Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Blaðsíða 55
Genoa
41,4 milljónir evra
dýrastur
Miguel Veloso frá Sporting Lissabon
á 9 milljónir evra
aðrir nýir
rafinha frá Schalke 04
Eduardo frá Braga
Luca toni frá FC Bayern
n Genoa er lið sem knattspyrnuá-
hangendur þurfa að taka eftir. Það
hefur verið að gera það gott síðustu
ár og ætlar sér enn stærri hluti á komandi tímabili. Kaup á
borð við Miguel Veloso, Luca Toni og Rafinha sanna það að
Genoa-menn ætla sér í það minnsta í meistaradeildina.
Chelsea
38 milljónir evra
dýrastur
ramires frá Benfica
á 22 milljónir evra
aðrir nýir
Yossi Benayoun frá Liverpool
n Chelsea keypti aðeins tvo menn
en þeir komast samt á topp tíu-lista
sumarsins. Það kom mönnum í opna
skjöldu þegar tilkynnt var að Chelsea
væri að eltast við brasilíska varnar-
miðjumanninn Ramires en Carlo Ancelotti sér eitthvað í
honum. Ramires er brasilískur landsliðsmaður en ekki er
hægt að segja að hann hafi slegið í gegn á HM.
VfL Wolfsburg
38,9 milljónir evra
dýrastur
diego frá Juventus
á 15,5 milljónir evra
aðrir nýir
arne Friedrich frá Hertha Berlín
nassim Ben Khalifa frá Grashoppers
Mario Mandžukic frá Dinamo Zagreb
simon Kjær frá Palermo
n Wolfsburg færir Steve McLaren
heldur betur flotta sveit á fyrsta ári
hans með liðið. McLaren sem gerði Twente að hollenskum
meisturum í fyrra fær flotta leikmenn á borð við Diego, Arne
Friedrich og Simon Kjær ofan á annars fína sveit manna.
Marseille
37,5 milljónir evra
dýrastur
andré-Pierre Gignac frá Toulouse
á 18 milljónir evra
aðrir nýir
Loïc rémy frá Nice
César azpilicueta frá Osasuna
n Marseille ætlar sér franska meist-
aratitilinn ef marka má eyðslu þess í
sumar. Framherjinn stóri og stæðilegi
André-Pierre Gignac kostaði liðið
fúlgur fjár og þá voru þeir Loïc Rémy og varnarmaðurinn
Azpilicueta ekki gefins. Marseille er í meistaradeildinni í
ár og þarf liðið því að hafa á að skipa almennilegri sveit
manna fyrir tímabilið.
7
9
8
10
föstudagur 3. september 2010 sport 55
sVEKKtur Alonso náði ekki að klára og er orðinn frekar langt á eftir fremstu mönnum.
EyðslusEggir
sumarsins Það kemur væntanlega engum á óvart að Manchester City var það lið sem eyddi mestu fé í sumar. Þar á eftir koma spænsku risarnir Real Madrid og Barcelona. topp tíu-listi sumarsins
er áhugaverður því þar má finna lið á borð við Rubin Kazan,
Wolfsburg og Marseille en svo virðist sem nægir fjármunir séu
til á fleiri stöðum en hjá stærstu félögunum.
2
1
3
4
Manchester City
145 milljónir evra
dýrastur
Yaya touré frá Barcelona á 28,8 milljónir evra
aðrir nýir
david silva frá Valencia
James Milner frá Aston Villa
Mario Balotelli frá Inter
aleksander Kolarov frá Lazio
Jérôme Boateng frá Hamburg
n City-menn héldu áfram eyðslufylleríi sínu í
sumar og fengu til sín frábæra leikmenn. Þeirra
dýrastur var meðaljóninn Yaya Touré sem ekki
aðeins kostaði of mikið heldur er hann einnig
launahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildar-
innar. Hann fær betur borgað en Rooney,
Lampard, Torres og Tevez svo dæmi séu tekin.
Real Madrid
81 milljón evra
dýrastur
angel di María frá Benfica á 25 milljónir evra
aðrir nýir
ricardo Carvalho frá Chelsea
sami Khedira frá Stuttgart
Pedro León frá Getafe
Mesut Özil frá Werder Bremen
sergio Canales frá Racing Santander
n Real Madrid var tiltölulega rólegt í sumar
miðað við undangengin ár. José Mourinho
styrkti miðsvæðið með Sami Khedira og
klófesti feitan bita í Mesut Özil. Ángel di María
var liðinu dýrastur en miklar væntingar eru
bundnar við þann pilt. Ricardo Carvalho fylgdi
einnig sínum gamla þjálfara til Real.
Barcelona
71,5 milljónir evra
dýrastur
david Villa frá Valencia á 40 milljónir evra
aðrir nýir
Javier Mascherano frá Liverpool
adriano frá Sevilla
n Börsungar notuðu mest af sínu fé til þess að
landa David Villa sem liðið hefur lengi viljað fá.
Um leið var Zlatan losaður til AC Milan og kom
Barcelona ágætlega út á markaðnum í sumar.
Börsungar bættu einnig við sig Mascherano á
miðsvæðið og Adriano í vinstri bakvörðinn.
Juventus
56,5 milljónir evra
dýrastur
Miloš Krasic frá CSKA Moskvu
á 15 milljónir evra
aðrir nýir
simone Pepe frá Lazio
Marco storari frá AC Milan
alberto aquilani á láni frá Liverpool
Fabio Quagliarella frá Napoli
n Juventus nennir ekki lengur með-
almennskunni og ætlar sér stóra hluti
í vetur. Auk þess að fá Miloš Krasic,
Simone Pepe og Quagliarella fékk
liðið til sín urmul manna á láni til þess
að vera með sem breiðastan hóp.
Alberto Aquilani var einn af þeim
sem komu sem lánsmenn. Spennandi
verður að fylgjast með Krasic.
Rubin Kazan
43,1 milljón evra
dýrastur
salvatore Bocchetti frá Genoa
á 15 milljónir evra
aðrir nýir
Carlos Eduardo frá Hoffenheim
Obafemi Martins frá VfL Wolfsburg
aleksei Medvedev frá Sibr Novosibirsk
Oleg Kuzmin frá Lokomotiv Moskvu
n Það eru til nægir peningar í Moskvu
en ein stærstu kaupin voru vistaskipti
hins ágæta varnarmanns Salvatore Bocchetti frá Genoa. Ekki
stórt nafn í bransanum en hann er ein helsta ástæða upp-
gangsins hjá Genoa undanfarin ár. Carlos Eduardo var einnig
fenginn í sóknarlínuna frá Íslendingafélaginu Hoffenheim.
Zenit St. Pétursborg
43 milljónir evra
dýrastur
Bruno alves frá Porto
á 22 milljónir evra
aðrir nýir
sergei semak frá Rubin Kazan
aleksandr Bukharov frá Rubin
Kazan
aleksandar Lukovic frá Udinese
n Annað rússneskt lið sem eyddi vel í
sumar. Zenit-menn vilja endurheimta
titilinn aftur frá Rubin og bólstruðu því vörnina með
Portúgalanum Bruno Alves. Það má alveg deila um hvort 22
milljónir evra sé ekki töluvert mikið fyrir hann en það virðist
nóg til í Rússlandi.
5 6