Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Síða 12
12 fréttir 3. september 2010 föstudagur Eftir að hafa orðið fyrir einelti í æsku og kynferðislegu ofbeldi á vinnustað fyrir fimm árum fékk Helga Björk Grétudóttir nóg. Hún ákvað að rísa upp og hefur síðustu ár helgað sig mótmælum í þágu öryrkja í landinu. Í mótmælum sínum reynir Helga Björk að beita frumlegum aðferðum við að vekja athygli á málstað sín- um, baráttunni gegn einelti og kyn- ferðislegu ofbeldi á vinnustað. Hún hefur til að mynda reist tjaldborg heimilanna, hengt mótmælaspjöld á þvottasnúrur við Alþingishúsið og sett þar niður kartöflur. Styðst við gjörninga „Í mótmælum verður maður að hafa húmor til að koma skilaboðunum áleiðis. Ég set aðallega upp gjörninga sem tjá hvað ég vil segja í hvert skipti,“ segir Helga Björk sem er óperusöngv- ari og tónlistarkennari að mennt. Ráðuneytin hafa verið helstu skot- mörk hennar undanfarin misseri. „Mér hefur ítrekað verið kastað út úr ráðuneytum. Í mótmælum mín- um nýti ég menntun mína sem óp- erusöngkona, þannig hef ég verið að kveða, lesa upphátt eða syngja úr lög- um og reglugerðum. Litla gula hæn- an er í miklu uppáhaldi hjá mér og úr henni les ég líka gjarnan í ráðuneyt- unum,“ segir Helga Björk. Riddaramennska Hún var þá að eigin sögn búin að standa í tæpar tvær mínútur fyr- ir utan Stjórnarráðshúsið þegar hún var handtekin fyrir skemmstu. „Ég verð að viðurkenna að mér brá. Þarna hafði ég staðið í rúma eina og hálfa mínútu og það á gangstéttinni. Lög- reglumenn komu þarna að mér, liðs- menn úr sérsveit sem sér um óeirð- ir. Mér fannst skrítið að standa þarna ein og fá á mig sérsveitina,“ segir Helga Björk. „Það átti greinilega að stoppa mig af. Það var þó ákveðin riddara- mennska að hjólið mitt var sett í skott- ið. Mér brá og fannst þetta með ólík- indum. Á sama tíma viljum við vera þekkt fyrir málfrelsi. Ég tel mig hafa átt fullan rétt á því að standa þarna.“ Hámark ekki lágmark Einelti og kynferðislegt áreiti eru ekki einu baráttumál Helgu Bjarkar heldur berst hún einnig gegn fátækt í land- inu. Hún telur stjórnvöld ekki standa vaktina. „Við getum hjálpað fólki miklu meira en við gerum. Félags- lega kerfið á að setja sér hámark en ekki lágmark eins og það gerir. Ég vil þessar hungurraðir á bak og burt sem við þurfum að horfa upp á. Sjálf hef ég þurft að leita í þær og sú reynsla er skammarleg og niðurlægjandi“, segir Helga Björk. „Við erum alltaf að setja saman einhverja rannsóknarhópa og skrifa skýrslur um fátækt. Af hverju hjálpum við þeim ekki þess í stað? Það er kerf- ið sem er krabbameinið, kerfið er fatl- að og þroskaheft. Það er vandamálið.“ Þaggað niður Helga Björk segist ekki vera í nokkr- um vafa um að félagslega kerfið á Íslandi sé í lamasessi. Eftir að mál hennar hafi verið þögguð niður hafi hún byrjað að berjast. „Kerfið gerði mig að öryrkja. Það er svo mikið skip- brot að rekast stöðugt á þessa veggi, það vísa allir málunum út og suð- ur. Mín mál voru bara þögguð niður. Mér finnst alveg skelfilegt að þurfa að berjast fyrir þessum málaflokki því það er svo alvarlegt þegar samstarfs- aðilar á vinnustað standa hjá og mál- in þögguð niður,“ segir Helga Björk. „Ég vil ekki að nokkur manneskja, nokkurn tíma framar, þurfi að standa í því sem ég hef þurft að upplifa. Það er draumur minn. Ég er nú í þessari baráttu og mun vera áfram í þess- ari baráttu. Ég er búin að helga mig þessu.“ Erum í hálfleik Helga Björk bendir á að árangur hafi náðst í baráttunni gegn einelti og kynferðislegu áreiti. Þá bendir hún á fyrirhugaðan borgarafund gegn fá- tækt sem haldinn verður í Ráðhús- inu næstkomandi miðvikudag. „Bar- áttan er virkilega búin að skila sér og ég myndi segja að við séum í hálf- leik núna. Vonandi fást núna árlega 9 milljónir í þennan málaflokk en búið er að helga einn dag á ári til að vekja athygli á kynferðislegu áreiti á vinnu- stað og á einelti,“ segir Helga Björk. „Það er hægt að fá ráðuneyti til að vinna saman og það er hægt að útrýma þessu. Þolendur hafa réttar- stöðu og þeir eiga ekki alltaf að þurfa að flýja vegna ótta við meðbræður sína. Ég þurfti sjálf að sigra minn ótta með því að standa svona upp og vera í stöðugum mótmælum.“ Gífurleg höfnun „Eftir að hafa lent í kynferðislegu áreiti á síðasta vinnustaðnum hugs- aði ég að nú yrði ég að rísa á fætur og berjast fyrir þessu málefni,“ bætir Helga Björk við. Til margra ára seg- ist hún einnig hafa verið lögð í einelti sem barn. „Það var náttúrulega aðallega út af rauða hárinu, þá var sjálfsagt að uppnefna og kasta sandi eða grjóti í mann. Eineltið brýtur svo niður sjálfs- ímyndina og höfnunin er svo mik- il. Lengi vel fannst mér ég ekki nógu góð og falleg manneskja, ég man eft- ir mér lítilli þar sem mig langaði ekki að vera til. Það var ekki fyrr en ég var orðin 42 ára sem ég fór í hörkuvinnu með sjálfa mig. Þá fór ég yfir alla mínu barnæsku og varð bara ríkari fyrir vik- ið þegar ég hafði tekið allt það góða með mér,“ segir Helga Björk. Fara að lögum Helga Björk segir réttarstöðu þolenda sterka og undrast hvers vegna ráðu- neyti fari ekki að lögum. Hún bendir á að stór hluti öryrkja hérlendis séu þolendur eineltis og kynferðislegs of- beldis. „Það er eitthvað sem má ekki tala um. Ég er sjálf þolandi kynferð- islegs ofbeldis á vinnustað, oftar en einu sinni, og ég tel að réttur minn sem þolanda sé alveg skýr. Engu að síður er slíkt þaggað niður. Ég er ein- faldlega að berjast fyrir aðra þolend- ur og þolendur framtíðarinnar,“ segir Helga Björk. „Eins og staðan er í dag eru þol- endur sendir út og suður, norður og niður. Stjórnsýslan eins og hún er uppbyggð brýtur fólk enn meira nið- ur. Ráðherrar fara með ábyrgð á ein- eltismálum. Kynferðislegt áreiti á vinnustað er einn þáttur eineltis. Ég vil einfaldlega að ráðuneytin fari eft- ir þeim lögum sem þeim er uppálagt“. Við fótskör almættis Helga Björk segir trú sína á almættið hafa hjálpað sér í áranna rás. Æðsti draumur hennar er að geta útrýmt einelti í samfélaginu. „Hægt og bít- andi tekst okkur það. Til þess þurfa ráðherrar fyrst og fremst að tryggja að undirstofnanir þeirra fari að lög- um. Í meirihluta tilvika, yfir sjö- tíu prósentum þeirra, eru gerend- ur í eineltismálum á vinnustöðum stjórnendur eða millistjórnendur,“ segir Helga Björk. „Ef við fullorðna fólkið getum ekki staðið okkur, hvernig í ósköpun- um eigum við að gera ráð fyrir því að börnin læri að haga sér vel? Mín fyr- irmynd er Jesús Kristur. Trúin hefur hjálpað mér í gegnum erfiðleikana. Við eigum öll pláss við fótskör al- mættisins og ég lít einfaldlega á mig sem verkamann í víngarði Guðs.“ Helga Björk Grétudóttir, mótmælandi og öryrki, var í síðasta mánuði handtekin fyrir friðsamleg mótmæli fyrir utan Stjórnarráðshúsið. Hún berst gegn einelti og kynferðislegu áreiti á vinnustöðum með því að kveða vísur, syngja lagatexta og lesa upphátt úr Litlu gulu hænunni í ráðuneytum. Hún segir kerfið hafa gert sig að öryrkja. KENNIR RÁÐAMÖNNUM LITLU GULU HÆNUNA tRauSti HaFStEinSSon blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Það átti greini-lega að stoppa mig af. Það var þó ákveðin riddara- mennska að hjólið mitt var sett í skottið. Hárið olli vanda HelgaBjörkvarðítrekaðfyrir stríðniáskólagöngusinniogsegistekkihafanáð aðgerauppæskusínafyrreneftirfertugt.mynd RóBERt REyniSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.