Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Side 34
svipnum á Karli, hann er alltaf eins. Maður veit aldrei hvar maður hefur hann. Svo spunnust upp umræður þar sem ákveðið var að þeir myndu ræða við Ólaf og reyna að koma á sáttum. Ólaf- ur neitaði svo öllu, sagði þetta gróusögur og lygar. Þá stungu þeir upp á að skrifa sáttabréf. Við lögð- umst öll yfir þetta bréf og gerðum mörg uppköst áður en við komumst niður á texta sem við gát- um öll fallist á. Karl fór að prenta textann en þeg- ar hann kom aftur vantaði eina setningu, þar sem sagði að við drægjum ekki sannleikann til baka. Pála tók eftir því og sagði að hún gæti aldrei skrif- að undir þetta.“ „Hann er að ljúga“ „Ég veit ekki hvað hann hefur haldið. Að hún myndi skrifa undir þetta ólesið eða að honum tækist að fá hana til að skrifa undir þetta án þess að hún tæki eftir því að það vantaði þessa setn- ingu. Við vorum náttúrulega úrvinda af þreytu eftir þessa helgi. Við stóðum upp og Hjálmar spurði þá hvort hún gæti ekki dregið málið til baka barnanna vegna. Hún neitaði því. Þá sagði Karl þessa setningu sem hefur aldrei liðið mér úr minni: „Getur þú ekki hætt móður þinnar vegna því hún er svo sjúk?“ Ég hef aldrei áttað mig á því hvað var í gangi þarna. Karl þekkti ekki Pálu eða hennar fjölskyldu. Hvernig vissi hann að móð- ir Pálu var sjúk? Var Ólafur búinn að segja hon- um það eða hafði hann verið að grennslast fyrir um fjölskylduna? Eins er það mjög eftirminnilegt að um leið og Pála neitaði að skrifa undir bréf- ið hrifsaði hann það til sín og stakk því í vasann. Það var greinilegt að hann hafði ekki góða sam- visku. Þegar hann kom svo fram í Kastljósinu um daginn og sagði að þetta hefði aldrei gerst hlýtur hann að hafa verið búinn að gleyma því að Pála var ekki ein á þessum fundi. Ég var þarna líka og ég varð vitni að þessu öllu saman. Í raun er það hann sem er að ljúga og fara með rangt mál. Ég held að hann ætti aðeins að líta í eigin barm.“ Ólafur sneri Vigfúsi Hann minnist þess einnig hvernig Vigfús Þór og Pálmi brugðust þeim hjónum. Vigfús Þór þekkti hann fyrir í gegnum kirkjustarfið. „Vigfús Þór kom á sáttafundi við Ólaf og það var ótrúlegt að upp- lifa það hvernig Ólafur gat notað hann sem skí- tuga gólftusku á blautu gólfi til að þurrka upp eftir sig skítinn. Mér fannst líka ótrúlegt að sjá að þessi maður sem sagðist trúa okkur væri einn af burð- armönnum kistunnar þegar Ólafur var borinn til grafar. Mér finnst það líka ótrúlegt að Karl geti sagt að hann trúi okkur þegar hann hélt mikla lof- ræðu um Ólaf þegar hann varð sjötugur. Ég skil ekki samhengið þar á milli og ég skil ekki hvernig hægt er að vera svona falskur. Hvað þá þegar þú ert prestur og jafnvel biskup.“ Stuðningsbréf barnanna Sigrún Pálína spurði börnin reglulega hvort þau vildu að hún drægi sig í hlé. Sóley var yngst en hún stóð þétt við bak móður sinnar líkt og þau sem eldri voru. „Við ræddum þetta á hverjum einasta degi og hún spurði mig oft á dag hvort ég vildi að hún bakkaði út úr þessu. Ég vildi það alls ekki. Einu sinni var ég búin að fá nóg af þess- ari spurningu þannig að ég fór upp í tölvuna og skrifaði mömmu bréf sem ég lét svo í póstkass- ann: „Kæra Sigrún Pálína. Haltu áfram að segja sannleikann því ef þú hættir því núna heldur fólk að þú sért ekki að segja satt. Leyndur aðdáandi.“ Undir þetta skrifaði ég svo S_!?_?! H!?_? Hún fatt- aði auðvitað að bréfið kom frá mér þó að ég væri að reyna að vera voða fullorðins. Ég hugsaði bara með mér að ef hún myndi hætta núna færi fólk að efast um hana.“ Eftir fundinn í Hallgrímskirkju þar sem Hjálm- ar spurði Sigrúnu Pálínu hvort hún gæti ekki hætt barnanna sinna vegna skrifaði Elísabet lesenda- bréf í DV fyrir hönd þeirra systkina. „Ég man að þegar ég hringdi á DV talaði ég við blaðamann sem var á heimleið en hann bauðst til að bíða eft- ir mér og koma þessu inn. Ég hringdi líka á Morg- unblaðið en ég fékk ekki sömu viðbrögð þar. Þá höfðu Karl og Hjálmar reynt að tala mömmu ofan af því að halda áfram með málið og nota okkur börnin gegn henni. Ég vildi koma því skýrt til skila að við börnin stóðum 100% við bakið á henni. Ég fékk því leyfi hjá yngri systkinum mínum og birti þetta bréf. Mamma vissi ekkert af því. Dag- inn eftir fór ég svo með blaðið til hennar og var hjá henni á meðan hún fletti í gegnum það og las helstu fréttir. Síðan sá ég hvernig hún brast í grát af gleði og þakklæti þegar hún sá þetta.“ Skráð sem flóttamaður Alfreð segir að viðbrögð fólks hafi komið honum mjög á óvart. „Ég var mjög hissa á því hvernig Ís- lendingar gátu hagað sér og hvað fólk gat látið út úr sér. Persónulega varð ég mjög reiður út í þjóð- ina. Ég hafði lítinn áhuga á að búa í spilltu sam- félagi þar sem fólk var svo fljótt að dæma aðra. Við tókum þá ákvörðun að flytja út en það var líka mjög erfitt. Í dag hef ég fyrirgefið íslensku þjóð- inni. Hún hreifst með einum manni í smátíma. En það eru ákveðnir aðilar sem eiga þessa sök. Og ég skal viðurkenna það að það eru nokkrir menn innan kirkjunnar sem mér reynist erfitt að fyrir- gefa og ég veit ekki hvort ég geti það nokkurn tím- ann. Ég er reiður, sár og leiður yfir þessu.“ Reiðin beinist fyrst og fremst að kirkjunnar mönnum. „Í raun saka ég engan nema þá um það sem ég hef misst. Ég missti vinnuna, ég missti vini mína en það versta er að ég missti fjórtán ár úr lífi barna minna. Ég á tvö uppkomin börn á Íslandi og tvö barnabörn sem varla þekkja mig. Þar á ég líka aldraða móður sem á engan að nema mig. Ég er hennar einkasonur. Ég hef fórnað mjög miklu. Mun meiru en ég hefði viljað gera. Það væri kannski hægt að segja að ég hafi valið það sjálfur að fara en ég hafði ekki val um annað. Við vorum flæmd burt frá Íslandi. Það var ekki búandi fyrir þessa fjölskyldu á Íslandi. Þegar Pála fór að tala við ráðgjafa sinn hér í Danmörku, upp á að láta skrá sig inn í landið, fá vinnu og þess háttar, sagði hún sína sögu. Þá var henni tjáð að hún væri fyrsti Íslendingurinn sem væri skráður sem flóttamað- ur í Danmörku.“ Kvíðaköst í Danmörku Stelpurnar segja líka að þetta hafi fyrst orðið erf- itt þegar þær komu til Danmerkur. Þá fengu þær raunveruleikasjokk og mamma þeirra fór að þjást af kvíða. Elísabet segir frá því: „Þegar við vorum komin út, búin að fá gámana og vorum allt í einu bara flutt til Danmerkur, fór mamma að fá kvíða- köst. Þá varð þetta svo raunverulegt. Í raun varð þetta fyrst erfitt þá.“ Sólveig reyndi eftir bestu getu að vernda móð- ur sína og passa upp á að henni liði aldrei illa. „Mamma var svo rosalega veik af kvíða. Það var mjög skrýtið að sjá mömmu svona veika. Ég flýtti mér heim úr skólanum til að passa upp á hana. Ég vildi ekki að henni liði illa, ég var alltaf að reyna að passa hana. Þetta var svo mikil breyting á hennar lífi. Á Íslandi átti hún tonn af vinum og það var alltaf einhver í kaffi. Persónuleiki henn- ar breyttist eftir þetta mál og það tók hana tíma að finna hann aftur. Það að við þurftum að flytja úr landi var það versta við þetta mál. Alli missti vinnuna út af þessu, viðskiptavinir hans hættu að versla við hann og hann fékk vinnu hjá Georg Jensen. Ég hélt fyrst að við værum að flytja vegna þess. Ég vissi ekki að við værum að flýja land.“ Sólveig breyttist mikið á þessu tímabili. „Heima á Íslandi var ég sjálfstætt og venjulegt barn. En eftir að við fluttum út gerði ég allt til þess að falla inn í hópinn. Ég fór í slæman félagsskap og byrjaði að reykja vegna hópþrýstings. Það endaði með því að mamma færði mig yfir í annan skóla og þá fyrst fór ég að blómstra aftur. Það tók mig nokkur ár að laga mig að aðstæðum og fara að líta á Danmörku sem mitt heimili.“ Vildi vernda mömmu Eftir allt sem á undan var gengið fékk Elísabet líka rosalega mikla verndar- og ábyrgðartilfinningu gagnvart mömmu sinni. „Það átti enginn að fá að segja neitt ljótt um hana eða gera henni nokkuð slæmt. Mér fannst eins og ég þyrfti að passa upp á hana og taka ábyrgð á henni, en sem betur fer uppgötvaði ég það fyrir mörgum árum að það getur enginn gert henni neitt. Hún er svo sterk- ur og heilsteyptur einstaklingur að hún sér um sig sjálf, sama hvað á dynur.“ Í fyrstu varð hún eftir á Íslandi en kom út í heimsókn í nóvember. Hún ætlaði sér að vera í þrjár vikur en fór ekki aftur til Íslands fyrr en þremur mánuðum seinna og þá til að sækja dót- ið sitt. „Málið var að mestu dottið niður á þeim tíma en sársaukinn sat enn í mér. Þannig að ég flutti út með tveggja og hálfs árs gamalt barn. Um leið var ég að skilja það frá föður sínum. Það var sárt fyrir alla aðila. Það var mitt val að fara út en samt ekki, ég hafði raunverulega ekki val því mér leið alls ekki vel heima á Íslandi. Ég var líka mjög náin mömmu og saknaði hennar mikið. Þannig að ég upplifði aldrei neina gleði í kringum það að flytja til útlanda. Og núna á ég barn með dönsk- um manni þannig að ef fjölskylda mín flytur aftur heim verð ég ein eftir hér í Danmörku.“ Missti trúna á þjóðinni Sólveig sér það samt ekki fyrir sér að hún sé á heimleið þó margt hafi breyst. „Ég missti trúna á þjóðinni. Mér fannst Íslendingar hálfgerðir aum- ingjar að vilja ekki trúa þessu og sjá sannleik- ann. Ég varð fyrir svo miklum vonbrigðum. En það hefur breyst. Ég er mjög fegin að fólk hafi séð ljósið, sannleikann. Hver biskupinn var og hver hann er núna. Mér létti rosalega við það. Ómeð- vitað hefur þetta legið þungt á mér. Á síðustu vik- um gerðist margt, en það er alls ekki nóg. Það er spurning hvenær eitthvað verður nóg. Hvenær verður búið að sætta þennan sársauka. Karl situr enn í sínu embætti. Ég get ekki séð að honum sé stætt að vera þar. Hann hefur ekki gert sína skyldu sem biskup að mínu mati.“ Stolt af mömmu Hún segir frá því þegar hún horfði á Karl í Kast- ljósinu um daginn. „Ég fékk aftur þessar gömlu tilfinningar þegar ég var smeyk á kvöldin. Þetta fór allt að koma til baka. Í dag hef ég góðar og sterkar tilfinningar en allt í einu fann ég aftur fyrir óörygginu. En þegar málið var tekið upp aftur í fyrra fannst mér það æðislegt. Eftir fundinn með kirkjuráði öðlaðist ég von til þess að málinu myndi senn ljúka. Svo þegar fjölmiðlaumfjöllun- in fór að róast varð ég hálfspæld. Ég vildi binda enda á þetta mál. Þannig að mér finnst það sem er að gerast núna hálfspennandi.“ Elísabet sat þennan fund með kirkjuráði líka. „Ég var ótrúlega stolt af mömmu sem fékk að segja allt sem hún þurfti að segja. þegar við geng- um út af fundinum knúsuðu þau okkur öll og þökkuðu okkur fyrir. Svo búmm, kom þetta aftur. Um daginn las ég grein þar sem ein konan sem sat þennan fund var að tala um að oft mætti satt kyrrt liggja. Svo gat Karl ekki sagt að hann tryði okkur. Mér fannst skrýtið að upplifa þessa hlýju en sjá svo allt fara aftur í flækju.“ Reiði er tilfinning sem hefur fylgt Elísabetu. „Það lýsir því kannski best að þegar Sigríður Guð- marsdóttir stóð fyrst presta upp og bað um breyt- ingar og fleiri fylgdu í kjölfarið var ég þakklát en ég var líka reið. Innra með mér ómaði spurning- in: Hvar voruð þið árið 1996 þegar við þurftum á ykkur að halda?“ Kraftaverk Fyrstu fréttir af biskupsmálinu í sumar ollu til- finningaflæði hjá Elísabetu. „Þegar málið kom upp aftur upplifði ég það að nú væri enn ein til- gangslaus baráttan hafin. Þessi barátta hefur nefnilega virst tilgangslaus hingað til. Ég fylltist öll af kvíða þegar fyrsta fréttin birtist. Ég hélt að nú ætti bara enn einu sinni að fara að munnhöggv- ast í fjölmiðlum. Ég varð óróleg án þess að átta mig strax á því af hverju. Síðan fann ég að þetta var þessi gamli ótti. Þegar Karl sagði svo að mamma hefði kært Ólaf var það alveg ofboðslega vont. Ég upp- lifði vonleysi og trúði því ekki að þetta yrði aft- ur svona. Ég var bara með tárin í augunum þeg- ar ég sá að Karl ætlaði ekki að horfast í augu við þetta. Ég sé að það er meiri stuðningur við okkur núna en var árið 1996 en ég er enn svo- lítið hrædd. Sérstaklega þegar ég verð þess vör að neikvæðum athugasemdum er smám saman að fjölga aftur. Ég finn að það blossar upp í mér gömul reiði. Ég er mjög sár. Því mér finnst þjóðin hafa brugðist fjölskyldunni. Öll þessi ár stóð hún aldrei með okkur. En það hefur hjálpað mér að lesa stuðningsbréfin sem við höfum fengið síð- ustu daga. Mér finnst það frábært hvernig við- horfin eru að breytast.“ Eins og Alfreð segir er það sem er að gerast á Íslandi í dag í raun og veru kraftaverk. „Ég hef þá trú að sú braut sem prestar velja sér í dag verði kirkjunni til frama og hjálpar. Það er margt eft- ir þegar maður sér hvers þeir eru megnugir sem standa fremstir í flokki við að lækna kirkjuna og bæta. Það sem Pála er að gera er einsdæmi og ég er þess fullviss að þetta er stór kafli í sögu ís- lensku þjóðarinnar. Enn á eftir að brjóta niður nokkra múra en það tekst. Það hræðir mig svo- lítið að Pétur Kr. Hafstein eigi að skipa í þessa sannleiksnefnd. Ég óttast að hann hallist að kirkjunnar mönnum og hefði viljað sjá einhvern hlutlausari leiða þessa vinnu. Þetta lyktar, það er mín persónulega skoðun. En við skulum sjá hvernig þetta fer. Það má vel vera að hann standi sig vel og þá skal ég vera fyrstur manna til að lýsa því yfir.“ ingibjorg@dv.is 34 viðtal 3. september 2010 föstudagur Hann kallaði mömmu hóru, eiturlyfjaneyt- anda og þess háttar. Bjuggu Við Ótta Það er af sem áður var þegar stelpurnar upplifðu stöðuga ógn á Íslandi. MynD anna Marín ScHraM Stoltar Mæðgur Stelpurnar segja að móðir þeirra hafi kennt þeim að berjast alltaf fyrir sann- leikanum. Það borgi sig að lokum. MynD anna Marín ScHraM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.