Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 3. september 2010 FRÉTTIR 17
ÚRSLITAFUNDUR KVÖLDIÐ FYRIR RÁÐHERRASKIPTI
rætt við eru margir þeirrar skoðun-
ar að Álfheiður Ingadóttir hafi sýnt
mikla fórnfýsi og pólitískan þroska
með því að víkja fyrir Ögmundi úr
ráðherrastóli. Sjálf kveðst hún ætla
að einbeita sér að þingstörfum. Um
kynjahlutföll í ríkisstjórninni segir
hún að ekki sé á allt kosið.
Valdið til þingsins
Á það er einnig bent að ofuráhersl-
an á ráðherradóm sé ekki í takt við
tímann þegar sterkur vilji er til þess
meðal stjórnarflokkanna að auka
virðingu og áhrif löggjafarvaldsins,
Alþingis. Árni Þór Sigurðsson, þing-
maður VG, benti meðal annars á
þetta á þingflokksfundi VG þar sem
breytingar í ríkisstjórn voru rædd-
ar. „Öll störf eru mikilvæg, ekki síst í
þinginu, mikilvægum nefndum þess
og í þingflokki. Við verðum að láta
af því hugarfari að ráðherrastólar
ráði úrslitum. Pólitísk áhrif eru ekki
endilega einskorðuð við ráðherra.
Við eigum að breikka nálgun okkar í
þessum efnum,“ segir Árni Þór.
Jóhanna sagði við blaða- og frétta-
menn á Bessastöðum að vænta mætti
frekari breytinga á ríkisstjórninni um
áramótin þegar málefni sjávarút-
vegs, landbúnaðar, iðnaðar og ann-
arra atvinnugreina verða sameinuð
í eitt atvinnuvegaráðuneyti. Á orðum
hennar mátti skilja að þá yrði reynt
að jafna kynjahlutföllin í ríkisstjórn-
inni á ný. Ríkisstjórn Jóhönnu var sú
fyrsta í landinu þar sem jafnmargar
konur og karlar sátu í ráðherrastól-
um. Með breytingunum nú er hlut-
fall kvenna aðeins 40 prósent. Gangi
fyrirhugaðar breytingar eftir um ára-
mótin er ljóst að Jón Bjarnason lætur
af embætti. Hugsanlega yrði þá skipt
út ráðherrum í fleiri stólum um ára-
mótin, þó örugglega þannig að karlar
og konur yrðu jafnmargar í ráðherra-
stólum ef marka má orð Jóhönnu.
„Samstaðan er lykill“
En eftir öllum sólarmerkjum að
dæma hefur ríkisstjórnin gert alvar-
lega tilraun til þess að stilla saman
strengi og setja niður innanhúsdeil-
ur. Þetta má lesa úr orðum nú-
verandi og fráfarandi ráðherra. Af
orðum þeirra má skilja að tími og
vinna hafi verið lögð í að telja kjark-
inn í stjórnarliða og efla samstöðu
á flokkslegum og málefnalegum
grundvelli. Svandís Svavarsdótt-
ir umhverfisráðherra sagði meðal
annars orðrétt á þingfundi í gær:
„Vinstrihreyfingin – grænt framboð
hefur orðið fyrir harkalegri árásum
en dæmi eru til um í langan tíma.
Því hefur verið haldið fram að klofn-
ingur sé innan raða flokksins. Það
sést nú við endurskipulagningu rík-
isstjórnarinnar að flokkurinn hefur
ákveðið að standa þétt saman. Við
skynjum það öll eins og verkafólk í
vinnudeilu að samstaðan er lykill
raunverulegra breytinga.“
Andóf verður að efasemdum
Svandís, sem tilheyrir Steingríms-
armi VG, bætti við að reynt hefði
verið að stía vinstrigrænum í sund-
ur: „Við erum mörg þeirrar skoðun-
ar að umsóknarferlinu eigi að ljúka
og það sé best fyrir land og þjóð að
þjóðin fái samning til að taka af-
stöðu til. Þá er því haldið fram, ekki
síst af þeim sem þykjast vera banda-
menn okkar í baráttunni gegn ESB,
að við séum að svíkja grundvallar-
hugsjónir flokksins. En staðreynd-
in er sú að það er enginn bilbugur
á andstæðingum ESB í þingflokki
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs. Hjá okkur er enginn
ESB-andstæðingur betri en annar
og enginn verri en annar. Við höf-
um staðið saman og með Samfylk-
ingunni í að leysa mál og í því að
lyfta Íslandi upp úr kreppunni sem
hugmyndafræði Sjálfstæðisflokks-
ins bjó til. Sem 18 ára hægristjórn
bjó til og ber ábyrgð á.“
Ögmundur Jónasson innanrík-
isráðherra sagði í samtali við DV
eftir að hann tók við lyklavöldum
í ráðuneytum sínum, að hann ætl-
aði ekki að beita sér fyrir því að um-
sókn um aðild að ESB yrði dregin til
baka. „Ég samþykkti að farið yrði í
viðræðuferli um aðild til þess að ná
fram niðurstöðum í viðræðum sem
yrðu síðan bornar undir þjóðina.
Það stendur af minni hálfu og ég
beiti mér ekki fyrir því að umsókn-
in verði dregin til baka. Hins vegar
er ég í hópi þeirra sem hafa lýst yfir
mikilli óánægju með að viðræðu-
ferlið hafi snúist upp í aðlögunar-
ferli og vil hverfa af þeirri braut.
Það er ljóst að innan ríkisstjórnar
er mismunandi sýn á Evrópusam-
bandið og hversu æskilegt það er
hvort við eigum að standa þar inn-
andyra eða utandyra. Mín afstaða
er enn sem áður skýr, ég er fullur
efasemda. Svo vægt sé til orða tek-
ið.“
Þurfum ekki ný andlit
Hægriarmur Sjálfstæðisflokks-
ins, andstæðingar ESB og Icesa-
ve-samninga, hefur biðlað til „óró-
legu deildarinnar“ í VG á síðum
Morgunblaðsins. Heimssýn, sem
berst gegn ESB-aðild, hefur haft sig
í frammi en formaður hreyfingar-
innar er Ásmundur Einar Daðason,
þingmaður VG. Styrmir Gunnars-
son, fyrrverandi ritstjóri, hefur fjall-
að um samstöðu þessa arms VG og
sjálfstæðismanna.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, gaf lítið fyrir
mannabreytingar í ríkisstjórn jafn-
aðar- og vinstrimanna á fyrsta þing-
fundinum eftir sumarhlé.
„Þjóðin er ekki að kalla eftir nýj-
um andlitum. Þjóðin er að kalla
eftir aðgerðum.“ Bjarni sagði að
athygli vekti að vinsælustu ráðherr-
arnir væru látnir víkja en þeir sætu
sem fastast sem mestu vandræð-
unum hefðu valdið. „Nú á að þétta
raðirnar um það sem ekkert er ...
Þetta snýst bara um völdin. Aðilar
vinnumarkaðarins hafa fengið nóg.“
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var fyrsta ríkisstjórn Íslandssögunnar með
jafnt kynjahlutfall en eftir breytingar á ráðherraliði hallar á konur á ný. Samfylking
fylgir jafnréttisstefnu og vinstrigrænir hafa lagt ríka áherslu á róttæka kvenfrelsis-
stefnu sína.
„Það er ekki á allt kosið,“ segir Álfheiður Ingadóttir um ójafnt kynjahlutfall
ríkisstjórnar. „Við hljótum að stefna að því að jafna kynjahlutfallið þegar ráðist er í
næstu breytingar.“
„Það má velta því fyrir sér hvort ekki sé verið að svíkjast undan merkjum kven-
frelsistefnu VG,“ segir Auður Lilja Erlingsdóttir framkvæmdastjóri Vinstri grænna.
„Það verður ekki litið fram hjá því að kynjahlutföll eru nú ójöfn. Hlutfall ráðherra
af landsbyggð og af höfuðborgarsvæðinu hefur hins vegar jafnast,“ bætir hún við.
Auður Lilja segir að sátt hafi verið innan þingflokksins um skipan Ögmundar.
Breytinga er að vænta um næstu áramót þegar sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðuneyti og iðnaðarráðuneyti sameinast í atvinnuvegaráðuneyti.
GEGN JAFNRÉTTISSTEFNU
Oddvitar stjórnarflokkanna segja að viðsnúningur hafi orðið í efnahagslífinu. Hag-
vöxtur hafi mælst síðustu 6 mánuði, hálfu ári fyrr en reiknað var með. Atvinnuleysi
sé komið niður í 7,5 prósent og störfum sé tekið að fjölga. Verðbólga hafi lækkað
úr 18,6 prósentum í 4,5 prósent og ekki verið lægri í 3 ár. Stýrivextir hafi lækkað úr
18 prósentum í 7 prósent og hafi ekki verið lægri í 6 ár. Þá hafi gengi krónunnar
styrkst jafnt og þétt. Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins, Alþýðusambands
Íslands, Seðlabanka Íslands, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og fleiri hafi lýst því yfir að
kreppunni sé lokið. Jóhanna Sigurðardóttir sagði á Alþingi í gær að ríkisstjórnin
hafi afnumið lífeyrisréttindi forréttindastétta, tryggð hafi verið jákvæð samskipti
við alþjóðasamfélagið og verið væri að gera upp við stjórnarhætti þeirra sem
mesta ábyrgð bæru á bankahruninu.
Guðmundur Steingrímsson, Framsóknarflokki, sagði aftur á móti að vinur sinn,
sem greitt hefði 190 þúsund krónur á mánuði af húsnæðisláni, ætti að greiða 390
þúsund krónur á mánuði nú. Hann fengi ekki séð hvernig þessi vinur ætti að verða
var við að kreppunni sé lokið. Stjórnvöld neiti að horfast í augu við að kreppan sé
fyrst og fremst skuldakreppa.
BATINN FYRR Á FERÐ
10 ráðherrar en voru 12
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
forsætisráðherra
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
fjármálaráðherra
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
utanríkisráðherra
ÖGMUNDUR JÓNASSON innan-
ríkisráðherra (dómsmál, samgöngur,
mannréttindi, sveitarstjórnarmál)
GUÐBJARTUR HANNESSON
velferðarráðherra (heilbrigðismál
og félagsmál)
KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR
iðnaðarráðherra
JÓN BJARNASON sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra
KATRÍN JAKOBSDÓTTIR
menntamálaráðherra
ÁRNI PÁLL ÁRNASON
efnahags- og viðskiptaráðherra
SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR
umhverfisráðherra
RÁÐHERRARNIR
Ráðherraskipti Ögmundur
Jónasson tekur við lyklavöldum
af Rögnu Árnadóttur í dómsmála-
ráðuneytinu.
Burt með sundrungu „Við
höfum staðið saman og með
Samfylkingunni í að leysa mál
og í því að lyfta Íslandi upp úr
kreppunni sem hugmyndafræði
Sjálfstæðisflokksins bjó til,“ segir
Svandís Svavarsdóttir.