Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Síða 23
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég upplifi haust á Íslandi og það leggst vel í mig.“ BarBara Liepinska 22 ára Í starfsnámi „Bara ágætlega. Ég er að byrja aftur í skóla og er kominn með nemasamning.“ Frosti oLgeirsson 24 ára Þjónanemi „Ég kann vel við haustið. Það er líka ekkert mjög kalt núna og það er gott.“ MikaeL toMas Jerzak 21 árs Í atvinnuleit „nú er ég nýkomin frá Kýpur þar sem ég var í fimm vikur, svo mér finnst vera mjög kalt á Íslandi. Haustið verður kalt.“ eva viLheLMína Markúsdóttir 21 árs nemi Í Hr „Haustið leggst mjög vel í mig vegna þess að ég er að fara í fjögurra mánaða frí til suður-evrópu. Ég veit ekki hvernig það myndi leggjast í mig annars.“ sigurður sigurðsson 47 ára KviKmyndagerðarmaður Hvernig leggst Haustið í þig? huLda Þorsteinsdóttir varð norðurlandameistari í stangar- stökki 19 ára og yngri þegar hún stökk yfir 3,88 metra á akureyri um síðustu helgi. „Get farið hærra“ Á Íslandi hjálpast allir að. Þetta er líklega einn mesti kostur smáþjóðar í harðbýlu landi, og ein helsta ástæða þess að þjóðin nær oft- ast með undra- verðum hætti að koma sér aftur á lappirnar eftir eldgos, kreppur, farsóttir og aðrar hamfarir sem hún svo reglulega lend- ir í. Að hjálpa hver öðrum er einhver æskilegasti kostur sem hægt er að búa yfir. En eins og með flesta aðra kosti fylgja honum einnig skuggahliðar. Í kostulegu viðtali í Fréttablaðinu kennir Sigurður Einarsson fyrrver- andi Kaupþingsmaður meðal annars Landsbankanum og stjórnvöldum um Hrunið, en kannast ekki við að hafa átt þátt í því sjálfur. Hann end- ar svo með því að segjast ekki vilja munnhöggvast við þá sem vilja koma eigin ábyrgð yfir á aðra, og lýsir því stórmannlega yfir að sjálfur ætli hann ekki að fara þá leið. Það eru þó ekki kómískar þversagnir eins og þessar sem mestan áhuga vekja, heldur lýs- ing hans á viðskiptaháttum sínum. sagan af sigga bankastjóra Það var víst svo að einu sinni sem oftar var Siggi búinn að koma sér í vond mál með braski sínu. Hann ætl- aði sér að kaupa hollenskan banka, en komst síðan að því að hann átti ekki fyrir honum. Í útlöndum er al- mennt hafður sá siður að menn eiga að standa við gerða samninga, og leist Sigga því ekki á blikuna. Því gerði hann það sem Íslendingar gera oft- ast í slíkri stöðu, hann hringdi í vini sína, nánar tiltekið í fjármálaeftirlitið. Bað hann strákana þar um að redda sér með því að setja lög sem myndu banna kaupin á bankanum. Á Íslandi vill nefnilega svo heppilega til að bilið á milli ríkisstofnana og viðskiptalífs er nánast ekkert. Allir eiga jú að hjálpast að, og því þykir ekkert nema sjálfsagt að löggjafarvaldið hlaupi undir bagga þegar menn eru búnir að koma sér í óefni. Vissulega eru tengslin á milli efna- hagslífs og stjórnmála víða meiri en æskilegt þykir, en það er líklega bara á Íslandi sem þau eru svo beintengd að ef mönnum líst ekki á samninga sem þeir hafa gert geta þeir hringt í fjármálaeftirlit eða ráðherra og beð- ið þá um að breyta lögum til að losna undan þeim. Það er ekki að undra að Íslendingar þyki oft lítið trúverð- ugir í viðskiptum, því viðskiptaaðilar vita sjaldan hvaða reglur ríkisstjórnin kann að setja, jafnvel eftir að samn- ingar eru gerðir. Fjölskyldufyrirtækið ísland Í þessu tilfelli fékk Siggi þó ekki þá þjónustu sem hann átti von á og varð að finna aðrar leiðir út úr samningn- um. Það er því skiljanlegt að hann skuli hafa verið æfur út í stjórnsýsl- una. Er það ekki svona sem kaupin á eyrinni eru gerð? Það að hjálpa hver öðrum, sama hvað, er nefnilega ekki dyggð ef hjálpin gengur á svig við lög, reglur og heilbrigða skynsemi. Í slík- um tilfellum reynist besti vinurinn sá sem bendir á að aðrar og betri leiðir verði að fara. Sumir segja jafnvel að það hafi gerst að íslenskir auðmenn hafi orð- ið sér úti um miklar eignir með því að fá sendiherrabréf til að komast inn í lönd sem bannað var að flytja fjármagn til. Það þarf jú ekki nema eitt símtal, og Íslendingar eru lagn- ir við að fara á svig við lög í nafni kunningsskapar. Þegar allt kemur til alls er Ísland fjölskyldufyrirtæki með full diplómataréttindi. Sem slíkt getur það verið stórhættulegt umheiminum. Við getum ekki skilið við Sigga bankastjóra án þess að benda á það, svona til gamans, að hann ber ábyrgð á einu af fimm mestu gjaldþrotum sögunnar. Er þá ekki tekið tillit til höfðatölu. Ef við gerðum það, eins og landans er siður, verður met hans lík- lega aldrei toppað. Kannski hefði ein- hver vinur hans átt að segja honum að stoppa fyrr? Er rétt að hjálpast alltaf að? myndin hver er konan? „Hulda Þorsteinsdóttir.“ hver eru áhugamál þín? „Ég spila á píanó og hef gert það í fjögur ár.“ hvar ólstu upp? „Í reykjavík.“ hvað æfirðu oft í viku? „Ég æfi sex sinnum í viku með Ír.“ hver er lykillinn að svona árangri? „Æfa mjög mikið og helst meira en aðrir.“ hvað færðu þér í morgunmat? „Það er misjafnt, oftast Cherrios með rúsínum.“ Áttu þér fyrirmynd í stangarstökk- inu? „Ég myndi segja að Þórey edda elísdóttir og vala flosadóttir séu mínar fyrirmyndir. Ég var í fimleikum en byrjaði að æfa þegar Þórey edda var upp á sitt besta.“ hvað ertu búin að æfa stangarstökk lengi? „eiginlega síðan ég var 14 ára. en ég meiddist reyndar þegar ég var 16 ára og var meidd í næstum tvö ár.“ vissirðu að þú gætir unnið mótið? „já, ég var með besta árangurinn skráð- an en ég sá reyndar að önnur stelpa var með betri árangur en ég í sumar. Þannig að ég vissi að þetta yrði jafnt.“ hvað hefurðu stokkið hátt? „Ég á best 3,95 en ég er viss um að ég get farið hærra. á akureyri voru aðstæðurnar svolítið erfiðar enda var bara um fimm stiga hiti úti.“ hvað er næst á dagskrá hjá þér? „nú er pása í nokkrar vikur eftir æfingarnar í sumar. svo byrja ég fljótlega að æfa aftur og tek svona uppbyggingartímabil fyrir næsta sumar. Þá er evrópumeistaramót undir 23 ára. Ég er búin að ná lágmarkinu fyrir það.“ hvert stefnirðu? „Það væri draumurinn að komast á ólympíuleika.“ maður dagsins dómstóll götunnar kjallari FÖSTUDAGUR 3. september 2010 umræða 23 valur Gunnarsson rithöfundur skrifar Á Íslandi vill nefnilega svo heppilega til að bilið á milli ríkisstofnana og viðskiptalífs er nánast ekkert. sögufrægt seglskip sedov heitir rússneska skipið sem liggur nú við bryggju í reykjavíkurhöfn. Í áttatíu ár var skipið það stærsta sinnar tegundar í heiminum en í dag er eitt stærra skip til. ungir sjóliðar eru á skipinu sem tilheyrir tækniháskólanum í murmansk. skipið er opið almenningi um helgina, frá klukkan 9 til 18 á föstudag og laugardag. Mynd róBert reynisson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.