Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2010, Síða 18
18 fréttir 20. ágúst 2010 föstudagur
„Söknuður minn eftir góðum pilti
er svo mikill. Þetta er meira en erf-
itt. Það er ekki hægt að lýsa þessari
sorg,“ segir Helgi Vilhjálmsson sem
syrgir son sinn, Hannes Þór, sem
myrtur var um síðustu helgi. Bana-
maður Hannesar er ófundinn og
rannsókn lögreglu í fullum gangi.
Hannes Þór, sem var fram-
kvæmdastjóri hjá föður sínum í
sælgætisgerðinni Góu, fannst myrt-
ur á heimili sínu um hádegisbil á
sunnudag og var það unnusta hans
sem fann hann liggjandi í blóði sínu
við rúmið. Ljóst er á ummerkjum
að stympingar höfðu átt sér stað en
morðinginn er talinn hafa læðst inn
í húsið um inngang sem alla jafna
var ólæstur. Fjölda stungusára var
að finna á hinum látna og talið lík-
legt að hann hafi verið stunginn þar
sem hann lá sofandi.
Þvílíkur öðlingur
Fyrir utan heimili Hannesar Þórs
er búið að leggja fjölda blómvanda
og kransa til að minnast hins látna.
Helgi er virkilega þakklátur fyrir all-
an þann stuðning sem fjölskyldan
hefur fundið fyrir frá því hinn svip-
legi atburður átti sér stað síðasta
sunnudag. „Hann var með opið hús
fyrir alla. Við höfum fengið mikinn
stuðning og mér þykir gott að heyra
fallegar lýsingar vina. Ég vil þakka
þjóðinni, bæði fólki og fyrirtækjum,
stuðninginn. Öll blómin fyrir utan
hjá honum sýna hverslags öðlingur
hann var,“ segir Helgi og beygir af.
Rannsókn lögreglu teygir sig í
ýmsar áttir en í vikunni hefur hún
einkum beinst að því að um ástríðu-
glæp hafi verið að ræða og í því ljósi
voru tveir einstaklingar hafðir í
haldi, annar þeirra æskuvinur unn-
ustu Hannesar og hinn fyrrverandi
kærasti hennar. Hvorugur þeirra
var þó úrskurðaður í gæsluvarðhald
og þeim var báðum sleppt úr haldi í
vikunni. Þeir eru þó enn með stöðu
grunaðs manns á meðan rannsókn
lögreglu vindur fram.
Hryllingur
Tæknirannsókn lögreglu er að
mestu lokið og nú hafa lífsýni af
vettvangi verið send út til rannsókn-
ar en tvær til þrjár vikur geta lið-
ið þar til niðurstöður berast. Helgi
treystir því að lögreglan komi hönd-
um yfir þann eða þá sem réðu syni
hans bana. „Við reynum að fylgjast
með gangi mála því við viljum ná
svona óþverra. Að ráðast á fólk sof-
andi er ótrúlegur hrottaskapur. Að
geta ekki staðið augliti til auglitis
við hann, ég veit ekki hvers lags fólk
gerir svona lagað. Því miður,“ segir
Helgi ákveðinn.
„Hvað er að þjóðinni? Hvers
vegna erum við að spara þegar
kemur að lögreglunni? Ég næ því
ekki og við verðum að auka stuðn-
ing við lögregluna. Ég treysti lög-
reglunni til góðra verka, þar eru
góðir menn, en það er engin spurn-
ing að svona fólki verður að ná.“
Þakklátur fyrir stuðninginn
Helgi ítrekar þakklæti sitt fyrir þann
mikla stuðning sem fjölskyldunni
hefur verið sýndur síðustu daga.
Hann telur mörg ár í það að sárs-
aukinn dvíni vegna sonarmissisins,
ef það gerist þá nokkurn tímann.
„Ég get eiginlega ekki svarað því
hvort ég komist yfir þennan atburð
fyrr en eftir nokkur ár. Þetta er eitt-
hvað sem ég óska engum að lenda
í. Ég er ekki almennilega búinn að
átta mig á þessu. Þetta er svo mikill
hryllingur að þetta er líklega það al-
versta sem nokkur maður getur lent
í. Það er spurning hvort ég komist
í gegnum þetta,“ segir Helgi með
grátstafinn í kverkunum.
„Fyrir mig sem föður er þetta enn
einn skólinn sem ég er að ganga í
gegnum á lífsleiðinni. Upplifunin er
því miður svo miklu meira en hræði-
leg. Ég er nú orðinn 68 ára og hef
kynnst ýmsu. Fyrir vikið er ég sæmi-
legur harðjaxl en þessu hefði ég
aldrei trúað. Ég held að það sé ekki
til neitt verra en þetta.“ ritstjorn@dv.is
„Söknuður minn Er Svo mikill“
Helgi Vilhjálmsson, oftast kenndur
við Góu, er þakklátur fyrir allan þann
stuðning sem hann og fjölskylda hans
hafa fundið fyrir eftir dauða sonar hans,
Hannesar Þórs, um síðustu helgi. Lög-
reglan leitar enn þess sem réði Hannesi
bana og treystir Helgi henni til að finna
óþverrann sem myrti Hannes. Hann ótt-
ast að komast aldrei yfir sonarmissinn.
Að geta ekki staðið augliti
til auglitis við hann, ég
veit ekki hvers lags fólk
gerir svona lagað.
Meira en erfitt Helgi saknar þess
mikla öðlings sem Hannes sonur
hans var og segir sonarmissinn
miklu meira en hræðilega upplifun.
Margir minnast Hannesar Fyrir utan heimili hins látna hefur safnast upp mikill
fjöldi blómvanda og er fjölskylda Hannesar þakklát fyrir allan þann stuðning sem
hún hefur fundið fyrir. Lögreglan biðlar til almennings eftir upplýsingum sem geta
hjálpað til við rannsóknina.
Hannes Þór Helgason
F. 9 . j ú l í 1 9 7 3 – D . 1 5 . á g ú s t 2 0 1 0
n Á fjórða tug lögreglumanna
vinnur að rannsókn vegna andláts
Hannesar Þórs aðfaranótt sunnu-
dagsins 15. ágúst. Rannsóknin
hefur teygt anga sína í margar átti
og fjöldi einstaklinga hefur verið
yfirheyrður vegna þess. Jafnframt
er unnið úr öðrum gögnum sem
aflað hefur verið og tæknirannsókn
lögreglu er vel á veg komin. Þá er
verið að vinna úr ýmsum ábending-
um sem borist hafa frá almenningi.
Lögreglan hvetur hvern þann sem
telur sig búa yfir upplýsingum sem
skipt geta máli fyrir rannsóknina
að koma þeim á framfæri í síma
444-1104.
getur þú
hjálpað?