Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Qupperneq 33
föstudagur 3. september 2010 viðtal 33 Morðhótanir á símsvaranum Símsvarinn var líka alltaf fullur af óhugnanlegum skilaboðum. Þar fékk fólk útrás fyrir ljótan munn- söfnuð þótt fæstir treystu sér til að koma fram und- ir nafni. Sumir skildu jafnvel eftir hótanir, morð- hótanir sem og annað, eins og nafnlausa konan sem sagði: „Ég vona að þú drepist, hóran þín, og ég vona að þú fáir graftarkýli á tussuna.“ Alfreð stóð ekki á sama. „Þetta var mjög óhugnanleg lífs- reynsla. Skilaboðin voru oft mjög svakaleg.“ Þetta mun seint líða stelpunum úr minni. „Ég man vel eftir því að ég gat aldrei náð í mömmu í síma,“ segir Elísabet, „því síminn hringdi stöðugt allan daginn alla daga. Síminn byrjaði að hringja klukkan hálf átta á morgnana og hann hringdi til klukkan hálf tólf á kvöldin. Símsvarinn var líka alltaf fullur af skilaboðum. Ég hlustaði stundum á þessi skilaboð og sum þeirra voru óhugnanleg. Auðvitað vissum við ekki hver las þessi skilaboð inn á símsvarann og við vissum þaðan af síður til hvers hann væri vís í raun og veru. Við vissum ekk- ert hverju við áttum von á eða hvað tæki við næst.“ Sólveig segir að mamma hennar hafi oftast reynt að hlusta á skilaboðin þegar hún var ekki heima. „Það kom samt fyrir að ég heyrði þetta. Það var auðvitað mikið sjokk að heyra svona hluti um mömmu sína. En fyrir mér er hún alltaf uppi á sín- um stalli.“ Sat undir ýmsu í skólanum Sigrún Pálína og Alfreð eiginmaður hennar reyndu að hlífa börnunum og lifa eins eðlilegu lífi og þau gátu. „Ég man eftir hræðslu og óöryggi. Ég fann og vissi að eitthvað væri að. Ég held samt að af því að mamma er eins og hún er þá hafi ég gert mér minni grein fyrir því en ella. Stundum fékk ég að fara með henni þegar hún var að fara í viðtöl og fylgjast með því þegar það var verið að farða hana og stílisera. Það fannst mér mjög gaman,“ segir Sólveig. „Ég var þá og er enn mjög stolt af því að eiga svona sterka mömmu.“ Sólveig sinnti skólanum og þar vissi enginn hver hún var. „Ég reyndi að einbeita mér að skól- anum. Enginn vissi hverra manna ég var nema skólastjórinn, kennarinn minn og besta vinkona mín. Gagnvart öðrum hélt ég því leyndu. Ég var með frænda Ólafs í bekk og þurfti að hlusta á ansi margt sem hann fékk greinilega að heyra heima hjá sér um mömmu mína. Hann kallaði mömmu hóru, eiturlyfjaneytanda og þess háttar. Ég hlust- aði á hann án þess að segja hver ég væri en ég var rosalega reið. Ég skildi ekki af hverju þau trúðu ekki mömmu. Ég man að einu sinni var ég svo reið að ég var með hnefann krepptan undir borði. Vinkona mín sá svipinn á mér og leiddi mig út úr stofunni. Mér fannst hann svo vitlaus, hann vissi ekki hvað hann var að segja. En hann sagði bara það sem hann trúði að væri rétt, þetta hafði hann frá sínum foreldrum.“ Afleysingakennara verður á Einu sinni kom afleysingakennari í bekkinn og fór að ræða biskupsmálið. „Það var mjög óviðeigandi. Við vorum ellefu, tólf ára börn og áttum að taka afstöðu, með eða á móti. Svo lét hann í það skína að hann tryði mömmu nú ekki alveg. Eftir tímann strunsaði ég heim og ætlaði aldrei aftur í skólann. Þau vissu ekki hvað þau væru að segja. Þetta end- aði með því að mamma hringdi í skólastjórann sem bauð mér á sinn fund. Ég mætti þangað og þar sat afleysingakennarinn með tárin í augunum og grátbað mig um að fyrirgefa sér. Mér létti við það og hélt áfram í skólanum, en auðvitað var þetta mjög óviðeigandi.“ Sólveig heyrði þetta í skólanum og það sama heyrði Elísabet úti í bæ. „Ég man eftir því að ég sat í strætó og heyrði fólk tala um biskupsmálið. Þá var talað um að mamma og Stefanía væru eiturlyfja- neytendur, hórur og annað því um líkt. Ég var orðin svo hvekkt þegar ég hlustaði á þetta að ég gat ekki svarað fyrir þær. Ég var búin að upplifa svo mikla ógn.“ Versti dagur lífsins Það var sama hvar Sigrún Pálína var eða með hverj- um, alls staðar var horft á hana eins og furðuveru. Það er eitt af því sem situr enn í dætrum hennar. Eins og Sólveig segir: „Það situr enn í mér hvern- ig var horft á mömmu. Ef við fórum út í búð glápti fólk. Ég vissi aldrei hvort þetta fólk trúði henni eða ekki.“ Elísabet tekur undir þetta og lýsir skelfingunni sem hún upplifði á þjóðhátíðardag Íslendinga árið 1996. „Ég mun aldrei gleyma því þegar ég gekk um bæinn með mömmu á 17. júní. Þá leiddumst við arm í arm og það störðu allir á hana. Þetta var hryllilega óþægilegt. Mér leið eins og fólk væri allt- af við það að fara að ráðast á hana. Ég vissi aldrei af hverju fólk starði á hana. Var það að ógna okkur? Var það forvitið? Mér leið mjög illa. Þetta var einn versti dagur lífs míns. Mamma lenti líka í því að fólk veittist að henni og kallaði hana hóru. Ég var alltaf hrædd af því að ég vissi aldrei hvað gerðist næst.“ Fólk sveifst einskis Allt þetta mál gerði Elísabetu óörugga. „Mér leið ekki vel. Ég var alltaf í vörn, jafnvel þegar ég var ekki í þeim aðstæðum að fólk væri að ráðast á okk- ur. Mér fannst þetta bara alveg rosalega óþægilegt. Ég vissi aldrei hverjir studdu okkur og hverjir ekki. Ég varð svo óörugg að ég forðaðist að ræða þetta mál við fólk og ég óttaðist það jafnvel að fólk væri að reyna að kynnast mér í því skyni að fá upplýsing- ar um mömmu sem hægt væri að nota gegn henni. Því við sáum það að aðferðirnar sem voru notað- ar gegn mömmu voru svívirðilegar. Fólk sveifst einskis. Sú tilfinning er enn í mér í dag. Til dæm- is þegar fólk óskar eftir því að verða vinir mínir á Facebook. Ég hef alltaf varann á, sérstaklega eftir að málið kom upp aftur, því ég veit ekki hverjum ég get treyst og hver styður okkur. Þetta mál varð líka til þess að ég missti nokkra vini mína.“ Óttaðist að mamma færi í fangelsi Álagið á fjölskyldunni var mikið og þær systur reiddust þeim sem ekki vildu trúa. „Ég var reið yfir því að fólk tryði ekki mömmu. Ég skildi ekki hvern- ig það væri hægt að afneita sannleikanum,“ segir Sólveig. „En þetta hafði þau áhrif að ég varð mjög upptekin af mömmu. Ég hafði mikla þörf fyrir hana og var alltaf að knúsa hana og kyssa. Það var bæði út af óörygginu í mér og líka af því að ég fann að henni leið illa. Við erum ekki þannig fjölskylda að við getum farið í gegnum svona mál án tilfinninga, þannig að við höfum grátið saman.“ Óttinn var aldrei meiri en þegar Sólveig heyrði að Ólafur hefði kært mömmu hennar. „Ég var mjög hrædd um að hún yrði einn daginn tekin og sett í fangelsi.“ Svipurinn á Karli Alfreð stóð þétt við bak konu sinnar og leiddi hana í gegnum hvert skref í þessu máli, lítil sem stór. Hann var til dæmis með henni á fundinum í Hall- grímskirkju sem Sigrún Pálína hefur sagt frá í fjöl- miðlum. „Pála rakti málið fyrir Karli og Hjálmari sem sátu þarna alveg steinrunnir. Ég gleymi aldrei vorum flæmd burt frá Íslandi Ég brotnaði niður og grét því hann sinnti mér ekki, virti mig ekki viðlits og eftir smá tíma sneri hann sér við og hélt áfram að vinna í tölvunni. Ég missti trúna á þjóðinni. framhald á næstu síðu FÓrnuðu öllu Fjölskyldan missti allt vegna biskupsmálsins, vini, vinnu og tengslin við þá fjölskyldumeð- limi sem urðu eftir á Íslandi. Mynd AnnA MArín SchrAM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.