Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Blaðsíða 28
„Faðir,
fyrirgef þeim,
því að þær vita ekki
hvað þær gjöra“
28 úttekt umsjón: INGIBJÖRG DÖGG KJARTANSDÓTTIR ingibjorg@dv.is 3. september 2010 föstudagur
Áður en biskupsmálið komst í hámæli leitaði Sigrún Pálína Ingvarsdóttir til tveggja presta sem létu ógert að að-hafast nokkuð í málinu. Þetta voru
þeir Vigfús Þór Árnason og Pálmi Matthías-
son. En það var ekki fyrr en séra Vigfús Þór
hóaði saman þrjátíu prestum sem samþykktu
samhljóða yfirlýsingu þar sem þeir lýstu yfir
trausti á Ólafi Skúlasyni biskupi að Sigrún
Pálína ákvað að kæra hann til siðanefndar og
kvarta undan Pálma.
Fundurinn fór fram í Hallgrímskirkju og
var efni hans ummæli Geirs Waage, sem þá
var formaður Prestafélagsins, um að trúnað-
arbrestur ríkti á milli presta og biskups. Þó að
yfirlýsingin sneri ekki beint að kynferðisbrot-
um biskupsins þá þótti Sigrúnu Pálínu þetta
heldur lélegt, þar sem hún hafði þegar hitt
séra Vigfús Þór og lýst hrakförum sínum fyr-
ir honum.
Yfirlýsingin var svohljóðandi: „Fjölmennur
fundur presta á höfuðborgarsvæðinu, haldinn
í Hallgrímskirkju í janúar, lýsir yfir vanþókn-
un sinni á yfirlýsingum formanns Prestafélags
Íslands um trúnaðarbrest milli presta og bisk-
ups og lýsir trausti á biskupi Íslands sem hirði
og leiðtoga kirkjunnar. Hvetjum við presta
kirkjunnar og trúnaðarmenn að gæta hófsemi
og stillingar í orðum sínum og þeirrar virðing-
ar sem erindi hennar sæmir.“ Við þetta tilefni
var það einnig haft eftir séra Vigfúsi Þór Árna-
syni að „... þó svo Geir kunni persónulega að
þykja eitthvað athugavert við einhverjar at-
hafnir biskups er ekki þar með sagt að trúnað-
arbrestur ríki milli presta og biskups almennt.“
Yfirlýsing kirkjuráðs
Eftir að Sigrún Pálína kærði séra Vigfús Þór til
siðanefndar komst málið í fjölmiðla. Ólafur
Skúlason naut virðingar á meðal þjóðarinnar
og þegar konurnar þrjár, Sigrún Pálína Ingv-
arsdóttir, Dagbjört Guðmundsdóttir og Stefan-
ía Þorgrímsdóttir, sökuðu hann um kynferðis-
brot lýsti fjöldi fólks opinberlega yfir stuðningi
sínum við Ólaf.
Þar má fyrst nefna kirkjuráð, sem er æðsta
framkvæmdavald kirkjunnar. Kirkjuráð er val-
ið af kirkjuþingi, það er skipað tveimur leik-
mönnum og tveimur prestum auk biskupsins
sem veitir því forystu. Árið 1996 sátu í kirkju-
ráði, auk Ólafs, Karl Sigurbjörnsson núver-
andi biskup, séra Hreinn Hjartarson, Helgi K.
Hjálmarsson og Gunnlaugur Finnsson, fyrr-
verandi alþingismaður. Vék Ólafur af fundi
vegna aðildar sinnar að málinu þegar meint-
ar ávirðingar biskups voru ræddar. Ráðið hef-
ur ekki stjórnskipulegt vald, „né heldur í þessu
tilviki rökrænar forsendur til að kveða upp úr-
skurð í slíkum málum, en ályktunarhæft er það
að sjálfsögðu“, segir í inngangi ályktunar sem
ráðið sendi frá sér þar sem það lýsti yfir stuðn-
ingi við Ólaf. „Kirkjuráð harmar þær ásakanir
sem bornar eru fram á hendur biskupi Íslands
og eru alvarleg atlaga að æru hans og heiðri
kirkjunnar þjóna og valda djúpri sorg máls-
aðilum og öllum unnendum kirkju og kristni.“
Þá harmaði kirkjuráð þau sár sem sóknarbörn
töldu sig hafa orðið að bera vegna framkomu
kirkjunnar þjóna fyrr og síðar og fól það allt
náð Guðs og fyrirgefningu á hendur. Kirkju-
ráð vottaði biskupi Íslands og fjölskyldu hans
dýpstu samúð og kærleika og sagði: „[Kirkju-
ráð] væntir þess að honum auðnist með Guðs
hjálp að leiða þau ágreiningsmál sem nú eru
Þær voru ófáar yfirlýsingarnar sem birtar voru til stuðnings Ólafi Skúlasyni biskupi árið 1996 eftir að kyn-
ferðisbrotamál hans komust í hámæli. Auk þess að lýsa yfir trausti og stuðningi við Ólaf gaf fólk sér alls
kyns ástæður fyrir ásökunum kvennanna á hendur honum, vitnaði einn í Carl Jung, annar vísaði í vafa-
sama siðferðiskennd og enn annar sagði frásagnir þeirra féþúfur fjölmiðla. Á meðal þeirra sem sendu frá sér
stuðningsyfirlýsingu voru prófastar og kirkjuráð, en Karl Sigurbjörnsson sat þá í kirkjuráði.
Ég hélt í einfeldni minni að Stígamót væri þjóð-
þrifafélagsskapur, en þar virð-
ast ofstækisöfl ráða ferðinni.
Trú Ólafi sóknarbörn Bústaðakirkju
reyndust ólafi vel þegar á reyndi. 99
konur í sókninni sömdu stuðningsyfir-
lýsingu, sem og kórinn og fyrrverandi
sóknarformaður.