Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Síða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Síða 52
52 tækni umsjón: aðalsteinn kjartansson adalsteinn@dv.is 27. ágúst 2010 föstudagur í skólanum? Hvaða verkfæri notarðu Netbook-tölvur, eða smátölvur, eru ódýrar, litlar, léttar og munu að öllum líkindum lifa daginn af án þess að þurfi að setja þær í samband. Þessar litlu tölvur duga í flest sem þú þarft að glíma við yfir daginn. Tölvurnar eru ekki jafnöflugar og venjulegar fartölvur en fyrir skólann er það ekkert stórmál, þær duga í að skrifa glósur eða hanga á YouTube. Netbook-tölvur fást fyrir fjörutíu og fimm þúsund krónur og upp úr. Engin netbook-tölva ætti að kosta meira en hundrað þúsund krónur. Diktafónn getur nýst vel í skólanum ef þú ert orðinn leiður á því að skrifa upp eftir kennaranum. Í löngum fyrirlestrum getur líka verið þægilegra að sitja og hlusta og taka þátt í umræðum frekar en að vera með augun á tölvu- skjánum eða stílabókinni til að glósa. Google Docs getur sparað þér mörg þúsund krónur og mikið pláss á tölvunni þinni. Dugar vel í skólann og býður upp á flestalla möguleika sem venjuleg ritvinnslu- og reikniforrit hafa. Gögnin sem þú býrð til í Google Docs getur þú nálgast hvar sem er í gegnum netið. Gögnunum er svo hægt að hlaða niður í tölvu og geyma ef menn kjósa. Minnislykill getur verið þægilegur ef þú þarft að flytja einstaka skjöl á milli tölva. Lítið pláss er á lyklinum og hann því ekki hentugur til að geyma öll skóla- gögnin. Hann getur hins vegar verið mesta þarfaþing þegar kemur að því að flytja gögn sem þú þarft að láta einhvern fá eða setja á ónettengda tölvu. Snara.is er safn af orðabókum á netinu. Með Snöru geturðu fundið öll þau orð sem þú þarft að leita að á augna- bliki í stað þess að bera með þér þungar og stórar orðabækur og leita í þeim. Fjölnota prentari er nauðsynlegur nema þú ætlir alltaf að hlaupa út á bókasafn til að taka ljósrit. Þú lendir alltaf í því að þurfa að prenta út og taka afrit af einhverjum gögnum. Þægilegast er auðvitað að gera það heima hjá sér þegar manni hentar. Fjölnota prentarar Utanáliggjandi harður diskur getur komið sér vel (sérstaklega ef þú átt netbook-tölvu) til að geyma skólagögnin á öruggum stað. Þú getur afritað gögn úr tölvunni þinni yfir á drifið og verið nokkuð öruggur um að eiga að minnsta kosti eitt aukaeintak af ritgerðunum þínum ef ske kynni að tölvan færi að hrynja. E-lesari, eða lestölva, getur kom- ið sér vel. Margar af þeim bókum sem þú þarft að nota fyrir skólann er hægt að fá ódýrari ef þú kaupir þær af netinu. Þú getur líka sett allt aukalesefni og leshefti frá kennaranum inn á lestölvuna og kemst þannig hjá því að burðast með óþarfan pappír. Þráðlaus heyrnartól geta komið sér vel þegar þú ert að læra. Engar snúrur sem trufla þig eða flækjast í bókunum. Svo geturðu líka spilað óheftur á lúftgítar þegar engar snúrur eru fyrir hendi. stílabók og blýantur eru klassísk verkfæri námsmanna. tæknin býður þó upp á miklu þægilegri og skil- virkari verkfæri til að ná sem lengst í skólanum. Það er samt algjör óþarfi að eyða hundruðum þúsunda í alls kyns dót ef aðeins er sóst eftir nokkrum græjum. dV hefur tekið sama n lista yfir nokkrar slíkar sem geta hjálpað þér við námið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.