Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Blaðsíða 2
Bankar og símafyrirtæki ráða ekki
fyrirsætur og leikara í greiðsluerfið-
leikum og gera úttekt á fjárhag þeirra
áður en fólk er ráðið. Úttektin er oft
gerð að þeim forspurðum. Þess-
ar vinnureglur hafa verið við lýði til
margra ára en Arion banki íhugar að
endurskoða reglurnar í ljósi þess að
margir glíma við erfiða fjárhagsstöðu
í kjölfar bankahrunsins.
Helga Þóra Eiðsdóttir, forstöðu-
kona markaðssviðs Arion banka,
segir almennt heimilt að kanna
vanskilaupplýsingar um einstakl-
inga þegar stofnað er til viðskipta-
sambanda. Rökin séu þau að kanna
hvort viðkomandi geti staðið skil á
skuldum sem hann vilji stofna til.
Henni finnst ekki óeðlilegt að banki
vilji tryggja að þeir sem hann á í
viðskiptasambandi við, ræður sem
starfsmenn eða verktaka, séu með
hreinan skjöld í þessu tilliti. Þetta
geti þó verið matsatriði í hverju til-
viki fyrir sig. Aðspurð hvort henni
finnist viðeigandi að gera þessa kröfu
í efnahagsástandinu í kjölfar banka-
hrunsins segir Helga Þóra ef til vill
vert að endurskoða reglur bankans í
því sambandi. „Sé ætlunin að halda
þessu áfram verður líklega óskað
eftir samþykki viðkomandi áður en
slíkra upplýsinga er aflað.“
Leikarinn kannaður en
leikstjórinn ekki
Bjarney Harðardóttir, forstöðukona
markaðssviðs Íslandsbanka, seg-
ir bankann gera þá kröfu að þeir að-
ilar sem starfa hjá eða fyrir bankann
séu ekki skráðir á
vanskilaskrá hjá
Lánstrausti.
Það sé vinnu-
regla sem hafi
verið viðhöfð
í langan
tíma og fyrst
og fremst sé
skoðað hvort
viðkomandi sé
í verulegum
vanskilum.
Sama regla
gildi um
ráðningu starfsmanna til bankans.
Aðspurð hvort henni finnist viðeig-
andi að gera þessa kröfu á krepputím-
um bendir hún aftur á að sama regla
gildi um alla aðra starfsmenn bank-
ans. Hún segir að bankinn skoði ekki
greiðslusögu leikstjóra eða verktaka
við kvikmyndatöku fyrir bankann.
Steinþór Hróar Steinþórsson,
betur þekktur sem Steindi Jr., leik-
ur í nýrri herferð námsmannaþjón-
ustu Arion banka og varð var við að
greiðslusaga hans var tekin til athug-
unar. „Ég er góður!“ segir hann
og tekur fram að hann hafi
engar áhyggjur haft af því
að hann fengi ekki starfið
í kjölfar athugunar bank-
ans á stöðu hans. Hann hafi
ekki tekið neina kollsteypu
í kreppunni og hafi ekki
lent í fjárhags-
örðugleikum
hingað til.
Kynferðisbrotamanni kippt úr
auglýsingu
Alda B. Guðjónsdóttir hjá Snyrtileg-
um klæðnaði ehf. sér um útlitshönn-
un og ráðningar á leikurum og fyrir-
sætum í auglýsingar. Hún segir alltaf
eitthvað um að leikurum og fyrirsæt-
um sé hafnað sökum greiðsluerfið-
leika. Hún bendir flestum þeim sem
koma til greina í hlutverk í auglýsing-
ar fyrir fjármálastofnanir eða síma-
fyrirtæki á að greiðslusaga þeirra
verði könnuð og það komi sjaldan
fyrir að leikurum sé hreinlega kippt
úr auglýsingum. „Ég skil ekki af
hverju sakaskráin er ekki frek-
ar könnuð en greiðslusaga
fólks,“ bendir Alda á. Hún vill
meina að greiðsluerfiðleikar
fólks hljóti að valda fyrirtækj-
um minni vanda en flekk-
uð sakaskrá og segist muna
eftir einu tilviki þar sem aug-
lýsingastofa hafi þurft að taka
leikara úr auglýsingu
sem hafi þegar verið
framleidd. Sá hafði
verið dæmdur fyrir
kynferðisbrot.
Brúðkaup ársins
n Gunnar Í Krossinum og Jón-
ína Benediktsdóttir giftu sig
í Digraneskirkju á laugar-
daginn. Athöfnin þótti afar
skemmtileg og létt og sögðu
gestir að þeir hefðu sjaldan
farið í eins ánægjulegt brúð-
kaup. Gunnar og Jónína eru á einu
máli um að dagurinn hafi verið sá fal-
legasti í lífi þeirra og eru afar ham-
ingjusöm að hafa fundið ástina. „Ekki
vil ég segja að manneskja sé guðleg
en Jónína lýsti af guðlegum kærleika.
Hún hefur aldrei verið fallegri en á
þessum yndislega degi. Hún ljómaði
af hamingju og fegurð,“ segir Gunnar.
Hann segir veisluna hafa verið ótrú-
lega glæsilega og vildi fólk hreinlega
ekki fara heim í lok hennar. Kirkjan og veislusalurinn voru þétt setin en
gestirnir komust þó allir fyrir. Hin nýgiftu hjón fóru heim þegar veisl-
unni var lokið.
300 milljóna hús Bjarna
n Bjarni Ármannsson, fjárfestir og fyrr-
verandi bankastjóri Glitnis, á tæplega
300 milljóna króna einbýlis-
hús við götuna Hundsund-
veien í Bærum í Óslóarfirði.
Húsið er skuldlaust og óveð-
sett með öllu, samkvæmt
yfirliti frá norsku fasteigna-
skránni sem DV hefur undir höndum.
Verðmæti hússins var tæplega 15
milljónir norskra króna haustið 2008
og má reikna með að verðmæti þess
hafi síst minnkað á síðastliðnum
tveimur árum. Húsið, sem er á Snar-
oya-skaganum í einu fínasta úthverfi
Óslóarborgar, var keypt árið 2008
samkvæmt yfirlitinu. Húsið er 216 fer-
metrar að stærð.
EngEyingar Eiga
Tékkland
n Sonur Einars Sveins-
sonar, aðaleiganda olíu-
félagsins N1, er stærsti
eigandi bifreiðaskoðun-
arstöðvarinnar Tékklands
sem tók til starfa í maí og jafnframt
stjórnarformaður félagsins. Tékkland
leigir aðstöðu af N1 við Reykjavíkur-
veg í Hafnarfirði og í Holtagörðum í
Reykjavík. Sonur Einars, Benedikt, er
meðal annars stjórnarmaður í fast-
eignafélagi N1, Umtaki, sem heldur
utan um eignarhaldið á fasteignum
olíufélagsins sem og fleiri félögum
sem tengjast N1.
Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er Benedikt í 93. sæti yfir skuld-
ugustu einstaklinga íslenska bankakerfisins út frá eignarhlutum þeirra
í skuldsettum fyrirtækjum.
2
3
1
Brúðkaup Jónínu Ben og gunnars:
mánudagur og þriðjudagur 30. – 31. ÁgÚST 2010 dagblaðið vísir 99. tbl.
100. árg. – verð kr. 395
n ástin fjölmiðlum að þakka
n „lÝsti af guðlEgum kÆrlEika“
n „Ég Er á blEiku skÝi“
n vinir jónínu
í krossinn
M
YN
d
s
ig
tr
Yg
g
U
r
a
ri
GESTIR GRÉTU
úR hláTRI
liNdsaY lohaN í NærMYNd:
tók á móti barni
nágranna síns
n barnið var í bráðum háska En ragnhEiður Pálsdóttir tók á móti því á Eldhúsgólfinu
frÉttir
fyrningar-
lEiðin búin
að vEra
Ekki í
föt
Spaug-
stofu-
manna
n gói mEð laugar-
dagsþátt
hElGI
BjöRnS í
lífRóðRI
fANGAViSt
BLÉS Lífi í
fEriLiNN
frÉttir
björgólfUr thor:
lEynd yfIR
UppGjöRI
frÉttir
fólk
Þessar fréttir bar hæst í vikunni
þetta helst Bankar og símafyrirtæki athuga greiðslusögu allra þeirra sem til greina koma í hlutverk í auglýsingum þeirra. Ari-
on banki íhugar nú að breyta þessum reglum. Alda B. Guðjóns-
dóttir hjá Snyrtilegum klæðnaði ehf. segir að fyrirtækin ættu
frekar að einbeita sér að því að skoða sakaskrá en fjárhagsstöðu.
hitt málið
2 fréttir 3. september föstudagur
NEYTENDUR
MIÐVIKUDAGUR OG FIMMTUDAGUR 1. – 2. SEPTEMBER 2010
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 100. TBL.
100. ÁRG. – VERÐ KR. 395
n GRUNAÐUR VEGNA BLÓÐBLETTS
MORÐRANNSÓKN:
ÖGMUNDUR
INNANRÍKIS-
RÁÐHERRA
FRÉTTIR
ÓLAFUR JOHNSON:
SENDI BRÉF Á
FRÍMÚRARA-
REGLUNA
BREYTT RÍKISSTJÓRN:
FRÉTTIR
LÆRÐI
NINJA-
FRÆÐI
MEÐAL MILLJARÐAMÆRINGA:
BJARNI Á
GLÆSIHÚS
VIÐ ÓSLÓ
n 300 MILLJÓNA SKULDLAUS EIGN
n SELDI Í GLITNI YFIR MARKAÐSVERÐI
n GETUR SIGLT HEIM TIL SÍN
ALÞINGI VILL ENN
SEMJA VIÐ ESB
n 36 ÞINGMENN VILJA HALDA VIÐRÆÐUM ÁFRAM
FRÉTTIR
Á SVARTAN
OG HVÍTAN
RANGE ROVER
FRÉTTIR
FRÉTTIR
JÓN ÁSGEIR:
BIFREIÐA-
SKOÐUN
ENGEYINGA
LEIGIR AF N1
SVONA
SPARAR
ÞÚ ORKU!
6 fréttir
1. september 2010 miðvikudagur
Sonur Einars Sveinssonar, aðaleig-
anda olíufélagsins N1, er stærsti eig-
andi bifreiðaskoðunarstöðvarinnar
Tékklands sem tók til starfa í maí og
jafnframt stjórnarformaður félags-
ins. Tékkland leigir aðstöðu af N1
við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði og í
Holtagörðum í Reykjavík. Sonur Ein-
ars heitir Benedikt Einarsson og er
hann meðal annars stjórnarmaður í
fasteignafélagi N1, Umtaki, sem held-
ur utan um eignarhaldið á fasteign-
um olíufélagsins sem og fleiri félögum
sem tengjast N1.
Í skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis er Benedikt í 93. sæti yfir skuld-
ugustu einstaklinga íslenska banka-
kerfisins út frá eignarhlutum þeirra í
í skuldsettum fyrirtækjum. Einar, fað-
ir hans, er í 43. sætinu á þessum lista
og er ljóst að skuldastaða Benedikts er
meðal annars tilkomin vegna skulda
sem faðir hans stofnaði til í gegnum
eignarhaldsfélög sín. Benedikt á til
dæmis 15 prósenta hlut í eignarhalds-
félagi Einars, Hrómundi, sem heldur
utan um hlutafjáreign hans í N1.
Bifreiðaskoðunarbransinn getur
verið afar ábatasamur þar sem allir
bifreiðaeigendur þurfa að kaupa sér
bílaskoðun. Hingað til hafa tvö fyrir-
tæki, Frumherji og Aðalskoðun, verið
einráð á þessum markaði og má segja
að Tékkland hafi verið opnað til að
vinna gegn þessari fákeppni, ef marka
má orð framkvæmdastjóra Tékklands,
Birgis Hákonarsonar, í DV í ágúst.
Frumherji, fyrirtæki Finns Ingólfsson-
ar, hefur verið töluvert stærra á mark-
aðnum með á milli 60 og 70 prósenta
markaðshlutdeild. Sókn eigenda
Tékklands inn á þennan markað er því
skiljanleg að mörgu leyti og sýndi ný-
leg könnun Fréttablaðsins fram á að
bifreiðaskoðunin þar er ódýrari en á
hinum stöðvunum.
Leyndin yfir eignatengslunum
Í viðtali á útvarpsstöðinni Bylgjunni
í síðustu viku neitaði Birgir því að
eignatengsl væru á milli skoðunar-
stöðvarinnar og N1. Einn af viðmæl-
endum Bylgjunnar hafði haldið þessu
fram. Spurningin er hins vegar hvort
hægt sé að segja að engin slík eigna-
tengsl séu fyrir hendi þegar litið er á
hluthafahóp félagsins.
DV leitaði eftir upplýsingum um
hluthafa Tékklands hjá Lánstrausti
þar sem engar upplýsingar um hlut-
hafa félagsins er að finna á heimasíðu
Lánstrausts. Þar fengust þau svör að
Lánstraust hefði óskað eftir hluthafa-
upplýsingum um Tékkland hjá for-
svarsmönnum þess í allt sumar en
ekki fengið þær. Orðrétt segir í svari
Lánstrausts við fyrirspurn DV: „Þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir hefur ekki tek-
ist að afla upplýsinga um hluthafa
Tékklands ehf. og Tékklands bifreiða-
skoðunar ehf. Framkvæmdastjóri fé-
laganna, Birgir Hákonarson, vísaði á
Benedikt Einarsson stjórnarformann
sem ekki hefur svarað erindi Credit-
info. Áfram verður reynt að ná sam-
bandi við hluteigandi.“
Birgir segir aðspurður í samtali við
DV að hluthafalistinn sé með þeim
hætti að hann eigi 30 prósenta hlut á
móti 40 prósenta hlutar Benedikts –
þriðji aðilinn eigi svo 30 prósenta hlut
líka.
Hjálpaði hugsanlega til
Birgir segir aðspurður, í ljósi þess
að ljóst er að Benedikt á 40 prósent í
Tékklandi, hvort það sé rétt að eng-
in eignatengsl séu á milli félaganna
tveggja að svo sé ekki: „Það eru engin
eignatengsl á milli hlutafélaganna N1
og Tékklands. N1 á ekkert í Tékklandi.
Það var spurt að þessu og ég svaraði
því. Ég laug því engu vegna þess að N1
er ekki hluthafi í Tékklandi. Við erum
bara kúnnar hjá N1.“
Aðspurður hvort hann viti að
Benedikt eigi hlut í stærsta hluthafa
N1 segir Birgir að hann viti ekki hver
eignastaða hans sé. „Ég veit ekkert
hvað hann á af eignum… Ég veit ekki
til þess að hann eigi neitt í N1. Ég hef
bara ekki hugmynd um það.“
Aðspurður hvort tengsl Bene-
dikts við N1 hafi ekki skipt máli þeg-
ar komist var að samkomulagi við
olíufélagið um leigu á aðstöðu fyr-
ir skoðunarstöðvarnar segir Birgir að
það sé hugsanlegt. Hann segir þó að
verðið sem samið var um fyrir þessa
leigu hafi verið sanngjarnt og eðlilegt.
„Samningurinn á milli Tékklands og
N1 hefur ekkert með þetta að gera. Að
vísu getur vel verið að hans eignar-
hald hafi hjálpað til við að við fengum
þessa aðstöðu en það var bara á eðli-
legu og sanngjörnu verði,“ segir Birgir.
Hann segir engan feluleik í gangi með
eignarhaldið á N1 og að hægt sé að
kynna sér stjórn fyrirtækisins á heima-
síðu Tékklands.
TÉKKLAND Í HÖNDUM
ENGEYJARÆTTAR
Nýtt bifreiðaskoðunarfyrirtæki, Tékkland, er í eigu sonar stærsta eiganda N1, Einars Sveinssonar. Benedikt Einarsson á óbeinan hlut í N1 í gegnum eignarhaldsfélag föður síns. Tékkland leigir aðstöðu af N1 en Benedikt er í stjórn fasteignafélags N1, Umtaks. Framkvæmdastjóri Tékklands segir hugsanlegt að tengsl Benedikts við N1 hafi gert það að verkum að samningar náðust við olíufélagið um samstarf.
ingi f. viLHjáLmSSon
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Í skoðunarbransann SonurEinarsSveinssonarhjáN1,Benedikt,hefurhaslaðsérvöllíbifreiðaskoðunarbransanummeðfélaginuTékklandi.EinarogviðskiptafélagarhansbjóðaneytendumþarvalkostámótirótgrónumfélögumeinsogFrumherjasemveriðhefurnæreinráttámarkaðnum.
Tékkland við Reykjavíkurveg ÖnnuraftveimurskoðunarstöðvumTékklandssésthérviðReykjavíkurvegíHafnarfirði.TilstenduraðopnaeinastöðtilviðbótaríBorgartúnienN1ereinnigmeðbensínstöðþar.
Hluthafar Tékklands, samkvæmt
framkvæmdastjóra félagsins:
nBenediktEinarsson,40prósent
nBenedettoValurNardini,30prósent
nBirgirHákonarson,30prósent
hluthafar
Það eru engin eignatengsl á
milli N1 og Tékklands.
Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari og
kona hans, Sigríður J. Hjaltested de
Jesus, hafa stefnt nágrönnum sín-
um, Jóni Inga Benediktssyni og
Sigríði Jónu Guðnadóttur, íbúum
við Búland í Reykjavík, vegna
deilna um hvort raðhúsalengjur
séu sameign eða hvort hvert hús
sé einkaeign. Verjandi Jóns og
Sigríðar segir að málið snúist um
að skera úr um þennan ágreining
frekar en einhverja ein-
staka reikninga
fyrir viðgerðum
eða viðhaldi á
raðhúsunum.
Valtýr og
Sigríður búa
í sömu rað-
húsalengju
og Jón og
Sigríður
Jóna og vill Valtýr meina að viðhald
á húsunum eigi að falla á
alla eigendur lengj-
unnar vegna þess
að lengjan sé sam-
eign. Slík samá-
byrgð á viðhaldi
sé meðal íbúða-
eigenda í fjölbýl-
ishúsum.
Málið var tek-
ið fyrir í Héraðsdómi Reykjavík-
ur á þriðjudag. Allir íbúar í rað-
húsalengjunni við Búland koma að
málinu. Málsaðilar eru níu talsins
en það eru íbúar húsa númer 9 til 19
við Búland.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
deilur íbúa í raðhúsum hafa rat-
að fyrir dómstóla á síðustu árum.
Þannig stóð Herbert Guðmunds-
son tónlistarmaður í löngum mála-
ferlum við nágranna sína um hvort
hann þyrfti að taka þátt í viðgerðar-
kostnaði á þökum á raðhúsi sínu, en
hann hafði sjálfur tekið þakið á hús-
inu sínu í gegn.
adalsteinn@dv.is
valtýr Sigurðsson stefnir nágrönnum sínum:
Ríkissaksóknariímál
valtýr Sigurðsson Ríkissaksóknari
stendurímálaferlumfyrirdómstólum.
Hann,ásamtfleiriíbúumviðBúlandí
Reykjavík,hefurstefntnágrönnumsínum.
Sleppa undan
ábyrgðum
Útlit er fyrir að Hreiðar Már Sig-
urðsson, Kristján Arason og aðrir
yfirmenn í Kaupþingi sleppi undan
persónulegum ábyrgðum vegna
hlutabréfakaupa sinna í bankanum.
Stöð 2 greindi frá því á þriðjudaginn
að þeir hefðu stofnað eignarhaldsfé-
lög utan um hlutabréfakaupin nægi-
lega snemma þannig að ekki væri
hægt að rifta flutningum af þeirra
eigin kennitölum yfir á félögin.
Vigdís gerði lítið
úr Sigrúnu
Sigrún Pálína Ingvarsdóttir segir að
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi
forseti Íslands, hafi spurt hana hvort
hún hefði ekki örugglega leitað til
geðlæknis og hvort hún hefði ekki
fengið lyf. Sigrún segir Vigdísi hafa
spurt sig þessara spurninga á fundi
þeirra í kjölfar þess að hún sakaði
Ólaf Skúlason biskup um kynferðis-
lega áreitni. Hún segir fundinn hafa
verið sér mikið áfall.
Uppsagnir fyrirsjá-
anlegar
Hjörleifur B. Kvaran, fyrrverandi for-
stjóri Orkuveitunnar, segir að fjölda-
uppsagnir séu fyrirsjáanlegar hjá
fyrirtækinu. Ekki verði hægt að skera
niður nema með uppsögnum.
„Þessar tillögur sem nú á að grípa
til þýða að það þarf væntanlega að
segja upp tugum eða hundruðum
starfsmanna Orkuveitunnar. Boðuð
er tveggja milljarða króna hagræð-
ing á ári á sama tíma og lítið svigrúm
er til að spara í öðrum rekstrarkostn-
aði en launum,“ sagði Hjörleifur í
samtali við Fréttablaðið.
LAGERSALA
www.xena.is
Mikið af
fínum skóm í
leikfiminano1 - st. 28-35 verð kr. 3995.-
no2 - st. 41-47 verð kr. 7995.-
no3 - st. 36-41 verð kr. 7495.-
Opið virka daga 12-18
laugardag 12-16
KristjAnA GuðBrAndsdóttir
blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is
Ég skil ekki af hverju sakaskrá-
in er ekki frekar könnuð
en greiðslusaga fólks.
Hreint sakavottorð meira virði Alda
B.Guðjónsdóttirvillaðbankarnirog
fyrirtækinskoðifrekarsakavottorðen
fjármálasögufólks.
Íþrótta-
álfurinn
Kennir
yngstu
viðskipta-
vinum
Íslands-
bankaað
spara.
samþykktur! Steindi
Jr.komstígegnum
skoðuninahjáArion
Banka.
skuldugar
fyrirsætur
ekki ráðnar
Bjargar
mannslífum
PRIMEDIC hjartastuðtækið
• Ávallt tilbúið til notkunar
• Einfalt og öruggt
• Einn aðgerðarhnappur
• Lithium rafhlaða
• Íslenskt tal
Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is