Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Blaðsíða 4
4 | Fréttir 25.–27. mars 2011 Helgarblað
Formannsefni í VR gagnrýndi blaðamann Morgunblaðsins:
Stefán Einar ósáttur
Stefán Einar Stefánsson, frambjóð-
andi í formannskjöri VR, sagði við
nokkra af þátttakendum á framboðs-
fundi VR, sem haldinn var í höfuð-
stöðvum fjölmiðlafyrirtækisins 365
í Skaftahlíð í vikunni, að sá blaða-
maður Morgunblaðsins sem skrifaði
um hann frétt myndi missa vinnuna.
Þetta herma heimildir DV.
Fundurinn var haldinn til að kynna
frambjóðendur til formanns og
stjórnar VR fyrir þeim starfsmönnum
365 sem eru í félaginu. Kosningarnar í
VR fara fram á miðvikudaginn kemur.
Í frétt Morgunblaðsins var sagt frá
því að annar frambjóðandi til for-
manns VR, Guðrún Jóhanna Ólafs-
dóttir, hefði kært Stefán Einar til yfir-
kjörstjórnar VR vegna þess að hann
hefði afritað kjörskrá VR til að nota í
kosningabaráttu sinni um formanns-
embætti VR. Stefán Einar var ósáttur
við frétt blaðsins, sem birtist á þriðju-
daginn, þar sem fullyrt var að hann
hefði afritað skrána og var frétt Morg-
unblaðsins breytt á mbl.is síðar um
daginn og dregið nokkuð í land.
Fréttamaðurinn sem skrifaði frétt
Morgunblaðsins heitir Hugrún Hall-
dórsdóttir. Þriðjudagurinn var síðasti
dagur hennar sem starfsmaður Morg-
unblaðsins þar sem hún mun á næst-
unni hefja störf hjá fjölmiðlafyrirtæk-
inu 365.
Í samtali við DV segir Hugrún að
hún hafi því vitanlega ekki hætt á
blaðinu vegna skrifanna um Stefán
Einar þar sem það hefði legið fyrir í
þrjá mánuði að hún myndi hætta þar.
Aðspurð segist hún hafa heyrt af því
að Stefán Einar hefði stært sig af því
að hafa orðið til þess að hún missti
vinnuna á Morgunblaðinu. Hugrún
segist hins vegar ekki skilja hvernig
Stefáni Einari hafi getað dottið í hug
að hann hefði haft þessi áhrif á starfs-
lok hennar þar sem hún hefði sagt
upp fyrir þremur mánuðum.
Stefán Einar segir aðspurður að
hann kannist ekki við að hafa að hafa
látið umrædd orð falla. „Það kann
að vera að ég hafi sagt, ég bara man
það ekki, hvort það væri rétt að svona
blaðamaður væri að störfum hjá
Morgunblaðinu.“ Hann segist ekki
hafa rætt við forsvarsmenn Morgun-
blaðsins í kjölfar birtingar fréttarinn-
ar, eða á nokkurn hátt reynt að hafa
áhrif á störf Hugrúnar hjá blaðinu
enda hafi hún beðið hann afsökunar
þegar hann bað um viðbrögð hans við
kærunni.
solrun@dv.is
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Hillur á hagstæðu verði!
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum - Flúðum
MARC-LEO3
Leo hillueining 90x40x165cm.
4 hillur
5.795
MARC-Errex1
Errex hillueining.
100x40x185cm.
5 hillur
14.495
MARC-LEO1
Leo hillueining.
75x30x135cm.
4 hillur
4.395MARC-LEO5Leo hillueining.
100x30x185cm.
5 hillur
5.995
Haukur Þór Haraldsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri rekstrarsviðs gamla
Landsbankans, sá um millifærslur inn
á reikning fyrirtækisins Conferences
and Ideas, sem þá var í eigu Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar prófessors
í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.
Samkvæmt heimildum DV fékk Hann-
es þrjár milljónir króna árið 2007 og
aðrar þrjár árið 2008. Haukur Þór hafði
meðal annars þann starfa í Lands-
bankanum að millifæra styrki og pen-
ingagreiðslur fyrir hönd bankans.
DV hafði samband við Hauk Þór
Haraldsson til að ræða við hann um
málið en Haukur sagðist ekki geta rætt
það vegna þess að hann væri bundinn
trúnaði.
Hannes fékk greitt fyrir „kynn-
ingarátak vegna skattalækkana“ en
ákvörðun um verkefnið var að sögn
Hannesar tekin á fundi með banka-
stjórunum Sigurjóni Þ. Árnasyni og
Halldóri Kristjánssyni. Ekki er ljóst í
hverju verkefnið fólst nákvæmlega.
Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks-
ins, var varaformaður bankaráðs
Landsbankans á þeim tíma sem milli-
færslurnar fóru fram. Hannes og Kjart-
an eru góðir vinir.
Kjartan bjargaði Hannesi
Hannes sagðist í tölvupósti sem hann
sendi blaðamanni DV, og kaus að birta
um leið á heimasíðu sinni á Press-
unni, ekki hafa heimild til að tjá sig
um hversu háar upphæðir hann hefði
fengið frá bankanum. Þá sagði hann
ekkert athugavert við þessar greiðslur,
eða framlög eins og hann nefndi þær,
og tók fram að þau hefðu verið til
„þjóðþrifamáls“.
Eins og fram hefur komið var Kjart-
an Gunnarsson varaformaður banka-
ráðs Landsbankans á þessum árum
en þeir Hannes hafa lengi verið nánir
samstarfsmenn. Þeir störfuðu með-
al annars saman á Eimreiðinni, sem
ungir frjálshyggjumenn gáfu út 1972–
1975. Þá hjálpaði Kjartan Hannesi
þegar sá síðarnefndi stóð frammi fyr-
ir gjaldþroti árið 2005. Í kjölfar þess
að Hannes var dæmdur í Bretlandi til
þess að greiða Jóni Ólafssyni 12 millj-
ónir króna vegna meiðyrða keypti
Kjartan Gunnarsson einbýlishús í eigu
Hannesar við Hringbraut 24, í gegnum
eignarhaldsfélagið Skipholt ehf. Allar
íbúðirnar í húsinu eru ennþá skráðar
á félag Kjartans en þar hefur Hannes
haldið til fram á þennan dag.
„Alvarlegt mál“
Eignarhaldsfélagið Conferences and
Ideas er ekki lengur í eigu Hannesar en
í maí í fyrra færði hann það í hendur
félaga síns Friðbjörns Orra Ketilsson-
ar, núverandi ritstjóra fréttavefjarins
AMX. Í félaginu liggur brasilískt rann-
sóknar- og fræðasetur, að verðmæti
tæplega 25 milljónir króna. Hannes
svaraði engu um hvort greiðsla hefði
fengist fyrir setrið þegar blaðamaður
DV spurði hann í maí í fyrra.
Hannes sagði í tölvupóstinum að
það væri alvarlegt mál ef einstaklingar
úti í bæ hefðu upplýsingar um milli-
færslur inn á reikninga í Landsbank-
anum. Slíkt hlyti að koma til kasta
bankans sjálfs og jafnvel yfirvalda.
Eins og fram hefur komið setti sýslu-
maðurinn í Reykjavík í vikunni lög-
bann á fréttaflutning DV af málefnum
fjárfestingarfélagsins Horns, dóttur-
félags Landsbankans.
Ekki greiðslur frá óreiðumönnum
Blaðamaður spurði Hannes meðal
annars að því hvort hann hefði með
þessu þegið greiðslur frá óreiðu-
mönnum, en hann hefur lýst því yfir
að Íslendingar vilji ekki greiða skuldir
óreiðumanna, og vísaði þar til stjórn-
enda Landsbankans vegna Icesave-
málsins. Hannes neitaði því og sagði
í svari sínu hverjir óreiðumennirnir í
Icesave málinu væru: „Þeir eru Baugs-
feðgar, Jóhannes Jónsson og Jón Ás-
geir Jóhannesson, sem tæmdu alla ís-
lensku bankana þrjá að innan, þar á
meðal Landsbankann.“
Spurningar blaðamanns og svör
Hannesar Hólmsteins má í heild sinni
nálgast á DV.is.
n Haukur Þór Haraldsson millifærði milljónir á reikning fyrirtækis í eigu
Hannesar Hólmsteins n Samkvæmt heimildum DV fékk Hannes sex
milljónir n Kjartan Gunnarsson, formaður bankaráðs, bjargaði Hannesi í
kjölfar gjaldþrots tveimur árum áður og tók yfir húsið hans
Haukur
millifærði
á Hannes
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Kynningarátak
Hannesar Hannes
Hólmsteinn þáði
greiðslur frá Lands-
bankanum í gegnum
eignarhaldsfélagið
Conferences and Ideas.
Nánir samstarfsmenn Kjartan Gunnarsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins, var varaformaður bankaráðs Lands-
bankans þegar greiðslurnar voru inntar af hendi.
Sagði blaðakonuna hætta Stefán
Einar sagði að blaðakonan sem skrifaði
um hann frétt myndi hætta störfum hjá
Morgunblaðinu vegna hennar. Viðmælendur
Stefáns túlkuðu orð hans sem svo að hann
ætlaði að beita sér fyrir því.
Jóhanna situr
sem fastast
Jóhanna Sigurðardóttir ætlar ekki að
segja af sér vegna niðurstöðu kæru-
nefndar jafnréttismála sem úrskurð-
aði að forsætisráðuneytið hefði brotið
jafnréttislög. Þetta kom fram í máli
hennar á Alþingi á fimmtudag.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi Jó-
hönnu harkalega og spurði hvort hún
teldi ekki tilefni til afsagnar í ljósi nið-
urstöðu kærunefndar.
„Það stendur ekki steinn yfir steini
í þessum málflutningi. Pólitísk ábyrgð
er ráðherrans. Hafi viðkomandi sér-
fræðingur, alveg sama hversu margar
prófgráður viðkomandi hefur, komist
að rangri niðurstöðu þá er ábyrgðin
ráðherrans,“ sagði Bjarni.
Missti fingur
Verkamaður við tónlistarhúsið
Hörpuna lenti í alvarlegu vinnuslysi
á fimmtudag. Samkvæmt upplýsing-
um frá lögreglunni barst tilkynning
um að maðurinn hefði misst fingur í
vinnuslysi. Ekki liggur fyrir hvern-
ig slysið bar að, en lögreglan mætti
með blikkandi ljós og sjúkrabíll var
kallaður til.
Verkamenn vinna nú myrkranna
á milli við að klára Hörpuna sem
stendur til að opna við hátíðlega at-
höfn 13. maí næstkomandi. Tuttugu
þúsund manns hafa tryggt sér miða
á viðburði í húsinu.