Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2011, Page 15
Fréttir | 15Helgarblað 14.–16. janúar 2011
n Fjölskylduhjálp Íslands segir mikla þörf fyrir aðstoð á Snæ-
fellsnesi n Félagsþjónusta Snæfellinga segir tölurnar koma
sér á óvart n Bent er á að lítið atvinnuleysi sé á svæðinu
Deilt um neyðina
„Í stuttu máli þá koma þessar
tölur okkur á óvart og eru ekki
í nokkurri líkingu við þær töl-
ur sem við höfum,“ segir Sveinn
Þór Elínbergsson, forstöðu-
maður félags- og skólaþjónustu
Snæfellinga. Fjölskylduhjálp Ís-
lands hefur ákveðið að reyna að
opna starfsstöð samtakanna á
Snæfellsnesi og yrði hún stað-
sett í Grundarfirði. Í samtali við
DV.is á miðvikudag sagði Ás-
gerður Jóna Flosadóttir, formað-
ur Fjölskylduhjálpar Íslands, að
um sjötíu til hundrað fjölskyldur
þyrftu á aðstoð að halda á svæð-
inu. Þessi tala kemur Sveini Þór
og öðrum sveitarstjórnarmönn-
um á Snæfellsnesi á óvart.
Leita að húsnæði
„Þetta vekur athygli en menn
reka náttúrulega augun í allt
sem varðar þeirra svæði,“ segir
Sveinn Þór sem tekur það fram
að hann hafi ekki forsendur til
að meta það hvort tölur Fjöl-
skylduhjálparinnar séu réttar
eða rangar. Rúmlega fjögur þús-
und manns búa á Snæfellsnesi
og reynast þær tölur sem Ás-
gerður nefndi réttar er ljóst að
þörfin er mikil. Samtökin eru
nú á höttunum eftir húsnæði í
Grundarfirði og er vonast til að
hægt verði að opna útibú fljót-
lega. Gangi allt að óskum verða
starfsstöðvar Fjölskylduhjálpar
Íslands orðnar fjórar en auk þess
að vera í Reykjavík eru starfs-
stöðvar í Keflavík og á Akureyri.
Lítið atvinnuleysi
„Staða á okkar svæði er og hefur
verið mjög góð. Þegar við tölum
um viðmið eins og atvinnu þá er
atvinnuleysi mjög lítið. Við höf-
um verið heppin miðað við önn-
ur landsvæði,“ segir Sveinn og
bætir við að erfitt sé að svara því
beint hvort og þá hversu marg-
ar fjölskyldur séu í vanda. „Það
er auðvitað hér eins og annars
staðar fólk í vanda en sú tala er
ekki í neinni líkingu við þessa
tölu. Okkar sjónarhorn miðast
við umsótta fjárhagsaðstoð sam-
kvæmt lögum um félagsþjón-
ustu sveitarfélaga. Við höfum
ekki annan mælikvarða en þann
sem við almennt þekkjum og
skynjum á svæðinu.“
Sveinn tekur þó fram að Fjöl-
skylduhjálp Íslands, eins og öll
önnur mannúðarsamtök í land-
inu, eigi allt gott skilið. „Við vilj-
um ekki sjá fólk í biðröðum. Við
viljum búa betur að fólki en svo.“
Allt Snæfellsnesið
Ásgerður Jóna Flosadóttir, for-
maður Fjölskylduhjálpar Ís-
lands, segir að samtökin hafi
valið Grundarfjörð vegna þess
að hann sé miðja vegu fyrir ein-
staklinga á Snæfellsnesi til að
sækja sér aðstoð. Hún legg-
ur áherslu á að samtökin muni
þjónusta allt Snæfellsnes, ekki
eingöngu Grundarfjörð.
Aðspurð hvaðan þær upplýs-
ingar komi, að sjötíu til hundr-
að fjölskyldur þurfi á aðstoð
að halda, segir hún: „Þetta er
manneskja sem þekkir ágætlega
til á öllu Snæfellsnesi. Hún telur
þetta vera um sjötíu til hundrað
fjölskyldur. Við vitum ekki ná-
kvæma tölu fyrr en á reynir,“ seg-
ir hún og bendir í því samhengi á
Akureyri. Þar opnuðu samtökin
útibú á haustmánuðum og hefur
þörfin þar verið mikil, að sögn
Ásgerðar.
Vona að fáir komi
Ásgerður bendir á að á Snæfells-
nesi sé töluvert af eldra fólki sem
byrjaði seint á borga í lífeyris-
sjóð. Þá hafi öryrkjar á Snæfells-
nesi það ekkert betra en öryrkj-
ar annars staðar á landinu. „Við
vonum að sem fæstir komi, að
sjálfsögðu er það okkar ósk. Við
erum til þess að hjálpa á meðan
þetta gengur yfir.“
Ásgerður segir að lokum að
henni sé Snæfellsnesið sérstak-
lega kært. „Móðurættin mín er
þaðan og það spilar auðvitað inn
í þessa ákvörðun.“
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
„Við viljum ekki
sjá fólk í biðröð-
um. Við viljum búa bet-
ur að fólki en svo.
Fjórða útibúið Fjölskylduhjálp
Íslands stefnir að því að opna
fjórða útibú sitt á Snæfellsnesi.
Ættuð frá Snæfellsnesi Ásgerður segir að Snæfellsnesið sé sér kært. Hún bendir á
að á svæðinu séu margir eldri borgarar sem hafi byrjað að borga seint í lífeyrissjóð.
Verið heppin Sveinn Þór segir að
Snæfellingar hafi verið heppnir. Þar sé
atvinnuleysi til dæmis lítið.
Tónræktin
Fjölbreytt og skemmtilegt tónlistarnám fyrir alla.
Við í Tónræktinni leggjum
metnað okkar í:
n að fólk hafi ánægju og gagn af
náminu.
n að kenna nemendum að spila
bæði eftir nótum/hljómum og
eftir eyranu.
n að námið nýtist hverjum og
einum sem allra best
Nemendur okkar eru á öllum aldri og allir hjartanlega velkomnir.
Kennsla á vorönn hefst 17. janúar.
Umsóknir á tonraektin.is
Símar: 462 1111
Björn Þórarinsson skólastjóri, 695 3217
Tónræktin-tónlistarskóli
Hafnarstræti 101 Akureyri
Kennslugreinar:
n Píanó/hljómborð
n Gítar
n Söngur
n Rafbassi
n Trommur
n Harmóníka
n Upptökutækni og hljóðvinnsla
n Músíksmiðja – fjölbreyttir tón-
listartímar fyrir börn 4 til 7 ára.
NÆSTA NÁMSKEIÐ
HEFST 9. APRÍL
NÆSTA NÁMSKEIÐ
HEFST 9. APRÍL
VinnuVélanámskeið
Staðsetning
í Mjódd
www.ovs.is
Upplýsingar og innritun í síma 588-1414
Næsta
námskeið
hefst 21.
janúar
Sími 568 9009
gaski@gaski.is
www.gaski.is
Tilboð
í líkamsrækt
12 mánaða kort á
24.900 kr.
gildir til 31. janúar 2011
Frír tími með sjúkraþjálfara
sem setur upp æfingaráætlun
Gáski sjúkraþjálfun er til
húsa á eftirfarandi stöðum:
Bolholti 8, Reykjavík
Þönglabakka 1, Reykjavík