Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2011, Side 14
14 | Fréttir 14.–16. janúar 2011 Helgarblað
Siðfræðingurinn Stefán Einar Stef-
ánsson tilkynnti um framboð sitt til
formanns VR á framhaldsaðalfundi
VR á Reykjavík Hilton Nordica síðast-
liðið þriðjudagskvöld. Stefán Einar
hefur starfað með Sambandi ungra
sjálfstæðismanna, SUS, en árið 2009
var fjallað um aðkomu hans að smöl-
un fimmtíu ungra sjálfstæðismanna
til Ísafjarðar til þess að tryggja skoð-
anabróður hans formannssæti.
Stéttarfélagið VR, eða „Virðing,
réttlæti“, hefur logað í illdeilum und-
anfarið og hörð átök hafa verið í for-
ustu félagsins. Í desember fjallaði DV
um það að hópur stjórnarmanna sem
kallaðir hafa verið „Skuggarnir“ hafi
undirbúið formannsframboð Stef-
áns Einars, en þeir hafa verið sagðir
bíða átekta eftir því að koma sínum
manni í formannsstólinn. Skuggarn-
ir hafa fundað á skrifstofu Stefáns
Einars í Hallgrímskirkjuturni. Ragnar
Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í VR,
sagði í samtali við DV 21. desember
að þeir sem stæðu fremstir í flokki
Skugganna hefðu kerfisbundið unn-
ið gegn hagsmunum félagsins og fé-
lagsmanna VR með „þaulskipulögðu
aðgerðaleysi og leynimakki“.
Reyndi að sætta deiluaðila
Samkvæmt heimildum DV hringdi
Stefán Einar í stjórnarmeðlimi VR
rétt fyrir jól og leitaði eftir stuðningi
þeirra ef hann yrði næsti setti for-
maður VR og færi í framboð á aðal-
fundi. Mun hann hafa haft það á
orði að Sigurður Sigfússon og Óskar
Kristjánsson hefðu beðið hann um
að taka að sér formannsstarfið og eft-
ir því sem fram kom í pistli á blogg-
síðu Ragnars Þórs leiða þessir tveir
plottið í stjórn VR.
Í samtali við DV sagði Stefán Ein-
ar að honum hefði borist hvatningar-
orð frá stjórnarmönnum VR um að
hann byði sig fram til formennsku
verkalýðsfélagsins. Þá sagði hann
upphaflega aðkomu sína að átök-
unum innan stjórnar VR hafa verið
að miðla málum og leita sátta. Stef-
án Einar komst í kynni við stjórnina
þegar hann hafði umsjón með setn-
ingu siðareglna VR í fyrra. Hann hef-
ur sagt að leitað hafi verið til hans
í þeim tilgangi að reyna að sætta
deiluaðila.
Leynimakk hjá SUS
Stefán Einar, sem hefur oft verið titl-
aður viðskiptasiðfræðingur í fréttum,
var árið 2009 í fréttum vegna aðildar
hans að smölun fimmtíu ungra sjálf-
stæðismanna í leiguflugvél til Ísa-
fjarðar til að tryggja formannskjör
Ólafs Arnar Nielsen í SUS. Sú aðgerð
olli miklu fjaðrafoki á sínum tíma en
smölunin hafði úrslitaáhrif á kosn-
ingarnar því að litlu munaði að Fan-
ney Birna Jónsdóttir hefði sigrað í
kosningunum. Hlaut hún 48 pró-
sent atkvæða á móti 52 prósentum
atkvæða sem féllu Ólafi í vil.
Stefán Einar er sagður tilheyra
armi Davíðs Oddssonar og Björns
Bjarnasonar innan Sjálfstæðis-
flokksins en vera andsnúinn Deiglu-
hópnum, þeim hópi sem Fanney
Birna hallast í áttina að. Stefán Einar
var auk þess sjálfur kosinn í stjórn
SUS á þessum fundi.
Plottað í kirkjuturni
Eins og DV hefur greint frá deildi
stjórnarmaður VR á Stefán Einar
fyrir að nota skrifstofuaðstöðu þá
í Hallgrímskirkju sem hann hef-
ur afnot af sem formaður Hins ís-
lenska biblíufélags til að vinna gegn
sitjandi stjórn félagsins. Inntakið í
gagnrýninni var sú að verið væri að
nota eignir meðlima Þjóðkirkjunnar
undir pólitískt baktjaldamakk. Stef-
án játaði því í samtali við DV að hafa
átt fundi vegna málsins á skrifstof-
unni í Hallgrímskirkju en taldi gagn-
rýnina vera storm í vatnsglasi. Þann
21. desember boðuðu Skuggarnir
svo til fundar á skrifstofu Stefáns í
Hallgrímskirkju. Sá fundur var síðar
færður á Kringlukrána þar sem Stef-
án sagði að málefni félagsins hefðu
verið rædd.
Eins og DV greindi frá á dögun-
um var Kristni Erni Jóhannessyni
sagt upp sem framkvæmdastjóra
VR á síðasta stjórnarfundi. Tölvu-
póstar sem DV hefur undir hönd-
um sýna að það tók langan tíma fyr-
ir stjórnarmenn í félaginu að fá það í
gegn að fundur skyldi haldinn, en sá
fundur varð á endanum til þess að
Kristinn féll úr stóli framkvæmda-
stjóra. Kristinn Örn neitaði að tjá
sig um málið þegar DV hafði sam-
band við hann í síðustu viku og gaf
ekki upp afstöðu sína til þess hvort
stjórnin væri starfhæf.
Sakaður um ofsóknir
Teitur Atlason bloggari hefur sakað
Stefán Einar um að hafa valdið því
að hann hrökklaðist úr starfi sínu
sem viðskiptastjóri EJS á sínum tíma.
Stefán sagði ásakanir Teits vera frá-
leitar. „Hann komst að því að ég var
meðlimur í Vantrú (nokkuð sem var
álitið óhugsandi komandi úr guð-
fræðideildinni) og réri að því öllum
árum að viðskiptasamningi Bisk-
upsstofu og EJS yrði rift vegna þess
að ég var trúlaus,“ skrifaði Teitur á
bloggsíðu sína. „Samhliða hóf hann
svo ofsóknir á hendur mér á blogg-
inu sínu sem enduðu með því að
ég sagði upp starfi mínu hjá EJS því
þarna voru mín prívatmál að þvælast
fyrir hagsmunum fyrirtækisins sem
ég vann hjá.“
Stefán sagði í samtali við DV
málavexti hafa verið þannig að hann
sá viðtal við Teit þar sem hann kom
fram sem starfsmaður EJS og fjall-
aði um vinnu sína og andstöðu sína
gegn Þjóðkirkjunni. Stefáni þótti
þetta óeðlilegt þar sem Biskupsstofa
væri stór viðskiptaaðli fyrirtækisins.
Hann setti sig því í samband við einn
af framkvæmdastjórum EJS vegna
málsins. „Ég sagði að ef þeir myndu
ekki koma í veg fyrir að þetta gerð-
ist aftur myndi ég setja mig í sam-
band við aðila innan kirkjunnar, sem
myndu eflaust líta það alvarlegum
augum. Fyrirtæki sem þeir væru með
viðskiptasamning um tölvukaup og
þjónustu við, og þyrftu þá að endur-
skoða afstöðu sína til þess samnings.
Það er bara málefnalegt sjónarmið
sem ég myndi hafa í mínum rekstri,“
sagði Stefán.
n Siðfræðingurinn Stefán Einar Stefánsson ætlar að bjóða sig fram til formanns VR n Hópur stjórnar-
manna sem kallaðir eru „Skuggarnir“ hefur stefnt að því að koma honum í formannsstólinn n Stefán
Einar stóð að smölun ungra sjálfstæðismanna til Ísafjarðar til þess að tryggja skoðanabróður kosningu
„Sú aðgerð olli miklu fjaðrafoki
á sínum tíma en smölunin hafði
úrslitaáhrif á kosningarnar því að litlu
munaði að Fanney Birna Jónsdóttir
hefði sigrað í kosningunum.
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
UMDEILD FORTÍÐ
FORMANNSEFNIS
Vildi ekki tjá sig Framkvæmdastjóra VR, Kristni Erni Jóhannessyni, var sagt upp störfum á
síðasta stjórnarfundi félagsins.
Studdur af „Skuggunum“ Eins og
komið hefur fram í DV hafa hinir svokölluðu
„Skuggar“ í VR róið að því öllum árum að
koma Stefáni Einari í formannssætið hjá VR.