Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2011, Síða 56
Mín bara
grand
á því!
Enn ein
kjaftasagan
n Ástarsamband fjölmiðlakonunnar
Margrétar Erlu Maack og Kristins
Hrafnssonar, talsmanns Wikileaks,
var umræðuefni í síðasta tölublaði
Séð og heyrt. Í greininni, sem bar
yfirskriftina „Bálskotnir blaðamenn“,
var sagt frá því að Margrét Erla hefði
flogið til Bretlands til að heimsækja
Kristin. Sú kjaftasaga hefur gengið
manna á milli að Margréti Erlu hefði
í kjölfarið verið tilkynnt af bandaríska
sendiráðinu að hún fengi ekki að
ferðast til Bandaríkjanna vegna
sambands hennar
við Kristin.
Aðspurð segir
Margét Erla að
þetta sé ekki
rétt og einungis
um enn eina
kjaftasöguna
að ræða. Hún
vildi ekki tjá
sig um meint
samband við
Kristin í samtali
við DV.
Vala vill
silíkon
n Glamúrpían Vala Grand stefnir nú
ótrauð að því að fá sér silíkon í brjóst-
in. Vala, sem gekkst undir kynleið-
réttingaraðgerð í fyrra, segir í samtali
við Monitor að nú sé kominn tími til
að klára verkið. „Ekki of stór og ekki
of lítil. Ég vil bara venjuleg brjóst. Ég
er ekkert að skoða myndir á netinu af
brjóstum enda get ég bara fengið að
skoða brjóstin á vinkonum mínum
ef ég vil,“ segir Vala
í samtali við
Monitor. Vala er
með sjónvarps-
þætti á vefsíðu
Morgun-
blaðsins og
segist hún vera
ánægð með
viðtökurnar sem
þættirnir hafa
fengið: „Það
gengur bara
ógeðslega
vel.“
Bubbi edrú
í fjórtán ár
n „Í fjórtán ár hef ég lifað án efna
og fjórtán ár er langur tími fyrir
mann eins og mig. Maður sem gat
ekki verið edrú í fjóra tíma,“ segir
tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens
sem segir frá því á bloggsíðu sinni að
hann sé búinn að vera edrú í fjórtán
ár. Bubbi segir að edrúmennska sín
sé það sem gleðji hann mest í lífinu.
„Hún er forsenda þess að börnin mín
brosa og að ástin mín er með mér
og gengur við hlið mér,“ segir Bubbi
hreinskilnislega en
bætir við að
stundum haldi
hann að eitthvað
skipti hann
meira máli en
edrúmennskan.
„Áhyggjur, ótti,
gremja og reiði bíða
þá fyrir utan og
ryðjast inn, taka
yfir líf mitt
um leið og
ég gleymi
hvað er
mikil-
vægast.“
Arion banki sagði upp húsverðinum
Þresti Þórðarsyni á nýju ári. Þröstur
hafði starfað hjá bankanum í 28 ár.
„Ég starfaði í þann tíma sem verktaki
og launamaður hjá Kaupþingi,“ segir
Þröstur í samtali við DV. „En svona er
þetta bara og maður er bara að melta
þetta með sjálfum sér. Þetta er bara
fyrirtæki og eflaust eru þeir að reyna
að lifa af eins og aðrir.“
Hann segir tilfinningarnar
blendnar eftir að hafa verið sagt upp
eftir svo langan starfstíma en ósk-
ar fyrirtækinu alls hins besta í fram-
tíðinni. „Ég skil í góðu við þetta fyr-
irtæki og óska þess alls hins besta í
sinni uppbyggingu,“ segir Þröstur.
Hann var einn af níu sem var sagt
upp hjá bankanum eftir áramót-
in. Upplýsingafulltrúi Arion banka,
Iða Brá Benediktsdóttir, segir eng-
an rauðan þráð hafa verið í upp-
sögnum hjá bankanum og störfuðu
þeir níu sem sagt var upp í mis-
munandi deildum hjá bankanum.
„Alls hefur níu manns verið sagt upp
hjá bankanum að undanförnu en
hjá bankanum starfa rétt yfir 1.000
manns. Starfsmennirnir sem sagt var
upp koma af ýmsum sviðum bank-
ans en ákveðnar skipulagsbreytingar
hafa átt sér stað hjá bankanum,“ seg-
ir í svari Iðu Brár við fyrirspurn DV.
Arion banki var áður Nýi-Kaupþing
en bankinn breytti nafninu í nóvem-
ber árið 2009. Með nafnabreyting-
unni tóku við ný gildi hjá bankanum
með það að markmiði að byggja upp
traustan, öflugan banka sem vinn-
ur með og fyrir fólkið í landinu, eins
og sagði í tilkynningu frá bankan-
um þegar nafninu var breytt í Arion
banki.
birgir@dv.is
Húsverðinum Þresti Þórðarsyni var sagt upp hjá Arion banka um áramótin:
Rekinn eftir 28 ára starf
Korfu
Gríska
draumaeyjan
28. maí 7. júní 18. júní 28. júní 9. júlí 23. júlí 2. ágúst
13. ágúst
23. ágúst
24. sept.
1. okt.
Flugáætlun
Ótal fleiri gistimöguleikar á VITA.is
Nýr og ómótstæðilegur
áfangastaður
BEINT
MORGUNFLUG
MEÐ
ICELANDAIR
Í ALLT SUMAR
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.IS
V
IT
5
30
89
0
1/
11
VITA er lífið
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 | VITA.is
Ipsos Beach
Ipsos Beach hótel er snyrtilegt þriggja stjörnu hótel , einungis 50 til
80 metrum frá ströndinni í Ipsos. Við hótelið er sundlaug, barnarlaug,
barnaleiksvæði og sólbekkir með ágætri aðstöðu.
Verð frá 119.900 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
á mann m.v. 2 fullorðna og 1 barn (2-11) í 10 nætur, 18. júní.
Hálft fæði. Verð á mann m.v. 2 fullorðna í tvíbýli: 126.900 kr. og 15.000
Vildarpunktar.
*Verð án Vildarpunkta 129.900 m.v. 2+2. Verð án Vildarpunkta 136.900 m.v.. Louis Corcyra Beach
Louis Corcyra Beach er gott fjögurra stjörnu „allt innifalið“ hótel,
vel staðsett við ströndina í bænum Gouvia. Einungis um 5 mín.
göngufjarlægð frá miðbæ Gouvia.
Fallegt útsýni er yfir Gouvia-flóann og á hótelinu er barnaklúbbur og
skemmtidagskrá.
Verð frá 155.900 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn (2-11) í 10 nætur, 18. júní.
Allt innifalið. Verð á mann m.v. 2 fullorðna í tvíbýli:
184.900 kr. og 15.000 Vildarpunktar.
*Verð án Vildarpunkta 165.900 kr. m.v. 2+2. Verð án Vildarpunkta 194.900 kr. m.v. 2.
Helion íbúðir
Helion íbúðagarðurinn samanstendur af sjö tveggja hæða byggingum
í stórum og snyrtilegum garði, sem liggur niður að strönd og er stutt
frá miðbænum í Gouvia. Gestamóttaka og smáverslun eru í sérhúsi og
í garðinum er sameiginlegt sundlaugarsvæði með sólbaðsaðstöðu og
snakkbar fyrir öll húsin.
Verð frá 120.190 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn (2-11) í 10 nætur, 18. júní
Verð á mann m.v. 2 í íbúð: 130.920 og 15.000 Vildarpunktar.
* Verð án Vildarpunkta 130.190 kr. m.v. 2+2. Verð án Vildarpunkta 140.920 kr. m.v. 2.
Hálft fæði
Allt innifalið!
GRIKKLAND
ADRÍAHAF
ÍTALÍA
Korfu
Flugsæti
Verð frá 79.900 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
Innifalið: Flug fram og til baka og
flugvallaskattar 28. maí.
* Verð án Vildarpunkta 89.900 kr.
Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is
Nýjung!
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HElgarBlaÐ 14.–16. janúar 2011 6. tbl. 101. árg. leiðb. verð 595 kr.
níu sagt upp Alls hefur níu
starfsmönnum verið sagt upp hjá
bankanum að undanförnu.