Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Page 36
36 FÖSTUDAGUR 5. febrúar 2010 VIÐTAL Kynntu þér lán og aðra þjónustu Íbúðalánasjóðs Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969 www.ils.is Lán til íbúðakaupa Lán til endurbóta og viðbygginga Aukalán vegna sérþarfa (skert starfsorka) Úrræði í greiðsluvanda í samræðum.“ Maraþongen Steingríms J. Ert þú ánægður með ríkisstjórnina? „Það er ekkert frumlegt við það lengur að segja það, en ég dáist að Steingrími J. Sigfússyni. Það er maraþongen í Steingrími. Hann er dugleg- ur, samviskusamur og ötull og ég sé að aðrir ráðherrar styðja hann myndarlega. Með fullri virðingu fyrir forsætisráðherranum vil ég nefna einnig Össur Skarphéðinsson. Hann hefur stað- ið sig eins og kappi í þessum málum. Össur er öflugur stjórnmálamaður með mikla reynslu. Ein ástæða þess að við náðum fram öllum þess- um pólitísku atriðum í Iceave-málinu var sú að hann ræddi við starfsbróður sinn, David Mili- band, utanríkisráðherra Bretlands. Það hjálpaði okkur í málinu. Ég verð að segja alveg eins og er að ég met það mikils að Steingrímur og fleiri eru að vinna að þessu máli. Reyndar hlýtur öllum að ganga gott til. Þú ert kosinn á Alþingi til að láta gott af þér leiða.“ uppi með stjórnkerfiskreppu sem lagst hefur ofan á bankakreppuna.“ Enginn forveri hefði farið svona að „Ég er nokkurn veginn viss um að enginn forveri Ólafs Ragnars hefði notað málskotsréttinn eins og hann gerði upp úr áramótunum. Að þessu sögðu finnst mér að ákvörðun for- setans eigi að byggjast á málinu sjálfu, sem sé því að forsetanum þyki málið það örlagaríkt fyr- ir þjóðina að það eigi að spyrja hana hvort sem margir eru með því eða á móti. Fjöldinn á Fac- ebook skiptir þar engu máli. Hann átti að taka málefnalega afstöðu til málsins á grundvelli mikilvægis þess. Hér vil ég nefna fjölmiðlalögin árið 2004. Ég var algerlega ósammála uppsetn- ingu þess af hálfu Samfylkingarinnar og VG. Ég tel að það hefði þurft að setja lög um möguleika fjármagnsins til þess að ráða fjölmiðlum. Það var hörmulegt að sú tilraun mistókst. Ofurvald fjármagnsins er alltaf hættulegt. Þar gerði forset- inn það sama. Hann sagðist ekki vísa málinu til þjóðarinnar af því að það væri svo stórt heldur vegna þess að það væri gjá á milli þings og þjóð- ar. Þessi aðferð forsetans þá og nú er að mínu mati ekki rétta nálgunin. Vandinn er sá að það er hvergi skrifað í stjórnarskrá eða lögum hvern- ig þetta á að vera eða gerast. Það er í sjálfu sér alvarlegur hlutur.“ Lýðræði sem breytingaafl „En við vinstrimenn á Íslandi höfum aldrei lýst sem okkar aðferð að við ætluðum að brjóta lög- in en við höfum áskilið okkur rétt til að breyta þeim sem er allt annar hlutur. Við breytum regl- unum með lýðræðislegum og þingræðislegum hætti. Það verða menn að skoða í þessu Icesave- máli. Segjum að maður komi á fund í verkalýðs- félagi. Samningar hafa verið gerðir um sömu lágu launin áfram. Sama skítakaupið áfram. Af hverju eru slíkir samningar gerðir? Það er vegna þess að aðstæður eru slíkar. Það næst ekki meira í bili. Segir þú þá í þínu stéttarfélagi að forystu- menn þess gangi erinda atvinnurekenda? Nei, þú gerir það ekki vegna þess að það er mark- leysa. Nú verðum við að leyfa mönnum að úst- skýra samninginn, ræða hann án þess að hella sér hver yfir annan með ónefnum. Þetta er fyrsta viðtalið við mig í fjölmiðli í meira en áratug og ég skóf ekkert af hlutunum sjálfur. En ég segi al- veg eins og er að mér finnst umræðan nú vera svakalega illyrt. Menn meiða þá í orðræðu sem ekki eru sammála þeim. Þetta er ekki gott en líka skiljanlegt vegna þess að samfélagið er enn svo niðurbrotið eftir bankahrunið. Það eru svo margir sem töpuðu svo miklu. Hér er ungt fólk að basla í litlum íbúðum sínum með börnin sín og skuldafjall. Þetta fólk þráir efnahagslegt ör- yggi heitast af öllu. Það er við þessar aðstæður auðvelt að espa upp umræðuna þar til hatur og reiði verður ráðandi. Það sem við þurfum svo átakanlega er lausn, ábyrgð og sanngirni, einnig Ekkert merkilegt „Þegar þjóðin kemur þannig fyrir erlendis að forsetinn hafi gert uppreisn gegn þinginu, þá er það í fyrsta lagi ekkert merkilegt að það fari í allar fréttir.“ Ólafur einn „Ég er nokkurn veginn viss um að enginn forveri Ólafs Ragnars hefði notað málskotsréttinn eins og hann gerði upp úr áramót- unum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.