Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Page 50
50 FÖSTUDAGUR 5. febrúar 2010
NAFN OG ALDUR?
„Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir, 29 ára.“
ATVINNA?
„Leikari, stundum leikstjóri og tilraunalagasmiður.“
HJÚSKAPARSTAÐA?
„Í góðu lagi.“
FJÖLDI BARNA?
„Ég á engin börn sjálf en ég á svona smávegis í fullt af
börnum annarra.“
HEFUR ÞÚ ÁTT GÆLUDÝR?
„Já ég hef átt tvo ketti.“
HVAÐA TÓNLEIKA FÓRST ÞÚ Á SÍÐAST?
„Æðislega tónleika hjá Ólöfu Arnalds, æskuvinkonu
minni, í Þjóðmenningarhúsinu.“
HEFUR ÞÚ KOMIST Í KAST VIÐ LÖGIN?
„Já, en ekkert alvarlegt, maður var bara ungur og vit-
laus. Batnandi mönnum er best að lifa!“
HVER ER UPPÁHALDSFLÍKIN ÞÍN OG AF HVERJU?
„Í augnablikinu er það ullarpeysa sem ég fékk í jóla-
gjöf frá foreldrum mínum. Mamma kenndi pabba að
prjóna og svo prjónuðu þau saman á okkur systurn-
ar.“
HEFUR ÞÚ FARIÐ Í MEGRUN?
„Nei, mig myndi örugglega langa alltof mikið í sæt-
indi ef ég færi í megrun!“
HEFUR ÞÚ TEKIÐ ÞÁTT Í SKIPULÖGÐUM MÓTMÆLUM?
„Já, undanfarna daga hef ég til dæmis sótt mótmæla-
fundi með kvikmyndagerðarfólki út af niðurskurðin-
um sem stendur til.“
TRÚIR ÞÚ Á FRAMHALDSLÍF?
„Já.“
HVAÐA LAG SKAMMAST ÞÚ ÞÍN MEST FYRIR AÐ HAFA
HALDIÐ UPP Á?
„Ekki neitt!“
HVAÐA LAG KVEIKIR Í ÞÉR?
„Góð spurning – lélegt svar. Ég veit það ekki!“
TIL HVERS HLAKKAR ÞÚ NÚNA?
„Frumsýningarinnar á Boðbera og að gefa út plötuna
mína.“
HVAÐA MYND GETUR ÞÚ HORFT Á AFTUR OG AFTUR?
„Vá, þær eru ansi margar. Ef mér finnst mynd
skemmtileg þá get ég eiginlega alltaf horft á hana aft-
ur og aftur!“
AFREK VIKUNNAR?
„Að bjóða öllum vinum mínum á Facebook að vera
aðdáendur bíómyndarinnar Boðbera!“
HEFUR ÞÚ LÁTIÐ SPÁ FYRIR ÞÉR?
„Ó já, margoft! Mér finnst það rosalega gaman.“
SPILAR ÞÚ Á HLJÓÐFÆRI?
„Já, ég lærði á gítar í átta ár.“
VILTU AÐ ÍSLAND GANGI Í EVRÓPUSAMBANDIÐ?
„Nei! Við erum svo lítil þjóð að atkvæði okkar myndi
aldrei skipta neinu máli þar. Við erum á stærð við lítið
hverfi í öðrum borgum. Þetta segir sig sjálft.“
HVAÐ ER MIKILVÆGAST Í LÍFINU?
„Fjölskyldan og annað fólk sem manni þykir vænt
um.“
HVAÐA ÍSLENSKA RÁÐAMANN MUNDIR ÞÚ VILJA
HELLA FULLAN OG FARA Á TRÚNÓ MEÐ?
„Þarf maður þess nokkuð, eru þeir ekki bara fullir í
pontu á Alþingi hvort eð er. Djók!“
HVAÐA FRÆGA EINSTAKLING MYNDIR ÞÚ HELST VILJA
HITTA OG AF HVERJU?
„Paulo Coelho – ég hef lesið svo mikið af bókunum
hans og ég held það væri gaman að spjalla við hann.“
HEFUR ÞÚ ORT LJÓÐ?
„Já, ég hef ort mjög mikið af ljóðum, misgóðum.“
NÝLEGT PRAKKARASTRIK?
„Laumaði að samstarfsmönnum ógeðissmákökum
(það skal þó tekið fram að þetta var hefndaraðgerð
eftir að vera hrekkt af þeim).“
HVAÐA FRÆGA EINSTAKLINGI LÍKIST ÞÚ MEST?
„Reese Witherspoon. En að henni algjörlega ólastaðri
þá vil ég bara vera lík sjálfri mér.“
ERTU MEÐ EINHVERJA LEYNDA HÆFILEIKA?
„Ég ætla rétt að vona það!“
Á AÐ LEYFA ÖNNUR VÍMUEFNI EN ÁFENGI?
„Nei.“
HVER ER UPPÁHALDSSTAÐURINN ÞINN?
„Ætli ég eigi ekki nokkra í hverju landi sem ég hef
komið til.“
HVAÐ ER ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ GERIR ÁÐUR EN ÞÚ
FERÐ AÐ SOFA?
„Slökkva ljósið.“
HVER ER LEIÐ ÍSLANDS ÚT ÚR KREPPUNNI?
„Heyrðu, ég leysi hana bara snöggvast! Halda áfram
að skapa og nýta hugvitið í landinu. Ekki eyðileggja
það sem er búið að byggja upp eins og kvikmynda-
iðnaðinn, sem er ein besta landkynningin okkar,
heldur nýta tækifærin sem þær skapa. Ferðabrans-
inn gæti til dæmis verið með Lara Croft-sleðaferðir og
James Bond-jöklaferðir. Verum skapandi og nýtum
tækifærin okkar!“
Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir er einn leikenda í myndinni Boð-
beri sem frumsýnd verður innan skamms. Hún er líka að leggja
lokahönd á barnaplötu þar sem hún samdi lög og texta sjálf.
SPILAR Á GÍTAR
www.birkiaska.is
Birkilauf- Betulic
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi
líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og
þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn
úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar
líkamann (detox).
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
KOMIÐ ÚT
KOMIÐ ÚT