Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Síða 26
Sýning níu ungra Í Gerðarsafni verður
á laugardaginn opnuð „9“, samsýning ungra myndlist-
armanna. Þar sýna þau Berglind Jóna Hlynsdóttir, Bjarki
Bragason, Etienne de France, Gunndís Ýr Finnbogadóttir,
Helga Björg Gylfadóttir, Logi Bjarnason, Páll Haukur
Björnsson, Steinunn Gunnlaugsdóttir og Styrmir Guð-
mundsson sýna. Sýningarstjóri er Birta Guðjónsdóttir. Á
opnun sýningarinnar fara fram nokkrir gjörningar en meiri
upplýsingar má finna á gerdarsafn.is.
SöngvaSkáldin Uni og Jón Tryggvi
fara nú í september af stað með hausttónleikaröð
að Merkigili á Eyrarbakka. Fyrstu tónleikarnir í haust
verða haldnir sunnudagskvöldið 5. september kl. 20.
Fram koma ásamt Una og Jóni Tryggva: Svavar Knútur,
Myrra Rós og Jona Byron, sem er ástralskt söngvaskáld sem
heillaði landann nú seinustu helgi á Melodica Acoustic-hátíð-
inni.
Listmunauppboð í Gallerí Fold:
Muggur boðinn upp
Glæsilegt og stórt listmunaupp-
boð verður haldið í Gallerí Fold við
Rauðarárstíg næstkomandi mánu-
dag og þriðjudag, 6. og 7. septemb-
er. Uppboðið mun hefjast klukkan
18.00 báða dagana en þar verða
boðin upp tæplega hundrað verk
hvorn dag. Þar verða boðin upp
verk af ýmsum toga, bæði nýleg og
svo ýmislegt eftir gömlu meistar-
ana.
Þarna verða boðin upp fimm
verk eftir Mugg og tvær kola-
teikningar eftir Alfreð Flóka. Mjög
sjaldgæft er að verk eftir þessa
tvo listamenn komi í sölu og má
því fastlega búast við harðri bar-
áttu safnara um þessi verk. Einn-
ig verður boðið upp á listaverk
eftir fransk-rússneska listamann-
inn Marc Chagall og tvö verk eftir
spænska listamanninn Salvador
Dalí.
Þá verða einnig boðin upp
verk eftir Jón Stefánsson, Þorvald
Skúlason, Jón Engilberts, Jóhann-
es S. Kjarval, Ásgrím Jónsson auk
verka eftir núlifandi listamenn á
borð við Kristján Davíðsson, Hú-
bert Nóa, Tryggva Ólafsson, Braga
Ásgeirsson og Hafstein Austmann.
Öll verkin verða til sýnis í Gall-
erí Fold við Rauðarárstíg frá föstu-
degi til mánudags. Einnig er hægt
að skoða verkin og senda inn for-
boð á vef gallerísins, myndlist.is.
Einnig er hægt að skoða verkin á
þriðjudag sem boðin verða upp þá
um kvöldið.
26 fókus 3. september 2010 föstudagur
gaMan á lauga-
veginuM
Laugardaginn 4. september verður
mikið um að vera í bókabúð Máls og
menningar á Laugaveginum. Gerður
Kristný les úr tveimur barnabókum
og Patrick Hassel-Zein kynnir rúss-
neskt hekl. Gerður mun lesa upp úr
bókum sínum Garðurinn, sem er
draugasaga fyrir börn og unglinga,
og Prinsessan á Bessastöðum, bráð-
fjörugri barnasögu sem segir frá æsi-
legum atburðum sem eiga sér stað á
fálkaorðuafhendingu forsetans. Fyr-
ir Garðinn hlaut Gerður barna- og
unglingabókaverðlaun Vestnorræna
ráðsins skömmu fyrir helgi.
Opið hjá Sinfó
Sinfóníuhljómsveit Íslands býður
fólki í opið hús í Háskólabíói á
laugardaginn. Miðasalan verður
opin, lifandi tónlist, nýbakað-
ar kleinur og heitt á könnunni.
Klukkan 14.15 mun Víkingur
Heiðar leika með Sinfóníunni í
stóra salnum en á meðan verður
tónlistarsmiðja barnanna í hlið-
arsal þar sem börnin skapa tón-
verk í sameiningu undir leiðsögn
tónlistarkennara. Klukkan 15.15
verður Tobbi túba í stóra salnum
þar sem sígilda ævintýrið um
hann verður leikið. Trúðurinn
Barbara er sögumaður. Á sama
tíma munu Víkingur Heiðar og
Árni Heimir Ingólfsson, tónlistar-
stjóri SÍ spjalla um lífið og listina
í anddyrinu.
Tónleikar í
STrandarkirkju
Sunnudaginn 5. september næst-
komandi munu þær Björg Þórhalls-
dóttir sópransöngkona og Elísabet
Waage hörpuleikari halda tónleika
í Strandarkirkju í Selvogi. Í þessari
sögufrægu áheitakirkju munu þær
flytja nokkrar þekktar söngperlur,
íslensk þjóðlög og bænir. Þetta er
í þriðja sinn sem Björg og Elísabet
koma fram í Strandarkirkju sem
margir bera sterkar taugar til og þyk-
ir búa yfir miklum töfrakrafti. Á und-
an tónleikunum er uppskerumessa
og hefst kl. 14.30. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 15 og aðgangur er ókeypis á
meðan húsrúm leyfir. Kirkjugestir
geta fengið sér hressingu að tónleik-
um loknum að T-Bæ í Selvogi.
Flottur Þetta málverk er
eftir Mugg.
Fólk heillar meira en byggingar
„Ég byrjaði að taka ljósmyndir eftir
að ég átti stelpuna mína. Mig lang-
aði ekki að eiga bara stúdíómyndir
af henni ofan í bala með englavængi,
mér finnst það svo hallærislegt“, seg-
ir María Rúnarsdóttir, ljósmyndari,
og hlær. „Ég suðaði því í mömmu
og pabba að gefa mér góða mynda-
vél svo ég gæti tekið fallegar myndir
af henni, bæði til að setja á Barna-
land og fyrir hana sjálfa til að eiga
þegar hún verður eldri. Ég hékk síð-
an á netinu með barnið á brjósti og
kenndi sjálfri mér ljósmyndun. Upp
frá því fékk ég þetta á heilann og hef
ekki hætt að taka myndir síðan.“
Byrjaði á Flickr
María notaði síður eins og Flickr.com
til að sýna og geyma myndirnar sín-
ar og fylgjast með öðrum ljósmynd-
urum. Þar fékk hún mjög jákvæð við-
brögð og fór fólk úti um heim allan að
hrósa henni fyrir myndirnar. „Að fá
svona jákvæð viðbrögð frá fólki sem
maður þekkir ekki neitt gefur manni
ótrúlegan kraft og ég fór sífellt að
reyna að bæta mig. Ég fór að setja inn
fleiri myndir og það fór að verða hálf-
gerð fíkn. Í dag er ég með yfir 4.000
myndir á Flickr og set yfirleitt inn nýj-
ar myndir í hverri viku. Í þessu sam-
félagi ljósmyndara fer maður að fylgj-
ast með fólki sem nær að heilla mann
með myndunum sínum og það er
oft sama fólkið sem fylgist með mér
og kommentar á myndirnar mín-
ar. Manni fer síðan að finnast eins
og maður þekki sumt af þessu fólki í
gegnum komment og ljósmyndirnar
þeirra. Það kom sænsk stelpa hingað
í fyrrasumar og þar sem við höfðum
verið að fylgjast hvor með annarri á
Flickr í yfir fjögur ár ákváðum við að
hittast í kaffi sem var mjög skemmti-
legt.“
Skemmtilegast að taka myndir
af fólki
María segist fá mikla ánægju út úr því
að taka myndir. „Ég er miklu hrifn-
ari af því að taka myndir af fólki en
María Guðrún Rúnarsdóttir lærði grafíska hönnun í Listaháskóla
Íslands og útskrifaðist síðasta vor. Í dag starfar hún þó sem ljósmynd-
ari. Hún segist alltaf hafa haft áhuga á ljósmyndun en það var ekki
fyrr en að hún eignaðist dóttur sem áhuginn varð að ástríðu.
Elskar að taka myndir María
Rún byrjaði sem áhugaljósmyndari
en starfar við það í dag.
Mynd SiGtRyGGuR ARi JóhAnnSSon