Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2009, Blaðsíða 12
12 föstudagur 20. nóvember 2009 helgarblað
Til stendur að virðisaukaskattur hækki og aukin vörugjöld leggist á áfengi og bensín:
Sætindi og bensín hækka
Súkkulaðistykki sem kostar 150 krónur hækk-
ar um 10 krónur í verði fari virðisaukaskatts-
hækkun ríkisstjórnarinnar beint út í verðlag-
ið. Nýr þriggja þrepa virðisaukaskattur, 7, 14
og 25 prósenta, verður tekinn upp.
Í 7 prósenta þrepi verða matvörur, mjólk-
urvörur, húshitun, tónlist, dagblöð, afnota-
gjöld fjölmiðla og veggjöld. Þessir liðir taka
ekki breytingum frá því sem nú er. Í nýja 14
prósenta þrepið færist veitingastarfsemi, sæl-
gæti, kex, kökur og drykkjarvörur aðrar en
áfengi. Á þessum vörum var áður 7 prósenta
skattur.
Almennur virðisaukaskattur færist úr 24,5
prósentum í 25 prósent en samanlagt eiga
þessar breytingar að skila ríkissjóði 6 milljarða
tekjuauka í ríkiskassann. Þá er gert ráð fyrir 10
prósenta hækkun á vörugjöldum á áfengi, tó-
bak, bensín, díselolíu og bifreiðagjald. Þetta á
að skila 2,5 milljörðum króna í kassann auka-
lega. Samanlögð hækkun vegna kolefnisskatta
og vörugjalda á bensín og díselolíu er talin
nema 5 til 6 krónum á lítra. Verði frumvarpið
samþykkt kemur breytingin til framkvæmda í
tveimur áföngum; um áramótin og 1. mars.
Hækkun virðisaukaskatts á sætindi þýðir
að það sem kostar 150 krónur nú kostar 160
krónur eftir breytingar, renni hækkunin beint
út í verðlagið. Það sem nú kostar 500 krónur
kostar 33 krónum meira eftir hækkun og það
sem kostar 1.000 krónur núna úti í búð kostar
1.065 krónur ef frumvarpið verður samþykkt.
Hér til hliðar má sjá hvernig breytingin hef-
ur áhrif á nokkrar vörutegundir. Miðað er við
algengt verð í matvöruverslunum.
baldur@dv.is
Hækkun: 7 kr.
Hækkun: 15 kr.
Hækkun: 10 kr.
Hækkun: 18 kr.
Hækkun: 5–6 kr.
Minni skattur
á láglaunafólk
Nýtt fyrirkomulag tekjuskatts hefur sáralítil áhrif á þá sem hafa meðal- eða lágar tekjur. Þeir sem hafa minna
en 270 þúsund krónur á mánuði borga minni skatt vegna þess að persónuafsláttur hækkar um 2.000 krónur.
Þeir sem hafa 330 þúsund krónur greiða liðlega 1.800 krónum meira ef frumvarpið verður samþykkt.
Nýkynnt þriggja þrepa skattkerfi á
tekjur einstaklinga þýðir að með-
almaðurinn greiðir 1.770 krónum
meira í skatt en hann gerir í dag.
Hækkun persónuafsláttar þýð-
ir að þeir sem hafa 270.000 krónur
eða minna í mánaðarlaun fá meira
útborgað ef lögin verða samþykkt á
Alþingi. Þetta gildir einnig um hjón
sem hvort um sig hafa 270.000 krón-
ur á mánuði, eða samtals 540.000
krónur. Þeir sem hafa lægstu tekj-
urnar, eða um 150.000 krónur á
mánuði fá 2.000 krónum meira út-
borgað verði frumvarp ríkisstjórnar-
innar samþykkt.
Lítil breyting fyrir tekjulága
Laun sem eru lægri en 200.000
krónur á mánuði bera eftir sem
áður 37,2 prósenta tekjuskatt. Þetta
kallar ríkisstjórnin fyrsta skattþrep.
Skatturinn skiptist þannig að ríkið
fær 24,1 prósent en meðalútsvar til
sveitarfélagsins nemur 13,1 pró-
senti. Hækkun persónuafsláttar
úr 42.205 krónum í 44.205 krónur
þýðir að þeir lægst launuðu fá svo-
litla kjarabót.
Annað þrep felur í sér að 27 pró-
senta skattur leggst á laun á bilinu
200 til 650 þúsund krónur. Að við-
bættu útsvari nemur skatturinn
40,1 prósenti. Meðallaun á Íslandi
eru samkvæmt Hagstofu Íslands
um 330.000 krónur. Einstakling-
ur sem hefur slík laun greiðir 37,2
prósent af fyrstu 200.000 krón-
um launa sinna en 40,1 prósent
af þeim 130.000 krónum sem eft-
ir eru. Samtals greiðir hann 1.770
krónum meira í skatt ef frumvarpið
verður samþykkt. Skattbyrðin eykst
því frekar lítið hjá þeim sem hafa
meðaltekjur eða lágar tekjur.
Hátekjufólk greiðir meira
Þeir sem hafa meira en 650.000
krónur í mánaðarlaun falla und-
ir þriðja skattþrepið. Þriðja þrep
ber 33,3 prósenta tekjuskatt og 13,1
prósents útsvar, samtals 46,4 pró-
senta skatt. Þeir greiða þó jafnmik-
inn skatt af fyrstu 200.000 krónum
launa sinna og aðrir; greiða aðeins
46,4 prósenta skatt af tekjum um-
fram 650.000 krónur. Sá sem hef-
ur 750.000 krónur í mánaðarlaun
greiðir 19.950 krónum meira en nú,
ef frumvarpið nær fram að ganga, og
sá sem hefur 950.000 krónur í mán-
aðarlaun greiðir 37.750 krónum
meira en nú. Skattbyrði þeirra eykst
um 2,1 prósent.
117 milljarðar í kassann
Í kynningu stjórnvalda kemur fram
að í þeim tilvikum þar sem ein fyr-
irvinna hefur yfir 650 þúsund krón-
ur í mánaðartekjur sé möguleiki
á því að sækja um að færa hluta
tekna í lægra skattþrep. Hjón eða
sambýlisfólk virðist ekki þurfa að
hafa áhyggjur af því að líða fyrir
að vera bæði úti á vinnumarkaðn-
um. Hjón sem hafa samtals 540.000
krónur í laun á mánuði greiða lægri
tekjuskatt en þau gera í núverandi
skattkerfi.
Þá má geta þess að fjármagns-
tekjuskattur hækkar úr 15 í 18
prósent. Fólk mun því geta haft
100.000 krónur í fjármagnstekjur á
ári, án þess að borga af þeim skatt,
en skattstofn leigutekna verður 70
prósent af framtöldum tekjum.
Samanlagðar tekjur ríkisins af
þessum sköttum nema 117 millj-
örðum króna, miðað við núverandi
forsendur.
BALDur GuÐMunDSSOn
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
0–119
þúsund
0%
119–200
þúsund
24,1%
200–650
þúsund
27,0%
650+
þúsund
33,0%
Útborgun fyrir
breytingu
Útborgun eftir
breytingu
150.000 kr. 250.000 kr. 350.000 kr. 550.000 kr. 750.000 kr. 950.000 kr.
BrúttóLAun
BreytinG á útBOrGun
núverandi kerfi
Fyrir 37,20% Persónuafsl. útborgað
150.000 kr. 55.800 kr. 42.205 kr. 136.405 kr.
250.000 kr. 93.000 kr. 42.205 kr. 199.205 kr.
350.000 kr. 130.200 kr. 42.205 kr. 262.005 kr.
550.000 kr. 204.600 kr. 42.205 kr. 387.605 kr.
750.000 kr. 279.000 kr. 42.205 kr. 513.205 kr.
950.000 kr. 353.400 kr. 42.205 kr. 638.805 kr.
*Frá dragast greiðslur í lífeyrissjóðir og/eða stéttarfélög
nýtt tekjuskattkerfi
tafla 1.þrep 2.þrep 3.þrep
Eftir 37,20% 40,10% 46,10% Samtals: Persónuafsl. Útborgað
150.000 kr. 55.800 kr. 0 kr. 0 kr. 55.800 kr. 44.205 kr. 138.405 kr.
250.000 kr. 74.400 kr. 20.050 kr. 0 kr. 94.450 kr. 44.205 kr. 199.755 kr.
350.000 kr. 74.400 kr. 60.150 kr. 0 kr. 134.550 kr. 44.205 kr. 259.655 kr.
550.000 kr. 74.400 kr. 140.350 kr. 0 kr. 214.750 kr. 44.205 kr. 379.455 kr.
750.000 kr. 74.400 kr. 180.450 kr. 46.100 kr. 300.950 kr. 44.205 kr. 493.255 kr.
950.000 kr. 74.400 kr. 180.450 kr. 138.300 kr. 393.150 kr. 44.205 kr. 601.055 kr.
*Frá dragast greiðslur í lífeyrissjóðir og/eða stéttarfélög
Þeir sem hafa meira en
650.000 krónur í mán-
aðarlaun falla undir
þriðja skattþrepið.
Þr
ep
as
ki
pt
s
ka
tt
ke
rfi