Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2010, Qupperneq 20
20 fréttir 20. ágúst 2010 föstudagur
Sigurður Einarsson, fyrrverandi
stjórnarformaður Kaupþings,
neitaði að mæta til yfirheyrslu
hjá sérstökum saksóknara nema
hann fengi tryggingu fyrir því að
hann yrði ekki handtekinn á með-
an hann væri á landinu og kæm-
ist aftur til Bretlands óhindraður,
samkvæmt heimildum DV. Sigurð-
ur mætti til landsins á miðvikudag
eftir að fallið hafði verið frá hand-
tökuskipun á hendur honum á vef-
síðu alþjóðalögreglunnar Interpol.
Sigurður hefur aftur á móti
enga tryggingu fyrir því að hann
verði ekki handtekinn á meðan
hann er á landinu. Enginn samn-
ingur hefur verið gerður við hann
um slíkt á meðan hann er á land-
inu annar en sá að fallið yrði frá
handtökuskipuninni á vef Interpol
svo hann kæmist til landsins. Hins
vegar þykir ólíklegt að það þjóni
rannsóknarhagsmunum nema
nýjar upplýsingar komi fram.
Eftirlýstur frá því í maí
Lýst var eftir Sigurði á heimasíðu
Interpol í maí og gefin út hand-
tökuskipun á hendur honum þeg-
ar hann sinnti ekki beiðni um að
mæta í yfirheyrslur hjá sérstök-
um saksóknara. Fjórir stjórnend-
ur Kaupþings höfðu skömmu
áður verið handteknir vegna rann-
sóknar sérstaks saksóknara. Þetta
voru þeir Hreiðar Már Sigurðsson,
Magnús Guðmundsson, Ingólf-
ur Helgason og Steingrímur Páll
Kárason.
Sigurður neitaði eftir þetta að
mæta í yfirheyrslur hjá sérstök-
um saksóknara nema hann hefði
vilyrði fyrir því að hann yrði ekki
handtekinn. Síðan þá hefur Sig-
urður verið í Englandi, en hann
hefur verið búsettur í Lundúnum
í nokkur ár. Hefði hann yfirgef-
ið landið hefði hann líklega verið
handtekinn vegna þeirrar hand-
tökuskipunar sem hafði verið gef-
in út á hann. Samkvæmt heimild-
um DV hefur fjölskylda hans aftur
á móti verið með annan fótinn á
Íslandi.
Ekki hægt að fá Sigurð
framseldan
Íslensk stjórnvöld óskuðu þess
að Sigurður yrði framseldur fljót-
lega eftir að hann neitaði að mæta
til landsins á grundvelli Evrópu-
ráðssamnings um framsal saka-
manna. Bresk stjórnvöld urðu ekki
við beiðninni. Ekki var talið mögu-
legt að framselja mann vegna þess
eins að hann hefði ekki mætt í yf-
irheyrslu. Ákæra eða dómur þyrfti
að liggja fyrir. Dómsmálaráðherra
hefur hins vegar verið að undirbúa
að Ísland gerist aðili að evrópsku
handtökuskipuninni í haust sem
myndi gera framsalsbeiðnir og úr-
vinnslu þeirra einfaldari í sniðum.
Varð ekki við kröfum
Sigurður hafði boðið sérstökum
saksóknara að yfirheyra sig í Bret-
landi myndi hann ekki fallast á
kröfu hans um friðhelgi. Við þeirri
ósk var ekki orðið, en þá hefði
þurft að yfirheyra Sigurð sam-
kvæmt breskri lagaumgjörð. „Ég
skil vel að sérstakur saksóknari
samþykki ekki samninga um að
yfirheyra Sigurð erlendis né semja
um að hann verði ekki látinn dúsa
í fangaklefa eftir yfirheyrslu. Þá
væri hann að gera samning við
þann grunaða sem væri öðruvísi
og aðrir ættu ekki kost á,“ segir
Sveinn Andri Sveinsson lögmað-
ur.
Sveinn Andri segir eðlilegt að
opinberir rannsóknaraðilar falli
frá handtökuskipun gegn því að
viðkomandi mæti til yfirheyrslu.
Hann þekki mörg dæmi þess á
Íslandi og hafi samið fyrir hönd
skjólstæðinga sinna um slíkt fyr-
irkomulag. Hafi handtökuskip-
un verið gefin út vegna þess að
viðkomandi hafi ekki mætt til yf-
irheyrslu náist oft samkomulag
við rannsóknaraðila um að hann
mæti á tilteknum tíma. Hins veg-
ar jafngildi það ekki tryggingu
fyrir því að viðkomandi verði
ekki handtekinn við eða eftir yf-
irheyrslurnar. „Það hefur trúlega
verið nauðsynlegt að gera þetta
svo að Sigurður kæmist til Íslands
hnökralaust,“ segir Sveinn Andri.
Sigurður var í yfirheyrslu hjá
sérstökum saksóknara fram á
fimmtudagskvöld og voru líkur á
að hann yrði aftur yfirheyrður á
föstudag þegar DV fór í prentun.
Sigurður sagði sjálfur við blaða-
menn á fimmtudagsmorgun að
hann gerði ráð fyrir því að vera á
landinu í nokkra daga en ómögu-
legt er að segja til um hversu lengi
yfirheyrslurnar standa.
Sigurður Einarsson fór fram á friðhelgi ætti hann að mæta í yfirheyrslur hjá sérstökum saksóknara í
maí. Hann vildi ekki mæta í yfirheyrslur nema hann fengi tryggingu fyrir því að hann kæmist aftur til
Bretlands án þess að vera handtekinn. Hann mætti til landsins á miðvikudag eftir að fallið hafði verið
frá handtökuskipun á hendur honum en hann hefur þó enga tryggingu fyrir því að vera ekki handtekinn.
krafðist friðhelgi
RóbERt hlynuR balduRSSon
blaðamaður skrifar: rhb@dv.is
Mætti vel undirbúinn Sigurður
Einarsson,fyrrverandistjórnarformaður
Kaupþings,sagðistveravelundirbú-
innfyriryfirheyrslurhjásérstökum
saksóknara.Hannhefurnúhaftþrjá
mánuðitilþess.Mynd RóbERt REyniSSon
Ábúðarfullur ÓlafurÞórHauksson,sérstakursaksóknari,hittiSigurðEinars-
son,fyrrverandistjórnarformannKaupþings,áskrifstofusinniklukkanníuá
fimmtudag.Mynd RóbERt REyniSSon
Það hefur trú-lega verið nauð-
synlegt að gera þetta
svo að Sigurður kæmist
til Íslands hnökralaust.