Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Blaðsíða 18
18 fréttir 3. september 2010 föstudagur
Rík tengsl eru milli sölu á fyrrverandi
eignum Bandaríkjahers á Keflavík-
urflugvelli, Sparisjóðs Keflavíkur,
Keilis, bæjarstjórnar Keflavíkur
og fjármálaráðuneytisins í tíð
Árna M. Mathiesen. Sömu menn-
irnir sátu og sitja margir enn í
stjórnum félaga, í bæjarstjórn
Reykjanesbæjar og stjórn spari-
sjóða og höfðu gilda þræði inn í
fjármálaráðuneytið. Þeir mynd-
uðu tengslanet þar sem saman
ófust pólitískar ákvarðanir, einka-
hagsmunir og aðgangur að fé í fjár-
málastofnunum.
Flokksbræður véla um miklar eignir
Ríkisendurskoðun hefur áréttað það
mat sitt að forsvarsmenn Keilis, mið-
stöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs
á Keflavíkurflugvelli, hafi farið á svig
við heimildir þegar framlög úr ríkis-
sjóði voru notuð að hluta til reksturs
einkarekinna námsbrauta við skól-
ann á árunum 2008 og 2009.
Athugasemdir Ríkisendurskoðun-
ar voru gerðar eftir að Hjálmar Árna-
son, skólameistari Keilis, gagnrýndi
skýrslu Ríkisendurskoðunar harðlega
í fjölmiðlum.
„Að mati Ríkisendurskoðunar
felur þetta í sér skýlaust brot á fyrr-
nefndum samningum og hefur ráðu-
neytið lýst sig sammála þeirri túlkun,“
segir í athugasemd ríkisendurskoð-
anda.
Í árslok 2009 nam uppsafnaður
halli af rekstri Keilis 136 milljónum
króna en heildarskuldir um 463 millj-
ónum króna. Samkvæmt upplýsing-
um frá Keili er áætlaður rekstraraf-
gangur þessa árs 10 milljónir króna
en ljóst er að afborganir langtíma-
skulda munu nema um 60 milljónum
króna á árinu.
Tapið
Uppsafnað tap á frumgreinanámi
skólans nam nærri 96 milljónum fyrir
árin 2007 til 2009 þrátt fyrir að fram-
lög ríkisins til námsins hafi verið síst
minni en til annarra aðila sem sinna
frumgreinakennslu. „Sem eftirlits-
stofnun Alþingis gat Ríkisendurskoð-
un því ekki annað en lýst áhyggjum
sínum vegna rekstrarstöðu skólans.
Einnig hlaut hún að vekja athygli á
því að lögum samkvæmt eru stjórn-
völd ekki skuldbundin til að veita
einkaskólum á borð við Keili framlög
eða styrki af almannafé nema samið
hafi verið sérstaklega við þá um til-
tekna þjónustu. Þeim ber sjálfum að
tryggja eigið rekstraröryggi og standa
skil á fjárhagslegum skuldbindingum
sínum,“ segir Ríkisendurskoðun enn
fremur.
Hagnaðurinn verður til
Eins og greint var frá í DV í vikunni
hagnaðist Keilir í Reykjanesbæ um
nærri 200 milljónir króna á fasteigna-
viðskiptum sínum við íslenska ríkið
á árunum 2007 og 2008 samkvæmt
umræddri skýrslu Ríkisendurskoð-
unar.
Í viðskiptunum keypti Keilir
mennta- og leikskóla á svæði varnar-
liðsins á Keflavíkurflugvelli af Þróun-
arfélagi Keflavíkurflugvallar á verði
sem var einungis 30 prósent af mats-
verði. Skólarnir höfðu áður verið eign
bandaríska hersins en hann gaf ís-
lenska ríkinu þá ásamt öllum fast-
eignum á svæðinu þegar hann yfirgaf
Ísland fyrir fjórum árum. Keilir seldi
eignarhaldsfélaginu Fasteign ehf. svo
áðurnefnda skóla ári síðar og inn-
leysti áðurnefndan hagnað. Þau kaup
hafa gengið til baka.
Söluhagnaðurinn
Ríkisendurskoðun telur augljóst að
strax frá því að Keilir var stofnaður
á haustmánuðum 2007 hafi skólinn
notið velvildar ríkistjórnarinnar og
Alþingis enda hafi hann verið stofn-
aður undir „verndarvæng“ íslenska
ríkisins. Þar segir meðal annars: „Í
ræðu sinni á stofndegi félagsins lýsti
þáverandi menntamálaráðherra
[Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir]
vilja ríkisstjórnarinnar til að tryggja
félaginu framgang og vilyrði mennta-
málaráðuneytisins fyrir viðurkenn-
ingu á skólastarfseminni.“
Runólfur Ágústsson, sem vann við
að byggja skólann upp frá grunni og
veitti honum forstöðu til ársins 2008,
neitar því að hafa skilið við skólann
eins og sviðna jörð. Vegna umfjöll-
unar DV um fjármál Keilis og meint-
an viðskilnað hans vill Runólfur taka
fram að eigið fé Keilis hafi í árslok
verið um 480 milljónir króna. „Tekj-
ur félagsins voru árið 2008 þríþætt-
ar, tekjur af kennslu og rannsóknum,
um 262 milljónir, 130 milljóna króna
þjónustutekjur húsnæðis og loks aðr-
ar tekjur, mest söluhagnaður eigna
eða 193 milljónir króna. Þá hafði fé-
lagið fjármagnstekjur af peningalegri
eign sinni upp á 76 milljónir króna
það árið,“ segir Runólfur.
Með þessu móti voru að sögn
Runólfs heildargjöld félagsins 464
milljónir krona en tekjur þess liðlega
660 milljónir króna. „Afkoma Keilis
fyrir tekjuskatt árið 2008 var því já-
kvæð um tæpar 200 milljónir króna.
Tekjuskattur félagsins var 24 milljón-
ir. Vissulega átti söluhagnaður stóran
þátt í góðri afkomu ársins, en afkom-
an var jákvæð að teknu tilliti til fjár-
magnstekna burtséð frá slíku,“ segir
Runólfur.
Rík tengsl fárra manna
Ríkisendurskoðun bendir á að Keil-
ir hafi verið einn um hituna við að
komast yfir byggingar undir starfsemi
sína og þær hafi fengist keyptar fyrir
aðeins tæpan þriðjung af matsverði
bygginganna af Þróunarfélagi Kefla-
víkurflugvallar. Þróunarfélagið hafði
það verkefni með höndum fyrir rík-
ið að einkavæða eða selja byggingar
og önnur þau verðmæti sem Banda-
ríkjaher gaf íslenska ríkinu þegar
hann yfirgaf landið fyrir fullt og allt
í október árið 2006. Árni Sigfússon,
bæjarstjóri Reykjanesbæjar, situr í
stjórn Þróunarfélagsins og situr enn.
Jafnframt er hann stjórnarformaður
Keilis. Alla tíð frá því Bandaríkjaher
lét eignirnar í hendur ríkisins og þar
til þær höfðu að mestu verið seldar
var Böðvar Jónsson, formaður bæj-
arráðs Reykjanesbæjar og flokks-
bróðir Árna, aðstoðarmaður Árna M.
Mathiesen, þáverandi fjármálaráð-
herra. Árni Mathiesen hafði yfirum-
sjón með einkavæðingu eignanna til
8. maí 2007. Þetta var skömmu fyrir
þingkosningarnar og þá sagði Árni
sig frá því að þurfa að undirrita alla
kaupsamninga. Ljóst var á þeim tíma
að Þorgils Óttar Mathiesen, bróðir
hans, var meðal kaupenda að eign-
um á Keflavíkurflugvelli.
Fimm af sjö fyrrverandi og núverandi bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins
í Reykjanesbæ tengjast eignakaupum á Keflavíkurflugvelli:
n Árni Sigfússon, bæjarstjóri: Í stjórn Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar og
stjórnarformaður Keilis. Hann er einnig stjórnarformaður Fasteignar hf. sem keypti
eignir af Keili.
n Steinþór Jónsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi: Stjórnarformaður Base ehf. sem
stofnað var um eignakaup á Keflavíkurflugvelli af Þróunarélaginu. Steinþór er einn
eigenda Hótel Keflavíkur sem á 9 prósenta hlut í Base.
n Þorsteinn Erlingsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi: Stjórnarformaður Sparisjóðs
Keflavíkur um langt skeið. Sparisjóðurinn átti rúmlega 22 prósenta hlut í Háskóla-
völlum og hlut í Base.
n Garðar Vilhjálmsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi: Eignarhaldsfélagið 520 ehf., í
hans eigu, keypti 800 fermetra skemmu af Base á Keflavíkurflugvelli.
n Böðvar Jónsson, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs: Fyrrverandi aðstoðar-
maður Árna Mathiesen fjármálaráðherra sem hafði yfirumsjón með sölu eignanna
á Keflavíkurflugvelli í upphafi.
Þeir eiga hagsmuna að gæta
JóHann HaukSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Eignir hafi verið seldar án út-
boðs til manna sem ná-
tengdir séu Sjálfstæðis-
flokknum og meirihluta
bæjarstjórnar Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjanesbæ.
Í mörgum hlutverkum Ríkisend-
urskoðun varaði Árna Sigfússon
við vanhæfi í skýrslu árið 2008 um
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar.
Engin gefin verðmæti Runólfur
Ágústsson segir engin gefin
verðmæti hafa verið í eignunum á
Keflavíkurflugvelli.