í rekstrarverkfræði en unnusta
hans er Sigurlín Bjarney Gísladóttir og
eru börn þeirra Freyja og Sölvi; Elín
Ósk Reynisdóttir, f. 25.2. 1983, nemi
í bygginga- og umhverfisverkfræði;
Sólveig Reynisdóttir, f. 24.9. 1984, að
ljúka MA-prófi í sálfræði, en mað-
ur hennar er Hreiðar Ævar Jakobs-
son og sonur þeirra Viktor Elí; Aron
Örn Reynisson, f. 17.6. 1993, nemi við
Tækniskólann.
Systkini Dagnýjar eru Guðbjörn
Sigurmundsson, f. 2.10. 1956, kenn-
ari við MK; Sveinn Sigurmundsson, f.
23.11. 1957, framkvæmdastjóri Bún-
aðarsambands Suðurlands; Harald-
ur Sigurmundsson, f. 20.11. 1959, raf-
fræðingur og einn eigenda Fossraf
á Selfossi; Kristinn Sigurmundsson,
f. 20.11. 1959, sjómaður, búsettur á
Selfossi; Ólafur Ingi Sigurmundsson,
f. 18.2. 1961, bóndi í Eyði-Sandvík í
Sandvíkurhreppi; Sigurlaug Sigur-
mundsdóttir, f. 25.12. 1962, garðyrkju-
bóndi í Laugarási í Biskupstung-
um; Ingimundur Sigurmundsson, f.
24.11. 1965, viðskiptafræðingur við
Landsbankann, búsettur á Selfossi;
Úlfhéðinn Sigurmundsson, f. 1.3.
1967, svínabóndi í Haga í Gnúpverja-
hreppi; Kristín Sigurmundsdóttir, f.
13.12. 1972, lyfjatæknir í Reykjanes-
bæ; Friðþór Sófus Sigurmundsson, f.
22.3. 1976, landfræðingur og kennari
við HÍ.
Foreldrar Dagnýjar eru Sigur-
mundur Guðbjörnsson, f. 25.1. 1934,
fyrrv. forstöðumaður kynbótastöðv-
arinnar í Laugardælum, og k.h., Þór-
fríður Soffía Haraldsdóttir, f. 22.2.
1937, húsmóðir og fyrrv. starfsmaður
Búnaðarsambands Íslands.
Kjartan Gunnar Kjartansson rekur
ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
Karen Lind Árnadóttir
nemi við myndlistaskóla akureyrar
Karen Lind fæddist á Akureyri en
ólst upp á Hauganesi á Árskógs-
strönd. Hún var í barnaskóla á
Akureyri, stundaði nám við List-
námsbraut Verkmenntaskólans á
Akureyri og stundar nú nám í graf-
ískri hönnun við Myndlistaskólann
á Akureyri.
Karen Lind var blómadrottning í
Blómavali um langt árabil og hefur
unnið við bókhald.
Hún hefur alla tíð haft mikinn
áhuga á listum og menningu, frí-
merkjasöfnun og íslensku land-
námshænunni.
Fjölskylda
Eiginmaður Karenar Lindar er
Kristján Freyr Pétursson, f. 30.9.
1981, útgerðarmaður, veiðimað-
ur og trésmiður.
Sonur Karenar Lindar og
Kristjáns Freys er Smári Freyr
Kristjánsson, f. 8.2. 2001.
Bóðir Karendar Lindar er Jón
Geir Árnason, f. 9.8. 1985.
Foreldrar Karenar eru Árni
Halldórsson, f. 1.1. 1960, og Soff-
ía Jónsdóttir, f. 8.8. 1960.
30 ára á miðvikudaginn var
38 föstudagur 20. nóvember 2009 ættfræði
Laugavegi 29 - sími 552 4320 - www.brynja.is
10% afmælisafsláttur
af vasahnífum,
eldhúshnífum
og skærum
föstudag og
laugardag.
hnífarnir fást hjá okkur
Byggð á
tilfinningavinnu og
slökunaröndun.
Sjálfshjálparbók.
Námskeið fyrir fagfólk
og aðra.
Þaulreynd og
árangursrík
sjálfstyrking!
Sjá nánar
www.baujan.is
Sími 699 6934
Baujan, sjálfstyrking
Kristinn Sigurmundsson
sjómaður, búsettur á selfossi
Kristinn fæddist í Reykjavík en ólst
upp á Laugardælum í Flóa. Hann
var í Barnaskóla Selfoss og Gagn-
fræðaskóla Selfoss, Héraðsskólan-
um á Laugarvatni og stundaði nám
við Vélskóla Íslands og lauk þaðan
réttindaprófi. Þá lauk hann skip-
stjórnarprófum.
Kristinn stundaði sjómennsku
í átta ár á sínum yngri árum, var
síðan bílstjóri hjá Mjólkurbúi Flóa-
manna á árunum 1984-2004 en hef-
ur stundað sjómennsku frá 2004 og
er nú skipstjóri á bátnum Betu VE
36.
Fjölskylda
Eiginkona Kristins er Inga Magn-
úsdóttir, f. 4.3. 1959, skrifstofumað-
ur hjá Fjölbrautaskóla Suðurlands á
Selfossi.
Börn Kristins eru Gunnþór Krist-
insson, f. 30.1. 1983, húsasmiður og
leigubílstjóri í Reykjavík, en kona
hans er Anna María Guðgeirsdótt-
ir og er dóttir þeirra Guðlaug Sigur-
rós; Jóhannes Mundi Kristinsson, f.
5.2. 1986, bifvélavirki á Selfossi; Elsie
Kristinsdóttir, f. 8.5. 1990, fram-
haldsskólanemi en unnusti hennar
er Bjarni Haukur Guðnason; Rúna
Kristinsdóttir, f. 27.5. 1994, grunn-
skólanemi; Sóley Dröfn Kristins-
dóttir, f. 14.7. 2005.
Börn Ingu eru Þorsteinn Pétur
Hlífarsson, f. 26.5. 1980, búsettur í
Reykjavík en unnusta hans er Hel-
ena Guðmundsdóttir nemi; Ragna
Fanney Hlífarsdóttir, f. 20.6. 1988,
nemi í vélaverkfræði við HÍ en unn-
usti hennar er Kristján Bjarnason
vélstjóri; Steinunn Björg Hlífarsdótt-
ir, f. 3.3. 1995, grunnskólanemi.
Systkini Kristins eru talin upp
í afmælisgrein systur hans annars
staðar hér á síðunni.
Foreldrar Kristins eru Sigur-
mundur Guðbjörnsson, f. 25.1. 1934,
fyrrv. forstöðumaður kynbótastöðv-
arinnar í Laugardælum, og k.h., Þór-
fríður Soffía Haraldsdóttir, f. 22.2.
1937, húsmóðir og fyrrv. starfsmað-
ur Búnaðarsambands Íslands.
Haraldur Sigurmundsson
raffræðingur á selfossi
Haraldur fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Kirkjutúni í Laugardælum í
Flóa. Hann var í Barnaskóla Selfoss
og Gagnfræðaskóla Selfoss, stundaði
nám við Héraðsskólann á Laugar-
vatni, var á námssamningi hjá Kaup-
félagi Árnesinga, lauk prófi í rafvirkj-
un frá Fjölbrautaskóla Suðurlands á
Selfossi 1985 og lauk síðar prófi sem
raffræðingur frá Fjölbrautaskóla Suð-
urlands á Selfossi árið1994.
Haraldur hefur starfað við raf-
virkjun frá því að hann lauk prófi
1985, fyrst hjá Kaupfélagi Árnesinga
og síðan hjá Árvirkjanum. Hann
stofnaði fyrirtækið Raftak 1992 og
starfrækti það um skeið. Fyrirtæk-
ið sameinaðist síðan Rafseli 1997 og
er nú starfrækt af Haraldi og fleirum
undir nafninu Fossraf.
Haraldur sat í stjórn Félags rafiðn-
aðarmanna á Suðurlandi um skeið.
Fjölskylda
Eiginkona Haralds er Gunnhildur
Þórarinsdóttir, f. 29.9. 1961, sjúkra-
liði og starfsmaður við sambýli.
Börn Haralds og Gunnhild-
ar eru Sigurður Þór Haraldsson,
f. 24.3. 1979, vélaverkfræðingur á
Selfossi; Þórfríður Soffía Haralds-
dóttir, f. 18.6. 1987, stúdent og hús-
móðir á Selfossi, en maður hennar
er Ari Steinn Hjaltested og eiga þau
óskírða dóttur, f. 19.10. 2009; Eyrún
Halla Haraldsdóttir, f. 16.7. 1990,
nemi við Fjölbrautaskóla Suður-
lands á Selfossi.
Systkini Haralds eru talin upp
í afmælisgrein systur hans annars
staðar á síðunni.
Foreldrar Haralds eru Sigur-
mundur Guðbjörnsson, f. 25.1. 1934,
fyrrv. forstöðumaður kynbótastöðv-
arinnar í Laugardælum, og k.h., Þór-
fríður Soffía Haraldsdóttir, f. 22.2.
1937, húsmóðir og fyrrv. starfsmað-
ur Búnaðarsambands Íslands.