Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2010, Side 62
Kolbrún Pálína Helgadóttir, rit-
stjóri Nýs Lífs, veigrar sér ekki
við að skokka 10 kílómetra áður
en hún mætir til vinnu. Það
gerði Kolbrún í vikunni en hún
stefnir á að taka þátt í Reykja-
víkurmaraþoni Íslandsbanka
á laugardag. Þar ætlar Kolbrún
einnig að hlaupa tíu kílómetra
og styrkja gott málefni. Kolbrún
hefur ekki hlaupið mikið í sumar
en hún lætur það ekki aftra sér
enda starfaði hún sem einka-
þjálfari áður hún snéri sér að
blaðamennsku.
„Þetta er bara svo mikið efni, maður veit varla
hvar maður á að byrja,“ segir Rottweilerhundur-
inn og hótelstjórinn Þorsteinn Lár Ragnarsson.
Þorsteinn setti fyrir nokkrum mánuðum mynd-
band, svokallaða kitlu, á Facebook-síðu sína, en
þar boðar hann útgáfu heimildarmyndar um
hljómsveitina sem hefur nú starfað í tíu ár. Þor-
steinn segir að myndin sé ekki beinlínis vænt-
anleg, en efnið sé vissulega til staðar. Rottweiler-
hundarnir hafa áður gefið út heimildarmyndina
Rokkstjörnur Íslands sem snéri að árunum eftir
að þeir unnu Músíktilraunir. „Já, við erum búnir
að taka upp efni allan tímann. Upphaflega var
þetta Vífilfelli að þakka sem keypti handa okk-
ur myndavél, og við gerðum fyrstu myndina á
hana. Svo keyptum við okkar eigin græjur. Það
eru örugglega til alveg 150 spólur í heildina af
efni,“ segir Þorsteinn en það eru rúmlega 200
klukkustundir, en spólurnar eru ýmist klukku-
tími eða 90 mínútur að lengd. „Þetta eru merk-
ar heimildir, allur skalinn af efni, frá daglegu lífi
yfir í tónleikabrölt.“ Rottweilerhundarnir spila á
skemmtistaðnum Players í kvöld, húsið verður
opnað kl. 22.00 og kostar 100 krónur inn.
Yfir 200 tímar af efni til
RottweileRhundaR stefna að heimildaRmyndageRð:
62 fólkið 20. ágúst 2010 föstudagur
Snorri HelgaSon:
Rottweilerhundar Hafa
tekið upp 200 klukkustundir
af efni á 10 ára ferli.
10
kílómetrar
fYrir vinnu
airwaves-
spenna
magnast
Margir eru afar spenntir yfir Air-
waves-hátíðinni í ár, en hún ku
verða mjög glæsileg. Greinilegt
er að nýr stjórnandi hátíðarinn-
ar, Grímur Atlason, ætlar að láta
til sín taka. Þegar er búið að opna
heimasíðu hátíðarinnar, en hún
er með öðru sniði en undan-
farin ár og, með fullri virðingu
fyrir þeirri gömlu, stórglæsileg.
Aðalatriði hátíðarinnar í ár er
sænska söngkonan Robyn, en á
dögunum var einnig tilkynnt að
tónlistarkonan Dominique Young
Unique myndi mæta, en hún er á
hraðri uppleið. Hátíðin fer fram
13.-17. október og kostar mið-
inn 13.500 krónur, sem er aðeins
hærra verð en í fyrra.
„Ég er búinn að bóka fjölda tónleika í London og
þetta lítur bara vel út,“ segir tónlistarmaðurinn
Snorri Helgason sem er á leiðinni til London til að
kynna plötuna sína Put My Name On Your Door.
Um er að ræða fyrstu sólóplötu Snorra sem kom út
hér á landi í fyrra en er nú á leiðinni í dreifingu í
Evrópu og í Bandaríkjunum á næstunni.
„Það eiga eflaust fleiri eftir að bætast við en ég
kem svo aftur heim í október til að spila á Airwa-
ves. Fer svo reyndar beint út til Kanada í þriggja
vikna túr,“ segir Snorri en hann kann vel við sig þar.
„Ég fór oft þangað með Sprengjuhöllinni og var að
fíla það vel. Skemmtilegur markaður. Ég er að fara
að túra með vini mínum sem ég kynntist einmitt í
einni þeirra ferða.“ Þeir félagar ætla að túra austur-
strönd Kanada og enda svo í Toronto.
Snorri er mjög spenntur yfir því að platan hans
sé að koma út ytra en hann er þó þegar farinn að
vinna í næstu plötu. „Ég er byrjaður að leggja drög
að henni en á samt langt í land. Ekkert fastmótað
ennþá og ekkert víst hvort hún verði í anda fyrri
plötunnar eða ekki.“
Snorri sló fyrst í gegn með Sprengjuhöllinni hér
heima fyrir nokkrum árum en sveitin sendi frá sér
tvær plötur og var um tíma vinsælasta hljómsveit
landsins. Lítið hefur spurst til hennar undanfarið
og Snorri segir litla von um að það breytist á næst-
unni. „Við skulum bara segja að Sprengjuhöllin sé
í mjög mikilli pásu. Það er ekkert að fara gerast á
næstunni,“ segir Snorri, en einn af burðar ásum
sveitarinnar, Bergur Ebbi Benediktsson, sagði skil-
ið við hana í fyrra og hefur síðan einbeitt sér að
uppistandi og leikritaskrifum.
Snorri sá einmitt um tónlistina í fyrsta leikverki
Bergs sem sýnt var í sumar og heitir Klæði. „Það var
mjög skemmtilegt verkefni og ég gæti vel hugsað
mér að gera meira af því. Þetta voru reyndar bara
vinir mínir sem voru að setja upp þessa sýningu og
báðu mig um að taka þátt en ef tækifærið byðist þá
væri ég alveg til í að prófa þetta aftur.“ asgeir@dv.is
Snorri Helgason er bók-
aður á fjölda tónleika í
london í september þar
sem hann kynnir fyrstu
sólóplötuna sína. Platan
kemur bráðlega út í evr-
ópu og Bandaríkjunum
en snorri er einnig á leið
til Kanada. hann segir að
sprengjuhöllin sé komin í
„mjög mikila“ pásu.
egn
Snorri Helga Er uppbók-
aður fram að áramótum.
mynd SigtRygguR aRi
Sprengjuhöllin Er komin í „mjög
mikla“ pásu. mynd eggeRt jóHanneSSon
Hyggst slá
í