Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2009, Blaðsíða 8
Sandkorn
n Gylfi Ægisson, tónlistarmað-
ur, listmálari og fyrrverandi
sjómaður, dregur fátt und-
an í ævisögu sinni, Sjúddirarí
rei. Hann segir meðal annars
frá því þegar bátur sem hann
stundaði
sjómennsku
á hafnaði
óvænt uppi
í fjöru og
strandaði.
Skemmd-
ist bátur-
inn nokkuð
en náðist
samt á flot án utanaðkomandi
aðstoðar. Á landleiðinni kom
skipstjórinn að máli við Gylfa
og spurði hvort hann væri
ekki tilbúinn til að sverja fyrir
sjórétti að skipið hefði lent á
rekaldi á hafi úti. Gylfi féllst á
það þar sem aleiga eigendanna
var undir. Þeir eru nú látnir og
taldi Gylfi því óhætt að ljóstra
þessu upp.
n Svo virðist sem embætti
sýslumannsins í Hafnarfirði
undir forystu Guðmundar Sop-
hussonar
sé einskon-
ar uppels-
disstöð fyrir
saksóknara
hrunsins.
Allir fjórir
saskóknar-
arnir hafa
haft við-
komu þar. Frægastur er Ólafur
Þór Hauksson sem starfaði
þar frá 1989 til 1996. Hinir þrír
saksóknararnir, Björn Þor-
valdsson, Hólmsteinn Gauti
Sigurðsson og Arnþrúður Þór-
arinsdóttir, stöldruðu styttra
við að því er upplýst er á Vísi.
n Sú ákvörðun Arnþrúðar
Karlsdóttur, útvarpsstýru á
Sögu, að banna Guðmundi
Ólafssyni hagfræðingi að
mæta í morgunþátt vinar síns
Sigurðar G. Tómassonar á
föstudögum virðist almennt
frekar illa tekið. Arnþrúður
skýrði þó Guðmundarbann-
ið með því að þátturinn hefði
átt sívaxandi óvinsældum að
fagna án þess að skýra hvernig
þær væru mældar. Guðmund-
ur Andri Thorsson rithöfund-
ur er einn þeirra sem harm-
ar brotthvarf hagfræðingsins
glaðhlakkalega. „Mér þykja
þetta hörmuleg tíðindi. Eft-
irlætisþáttur minn og alveg
sérlega notalegt að sitja og
hlusta á masið í ykkur tveim-
ur og kinka af og til kolli og
tauta: það er gállinn á þeim í
dag... Þið eruð Tvíhöfði hins
hugsandi manns. Ég vona a
þið takið upp þráðinn síðar á
öðrum slóðum,“ skrifaði Guð-
mundur Andri á Facebook-
síðu Sigurðar G.
8 föstudagur 20. nóvember 2009 fréttir
„Ég er eiginlega hættur að telja kenni-
tölurnar hjá þeim. Ítrekað kennitölu-
flakk blasir við og við höfum af þessu
alvarlegar áhyggjur. Þetta dæmi er
ansi ljótt og er auðvitað algjörlega
út úr kortinu,“ segir Haraldur D. Nel-
son, forstöðumaður prentsviðs Sam-
taka iðnaðarins.
Haraldur er þarna að tala um
endurtekið kennitöluflakk eigenda
prentsmiðjunnar PH prents í Hafn-
arfirði. Þeir starfa nú undir fimmtu
kennitölunni og hafa því keyrt fjór-
ar prentsmiðjur í þrot á tæpum ára-
tug. Fyrri gjaldþrot fyrirtækja þeirra
Magnúsar Ólafssonar, Rósmundar
Magnússonar og Hilmars Sigurðs-
sonar nema hundruðum milljóna
króna. Keppinautar, birgjar og hags-
munasamtök lýsa yfir sárum von-
brigðum og kalla eftir því að komið
verði í veg fyrir áframhaldandi rekst-
ur prentsmiðjunnar.
Vísvitandi gert
Guðlaugur Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Stafrænu prentsmiðjunnar,
er undrandi yfir sífelldu kennitölu-
flakki sömu manna. Hann segist hafa
fengið góð viðbrögð við því að ræða
opinberlega um málið. „Mér finnst
þetta forkastanlegt og mjög sárt að
horfa upp á þetta. Það geta allir orð-
ið óheppnir og orðið fyrir gjaldþroti,
það kemur fyrir bestu menn, en þess-
ir menn eru að gera þetta vísvitandi
trekk í trekk. Það á enginn að geta
komist upp með svona lagað. Það
verður að gera eitthvað til að stoppa
þá. Hins vegar virðist enginn vera til-
búinn til að gera eitt eða neitt til að
stöðva þá,“ segir Guðlaugur.
Steingrímur Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri prentsmiðjunn-
ar Steinmark, segir ómögulegt að
standa í samkeppni við þremenn-
ingana sem leiki sér að því að und-
irbjóða verk og keyra síðan fyrirtæki
í þrot. „Þetta er bara óþolandi. Hver
heilvita maður sér það að mennirn-
ir leika sér að þessu vísvitandi. Ég er
gapandi hissa á því að svona lagað sé
hægt og með ólíkindum að menn-
irnir geti hagað sér svona. Verst þykir
síðan mér að opinberir aðilar, eins og
Háskóli Íslands og stjórnmálaflokkar,
eiga viðskipti við þá og það gagnrýni
ég harðlega,“ segir Steingrímur.
Aftur og aftur
Guðlaugur tekur í sama streng og
skilur ekki hvers vegna prentsmiðjan
fái sífellt verkefni til sín. „Eftir gjald-
þrot á að tryggja það að þessir aðilar
eða skyldmenni þeirra geti ekki tekið
við keflinu og skilið alla eftir í sárum.
Það er löng slóð eftir þá og allt í rjúk-
andi rúst. Ég skil heldur ekki hvern-
ig þessir menn ná alltaf aftur í við-
skipti og það er ótækt að horfa á það
að verkefni fari til prentsmiðjunnar
þeirra. Ég gagnrýni til að mynda bæj-
arstjórann og Samfylkinguna fyrir að
eiga viðskipti við svona kennitölu-
flakkara. Heilt yfir er það bara ömur-
legt að þurfa að sætta sig við þetta,“
segir Guðlaugur.
Haraldur segir samtökin fylgjast
með kennitöluflakki þremenning-
anna enda hafi fjöldi félagsmanna
leitað til samtakanna vegna þess.
Aðspurður telur hann nauðsynlegt
að stöðva þá með einhverjum hætti.
„Framferði þessara manna skað-
ar alla í kring. Það er von að menn
spyrji sig að því hvort ekki sé hægt að
stoppa þessa menn,“ segir Haraldur.
„Þeir skaða greinina sjálfa, viðskipta-
vinina, birgjana og alla samkeppn-
ina. Þetta er eitt grófasta dæmið sem
ég hef séð og við verðum að komast
fyrir þetta. Menn eiga ekki að komast
upp með svona kennitölubreytingar
til lengri tíma og þetta er grafalvar-
legt mál. Satt að segja erum við orðn-
ir langþreyttir á þessu kennitölu-
flakki og þetta fyrirtæki kemur upp
aftur og aftur,“ segir Haraldur.
Bara fluttir
Magnús er skráður sem markaðs-
stjóri og stjórnarformaður nýju
prentsmiðjunnar, PH prents, á með-
an Rósmundur, sonur hans, ber titil-
inn prentsmiðjustjóri. Hilmar er einn
eigenda prentsmiðjunnar. Á heima-
síðu fyrirtækisins er það sagt ungt
og öflugt fyrirtæki með reynslumik-
ið starfsfólk. Það býður upp á alhliða
prentþjónustu á hagstæðum kjörum,
með gæði og þarfir viðskiptavina í
huga.
Magnús, leikari og prentari, fór
mikinn í fjölmiðlum þegar þriðja
prentsmiðja feðganna, Íslandsprent,
fór á hausinn. Þá stóð til að bjóða
upp heimili hans en hann hótaði því
opinberlega að grípa til vopna kæmi
til þess. Þegar Prisma-Prentco, önnur
prentsmiðja feðganna, fór á hausinn
sendi Magnús fjöldapóst á viðskipta-
vini prentsmiðjunnar þar sem til-
kynnt var um áframhaldandi rekstur
hjá nýju félagi. „Við erum með sama
góða starfsfólkið, gæði, þjónustu og
verð og sama ljúfa viðmótið. Ver-
ið þið öll velkomin í áframhaldandi
viðskipti, gamlir sem og nýir við-
skiptavinir. Það eru margir í þessum
iðnaði sem hafa verið að vona það að
við værum hættir. En við erum það
ekki, svo sannarlega. Við erum bara
fluttir,“ sagði Magnús.
Við vinnslu fréttarinnar var ítrek-
að reynt að ná í forsvarsmenn PH
prents en án árangurs.
Eigendur PH prents hafa fjórum sinnum farið á hausinn með prentsmiðjur sínar en
ávallt stofnað nýja kennitölu undir reksturinn. Þeir reka nú prentsmiðju á fimmtu
kennitölunni, PH prent. Keppinautar lýsa yfir sárum vonbrigðum.
„Verður að stoppa
þessa menn“ „Hver heilvita maður sér það að mennirnir leika sér að þessu vísvitandi.“
TrAusTi hAfsTeinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
n september 2001
Prisma-Prentbær fer á
hausinn.
n Apríl 2004
Prisma-Prentco úrskurðað
gjaldþrota.
n nóvember 2007
Íslandsprent úrskurðað í
gjaldþrotameðferð.
n Maí 2007
Prentvélarnar settar undir
nýtt fyrirtæki, Eld og ís.
n Júní 2009
Prentheimar fara á hausinn.
n Mars 2009
PH prent stofnað.
Þriðja gjaldþrotið
Íslandsprent var þriðja
prentsmiðjan sem fór
á hausinn en von var á
fleiri gjaldþrotum.
Leikari og prentari Magnús
er gagnrýndur fyrir endurtekið
kennitöluflakk með prentsmiðjur.
Hann á að baki fjögur gjaldþrot með
sömu samstarfsmönnum.
Óskiljanlegt Guðlaugur skilur ekkert
í því hvers vegna þremenningarnir hafi
ekki verið stöðvaðir fyrir löngu.
fylgist með
Haraldur og félagar
fylgjast grannt með
kennitöluflakkinu og
hafa varla lengur tölu
á kennitölunum.
Jólagjöfin hans/hennar
Fjöltól:
Vasaljós,hnífur,sög
töng og skrúfjárn
kr 3.900
með beltistösku
Nóatúni 17
S: 534 3177 eða 820 7746
www.icefin.is