Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2009, Blaðsíða 50
Apple uppfærir iMAc
Apple hefur uppfært iMac-tölvur sínar og er hægt að
fá þær í tveimur stærðum með 21,5 tommu skjá eða 27
tommu skjá. Minni týpan skartar 3.06 GHz Intel Core
2 Duo örgjörva en hægt er að fá stærri týpuna með
2.66 GHz Intel Core i5 quad-core eða fjögurra kjarna
örgjörva. Með iMac fylgir hin nýja mús Apple, Magic
Mouse, auk þráðlauss lyklaborðs.
iFixit.com er bandarísk vefsíða
sem sérhæfir sig í að veita almenn-
ingi mjög ítarlegar leiðbeiningar
varðandi viðgerðir og uppfærslur
á Apple-vélbúnaði. Það er kannski
ekki fyrir hvern sem er að taka í
sundur viðkvæman rafeindabún-
að en fyrir handlagna er hægt að
spara töluverðar fjárhæðir með
þessu móti, þolinmæði og skipu-
lag er allt sem til þarf. Á síðunni er
til dæmis hægt að skoða eða sækja
leiðbeiningar sem sýna skref fyrir
skref með myndum hvernig skal
skipta um móðurborð í Apple-
ferðatölvu eða setja nýjan skjá í
iPhone-síma. Vefsíðan veitir einn-
ig upplýsingar um hvaða verkfæri
séu nauðsynleg og hvernig sé best
að standa að því að raða skrúfum
og öðrum smáhlutum þannig að
auðvelt sé að setja allt saman aft-
ur. Hægt er að kaupa þá varahluti
sem nauðsynlegir eru í gegnum
síðuna og fá þá senda til Íslands.
iFixit.com hefur hlotið mikið lof
síðustu árin frá miðlum sem fjalla
um tölvur og tækni víðs vegar um
veröldina.
iFixit býður upp á ítarlegar leiðbeiningar fyrir þá sem þora:
Viðgerðir á eigin spýtur
rAfbækur
á uppleið
Það verður sífellt vinsælla að lesa
rafbækur (E-books). Flest bókaforlög
erlendis hafa gefið út slíkar bækur
undanfarin ár samhliða hinu
hefðbundna prentformi og mörgum
finnst þægilegra að kaupa þannig
og sækja bækur eftir sína uppá-
haldshöfunda beint af netinu og að
auki hafa allt bókasafnið sitt í
lestölvunni sinni. Lestölvur seljast
nú sem heitar lummur út um allan
heim og er t.d. hægt að nálgast þær
í gegnum hinar stóru sölusíður
Amazon.com og ebay.com
lg gD910
LG hefur sett á markað í Evrópu
armbandssíma með snertiskjá. Í
símanum má finna myndavél,
tónlistarspilara, 3G, Blátönn og
einnig er hægt að gefa raddskipanir.
Umfjallanir hafa allar verið á sama
veg, þér mun líða eins og James
Bond þegar þú hefur skipt út gamla
armbandsúrinu fyrir LG GD910.
UMsJón: páLL svAnsson, palli@dv.is
Töluverð eftirvænting hefur ríkt
undanfarna mánuði í Bandaríkj-
unum varðandi hina nýju síma-
þjónustu Google sem kallast Voice.
Google Voice er eins og er á tilrauna-
og þróunarstigi og aðeins takmark-
aður fjöldi notenda hefur fengið að-
gang meðan helstu vandamálin eru
löguð og nýir þættir þjónustunnar
prófaðir.
Helsta aðdráttarafl Google Voice
eru frí símtöl og SMS innan Banda-
ríkjanna og eitt símanúmer fyrir
lífstíð, fyrir alla símana þína! Voice
er í raun þín eigin símstöð, eða
skiptiborð, og lætur þér í té síma-
númer sem þaðan í frá er samtengt
öllum þeim númerum sem þú not-
ar dagsdaglega, í vinnunni, far-
símanum og heimasímanum. Þau
númer geta breyst frá ári til árs en
það er einfalt mál að aftengja eða
tengja nýtt númer við Voice-þjón-
ustuna.
Möguleikar Voice
Voice býður upp á SMS og talhólf líkt
og hefðbundnar símaþjónustur. Það
er bæði hægt að nálgast skilaboðin í
gegnum vafra eða fá þau áframsend
í farsímann. Talhólfsþjónustan hef-
ur einnig þá möguleika að umbreyta
raddskilaboðum í texta og senda
sem vefpóst eða í farsímann sem
SMS eða jafnvel beina símtölum frá
ákveðnum aðilum beint í talhólfið.
Voice býður einnig upp á frí SMS-
skilaboð og mjög ódýr símtöl milli
landa.
Viðmót
Helsta viðmót þjónustunnar verð-
ur til að byrja með í gegnum síma
með raddskipunum en vefviðmót
Voice er í örri þróun. Það er ekki ólíkt
Gmail-viðmóti Google, skipt niður í
flokka eins og SMS, talhólf, símtöl út,
símtöl inn og símtöl sem ekki hefur
verið svarað. Hægt er að leita í SMS-
skilaboðum og talhólfsskilaboðum
sem hefur verið umbreytt í texta og
merkja þau líkt og í Gmail.
Google hefur þegar gefið upp að
fullrar samhæfingar við Gmail sé
að vænta í náinni framtíð og verð-
ur þá hægt að nota eitt viðmót fyrir
vefpóst, símtöl, textaskilaboð og tal-
hólf.
Voice um allan heim
Til að byrja með verður aðeins boð-
ið upp á Google Voice innan Banda-
ríkjanna en vitað er að Google
stendur þessa dagana í samningum
við ýmis símafyrirtæki í heiminum
um aðgang að kerfum þeirra. Tæp-
lega ein og hálf milljón Bandaríkja-
manna notar Voice eins og er og tal-
ið er að gífurlegur fjöldi komi til með
að nýta sér þjónustuna þegar hún
verður loks gerð aðgengileg fyrir al-
menning.
Það er því líklegt að sum fyr-
irtæki séu efins um kosti þess að
veita Google aðgang þar sem það
gæti dregið úr þeirra eigin hagn-
aði. Þannig vakti mikla athygli þeg-
ar Apple-fyrirtækið lokaði fyrir notk-
un á sérstöku Google Voice-forriti
fyrir iPhone-síma fyrr á árinu án
raunhæfra útskýringa, sem kannski
bendir til þess að um þrýsting hafi
verið að ræða frá AT&T, símafyrir-
tækinu sem Apple hefur haft samn-
ing við frá upphafi. Eins og er býður
Google aðeins upp á sérstök Voice-
hringiforrit fyrir Blackberry og And-
roid-síma. Fyrir aðra farsíma er hægt
að nota veflægt forrit eða hringja
fyrst í Voice-númerið sem gefur síð-
an þann möguleika að hringja frítt í
önnur númer.
palli@dv.si
Nánari upplýsingar má finna á:
http://googlevoiceblog.blogspot.
com/
50 föstuDAgur 20. nóvember 2009 helgArblAð
Tölvan í
pörtum Það
þarf styrkar
hendur í það að
rífa sundur og
setja saman
aftur.
Almenningur í Bandaríkjunum
hefur tekið Google Voice opnum
örmum en stóru símafyrirtækin
vestanhafs eru að uppgötva sér til
skelfingar að þau verði að koma
til móts við nýja tækni sem gerir
kleift að veita nánast fría síma-
þjónustu fyrir alla.
eitt
núMer
fyrir lífstíð
Lin Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is