Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Blaðsíða 46
46 | Lífsstíll 25.–27. mars 2011 Helgarblað
Stakkahrauni 1 – Sími 553 8383
Íslensk framleiðsla
ATH: Höfum flutt starfsemina á Stakkahraun1
í Hafnarfirði (áður Mónuhúsið)
á stílabókum og gjafaöskjum fyrir handverksfólk
Stílabækur A4 og A5 fjórir litir
Stílabækur,
stórar og litlar,
fjórir litir
Skrift - æfingabækur 1,2 og 3
Reikningsbókin mín,
stór og lítil, 10 mm rúður
Stílabækur, gormaðar
í tveimur stærðum
Verkefna- og
úrklippubók, fjórir litir
Sögubókin
mín, stór
og lítil
Úrval af allskonar öskjum, tilvalið fyrir handverksfókið
Reikningsbækur,
tvær stærðir, 7mm rúður
NÝTT
48 BL
S
Bollar og teboð
Átta hönnuðir sýna saman bolla í Kaolin
undir yfirskriftinni Spáð‘í bolla. Fjölbreytt
form og gerðir bolla, innsetning og
gjörningur þar sem gestir sýningarinnar fá
að taka þátt eru það sem lýsir viðburðinum
best. Laugardaginn 26. mars verður svo
spáð í bolla sýningarinnar en sýningin
stendur frá 24. til 31. mars og er hún opin frá
klukkan 12 til 18. Teboðsfélagið býður svo
til teboðs í Íslensku óperunni laugardaginn
26. mars á milli klukkan 15 og 17. Fjórar gerðir
tebolla úr íslenskum leir, eftir jafnmarga
leirlistamenn, verða til sýnis. Gestum býðst
að bragða te úr bollunum sem blandað er
úr fjórum íslenskum jurtategundum af Þóru
Þórisdóttur. Þá verða kaffibollar og mál
Auðar Ingu til sýnis á Súfistanum í Iðu við
Lækjargötu um helgina.
Skemmtilegir
tískuviðburðir
Helgin er spennandi fyrir þá sem
fylgjast grannt með tísku og hönnun.
HönnunarMars er fjögurra daga hátíð
sem er nú haldin í þriðja sinn og er
dagskráin ekki af verri endanum. Hér
eru hápunktar dagskrárinnar fyrir þá
sem fylgjast með tísku.
Sruli storkar þyngdarlögmálinu
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsi, hýsir sýningu fatahönnuðar-
ins Sruli Recht, When Gravity Fails. Sýningin er hans fyrsta á
karlmannsfötum og þetta er umfangsmesta lína sinnar teg-
undar sem hefur verið unnin í íslensku hönnunarstúdíói. Notast
verður við villt íslensk hráefni á borð við hreindýrs- og hrosshúð
og þorskroð og mokkaskinn. Línan endurspeglar þær séríslensku
hindranir sem fylgja hönnun og framleiðslu hér á landi. Sýningin
var opnuð á fimmtudag og er opin til enda dagskrárinnar.
Mundi í kanínuholu
Mundi sýnir fyrstu stuttmynd sína Rabbit Hole í
Tjarnarbíói á föstudagskvöld. Myndin hefur nú þegar
verið sýnd á nokkrum kvikmyndahátíðum víða um heim
og fengið mjög góða dóma. Fyrir sýninguna býður Mundi
upp á veitingar og sýnir flíkur úr sumarlínu sinni 2011.
Tveir rómantíkerar saman
Fatahönnunarfyrirtækin Andersen og Lauth og Farmers Market
munu, í samstarfi við kvikmyndagerðar– og tónlistarmenn, standa að
viðburði á HönnunarMars í porti Listasafns Reykjavíkur, Hafnarhúsi, á
föstudagskvöld klukkan 20.30. Hugmyndin er að búa til litla ástarsögu
úr Reykjavík og undir hana verður spiluð tónlist sem á að ylja gestum
um hjartarætur. Þetta er í fyrsta sinn sem þessar tvær rómantísku línur
vinna saman og þess má vænta að afraksturinn verði afar áhugaverður.
Sýning fata-
hönnunar-
nema LHÍ
Nemendur á 1. og 2. ári í fatahönnun við
Listaháskóla Íslands sýna afrakstur fimm
vikna námskeiðs þar sem þeir hönnuðu
og saumuðu tvo til fjóra alklæðnaði. Þeir
sem vilja hafa púlsinn á hæfileikaríku
fólki mega ekki missa af þessum viðburði
á föstudagskvöldi klukkan 22.00 á Nasa.
Treflaverksmiðja
Vík Prjónsdóttir opnar treflaverksmiðju á föstudag á Laugavegi 6. Þar geta
boðsgestir fylgst með framleiðslunni og keypt nýgerða trefla. Bæði hönnuðir og
starfsmenn Víkurprjóns verða á staðnum til að sinna framleiðslunni og gestir fá
innsýn í venjulegan vinnudag þessara hæfileikaríku hönnuða.
Scintilla frumsýnir nýja línu af heimilistextíl í Spark Design Space. Sýningin
verður opin allan HönnunarMars. Áherslan er á framsækna grafík og vönduð
náttúruleg efni. Scintilla-vörurnar eru hannaðar af Lindu Björg Árnadóttur.