Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 5. febrúar 2010 FRÉTTIR Mannréttindi hafa verið eilífðardeilu- mál Bandaríkjanna og Kína og utan- ríkisráðuneyti Bandaríkjanna gefur árlega út skýrslu um stöðu mannrétt- indamála víða um heim og inniheld- ur skýrslan alla jafna sérstakt mat á mannréttindum í Kína. Þrátt fyrir að Bandaríkjastjórn finni enn mann- réttindum í Kína margt til foráttu fjar- lægði hún þó Kína af lista yfir ríki þar sem flest mannréttindabrotin eru framin. Kínversk stjórnvöld komu árið 1998 með krók á móti bragði og hófu útgáfu sinnar eigin skýrslu um mannréttindabrot af hálfu Banda- ríkjastjórnar. Nýlega komst netfyrirtækið Goog- le í sviðsljósið vegna meintra árása Kínverja á vefsíður bandarískra fyr- irtækja og samkvæmt yfirlýsingu frá Google hafði verið brotist inn á reikn- inga tuga talsmanna mannréttinda, í Kína, Bandaríkjunum og Evrópu. Málið þróaðist í þrátefli á milli Google og kínverskra stjórnvalda og lýsti Google því yfir að fyrirtæk- ið myndi hugsanlega neyðast til að hætta starfsemi í Kína og væri ekki lengur reiðubúið að ritskoða kín- verska útgáfu leitarvélar þess, eitt- hvað sem það samþykkti að gera upp að vissu marki árið 2006. Þann 20. janúar fóru bandarísk stjórnvöld þess á leit við ráðamenn í Peking að þeir gerðu gangskör að því að rannsaka meintar árásir á net- og vefföng innan vébanda Google og sögðu að Kínverjar hefðu aukið rit- skoðun. Kínverjar svöruðu um hæl og vísuðu gagnrýni bandarískra stjórn- valda á neteftirlit Kínverja á bug og sögðu hana geta skaðað samskipti ríkjanna. Mikillar stífni hefur gætt í samskiptum Bandaríkjanna og Kína. Deilu Google og kínverskra stjórnvalda bar hátt í janúar, vopnasala til Taívan fer fyrir brjóstið á Kín- verjum, Barack Obama hyggst hitta Dalaí Lama og Bandaríkjamenn kenna Kínverj- um um óhagstæðan viðskiptajöfnuð. RISARNIR RÍFAST Þó nokkurs kuls hefur gætt í sam- skiptum Bandaríkjanna og Kína undanfarið og á meðal þess sem valdið hefur spennu á milli ríkj- anna er fyrirhuguð heimsókn Dalaí Lama, útlægs andlegs leiðtoga tíbet- sku þjóðarinnar, til Bandaríkjanna og vopnasölusamningur Bandaríkj- anna og Taívan. Eitt af því sem farið hefur fyr- ir brjóstið á Bandaríkjamönnum er gengisskráning kínverska gjaldmið- ilsins júan en bandarísk fyrirtæki hafa oft og tíðum kvartað yfir því að kínversk stjórnvöld haldi gjald- miðli landsins undirskráðum og gefi þannig iðnaði landsins ósanngjarnt forskot með tilliti til vöruverðs. Ásakanir leysa ekki vandamálið Nú hefur Barack Obama Bandaríkja- forseti lýst því yfir að þarlend stjórn- völd muni taka harðari afstöðu gagn- vart stjórnvöldum í Peking vegna gengisskráningar júansins og við- skipta landanna. Obama lofaði enn fremur að tryggja að önnur ríki gæfu sér sjálfum ekki ósanngjarnt forskot gagnvart Bandaríkjadalnum. Talsmaður kínverska utanrík- isráðuneytisins, Ma Zhaoxu, sagði ekki hægt að skella skuldinni af hag- stæðum viðskiptajöfnuði Kína gagn- vart Bandaríkjunum á gengi júans. Að sögn Ma er skráð gengi gjald- miðils landsins nokkuð raunhæft og Kínverjar séu ekki að eltast við hag- stæðan viðskiptajöfnuð í viðskiptum landanna. „Sem stendur [...] er gengi júans nokkuð raunhæft og í jafnvægi,“ sagði Ma Zhaoxu, og bætti við að ásakanir og þrýstingur myndu ekki leysa vandamálið. Varar við verndartollum Þrátt fyrir að Obama lofi harðari af- stöðu og aukinni viðleitni til að tryggja að Kína og aðrar þjóðir standi við viðskiptasamninga sagði hann að það yrðu mistök af hálfu Bandaríkj- anna ef þau tækju upp verndartolla. Obama sagði að meiri harka væri nauðsynleg til að tryggja að gildandi reglum væri framfylgt og að stöð- ugur þrýstingur væri á Kína og öðr- um löndum um opna markaði með gagnkvæmum ávinningi. Helsta áskorunin að mati Obama er að tryggja að bandarísk fram- leiðsla standi ekki höllum fæti vegna óeðlilegrar gengisskráningar í öðr- um löndum og að verð á bandarískri vöru sé ekki hækkað óeðlilega og vörur annarra landa lækkaðar með óeðlilegum aðferðum. KOLBEINN ÞORSTEINSSON blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Ferðir Dalaí Lama hafa ávallt verið kínverskum stjórnvöldum hugleiknar og þá ekki síst þær móttökur sem hann fær í þeim löndum sem hann sækir heim. Stjórnvöld víða skirrast við að taka á móti Dalaí Lama opinberlega og ráðamenn laumast til að berja hann augum á þeim forsendum að þeir geri það ekki sem opinber- ir embættismenn. Nú hefur Barack Obama, þrátt fyrir viðvaranir kínverskra stjórn- valda, lýst því yfir að hann muni hitta Dalaí Lama þegar hann kem- ur til Bandaríkjanna. Að sögn Bills Burton, talsmanns forsetans, voru kínversk stjórnvöld upplýst um það á síðasta ári að Obama myndi hitta Dalaí Lama. „Dalaí Lama er alþjóðlegur trúar- og menning- arlegur leiðtogi og forsetinn mun hitta hann sem slíkan,“ var haft eftir Bill Burton á þriðjudaginn. Kínversk stjórnvöld eru óm- yrk í máli vegna fyrirætlana Bar- acks Obama og á miðvikudaginn sagði Ma Zhaoxu, talsmaður ut- anríkisráðuneytis Kína, að fund- ur Obama og Dalaí Lama myndi skaða samskipti ríkjanna meir en orðið er. Þess má geta að Obama af- þakkaði boð um að hitta Dalaí Lama á síðasta ári, en sagðist myndu hitta hann síðar. Heim- sókn Dalaí Lama hefur ekki verið nákvæmlega tímasett en ráðgert er að hún verði síðar í þessum mánuði. Þáttur Dalaí Lama Taívan hefur löngum verið upp- spretta vandamála í samskiptum Bandaríkjanna og Kína. Kínversk stjórnvöld hafa staðið föst á þeirri skoðun að eyjan sé hérað í Kína, þrátt fyrir að stjórn Taívan hafi aldrei verið í höndum kínverskra stjórnvalda. Allir sjálfstæðistilburðir taív- anskra stjórnvalda hafa farið fyrir brjóstið á Kínverjum sem hafa hót- að innrás ef Taívan lýsir formlega yfir sjálfstæði. Talið er að Kínverjar beini um 1.000 flugskeytum að eyj- unni. Í janúarlok tilkynnti ríkisstjórn Bandaríkjanna um fyrirhugaða vopnasölu til Taívan. Á meðal þess sem Taívanar fá frá Bandaríkjunum eru flugskeytavarnakerfi, þyrlur og fleiri hergögn, en Taívanar munu þó ekki fá F-16 orrustuþoturnar sem voru efst á óskalistanum. Stjórnvöld í Peking brugðust ókvæða við tíð- indunum og sendu harðorða við- vörun um að samvinna ríkjanna í alþjóðlegum málum sem og málum sem varða þann heimshluta kynnu að bíða tjón af. Aukinheldur vöruðu kínversk stjórnvöld við því að þau myndu beita þau fyrirtæki, þeirra á meðal Boeing og Lockheed Mart- in, sem í hlut ættu refsiaðgerðum. Sérfræðingar telja að með vopna- sölusamningnum hafi bandarísk stjórnvöld teflt í tvísýnu stuðningi kínverskra stjórnvalda með tilliti til hertra refsiaðgerða gagnvart Íran og einnig í málefnum sem varða Norð- ur-Kóreu. Vopnasala til Taívan Árásir úr netheimum Heræfing á Taívan Samkipti Bandaríkjanna og Kína kunna að bíða tjón vegna vopnasölu Bandaríkjanna til Taívan. Kínverskir internetnotendur Deila Google og kínverskra stjórnvalda olli því að ráðamenn í Bandaríkjunum ákváðu að hafa afskipti af málinu. Trúarleiðtogi eða aðskilnaðarsinni? Kínversk stjórnvöld eru ekki sátt við fyrirhugaðan fund Dalaí Lama og Baracks Obama. Forsíða China Daily Fyrirhuguð vopnasala Bandaríkjanna til Taívan er illa séð í Peking. MYNDIR AFP Lofar lítilli linkind Barack Obama sagði meiri hörku þurfa í að tryggja að gildandi reglum væri framfylgt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.