Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Blaðsíða 46
NAFN OG ALDUR? „Georg Helgi Seljan Jóhannsson,
31 árs.“
ATVINNA? „Fréttamaður og háseti í hjáverkum.“
HJÚSKAPARSTAÐA? „Trúlofaður henni Kötu hans
Bessa.“
FJÖLDI BARNA? „Eitt og bráðum tvö.“
HEFUR ÞÚ ÁTT GÆLUDÝR? „Já, hamstur sem ég van-
rækti og helmingshlut í eignarhaldsfélagi um kött
með bróður mínum, sem ég þoldi ekki. Þá á ég við
köttinn en ekki bróður minn. Hann er sómamaður.“
HVAÐA TÓNLEIKA FÓRST ÞÚ Á SÍÐAST? „Ég man það
ekki en upp í hugann kemur listrænn gjörningur Dj.
Júlís á Svækaranum á Reyðarfirði.“
HEFUR ÞÚ KOMIST Í KAST VIÐ LÖGIN? „Já og fengið
kast á lögin líka.“
HVER ER UPPÁHALDSFLÍKIN ÞÍN OG AF HVERJU?
„Ætli það sé ekki nýja úlpan mín. Fékk hana á fimm-
hundruð kall og er helsáttur við hana.“
HEFUR ÞÚ FARIÐ Í MEGRUN? „Ég hef tekið eftir því
að karlmenn svara þessari spurningu alltaf með
nei-i. Ég fæ að rjúfa þá hefð.“
HEFUR ÞÚ TEKIÐ ÞÁTT Í SKIPULÖGÐUM MÓTMÆL-
UM? „Já.“
TRÚIR ÞÚ Á FRAMHALDSLÍF? „Æi veistu, nei.“
HVAÐA LAG SKAMMAST ÞÚ ÞÍN MEST FYRIR AÐ
HAFA HALDIÐ UPP Á? „Þau eru fjölmörg. Þegar
Stebbi fór á sjóinn er eitt af þeim.“
HVAÐA LAG KVEIKIR Í ÞÉR? „Midnight rider með All-
man brothers band, Bulls on parade með Rage aga-
inst the machine og Hate it or love it með 50 Cent
eru lög sem fíra upp í mér.“
TIL HVERS HLAKKAR ÞÚ NÚNA? „Að takast á við
verkefnið; tveggja barna faðir. Því fylgir óttablandin
tilhlökkun.“
HVAÐA MYND GETUR ÞÚ HORFT Á AFTUR OG AFT-
UR? „Málverk Jakobs Bjarnars Grétarssonar, lifaði
sjómaðurinn. Örlí Jakob, frá 1977. Mynd sem ég get
endalaust horft á.“
AFREK VIKUNNAR? „Að átta mig á því að Erna
Ómarsdóttir dansari er ekki með Parkinsons. Sá
heimildarmynd um hana og fékk skyndilegan áhuga
á nútímadansi og kyngdi fordómum í leiðinni.“
HEFUR ÞÚ LÁTIÐ SPÁ FYRIR ÞÉR? „Já, meira að segja
á Jamaica.“
SPILAR ÞÚ Á HLJÓÐFÆRI? „Ég á einhverjar mis-
heppnaðar tilraunir neðarlega á afrekaskránni í
bassaleik. Svo var ég auðvitað gítarleikari í hljóm-
sveitinni Marblettum.“
VILTU AÐ ÍSLAND GANGI Í EVRÓPUSAMBANDIÐ? „Ég
er sammála þeim skilyrðum sem Sigmundur Davíð
gerði og snúast um það að Evrópusambandið gangi
í Ísland.“
HVAÐ ER MIKILVÆGAST Í LÍFINU? „Fjölskyldan.“
HVAÐA ÍSLENSKA RÁÐAMANN MUNDIR ÞÚ VILJA
HELLA FULLAN OG FARA Á TRÚNÓ MEÐ? „Einar Karl
Haraldsson, stundum uppnefndum Karl Rove. Mað-
urinn sem gerði Ólaf Ragnar að forseta.“
HVAÐA FRÆGA EINSTAKLING MYNDIR ÞÚ HELST
VILJA HITTA OG AF HVERJU? „Ég get nefnt fjölmarga
en efast satt best að segja um að þeir nenni að hitta
mig.“
HEFUR ÞÚ ORT LJÓÐ? „Já.“
NÝLEGT PRAKKARASTRIK? „Ég þyrfti að senda
inn uppsagnarbréf til að forðast brottrekstur ef ég
greindi frá því hér.“
HVAÐA FRÆGA EINSTAKLING LÍKIST ÞÚ MEST?
„Horst heitnum Tappert sem Íslendingar þekkja lík-
legast flestir sem bæverska bófagleypinn Derrick.“
ERTU MEÐ EINHVERJA LEYNDA HÆFILEIKA? „Það
held ég ekki.“
Á AÐ LEYFA ÖNNUR VÍMUEFNI EN ÁFENGI? „Það
bendir margt til að núverandi stefna sé hræsnisfull
og röng.“
HVER ER UPPÁHALDSSTAÐURINN ÞINN? „Geithúsar-
árgilið er fallegt og hefur sérstaka þýðingu í lífi okkar
hjónaleysanna.“
HVAÐ ER ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ GERIR ÁÐUR EN ÞÚ
FERÐ AÐ SOFA? „Segi góða nótt.“
HVER ER LEIÐ ÍSLANDS ÚTÚR KREPPUNNI? „Beygja
til vinstri við Vogaafleggjarann.“
Frétta- og sjómaðurinn Helgi Seljan er öllum kunnur fyrir
hárbeitt viðtöl sín í Kastljósinu. Helgi á að baki misheppnaðar
tilraunir í bassaleik og myndi helst vilja hitta þann mann sem
gerði Ólaf Ragnar að forseta.
ÞOLDI EKKI
KÖTTINN
46 HIN HLIÐIN 3. september 2010 FÖSTUDAGUR
TVÆR KONUR
2 JÁKVÆÐARNÝJUNGAR
Sykurveiðarinn Suco Bloc. 180 töflur.
Hentar öllum, stöðvar sykurinn
áður en hann verður að fitu.
STÖÐVIÐ SYKUR
OG KOLVETNI
NÝJUNG! BRENNIÐ FITU
30 Days
120 töflur ásamt
samnefndu
kremi vinnur á
appelsínuhúð.
30 Days (120 töflur)ásamt OxyTarm
(60 eða 150)töflur gegn kviðfitu
gefur 35% meiri virkni.
Valin
heils
uvara
ársin
s
2008
&
B e t r i a p ó t e k i n o g M a ð u r l i f a n d i w w w . s o l o g h e i l s a . i s
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
komdu í áskrift!
512 70 80
dv.is/askrift
frjálst, óháð dagblað