Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2011, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2011, Page 11
Fréttir | 11Helgarblað 14.–16. janúar 2011 Hatrömm átök um auðlindirnar „Geir H. Haarde, formaður Sjálf stæðis- flokksins á þessum tíma, lýsti því yfir á landsfundi flokksins í apríl sama ár að stefna bæri að einkavæðingu Landsvirkjunar og orkufyrirtækja. Jarðvarminn virkjaður Auðugustu útrásarvíkingar landsins reyndu á árunum 2005 til 2008 að komast inn í stærstu orkufyrirtæki landsmanna, meðal annars í krafti samþykkta Sjálfstæðisflokksins og þáverandi ríkisstjórnar. auðlindum yrði ekki sett í stjórn- arskrá í samræmi við stjórnarsátt- málann. Sjálfstæðismönnum var vart haggað. „Ætla menn að fara að breyta stjórnarskránni, hugsanlega umbylta núverandi fiskveiðistjórn- unarkerfi og atvinnugreininni þeg- ar það eru tíu dagar eftir af þing- inu – ég get ekki ímyndað mér það,“ sagði Sigurður Kári Kristjánsson á Alþingi. Stöðugar jarðhræringar Snemma í mars 2007 náðu for- menn stjórnarflokkanna, Jón Sig- urðsson og Geir H. Haarde, sam- komulagi um að leggja fram frumvarp um auðlindir. „Hafa þeir orðið sammála um að flytja með- fylgjandi frumvarp til stjórnarskip- unarlaga. Þar kemur fram kjarninn í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar- innar en jafnframt er ákvæðið látið ná til allra náttúruauðlinda Íslands. Áréttað er að réttinda einstaklinga og lögaðila sem njóta eignarréttar- verndar 72. greinar stjórnarskrár- innar skuli gætt. Því er lýst yfir að náttúruauðlindir Íslands skuli nýta til hagsbóta fyrir þjóðina alla, sem standi því samt ekki í vegi að veita megi einkaaðilum heimildir til af- nota eða hagnýtingar á sameigin- legum auðlindum. Eðli málsins samkvæmt eru slíkar heimildir aft- urkræfar og fela ekki í sér fullnað- arafsal, þótt í þeim geti falist óbein eignarréttindi,“ sagði í sameigin- legri yfirlýsingu formannanna. Skemmst er frá því að segja að eftir miklar deilur og átök logn- aðist málið út af. Þingfundum var slitið snemma og flokkarnir hófu undirbúning kosninga. Ekki þarf að fara í grafgötur um að niður- staðan var sjálfstæðismönnum þóknanleg eins og lesa má úr orð- um Sigurðar Kára, sem vitnað er til hér að framan. Mútur? Átökin og deilurnar um hið ný- stofnaða félag Orkuveitu Reykja- víkur, REI, og eignarhald GGE á félaginu, áttu eftir að harðna þeg- ar leið á árið 2007 og enduðu með því að upp úr meirihlutasamstarfi Framsókarflokksins og Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavíkurborg slitn- aði. Þann 16. nóvember 2007 gengu viðskiptafélagarnir Jón Ásgeir Jó- hannesson, Hannes Smárason og Þorsteinn M. Jónsson til fundar við Geir H. Haarde, þáverandi for- sætisráðherra. Vitað er að rætt var alvarlegt bakslag varðandi einka- væðingu og útrás innan orkugeir- ans. Ýmsir hafa lýst því opinberlega yfir að styrkirnir frá FL Group og Landsbankanum, sem hér hefur verið lýst, hafi verið mútugreiðslur. Engin rannsókn hefur þó enn farið fram sem hefur það að markmiði að ganga úr skugga um hvort slík- ar fullyrðingar eigi við rök að styðj- ast. Athyglisvert er að stjórnvöld hafa nú lagt drög að því í samræmi við tilmæli GRECO, eftirlitsnefnd- ar Evrópuráðsins með spillingu, að herða viðurlög við mútubrotum og sjá meðal annars til þess að ákvæði hegningarlaga um mútur og mútu- þægni nái einnig til kjörinna full- trúa. Kærur þriggja einstaklinga vegna framkvæmdar kosninganna til stjórn- lagaþings voru teknar fyrir í Hæsta- rétti á miðvikudag. Kærendurnir Óð- inn Sigþórsson og Skafti Harðarson báru brigður á að lögum hefði verið fylgt við framkvæmd kosninganna. Kjörklefar hefðu ekki tryggt leynilegar kosningar og sjá hefði mátt á kjörseðla þar sem þeir voru ekki brotnir saman áður en þeir voru settir í kjörkassa. Þá hefði úthlutun 14 sæta á stjórnlaga- þingi ekki stuðst við lágmarksfjölda atkvæða og dræm kjörsókn gæti vald- ið því að fámennur hópur gæti í krafti fárra atkvæða ráðið endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins. Skafti sagði að sérstök lög um stjórnlagaþing drægju ekki úr skilyrðum um leyni- legar kosningar. Flókin staða með 522 frambjóðendur í persónukjöri hefði ekki átt að koma á óvart þar sem fárra meðmælenda hefði verið krafist á bak við hvern frambjóðanda. „Ótrúlega losaraleg kosningaframkvæmd verð- ur að hafa afleiðingar,“ sagði hann og hélt því fram að framkvæmd kosning- anna hefði haft áhrif á úrslit þeirra. Margar spurningar Ástráður Haraldsson, formaður yf- irkjörstjórnar, rakti ítarlega einstök framkvæmdaratriði kosninganna. Hann benti meðal annars á að það væri sameiginleg skylda kjósenda og þeirra sem framkvæma kosningarnar að fara að lögum. Bæði hann og full- trúar innanríkisráðuneytisins rök- studdu að kosningarnar hefðu ver- ið leynilegar. Meðal annars var vísað til þess að á kjörseðlana voru ritaðar auðkennistölur fyrir hvern frambjóð- anda og ómögulegt fyrir aðra að átta sig á hvað hver og einn kaus. Dómarar í málinu spurðu margs, en þeir eru Jón Steinar Gunnlaugs- son, Gunnlaugur Claessen, Garðar Gíslason, Árni Kolbeinsson og Páll Hreinsson. Meðal annars var spurt um kjörklefa, eftirlit og tæknileg og lögformleg atriði varðandi talningu atkvæða. Hæstiréttur ráðgerir að úr- skurða um málið síðla í næstu viku. Tveir kjörnir fulltrúar, Gísli Tryggvason og Þorkell Helgason, tóku til máls. Gísli taldi kosning- arnar hafa fullnægt öllum venjuleg- um skilyrðum laga og verið jafnvel leynilegri en venjulegar þingkosn- ingar þar sem í persónukjöri stjórn- lagaþingskosninganna hefði verið ógerningur að greina nöfn, aðeins tölur. Einnig var bent á lítinn fjölda óvissuatkvæða, sem skoða varð sér- staklega, í samanburði við sambæri- legar kosningar annars staðar. Telur kosningakerfi í lagi Þorkell sýndi réttinum margvísleg- ar tegundir af kjörklefum víða um lönd en gerði svo að umtalsefni efa- semdir kærenda um atkvæðamagn bak við kjörna fulltrúa. Um þetta eru skýr ákvæði í lögunum um stjórn- lagaþingið. Þorkell hefur reyndar ritað um þetta áður sem sérfræðing- ur um kosningar. Hann fjallar meðal annars um lok úthlutunar sætanna 25 og staldrar við þá 11 sem hljóta sæti á grundvelli atkvæða. Alls voru frambjóðendur 522 til stjórn- lagaþings: „Þegar hingað er komið sögu hafa 11 náð kjöri á grundvelli fulls sætishlutar og jafnframt hafa 497 frambjóðendur verið útilokað- ir. Eftir sitja 14 frambjóðendur. Eng- in þeirra hefur náð sætishlut en allir hafa þeir samt fleiri atkvæði en sér- hver hinna 497 frambjóðenda. Lögin kveða því skýrt á um það þessir 14 sem eftir sitja hljóti sæt- in 14 sem enn eru laus. Hliðstæð ákvæði eru alls staðar þar sem STV-aðferðinni er beitt og reyn- ir á ákvæðið í nánast öllum slíkum kosningum.“ Hæstiréttur undir feldi n Hæstiréttur úrskurðar um lögmæti kosninga til stjórnlagaþings í næstu viku Jóhann Hauksson blaðamaður skrifar johannh@dv.is Kærur teknar fyrir Fulltrúar innanríkisráðuneytis, landskjörstjórnar og kærendur fluttu mál sitt í Hæstarétti í vikunni. Lengst til hægri eru kærendurnir Óðinn Sigþórsson og Skafti Harðarson. Mynd SigTryggur Ari Þótt Hæstiréttur kæmist að því að framkvæmd kosninganna til stjórn- lagaþings hafi verið ólögmæt og því ógild er ekki þar með sagt að átökum um eignarhald og afnotarétt á auð- lindum linni. Ríkisstjórnin hefur það yfirlýsta markmið að staðinn skuli vörður um sameign þjóðarinnar. Hins vegar kynnu margvíslegar aðrar hugmyndir um breytingar á stjórnar- skránni að renna út í sandinn. Þorvaldur Gylfason, hagfræði- prófessor og einn af 25 kjörnum fulltrúum á stjórnlagaþingi hefur í tveimur greinum í Fréttablaðinu, síðast 13. janúar, bent á ríkan sam- hljóm milli skoðana kjörinna fulltrúa á stjórlagaþingi, frambjóðendanna allra og almennings samkvæmt svör- um sem fjöldi manna veitti í könnun DV og birt var á DV.is og í blaðinu í nóvember síðastliðnum. „Hverju sætir það að stjórnarskráin stangast nú á við þjóðarviljann eins og hann birtist í könnun DV,“ spyr Þorvaldur í grein sinni síðastliðinn fimmtudag. Hann bendir á að árum saman hafi meirihluti þjóðarinnar árum saman verið andvígur fiskveiðistjórnunar- kerfinu þótt það standi enn óbreytt. Þorvaldur rýnir meðal annars í eftirfarandi og vísar til þess að 34 þúsund svör hafi borist DV fyrir kjör- dag. Svör lesenda rími mjög vel við svör kjörinna fulltrúa og frambjóð- endanna. johannh@dv.is Stjórnlagaþing vill auðlindaákvæði n nær allir fulltrúar á stjórnlagaþingi eru hlynntir ákvæði í stjórnarskrá um þjóðareign á auðlindum Þarf að breyta stjórnarskránni? Já 65% Nei 17% Annað 18% Á atkvæðisréttur að vera óháður búsetu? Já 72% Nei 17% Annað 11% Á landið að vera eitt kjördæmi? Já 68% Nei 23% Annað 10% Persónukjör frekar en listakjör? Já 74% Nei 12% Annað 13% Á að fækka þingmönnum? Já 57% Nei 30% Annað 13% Svör 34 ÞúSund leSendA dv.iS Lesendur DV Af 25 kjörnum fulltrúum svörðum 22 spurningum DV. Þarf að breyta stjórnarskránni? 19 af 22 eru hlynntir Þjóðareign auðlinda fest í stjórnarskrá 22 af 22 eru hlynntir Á forsetinn að hafa málskotsrétt? 18 af 22 eru hlynntir Aukinn réttur til þjóðaratkvæðagreiðslna 21 af 22 eru hlynntir Persónukjör frekar en listakjör? 16 af 22 eru hlynntir Eiga ráðherrar að sitja á þingi? 20 af 22 eru andvígir Á ráðherra einn að skipa dómara? 22 af 22 eru andvígir Á atkvæðisréttur að vera óháður búsetu? 22 af 22 eru hlynntir Á landið að vera eitt kjördæmi? 14 eru hlynntir 5 eru andvígir Á að fækka þingmönnum? 14 eru hlynntir 7 eru andvígir Aukinn réttur almennings til upplýsinga 20 eru hlynntir Kjörnir fulltrúar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.