Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Blaðsíða 64
Hirðum 37.
sætið!
Eiríkur kominn
með vinnu
n Eiríkur Jónsson, sjálftitlaður
blaðamaður án hliðstæðu, hefur
verið ráðinn sem ritstjórnarfulltrúi
á nýjum karlavef sem heitir menn.
is Í tilkynningu á vefnum er haft eftir
Eiríki að hann og aðrir starfsmenn
vefjarins stefni á landvinninga á
vefnum þar sem allur heimurinn sé
undir en Ísland í forgrunni. Eiríkur
hefur verið án atvinnu síðan hann var
rekinn sem ritstjóri tímaritsins Séð &
heyrt fyrir nokkrum
mánuðum. Útgefandi
vefjarins er Vef-
pressan sem gefur út
fjölda annarra vefja
með Björn Inga
Hrafnsson í
brúnni.
Bubbi skammar
Jóhönnu
n Tónlistarmaðurinn og þjóðfélags-
rýnirinn lætur Jóhönnu Sigurðar-
dóttur og Steingrím J. Sigfússon fá
það óþvegið í nýjum bloggpistli.
Bubbi sem lætur sér fátt mannlegt
óviðkomandi, segir þau tvö vera
„aumkunarverð“ og „gott dæmi um
gamla skóla stjórnmálamanna.“
Ástæðan fyrir pirringi Bubba
er hvernig Jóhanna hefur varið sig
eftir að hafa brotið jafnréttislög og
hvernig Steingrímur J.
lét eins og allt væri
í lagi í tengslum
við Árbót. „Við
skiljum allt mjög
vel syngja þau,“
skrifar Bubbi en
bætir því svo við að
eina sem þau skilja
ekki sé sú einfalda
staðreynd að
leikurinn sé á
enda runninn.
Markvarðastríð
á Kýpur
n Algjört Twitter-æði hefur gripið um
sig í fótboltasamfélaginu á Íslandi en
þangað hrannast nú inn knattspyrnu-
menn og spekingar til að tjá sig um
boltann. Sá sem lengst er kominn er
sparkspekingurinn Hjörvar Hafliða-
son en hann á langflesta fylgjendur
og hefur breytt Twitter-síðu sinni
að einhverju leyti í litla fréttastofu.
Íslenska landsliðið er á Kýpur þar
sem það á leik í undankeppni EM á
laugardaginn en Hjörvar greindi frá
því í vikunni að Gunnleifur Gunn-
leifsson og Stefán Logi Magnússon
slægjust um markvarðar-
stöðuna í liðinu. Líkti
hann því stríði við
samskipti Kahns og
Lehmans í Þýska-
landi á árum áður
en bætti þó við:
„Stebbi og Gulli eru
þó mun þroskaðri
en Lehm-
an og
Kahn.“
„Já, þú segir mér fréttir. Þá er ekkert
annað gera en að lyfta því upp,“ segir
Pálmi Sigurhjartarson, einn flytjenda
íslenska Eurovision-lagsins Áfram
heim, eða Coming home eins og það
heitir á ensku. Þetta voru fyrstu við-
brögð Pálma við þeim fréttum að
helstu veðbankar heims spá íslenska
laginu ekki góðu gengi í aðalkeppninni
sem fer fram í Düsseldorf þann 14. maí
næstkomandi. Á vefsíðunni eurovisi-
onodds.co.uk eru stuðlar helstu veð-
bankanna teknir saman eftir því hvaða
þjóðir þykja sigurstranglegastar og er
íslenska lagið í 38. til 40. sæti á þeim
lista.
Pálmi segist ekki vita hve mikið
mark megi taka á slíkum veðbönkum
en að hópurinn hafi trú á öllum hliðum
verkefnisins. Aðspurður hvort fréttirn-
ar fái á hann segir Pálmi svo ekki vera.
„Það myndi fá á mig ef ég vissi að við
værum með glatað atriði,“ segir hann.
Maður hefur fengið verri fréttir en
þetta,“ bætir hann við. Hann segir það
skipta miklu máli að hópurinn sé að
fara út með góðan texta, fyrir utan lag-
ið, og telur að það eigi eftir að kveikja í
fólki hvort sem það þekki forsögu lags-
ins eða ekki. Sigurjón Brink heitinn
samdi lagið sem var flutt á íslensku í
forkeppninni í Sjónvarpinu, en eftirlif-
andi eiginkona hans, Þórunn Clausen,
samdi við það enskan texta.
Eistlendingar, Frakkar og Bretar
skipa efstu þrjú sætin samkvæmt kerf-
inu á vefsíðunni og mun ganga vel.
Eistlendingar og Frakkar fá stuðulinn
7,50 en Bretar 8. Til að gera illt verra
stærir síðan sig af því að hafa spáð efstu
fjórum sætunum rétt í fyrra.
solrun@dv.is
Pálmi Sigurhjartarson hefur fulla trú á laginu Coming home:
Hefur fengið verri fréttir
Ármúla 4 | 108 Reykjavík | 422 8000 | www.verkis.is
Öryggi og heilbrigði
Orkusparnaður
Kveiktu á erunni á réttum tíma
Viðhald
Lagnakerfi
Hljóðvist
Útboðsgögn
Eftirlit
Ástandsskýrsla
Kostnaðaráætlun
Mat á tilboðum
Gerð útboðsgagna
Yfirferð tilboðaGerð verksamninga
Reyndarteikningar
Skráningartöflur
Eignaskiptayfirlýsingar
Lýsing
Rafkerfi
Loftræsikerfi
Verkefnastjórnun
Kostnaðargát
Þarfagreiningar
Rekstrarráðgjöf
Lýsingarráðgjöf
Verkís rekur uppruna sinn allt aftur til ársins 1932
þegar fyrsti ráðgjafarverkfræðingurinn hóf
starfsemi á Íslandi. Í dag er Verkís öflugt, leiðandi
íslenskt ráðgjafar- og þekkingarfyrirtæki á
meginsviðum verkfræði og tengdra greina.
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 25.–27. MARS 2011 36. TBL. 101. ÁRG. LEIÐB. VERÐ 595 KR.
Góður texti Pálmi segir það skipta máli að hópurinn fari út með góðan texta.