Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Blaðsíða 38
38 | Minning Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kgk@dv.is 25.–27. mars 2011 Helgarblað
Jón Bjarman
Fyrrv. fangaprestur og síðan sjúkrahúsprestur þjóðkirkjunnar
f. 13.1. 1933 – d. 17.3. 2011
Páll Valdimar Magnússon
Fyrrv. bóndi á Vindhæli í Austur-Húnavatnssýslu
f. 4.12. 1921 – d. 12.3. 2011
Jón Bjarman fæddist á Akur-
eyri. Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri 1954
og embættisprófi í guðfræði frá Há-
skóla Íslands 1958. Þá aflaði hann
sér víðtækrar sérmenntunar á sviði
sálgæslu í Bandaríkjunum 1974 og
1983–84 er hann lauk mastersnámi
í klínískri sálgæslu.
Jón sinnti prestsþjónustu meðal
Vestur-Íslendinga í Lundar í Mani-
toba í Kanada 1958–61, var sóknar-
prestur í Laufási við Eyjafjörð 1961–
66 en flutti þá til Reykjavíkur og
var æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunn-
ar 1966–70. Hann var fangaprestur
1971–86 en var þá ráðinn sjúkrahús-
prestur þjóðkirkjunnar með starfs-
svið á Landspítalanum og gegndi
því embætti til starfsloka árið 2000.
Jón var meðal stofnenda Æsku-
lýðsfélags Akureyrarkirkju á æsku-
árum sínum. Hann sat m.a. í starfs-
háttanefnd þjóðkirkjunnar, í nefnd
um alþjóðleg nemendaskipti, var
þingforseti alþjóðlegu skiptinema-
samtakanna ICYE og kjörinn heið-
ursfélagi þeirra 1983 og var heiðurs-
félagi Prestafélags Íslands frá 1998.
Þá var Jón kjörinn af ráðherranefnd
Evrópuráðsins 1992 í eftirlitsnefnd
sem fylgist með aðbúnaði í fang-
elsum aðildarríkjanna með það að
markmiði að koma í veg fyrir pynd-
ingar og ómannúðlega meðferð
á föngum. Þeim nefndarstörfum
gegndi hann í átta ár.
Jón stundaði ritstörf frá unga aldri.
Meðal bóka hans er „Af föngum og
frjálsum mönnum. Endurminning-
ar sérþjónustuprests“, tvö smásagna-
söfn, fimm ljóðabækur, hugleiðing-
ar og þýðingar, m.a. úr færeysku.
Fjölskylda
Jón kvæntist 26.6. 1954 Hönnu (Jó-
hönnu Katrínu) Pálsdóttur, f. 10.2.
1933, á Skinnastað í Öxarfirði.
Börn Jóns og Hönnu eru Páll, f.
19.6. 1957, sjávarútvegsfræðingur;
Anna Pála, f. 4.10. 1957, matvæla-
fræðingur en eiginmaður hennar er
Páll Loftsson, f. 15.11. 1959, líffræð-
ingur og eru börn þeirra Jóhanna
Katrín, f. 6.2. 1984, viðskiptafræð-
ingur en unnusti hennar er Jón Karl
Stefánsson, f. 19.6. 1981, bakara-
meistari, Jón Bragi, f. 16.11. 1988,
háskólanemi en unnusta hans er
Helga Jónsdóttir, f. 15.10. 1988, há-
skólanemi, og Leifur, f. 13.11. 1996,
nemi.
Systkini Jóns: Björn Bjarman, f.
23.9. 1923, d. 19.4. 2005, lögfræðing-
ur og kennari í Reykjavík, var kvænt-
ur Sveinbjörgu Stefánsdóttur; Anna
Pála Sveinsdóttir, f. 20.10. 1925, hús-
móðir í Kópavogi; Ragnheiður Jens-
ína Sveinsdóttir, f. 26.5. 1927, d.
12.11. 2007, var húsmóðir á Sauðár-
króki, var gift Marteini Friðrikssyni
forstjóra; Steinunn Bjarman, f. 7.10.
1928, fyrrv. stjórnarráðsfulltrúi í við-
skiptaráðuneytinu, búsett í Kópa-
vogi, gift séra Hirti Pálssyni rit-
höfundi; Sigurlaug Sveinsdóttir, f.
27. 12. 1929, d. 27.12. 2007, var gift
Snorra Sigurðssyni skógfræðingi;
Árni Aðalsteinn Bjarman, f. 7.1.
1935, bifvélavirki á Akureyri, kvænt-
ur Karólínu Bernharðsdóttur; Guð-
björg, f. 6.7. 1936, húsmóðir á Akur-
eyri.
Foreldrar Jóns voru Sveinn
Bjarman, f. 5.6. 1890, d. 23.9. 1952,
aðalbókari hjá Kaupfélagi Eyfirð-
inga á Akureyri og k.h., Guðbjörg
Björnsdóttir Bjarman, f. 13.5. 1895,
d. 29.9. 1991, húsmóðir.
Ætt
Sveinn var sonur Árna, bankagjald-
kera á Akureyri Eiríkssonar, b. á
Skatastöðum í Austurdal Eiríksson-
ar. Móðir Árna var Hólmfríður Guð-
mundsdóttir, systir Eiríks, afa Eiríks
Hreins Finnbogasonar.
Móðir Sveins var Steinunn, systir
Eggerts, langafa Pálma Jónssonar í
Hagkaupi. Steinunn var dóttir Jóns,
pr. á Mælifelli Sveinssonar, lækn-
is og náttúrufræðings í Vík í Mýrdal
Pálssonar. Móðir Jóns var Þórunn
Bjarnadóttir, landlæknis Pálsson-
ar og Rannveigar Skúladóttur, land-
fógeta Magnússonar. Móðir Stein-
unnar var Hólmfríður Jónsdóttir, pr.
í Reykjahlíð Þorsteinssonar, ættföður
Reykjahlíðarættar.
Meðal systra Guðbjargar voru
Gunnhildur, móðir Björns Jóns-
sonar, pr. á Akranesi, Jensína, móð-
ir Ragnars Fjalars Lárussonar, pr. í
Reykjavík, og Guðrún, móðir Stef-
áns Lárussonar, pr. í Odda.
Guðbjörg er dóttir Björns, próf-
asts á Miklabæ Jónssonar, b. í
Broddanesi Magnússonar. Móð-
ir Björns var Guðbjörg Björnsdótt-
ir, b. á Stóra-Fjarðarhorni í Kolla-
firði Guðmundssonar og Sigríðar
Jónsdóttur, b. á Þórustöðum í Bitru
Guðmundssonar. Móðir Sigríðar
var Valgerður Jónsdóttir, systir Ein-
ars, langafa Ragnheiðar, móður
Snorra Hjartarsonar skálds og Torfa
Hjartar sonar tollstjóra, föður Ragn-
heiðar, fyrrv. rektors MR og Hjart-
ar, fyrrv. hæstaréttardómara. Móðir
Guðbjargar, ömmu Steinunnar, var
Guðfinna Jensdóttir, b. á Innri-Veðr-
ará í Önundarfirði Jónssonar. Móðir
Guðfinnu var Sigríður Jónatansdótt-
ir, b. á Vöðlum í Önundarfirði Jóns-
sonar og Helgu, systur Ólafs, föður
Bergs Thorbergs, landshöðingja og
langafa Einars Guðfinnssonar, út-
gerðarmanns í Bolungarvík, og Ólaf-
ar, móður Jóhannesar Nordal, föður
Guðrúnar Nordal, forstöðumanns
Stofnunar Árna Magnússonar og
Ólafar Nordal alþm. Helga var dótt-
ir Hjalta, pr. á Kirkjubóli Þorbergs-
sonar Thorbergs og Guðrúnar Ólafs-
dóttur, ættforeldra Thorbergsættar.
Útför séra Jóns Bjarman var gerð
frá Hallgrímskirkju í gær, fimmtu-
daginn, 24.3.
Páll Valdimar fæddist á Bergstöðum í
Hallárdal og ólst upp með foreldrum
sínum og systkinum á ýmsum bæjum í
Vindhælishreppi, lengst af á Bergstöð-
um, Þverá og Sæunnarstöðum í Hallár-
dal á Skagaströnd.
Páll hóf búskap með foreldrum
sínum og bræðrum á Sæunnarstöð-
um í Hallárdal og stundaði þar búskap
með þeim til 1944. Þá festi Guðmann,
bróðir hans, kaup á jörðinni Vindhæli
á Skagaströnd. Þeir bræður og foreldr-
ar þeirra fluttu að Vindhæli 1944 og þar
stunduðu þeir bræðurnir, Páll, Guð-
mann og Guðmundur, búskap til 1997,
er Magnús, bróðursonur Páls, keypti
jörðina og tók við búskapnum á Vind-
hæli.
Páll bjó, ásamt Magnúsi og fjöl-
skyldu hans, áfram að Vindhæli til
2008, er hann flutti á Heilbrigðisstofn-
unina á Blönduósi.
Páll og bræður hans lögðu stund á
sauðfjárbúskap á Vindhæli og fyrstu
árin voru þeir auk þess með þrjátíu kýr
og seldu þá mjólk til íbúa í Höfðakaup-
stað. Árið 1970 hættu þeir mjólkursölu,
fjölguðu sauðfénu en höfðu kýr ein-
ungis til heimanota.
Fjölskylda
Páll var alla tíð ókvæntur og barnlaus,
en börn Guðmanns, og konu hans,
Maríu Ólafsdóttur, voru ætíð í miklu
uppáhaldi hjá Páli. Sama má segja
um barnabörn Guðmanns þegar þau
komu til sögunnar. Öll nutu þau mikils
ástríkis af hálfu Páls, frænda síns.
Börn Guðmanns og Maríu eru Guð-
rún, Anna, Einar, Ólafur, Magnús og
Halldóra.
Systkini Páls eru Steingrímur, f.
15.6. 1908, d. 13.3. 1975, bóndi á Ey-
vindarstöðum í Blöndudal; María Kar-
ólína, f. 22.11. 1909, d. 10.2. 2005, ljós-
móðir á Sauðárkróki, síðast búsett í
Hafnarfirði; Sigurður, f. 4.12. 1910, d.
16.12. 1997, verkstjóri, lengst af hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðárkróki;
Guðmann Einar, f. 9.12. 1913, d. 22.11.
2000, bóndi á Vindhæli; Guðmundur
Bergmann, f. 24.7. 1919, d. 3.1. 2010,
bóndi á Vindhæli.
Foreldrar Páls voru Magnús Stein-
grímsson, f. 3.4. 1881, d. 25.7. 1951,
frá Njálsstöðum á Skagaströnd, bóndi
á Bergsstöðum og víðar, og k. h., Guð-
rún Einarsdóttir, f. 10.8. 1877, d. 17.10.
1971, húsfreyja.
Ætt
Meðal systkina Magnúsar voru Páll,
ritstjóri Vísis, Páll, b. á Njálsstöðum á
Skagaströnd, og Friðrika, húsmóðir á
Kagaðarhóli á Ásum.
Magnús var sonur Steingríms, b.
á Njálsstöðum á Skagaströnd, bróð-
ur Þorgríms, afa Önnu Sigurðardóttur,
forstöðumanns Kvennasögusafnsins,
og Valborgar, fyrrv. skólastjóra Fóstur-
skólans, móður Sigríðar Snævars
sendiherra, Sigurðar Snævars borgar-
hagfræðings, Stefáns Snævars heim-
spekings og Árna Snævars, fyrrv. frétta-
manns. Annar bróðir Steingríms var
Davíð, afi Brynleifs Steingrímssonar,
læknis á Selfossi, og langafi Davíðs
Oddssonar, ritstjóra Morgunblaðsins.
Steingrímur var sonur Jónatans, b. á
Marðarnúpi í Vatnsdal Davíðssonar, b.
í Hvarfi í Víðidal Davíðssonar, hrepp-
stjóra á Spákonufelli á Skagaströnd
Guðmundssonar. Móðir Jónatans var
Ragnheiður Friðriksdóttir, pr. á Breiða-
bólstað í Vesturhópi Þórarinssonar,
sýslumanns á Grund og ættföður Thor-
arensenættar Jónssonar. Móðir Frið-
riks var Sigríður Stefánsdóttir, móðir
Jóns Espólín sagnaritara og systir Ólafs,
stiftamtmanns í Viðey, ættföður Steph-
ensenættar. Móðir Ragnheiðar var
Hólmfríður Jónsdóttir, varalögmanns í
Víðidalstungu Ólafssonar, lögsagnara á
Eyri og ættföður Eyrarættar Jónssonar.
Móðir Hólmfríðar var Þorbjörg Bjarna-
dóttir, sýslumanns á Þingeyrum Hall-
dórssonar, og Hólmfríðar Pálsdóttur,
lögmanns í Víðidalstungu Vídalín.
Móðir Magnúsar var Anna Guð-
rún, dóttir Carls Friðriks Schram, b.
á Kornsá í Vatnsdal Christianssonar
Schram, verslunarstjóra í Höfðakaup-
stað, ættföður Schramættar. Móð-
ir Önnu var Margrét Stefánsdóttir, frá
Hofi í Vatnsdal, amma Árna Pálssonar
prófessors.
Meðal systkina Guðrúnar voru
Gísli, sjómaður á Skagaströnd, og Sig-
þrúður, húsmóðir á Skagaströnd.
Guðrún var dóttir Einars, b. á Haf-
urstaðakoti í Vindhælishreppi Gísla-
sonar, b. í Köldukinn á Ásum Jóns-
sonar, b. á Höllustöðum í Blöndudal
Halldórssonar, frá Fossum í Svartárdal,
af Harðabóndaætt.
Móðir Guðrúnar var María Guð-
mundsdóttir, systir Guðmundar á
Torfalæk, föður Páls Kolka læknis og
Elínborgar á Kringlu í Torfalækjar-
hreppi, móður Guðrúnar Teitsdóttur,
ljósmóður á Skagaströnd. Móðir Maríu
var Guðrún Guðmundsdóttir, smiðs
á Síðu í Víðidal Guðmundssonar, og
Guðrúnar Sigfúsdóttur Bergmann, b.
og hreppstjóra á Þorkelshóli í Víðidal
Sigfússonar, ættföður Bergmannsætt-
arinnar.
Útför Páls fór fram frá Hólanes-
kirkju á Skagaströnd sl. mánudag.