Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Blaðsíða 17
Fréttir | 17Helgarblað 25.–27. mars 2011
25% afsláttur
af hvítum háglans innréttingum
Sérhæfum okkur
í innréttingum
fyrir heimili á
lágmarksverði
Siv fær 100 milljónir
– þú færð fimmtán
„Þetta er bara hans prívatmál. Ég get
ekki séð annað en að þetta sé storm-
ur í vatnsglasi. Mér finnst þetta mjög
sérstök framkoma af hálfu Hreyfing-
ar, en hef ekki rætt málið við Pálma,“
segir Árni Sigurjónsson, varaformað-
ur sóknarnefndar Bústaðakirkju, um
mál séra Pálma Matthíassonar sem
var vísað frá Hreyfingu eftir að hann
sparkaði í rassinn á kennara á stöð-
inni.
Hreyfing hrekur orð Pálma
Pálmi sendi frá sér yfirlýsingu um
málið þar sem hann sagði að þetta
hefði verið óviljaverk, hann hefði af
gáleysi sparkað út í loftið. „Ég gætti
ekki nægilega að umhverfi mínu, og
hitti með ristinni á utan- og ofan-
verðan afturhluta kennarans. Þetta
var algjört óviljaverk og enginn
ásetningur til staðar. Að sjálfsögðu
bað ég hlutaðeigandi strax velvirð-
ingar og afsökunar og tíminn hélt
áfram.“
Í kjölfarið sendi Hreyfing frá sér
yfirlýsingu þar sem orð Pálma voru
hrakin og sagt að þau væru „ekki í
nokkru samræmi við upplifun við-
komandi starfsmanns, vitna eða ann-
arra starfsmanna heilsuræktarstöðv-
arinnar.“ Þar sagði meðal annars að
ekki hafi verið að iðka sparkæfingar í
tímanum þegar Pálmi sparkaði í rass
starfsmannsins. „Starfsmaðurinn,
sem er kona, var að útskýra næstu
æfingalotu, nánar tiltekið armbeygj-
ur og spretti á staðnum þegar hann
sparkaði í hana.“ Þá var einnig tekið
fram að séra Pálmi hefði ekki beð-
ist afsökunar á framferði sínu og að
til grundvallar ákvörðuninni um að
vísa honum frá stöðinni hefði fyrri
samskiptasaga hans og þessa kenn-
ara legið.
Trúir Pálma
Árni tekur það fram að hann viti ekki
hvað gerðist, þarna sé orð á móti
orði. „Svo virðist sem þau stangist
á og ég veit ekki hvað hefur orðið til
þess, eða hvað þarf til svo mönnum
sé vísað á dyr þarna. Pálmi hefur sent
frá sér yfirlýsingu um málið og ég
geri ráð fyrir því að hann standi við
það sem hann sagði þar, án þess að
hafa rætt málið sérstaklega við hann.
Ég held að þetta sé ekkert sem breyti
hans stöðu í sókninni.“
Sjálfur treysti Pálmi sér ekki til
þess að útskýra ósamræmið í frá-
sögn sinni og Hreyfingar af málinu
og sagðist ekki vilja tjá sig frekar um
málið þegar DV óskaði eftir því en
ítrekaði þó að hann harmaði þetta.
Ekki á dagskrá sóknarnefndar
Samkvæmt sóknarnefndarmönnum
ætlar nefndin að ræða málið en Árni
sagði að það væri hvergi á dagskrá,
alla vega ekki enn sem komið er.
Ekki er búið að boða sérstakan fund
vegna málsins og formaður sóknar-
nefndar hefur ekki rætt sérstaklega
við Árna vegna málsins, en hann er
varaformaður nefndarinnar. Ekki
náðist í formann nefndarinnar.
Árni bendir á að sóknarnefndin
sé stór og þar sem hún hafi ekki rætt
þetta mál geti hann ekki talað í nafni
hennar. „Ég geri samt ekki ráð fyrir
öðru en að menn sýni honum fullan
stuðning. Við erum með reglulega
fundi og þar kemur allt mögulegt til
umræðu. Sjálfsagt kemur þetta til
umræðu eins og annað. Menn ræða
saman. Ég geri ráð fyrir því að Pálmi
geri grein fyrir sínum sjónarmiðum
og þar með verði ákveðið hvort það
þurfi að ræða það eitthvað frekar. Ég
sé ekki annað en að hann beri af sér
þær sakir sem á hann eru bornar.“
Fær fullan stuðning
Biskupsstofa telur ekki ástæðu til
þess að bregðast við, þrátt fyrir þetta
ósamræmi í frásögnum af atvikinu
og öllu sem því tengist, þar sem eng-
inn þar til bær aðili hafi vísað því
þangað.
Og Pálmi á enn stuðning sóknar-
nefndarinnar: „Ég held að allir sem
þekkja Pálma, hans sóknarbörn og
félagar í sóknarnefndinni, þekki
hann bara af góðu einu,“ segir Árni.
„Þetta er úrvalsmaður. Þannig að við
sjáum bara hvað setur. Ég held að
það sé engin ástæða til að blása mál-
ið út og geri ráð fyrir því að Pálmi hafi
fullan stuðning okkar nú, sem endra-
nær. Alla vega minn persónulega,“
segir Árni.
nýtur stuðnings
sóknarbarna
n Vísað frá Hreyfingu eftir að hann sparkaði í rass kennara n Sagði
þetta óviljaverk, spark af gáleysi n Hreyfing segir frásögn hans ekki
í neinu samræmi við upplifun starfsmanns, vitna eða annarra starfs-
manna n Varaformaður sóknarnefndar telur málið storm í vatnsglasi
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
Séra Pálmi Matthíasson Vill ekki
ræða málið frekar en segist harma þetta.