Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Page 10
10 | Fréttir 25.–27. mars 2011 Helgarblað
Bjóða upp á hollan mat:
Allur matur
unninn frá
grunni
„Okkur fannst mikilvægt að hér væri
hollur og góður matur sem væri orku-
ríkur fyrir námsorku barnanna. Við
erum ekki alveg komin þangað sem
við ætlum okkur en vonandi verður
matarmenningarstefna okkar alltaf
í þróun. Við stefnum á að vera með
hagfæði (e. slow food) í framtíðinni,“
segir Guðrún Alda Harðardóttir, leik-
skólastýra á Aðalþingi í Kópavogi. Á
Aðalþingi er ákveðin matarmenning-
arstefna sem var mótuð jafnhliða leik-
skólastarfinu. Maturinn er unninn frá
grunni á staðnum en aðkeyptir og til-
búnir réttir sjást aldrei þar á borðum.
Mikil áhersla er lögð á að maturinn sé
næringarlega vel samsettur, reynt er
að kaupa lífrænt og beint frá bónda.
Guðrún Alda segir að til dæmis sé
brauð bakað á staðnum, allir kjötkraft-
ar búnir til sem og tómatsósa. „Við
erum með lágmark af sykri og salti og
sumar vörur koma aldrei hér inn fyrir
dyr, svo sem hnetur, egg og jarðar-
ber sem geta verið ofnæmiskveikjur.
Börnin hér eru mjög hrifin af matnum
og þau þurfa ekki allan þennan sykur
og salt því það má segja að bragðlauk-
arnir þeirra séu ómengaðir. Eins eru
nýru þeirra ekki eins vel í stakk búin
og okkar að vinna úr saltinu.“
Hún segir að vel sé hægt að bjóða
upp á íslenskan heimilismat þar sem
allt sé lagað á staðnum án mikils
kostnaðar. „Það halda margir að þessi
matur sé miklu dýrari en við bara for-
gangsröðum og nýtum matinn einnig
mjög vel. Hér er mat aldrei hent en
kannski getum við nýtt hann betur því
við gerum allt frá grunni.“ Guðrúnu
segir að annað sem hafi áhrif sé að í
upphafi hafi verið tekin ákvörðun um
að tækjavæða eldhúsið mjög vel. Til
dæmis var keypt vél sem sker niður
grænmeti en hún borgaði sig upp á
hálfu ári. Mikilvægt sé að hafa fagfólk
í eldhúsinu en hjá henni er gert ráð
fyrir 1,75 stöðugildi með 150 manns
í mat. „Rekstarkostnaður hjá okkur
er ekki meiri en í öðrum skólum, svo
þetta er vel hægt,“ segir hún að lokum.
gunnhildur@dv.is
„Þeir hjá Eimskip segja mér að á
meðan gámurinn sé ekki á mínu
nafni þá geti þeir ekkert gert. En
þeir geta það nú bara víst. Þeir
hefðu getað verið búnir fyrir lif-
andis löngu að vinna í þessu máli,“
segir Ester Gísladóttir sem undan-
farin fimm ár hefur barist fyrir því
að fá hluti úr gámi sem stendur við
Sundahöfn. Gámurinn er á nafni
fyrverandi kærasta Esterar, Harðar
Sigurjónssonar. Hörður er fyrrver-
andi rannsóknarlögreglumaður í
lögreglunni í Reykjavík en situr nú í
fangelsi í Argentínu fyrir fíkniefna-
smygl.
Fimm ára bið
Ester og Hörður kynntust fyrir sex
árum og stuttu síðar ákvað Hörður
að fjárfesta í húsi á Spáni. Hann
bauð Ester að flytja með sér út,
sem að hún féllst á og saman settu
þau búslóðir sínar í gám sem var
síðan fluttur til Spánar. „Þegar ég
kom út sá ég að þetta myndi ekki
ganga upp hjá okkur og þar sem
húsnæðis kaupin á Spáni gengu
ekki upp var enginn staður til þess
að fara með búslóðina á. Ég lét því
senda gáminn aftur til Íslands og
þar hefur hann staðið í fimm ár.“
Ester segist hafa farið margoft
að ræða við starfsfólk Eimskips
vegna málsins en fái alltaf þau svör
að ekkert sé hægt að gera þar
sem gámurinn sé ekki á hennar
nafni.
„Síðast þegar ég vissi var búið
að bjóða Herði að taka gáminn
honum að kostnaðarlausu en það
hefur ekkert gerst í því máli. Ég hef
aftur á móti engan áhuga á að taka
við gámnum og þurfa að finna og
greiða fyrir geymslu undir búslóð-
ina hans Harðar. Ég er löngu búin
að afskrifa þennan mann úr lífi
mínu. Ég vil bara fá dótið mitt til
baka.“
Ester er orðin langþreytt á þess-
ari baráttu og segist alls staðar
rekast á veggi. Hörður hefur ekki
reynst samvinnufús en hann mun
sitja í fangelsi næstu árin og Ester
hefur slitið öll samskipti við hann.
„Þeir hjá Eimskip sögðu mér að ég
gæti fengið uppáskrifað hjá Herði
að ég ætti þarna hluti í gámnum og
það væri í lagi að ég fengi það. Fyr-
ir þremur árum fór ég í frí til Spán-
ar með fjölskyldunni til að halda
upp á afmæli föður míns og ákvað
að hitta Hörð í leiðinni fyrst ég var
stödd þarna í sama bæ og hann bjó
í og fá hann til að gefa mér skriflegt
leyfi. Það gekk ekki sem skyldi og
treysti ég mér ekki til að eiga í frek-
ari samskiptum við hann.“
Verða að fara eftir reglum
Í gámnum á Ester tvær saumavél-
ar og saumavélaborð, antíkskenk,
skrifborð og tölvu ásamt myndum
af börnum og barnabörnum. „Ég
á marga kassa af húsmunum, fullt
af fötum og fleira. Ég er ekki með
sófasett eða þvottavél eða því um
líkt en þetta eru mínir munir og
ég vil fá þá til baka. Það er örugg-
lega eitthvað af þessu ónýtt en ég
vil bara klára þetta og þá er þetta
úr sögunni. Ef ég hefði búið með
þessum manni hérna í bænum og
hann hefði ekki hleypt mér inn í
íbúðina til að sækja dótið mitt, þá
hefði ég getað komið með sýslu-
mann. Hver er réttur minn í að-
stæðum sem þessum?“
Matthías Matthíasson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og þjónustu-
sviðs Eimskips, segir fyrirtækið allt
af vilja gert til þess að hjálpa Est-
er. „En við höfum ekkert í hönd-
unum um tengsl hennar við þann
sem er skráður fyrir gámnum og
samkvæmt reglum megum við
ekki hleypa þriðja aðila í gáminn.
Við verðum að fara eftir lögum og
reglum í þessu eins og í öðru.“
„Vil bara fá dótið
mitt til baka“
n Fær ekki aðgang að búslóð þar sem gám-
ur er ekki á hennar nafni n Saumavélar og
myndir af börnum og barnabörnum meðal
hluta n Sá sem er skráður fyrir gámnum
situr í fangelsi í Argentínu
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
„Þegar ég kom frá
Spáni átti ég ekki
einu sinni teskeið. Ég
þurfti að byrja alveg frá
grunni.
Ósátt Ester Gísladóttir vill fá búslóð sína afhenta
úr gámi sem hefur staðið í Sundahöfn í fimm ár.
Hörður
Sigurjónsson
Hörður sem er á sjötugsaldri var hand-
tekinn í október 2009 á alþjóðaflugvell-
inum í Buenos Aires í Argentínu. Í fórum
hans fundust fimm kíló af kókaíni og var
hann í kjölfarið úrskurðaður í gæslu-
varðhald. Hörður hefur verið búsettur
á Spáni undanfarin ár en áður starfaði
hann sem rannsóknarlögreglumaður hjá
lögreglunni í Reykjavík og hjá embætti
ríkislögreglustjóra.
Hörður var ráðinn til embættis ríkislö-
reglustjóra árið 1997, þá til fimm ára, en
tveimur árum síðar var ákveðið að flytja
hann aftur til lögreglunnar í Reykjavík.
Hann stefndi íslenska ríkinu vegna
flutningsins en tapaði því máli, á báðum
dómstigum, en Hæstiréttur dæmdi
honum í óhag í september 2002. Hörður
flutti þá til Spánar og hefur verið þar
flestum stundum síðan.
Gámur Í fimm ár hefur hún reynt að fá
eigur sínar úr gámi, en án árangurs.
Beraði kynfæri
sín fyrir framan
skólastúlkur
Ungur maður beraði kynfæri sín og
fróaði sér fyrir framan þrjár stúlkur
úr tíunda bekk Engjaskóla á þriðju-
dagsmorgun. Stúlkurnar voru á leið
heim úr skólanum en maðurinn
hvarf á brott þegar ein stúlkan greip
til farsíma síns.
Fréttablaðið greinir frá því að
skólayfirvöld hafi sent forráða-
mönnum barna í skólanum við-
vörun vegna málsins. „Við höfum
komið málinu til lögreglu en biðjum
ykkur um að ræða við börn ykkar
um að hafa varann á í hvívetna og
láta vita strax ef þau verða einhvers
vör,“ sagði í skeytinu sem sent var
foreldrum.
MYND ÚR SAFNI