Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Blaðsíða 21
Bush: „Hvaða gaur er þetta?“
Tony Blair segir að George W. Bush
hafi ekki vitað sitt rjúkandi ráð þeg-
ar hann sá Guy Verhofstadt, for-
sætisráðherra Belgíu, á G8-fundi
helstu iðnríkja heims í Genúa á Ít-
alíu árið 2001.
„Hann þekkti Guy ekki, vissi
ekki hver hann var,“ skrifar Blair.
„Svo sneri hann sér að mér og
hvíslaði: „Hvaða gaur er þetta?“
„Hann er forsætisráðherra Belgíu,“
hvíslaði ég á móti. „Belgíu?“ spurði
George þá og virtist agndofa yfir
eigin heimsku, „en Belgía er ekki
hluti af G8“.“ Því næst útskýrði Blair
fyrir Bush að Guy Verhofstadt væri
á fundinum sem „forseti Evrópu“
en á þessum tíma fór Belgía með
forsæti í ráðherraráði ESB. Bush
svaraði: „Látiði Belga stjórna Evr-
ópu?“ og hristi höfuðið, „agndofa
yfir heimsku okkar“, skrifar Blair.
Blair skrifar annars staðar í
bók sinni að Bush hafi aldrei vilj-
að flækja heimsmálin fyrir sér.
„George horfði á veröldina með
ótrúlega einföldum augum. Hvort
sem það var rétt eða rangt leiddi
það til afgerandi stjórnunarstíls.“
Blair skrifar að honum hafi þótt
fræg ræða Bush árið 2002 óþægileg
en þá sagði hann að Íran, Írak, Sýr-
land og Norður-Kórea væru „öxul-
veldi hins illa“ í heiminum. En Tony
Blair er þó fyrst og fremst jákvæð-
ur í garð Bush í bókinni. Hann seg-
ir frá því hversu vinalegur forset-
inn hafi verið þegar þeir hafi verið
tveir saman á skrifstofunni. „Þú ert
kannski ekki sammála honum en
þú myndir aldrei búast við því að
líða illa í félagsskap hans. Þú mynd-
ir halda að hann væri vingjarnlegur
og góður. Og það er líka rétt.“
Tony Blair skrifar að Bush
sé gríðarlega misskilinn maður.
Breska þjóðin hafi afskrifað hann
og álitið hann vera heimskingja.
„Hann var álitinn hægrisinnað-
ur repúblíkanafáviti fyrir að losa
heiminn við óvinveittar grimm-
ar einræðisstjórnir og krefjast þess
að í stað þeirra kæmu ekki vinveitt-
ar grimmar einræðisstjórnir held-
ur lýðræðisstjórnir,“ skrifar Blair.
„Auðvitað var þetta mikið til vegna
eðlilegrar óbeitar fólks á stríði.“
inu. „Heldur fólk í alvöru að mér sé
sama, að ég finni ekki til, að ég harmi
ekki ósegjanlega skaðann vegna
þeirra sem létust? Ef mér væri alveg
sama væri ég ómannlegur, tilfinn-
ingalega brenglaður,“ skrifar hann
um látna hermenn og fjölskyldur
þeirra.“
Blair segist þó ekki sjá eftir Íraks-
stríðinu. „Mér er ómögulegt að
þóknast mörgum, jafnvel stuðnings-
mönnum mínum sumum hverjum,
sem vilja að ég segi: Íraksstríðið voru
mistök sem gerð voru í góðri trú.
Vinir mínir sem voru á móti stríð-
inu halda ég sé þrjóskur; aðrir, sem
eru ekki jafn-vinveittir, halda að ég sé
ímyndunarveikur. Við þá alla segi ég:
Lítið á málin með opnum huga.“
Vorkenndi prinsunum
Tony Blair skrifar í löngu máli um
andlát Díönu prinsessu sumarið
1997 þegar hann var nýtekinn við
sem forsætisráðherra. „Við reynd-
um allan tímann að átta okkur á því
hvernig við ættum að takast á við
þetta. Ég veit að það hljómar nokkuð
harðneskjulega. En ég syrgði hana af
lífi og sál. Ég kunni vel við hana og
vorkenndi strákunum hennar ægi-
lega, en ég vissi líka að þetta yrði
stóratburður í Bretlandi, og reyndar
einstæður heimsviðburður. Hvern-
ig Bretland birtist var mikilvægt fyrir
landið, innan landamæra þess sem
utan. Ég var forsætisráðherra; ég
varð að finna lausn á málinu.“
Drakk á hverjum degi
Í sjálfsævisögunni viðurkennir Blair
að hafa reitt sig á áfengi að loknum
löngum vinnudögum. Hann seg-
ist hafa drukkið á hverjum degi. „Ég
var án vafa á ytri mörkum. Sterkt
viskí eða gin og tónik fyrir kvöldmat,
nokkur vínglös með honum, jafnvel
hálf flaskan. Þetta var ekki gríðarlegt
magn. Ég virti mín mörk.“ Áfengis-
magnið jókst þegar Blair var undir
miklu álagi, í Íraksstríðinu og þegar
hann tókst á við undiröldu stuðn-
ingsmanna Gordon Brown í Verka-
mannaflokknum sem vildu gera
uppreisn gegn honum.
Brown óþolandi refur
Tony Blair dregur upp fremur nei-
kvæða mynd af Gordon Brown, eftir-
manni sínum í forsætisráðuneytinu.
„Var hann erfiður, stundum óþol-
andi? Já. En hann var líka sterkur,
hæfileikaríkur og greindur, og ég hef
alltaf virt hann fyrir það,“ skrifar Blair.
Hann segir að Brown hafi verið ákaf-
lega góður bandamaður í ríkisstjórn-
inni framan af en seinna hafi komið í
ljós að hann væri lævís sem refur og
hefði jafnvel staðið að ýmsum bak-
stungum. Blair skrifar að undir lokin
hafi Brown beitt hann endalausum
þrýstingi til að Blair segði af sér sem
forsætisráðherra.
Í bókinni lýsir Blair þessum
helsta samherja sínum sem „furðu-
legum manni“ sem hefði þrátt fyrir
miklar gáfur aldrei búið yfir neinu
innsæi á hinu „mannlega sviði“.
„Útsjónarsemi í pólitík, já. Til-
finningar í pólitík, nei. Gáfur til að
greina hlutina, algjörlega. Tilfinn-
ingagreind, núll,“ skrifar Blair um
Brown. Hann sagði að það hefði
verið ómögulegt fyrir sig að koma í
veg fyrir að Brown yrði forsætisráð-
herra vegna valda hans yfir flokkn-
um og fjölmiðlum.
föstudagur 3. september 2010 erlent 21
Mestu mátar Bush og Blair störfuðu náið saman og urðu miklir vinir.
Ferðalag Tony Blair
Óþægilegt
faðmlag Jeltsín
Ég var nýlega spurður hver væri heilsteyptasti og heiðar-
legasti stjórnmálamaðurinn sem ég
hef hitt. Ég setti George [W. Bush]
ofarlega á þann lista.
Á meðal skemmtilegra lýsinga
í ævisögu Tony Blair er frásögn
hans af óþægilega löngu faðm-
lagi Borís Jeltsín, rússneska for-
setans heitna. „Við hittumst á
alþjóðlegum fundi skömmu
eftir stríðið í Kosovo. Hann gekk
til mín í salnum til að faðma
mig á hans fræga máta. Faðm-
lagið byrjaði. Fyrstu tíu sekúnd-
urnar voru, hugsaði ég, yndis-
lega vinalegar. Eftir næstu tíu
sekúndur fór mér að líða frek-
ar vandræðalega. Á næstu tíu
fór ég að finna fyrir öndunar-
erfiðleikum. Ég losnaði loks-
ins eftir um mínútu og ráfaði
í burtu í leit að sterkum drykk.
Ég held að hann hafi komið
því sem hann vildi til skila,“
skrifar Blair.
Borís Jeltsín Hinn eftirminnilegi
rússneski forseti, sem nú er fallinn
frá, faðmaði Tony Blair af miklu afli.