Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2009, Blaðsíða 30
30 föstudagur 20. nóvember 2009 helgarblað
Það er oft þannig að vinsælustu lögin eru langt frá
því að vera í uppáhaldi hjá listamönnunum sem
flytja þau. Stundum er það jafnvel þannig að hljóm-
sveitir og tónlistarfólk hreinlega hatar þessi lög og
getur jafnvel alls ekki hugsað sér að spila þau aftur.
en flYtJendurnIr
hata
Lögin sem við elskum
nIrvana: smells lIke teen spIrIt
Það er engum blöðum um það að fletta að lagið Smells
Like Teen Spirit gerði Nirvana að heimsfrægri hljómsveit.
En söngvara sveitarinnar, Kurt Cobain heitnum, þótti
allt annað en vænt um lagið. Hann var alla tíð á móti
meginstraumnum og þess vegna þoldi hann ekki lagið.
Hann lét meira að segja hafa eftir sér að lagið væri „sellout“
og að það væri næstum því skömm að því að spila það.
r.e.m.: shInY
happY people
Michael Stipe, söngvari
hljómsveitarinnar, hefur
alltaf talað eins og hann
vildi að þetta lag hefði aldrei
orðið til. En hann er of góður
við áhangendur hljómsveit-
arinnar til að viðurkenna
það. „Ég myndi ekki segja
að ég skammaðist mín fyrir
lagið en áhrif þess á mig eru
mjög takmörkuð,“ hefur
hann sagt um lagið. Titill
lagsins er tekinn af kínversku
áróðursveggspjaldi sem kom
út stuttu eftir atburðina á
Torgi hins himneska friðar.
prInce : nothIng compares 2 u
Ekki allir vita að það var Prince sem samdi lagið
Nothing Compares 2 U fyrir hljómsveit sína The Family
árið 1985. Sinead O’Connor tók lagið svo upp á sína
arma og gerði það að einu frægasta lagi heims fyrr og
síðar. Þegar Sinead og Prince hittust svo eitt skipti eftir
að lagið hafði slegið í gegn endaði það með slagsmál-
um og írska söngkonan hrækti ítrekað á Prince. Hann
hefur því aldrei verið sáttur við þá útgáfu lagsins sem
heimurinn elskar.
france gall: les sucettes
France Gall gerði það meðal annars gott í
Eurovision árið 1965 fyrir hönd Lúxemborgar.
Gall, sem er frönsk, söng ári seinna lagið
Les Sucettes og varð það eitt þekktasta lag
hennar. Texti lagsins, sem er samið af Serge
Gainsbourg, fjallar um unga stúlku sem hefur
gaman af því að sjúga sleikipinna. Hægt var
að lesa á milli línanna að í raun fjallaði textinn
um munnmök og þegar Gall áttaði sig á því
varð hún gjörsamlega miður sín. Hún neitaði
að syngja lagið nokkru sinni aftur og fór í felur
í lengri tíma.
bobbY mcferrIn: don’t WorrY be happY
Þvert á það sem margir eflaust halda er Bobby McFerrin menntaður
í klassískri tónlist. Hann samdi þennan smell á aðeins einni klukku-
stund sem varð óendanlega vinsæll og er enn í dag. Lagið vann til
Grammy-verðlauna og George W. Bush notaði lagið í kosningaherferð
sinni árið 1998. Um lagið segir McFerrin sjálfur: „Það er ekki það að
ég elski ekki lagið. Lögin mín eru eins og börnin mín. Sum viltu hafa í
kringum þig en önnur viltu bara senda í háskóla sem fyrst.“
madonna: lIke a vIrgIn
Þótt lagið Like a Virgin hafi gert Madonnu
heimsfræga getur hún ekki hugsað sér að flytja
lagið nokkru sinni aftur. Þetta lét hún hafa eftir
sér í útvarpsþætti einu sinni. „Ég er ekki viss um
að ég geti nokkru sinni sungið Holiday eða Like
a Virgin aftur. Ég bara get það ekki. Ekki nema
að einhver myndi borgar mér svona 30 milljónir
dala eða eitthvað í þá áttina.“
tom pettY and the heartbrea-
kers: don’t do me lIke that
Tom Petty og hljómsveitin hans The Heartbreakers eiga
nokkra heimsfræga smelli en þeirra fyrsta vinsæla lag og
lagið sem kom þeim á kortið er ekkert sérlega vinsælt
hjá þeim sjálfum. Ástæðan er sú að lagið kom frá annarri
hljómsveit sem Petty hafði verið í nokkrum árum áður og
hann var aldrei neitt sérstaklega hrifinn af því.
beastIe boYs: fIght for Your rIght (to partY) Þetta lag var alltaf ætlað sem grín hjá snillingunum í Beastie Boys. Almenning-ur fattaði það nú samt einhverra hluta vegna aldrei heldur tók laginu opnum örmum og varð það gífurlega vinsælt um allan heim. Meðlimir hljómsveitarinn-ar hafa opinberlega sagt að lagið sé ömurlegt.
radIohead: creep
Flestir tónlistarmenn væru
ánægðir með að eiga jafn
mikinn risasmell og Creep er.
Það er þó önnur saga þegar
áhorfendur á tónleikunum
baula allan tímann þar til lagið
er spilað. Það lætur tónlist-
armönnunum líða eins og
einhverri vél sem á að gera það
sem henni er sagt. Svona lýsir
Tom Yorke, höfundur lagsins,
þessum smell sem Radiohead
gerði. Hann hefur einnig sagt
að það hafi alltaf verið nær
tilgangslaust fyrir hljómsveitina
að gera annað lag þar sem allir
biðu alltaf eftir að heyra Creep.
robert plant:
staIrWaY to heaven
„Led Zeppelin væri eflaust til enn þann dag í dag
ef ekki væri fyrir þetta helvítis brúðkaups-lag,“
segir Robert Plant um lagið sem hann samdi.
Hann sagði einnig við L.A. Times árið 1988: „Ég
myndi fá útbrot ef ég þyrfti að spila Stairway
to heaven á hverjum einustu tónleikum. Ég
samdi textann árið 1977 og fannst lagið þá
vera mikilvægt og gott. En núna, sautján árum
seinna, er þetta bara ekki fyrir mig.“