Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Blaðsíða 22
Jóhannes Jónsson í Bónus og fjölskylda hans hafa ekki gert upp 50 milljarða króna skuldir sem stofnað var til vegna versl-
unarkeðjunnar Haga. Viðbrögð
bankans sem þau skulda millj-
arðana er að láta Jóhannes fá eins
konar bónusgreiðslu, 114 milljónir
króna.
Sumir yrðu fullsæmdir af því að vinna sér inn ævi-laun sem jafngilda bónusi Jóhannesar. Húsnæðiseig-
andi sem skuldar Arion banka 20
milljónir króna er ekki líklegur til
þess að fá væna summu í vasann
eftir að bankinn tekur húsnæðið
af honum. Þetta er hin undarlega
virkni fjármálakerfisins. Því verri
sem maður er, því meira fær maður
borgað.
Björgólfur Thor Björgólfsson auðmaður skuldaði ótrú-legar upphæðir og var með allt niður um sig. Þá fór
hann í „skuldauppgjör“. Hjá venju-
legum manni hefði skuldauppgjör
þýtt að bankinn stjórnaði persónu-
legum útgjöldum hans þannig að
hann hefði efni á mat, íbúð og jogg-
ing-galla úr Hagkaupum. Hjá Björ-
gólfi þýddi það að allar persónuleg-
ar ábyrgðir voru afnumdar og hann
hélt eigum sínum.
Jón Ásgeir Jóhannesson er Íslandsmethafi í skuldum og stendur Íslendinga einna fremst í umsvifamiklum fjár-
hagsörðugleikum. Erfiðleikar Jóns
hefjast strax að morgni þegar hann
vaknar, tveimur árum eftir efna-
hagshrunið sem hann ber sjálfur
stóra ábyrgð á, og þarf að velja milli
þess hvort hann fer á svarta Range
Rovernum eða þeim hvíta. Konan
hans eignaðist með undraverðum
hætti fjölmiðlaveldið 365 sem hann
hafði sjálfur náð að halda þegar
hann fékk einn og hálfan milljarð
að láni á óútskýrðan hátt þegar allt
fjármálalíf var hrunið í landinu.
Fjölmiðlafyrirtæki Jóns Ás-geirs, sem hefur verið í gjör-gæslu hjá Landsbankanum, er búið að kaupa sýningar-
rétt á íslenska handboltalandslið-
inu. Það er líka komið með Spaug-
stofuna. 365 er svo ánægt með Jón
Ásgeir að hann fær 800 þúsund
á mánuði bara í ráðgjafarlaun,
frá fyrirtækinu. Hann er með 132
milljónir til viðbótar í laun frá ótil-
greindum fyrirtækjum. Alveg eins
fékk Jóhannes í Bónus tvær millj-
ónir á mánuði, afnot af húsi og bíl,
bara fyrir það eitt að vera stjórnar-
formaður Haga.
Svarthöfði óskar Jóa í Bónus alls hins besta, enda byggði hann upp Bónus frá grunni. En hvers vegna ætli venju-
legt fólk, sem byggir heimili sitt frá
grunni, fái ekki sömu meðferð Ar-
ion banka og hann? Og hvers vegna
eru útrásarvíkingarnir nánast allir
sem einn á grænni grein eftir allt
það sem þeir gerðu?
Jói á grænni grein „Segðu frænda þínum að
hoppa upp í
rassgatið á sér.“
n Þórunn Sveinbjarnardóttir lét þessi orð
falla við fréttamann eftir útvarpsviðtal á
miðvikudag. Ummælin voru sögð í gríni en hún
baðst afsökunar. – RÚV
„Ég velti stundum fyrir
mér hvernig það gerðist
að ég er orðinn talsmaður
hækkana á orkuverði.“
n Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarfor-
maður Orkuveitunnar, segist aldrei áður hafa
stutt hækkanir á orkuverði. – Bylgjan
„Ég hefði getað hangið á
samningi mínum í
Mónakó; notið góða
veðursins og horft á
fallega báta.“
n Eiður Smári Guðjohnsen
gekk til liðs við Stoke City í
vikunni, fótboltans vegna. –
Fótbolti.net
„Ég á ekki von á
öðru en að snúa
aftur upp í
háskóla.“
n Gylfi Magnússon hættir
sem efnahags- og
viðskiptaráðherra
og hverfur til
fyrri starfa.
Hrægammar með lífeyri
Ísland eftir hrun er á góðri leið með að toppa þá spillingu sem átti sér stað á því tímaskeiði sem jafnan er kennt við árið 2007. Útrásarvíkingar sem áður voru
hafnir upp til skýjanna eru nú flestir komn-
ir að fótum fram. Í þeirra stað er kominn
mökkur af hrægömmum sem leika sér með
fé annarra. Sjáið skilanefndarfólkið sem fær
allt að sjöföld laun forsætisráðherra. Þá er
vert að skoða það hverjir eru að braska með
lífeyri landsmanna. Nýverið var Framtaks-
sjóði, sem er í eigu lífeyrissjóðanna, steypt
út í að kaupa flugfélag og handónýta bygg-
ingavöruverslun af ríkisbankanum. Engum
verklagsreglum var fylgt. Örfáir umboðs-
lausir einstaklingar taka þá ákvörðun að
leggja út í brask og samkeppni. Lífeyririnn er
notaður í valdatafli og til þess að berja niður
samkeppni á hinum frjálsa markaði. Starfs-
menn BYKO horfa á eftir lífeyri sínum hverfa
í rekstur Húsasmiðjunnar. Samkeppnisaðil-
inn notar sem sagt þá peninga til að styrkja
markaðsstöðu sína.
Stjórnendur lífeyrisbrasksjóðsins hafa
opinberlega gortað af því að hafa fyrirvara-
laust gengið til kaupanna á Vestia. Ekkert
gegnsæi var við söluna. Ekkert útboð. Aðeins
samningur í bakherbergi.
Íslensku lífeyrissjóðirnir hafa um langt
árabil verið misnotaðir í valdatafli einstak-
linga eða til að standa undir hóglífi einhverra
þeirra. Fjöldi dæma er til um það að skúrkar á
framfæri sjóðanna hafa lagst í lúxusferðir og
verið sem blóðsugur á lífeyrisgreiðendum.
Sjóðirnir hafa miskunnarlaust verið misnot-
aðir af siðleysingjum. Sumir sjóðanna fóru á
hausinn en aðrir hafa lent í stóráföllum. Það
er fyrir löngu tímabært að lífeyrissjóðirn-
ir verði siðvæddir og tryggt að þeir séu ekki
misnotaðir. Kaupin á Vestia benda til þess að
sama óráðsían sé í gangi og verið hefur. Nýir
hrægammar eru sestir við kjötkatlana.
reynir TrausTason riTsTJóri skrifar. Ekkert gegnsæi var við söluna.
leiðari
svarthöfði
bókstaflega
Barnanna bestur
Sjálfur er ég líklega ekki barn-
anna bestur þegar kemur að því að
dæma sanna hlandaula. Og þegar
froðusnakkar fá að úða yfir okk-
ur og fá jafnvel laun fyrir að míga
í skóna okkar þá á ég það til að
stimpla stóru orðin inn. Já, vænt-
anlega má finna ýmsa formgalla á
orðavali mínu þegar ég gagnrýni
gjörninga þeirra sem sjálfviljug-
ir taka það að sér að hafa vit fyr-
ir lýðnum. En allajafna hef ég þó
reynt að vera réttlátur og sann-
gjarn þegar ég hef dæmt, með orð-
um mínum, þá menn sem svikið
hafa land og þjóð.
Ég tel sjálfgefið að, t.d. prestar,
þingmenn og ráðherrar — ég tala
nú ekki um fólk sem gæta á pen-
ingalegra hagsmuna okkar — víki,
láti sig hverfa og skammist sín, þeg-
ar þetta fólk hefur verið staðið að því
að bregðast í starfi.
Þegar prestur er staðinn að því
að hundsa orð sóknarbarns, sem á
í alvarlegum sálrænum vanda, þá
ber að skoða grandgæfilega hvers
vegna presturinn valdi að láta orð-
in sem vind um eyru þjóta. Ef við
erum að tala um það að viðkomandi
prestur hafi vísvitandi reynt að fela
hrottaleg níðingsverk, til þess eins
að vernda vin sinn fyrir skakkaföll-
um, þá hefur klerkurinn gerst sek-
ur um glæp. Sá glæpur er þess eðlis
að hann verður einungis afsakaður
með afsögn.
Þegar prestur gerist svo gírug-
ur til hollustu við heilagan anda,
að halda því fram að þagnarskylda
presta sé hafin yfir landslög, þá hef-
ur sá hinn sami prestur sannað fyrir
alþjóð að hann er ófær um að sinna
sálgæslu. Og þegar viðkomandi síra
er svo bíræfinn að sverja af sér sið-
blinduna með lygum þá gerir hann
ekki annað en að opinbera hempu-
klædda hræsni.
Í dag er í tísku að ráðast með
kjafti og klóm að hverjum þeim
sem svikráð og siðblindu flíkar. Oft-
ast er slíkt gert að gefnu tilefni og
af yfirvegun, þó er sérkennilegt að
sjá það annað veifið hvernig ráðist
er að þeim sem einvörðungu eru
að reyna að vera réttlátir og sann-
gjarnir í öllum sínum verkum. En
dæmi um mann, sem ráðist er á að
ósekju, er okkar ágæti Jóhannes í
Bónus. Hann hefur gefið þjóðinni
meiri afslátt en aðrir menn, hefur
skaffað drjúgt til líknarmála, for-
varnastarfs, íþrótta, landgræðslu
og yfirleitt allra góðra verka. Svo er
honum legið á hálsi fyrir það eitt, að
hafa hagnast á því að vera dugleg-
ur. Ætli hann sé ekki sóknarbarn-
anna bestur, þegar öllu er á botninn
hvolft.
Fjöldinn burt frá fegurð kemst,
að forarpytti dreginn
ef siðblindum er falið fremst
að finna rétta veginn.
22 umræða 3. september 2010 FÖSTUDAGUR
Okurveita
reykjavíkur
n Haraldur Flosi Tryggvason,
stjórnarformaður Orkuveitunnar,
hefur gengið fram af festu í því að
hækka verð á
orku til að rétta
af hið sökkvandi
fley. Gegndar-
laust bruðl hefur
einkennt rekst-
urinn allt frá því
Alfreð Þorsteins-
son hélt um
taumana sem
stjórnarformaður. Ekki er að merkja
samviskubit hjá fráfarandi forstjóra
Orkuveitunnar, Hjörleifi Kvaran,
sem hefur það helst fram að færa að
Haraldur gangi fram af miskunnar-
leysi í að skera niður og hækka verð
hjá fyrirtækinu sem nú er kallað
Okurveitan.
FOrtíðarþrá Davíðs
n Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, er sagður vera
einstaklega var um sig þessa dag-
ana. Bjarni er
með flokk sinn
í ágætu fylgi en
yfir formann-
inum er skuggi
Davíðs Odds-
sonar, fyrrver-
andi formanns
og ritstjóra
Moggans. Fullyrt
er að Davíð, altekinn af fortíðarþrá,
bíði þess aðeins að leggja til atlögu
við formanninn unga og þá með
það fyrir augum að taka aftur við
formennskunni. Ef það gerist er víst
að það yrði mikill happafengur fyrir
andstæðinga Sjálfstæðisflokksins.
BjörgólFur
Og smári
n Lítið hefur farið fyrir Gunnari
Smára Egilssyni, fyrrum fjölmiðla-
kóngi Baugs, frá því hann reyndi
að fá vinnu hjá
Ólafi F. Magn-
ússyni borgar-
stjóra á sínum
tíma. Gunnar
Smári á að baki
mikla fortíð í
blaðaútgáfu og
víst ert að seint
munu Danir
gleyma ævintýri hans með Nyh-
edsavisen. Gunnar Smári var lengi
vel einn nánasti samstarfsmaður
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar en
eftir hrunið slitnaði upp úr milli
þeirra. Nú gengur sú saga að Gunn-
ar Smári sé launaður huldupenni
á vefsíðu Björgólfs Thors. Sjálf-
ur þvertekur fjölmiðlakóngurinn
fyrir að vera í réttlætingarteymi at-
hafnamannsins.
rústir runólFs
n Á Bifröst eru menn ekkert alltof
kátir með það að í sandkorni var
því haldið fram að Ágúst Einars-
son, fyrrverandi rektor, hefði ekki
hagað rekstri skólans skynsam-
lega. Bent er á að Ágúst hafi tekið
við starfinu sem rektor árið 2007.
Þá hafi allt verið í kaldakoli eftir
stjórnartíð Runólfs Ágústsson-
ar. Ágúst hafi verið fenginn til að
hreinsa upp og það hafi tekist með
þeim ágætum að reksturinn sé í
jafnvægi í dag.
sandkorn
skáldið skrifar
tryggvagötu 11, 101 reykjavík
Útgáfufélag: Dv ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
framkvæmdaStjóri:
Bogi örn emilsson
ritStjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
reynir traustason, rt@dv.is
fréttaStjóri:
Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is
umSjón helgarblaðS:
Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is
Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
dv á netinu: Dv.IS
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: Árvakur.
Dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Sá glæpur er
þess eðlis að hann
verður einungis
afsakaður með
afsögn.“
KRiSTJÁn HREinSSOn
skáld skrifar